Þjóðviljinn - 09.08.1972, Qupperneq 9
Miðvikudagur 9. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9.
bá tökum við aftur til við get-
raunaspádóminn eftir tveggja
mánaða hlé. Þótt maður
reyndist ekki mikill spámaður
s.l. vetur og vor meöan enska
deildarkeppnin stóð sem hæst,
þá var þó alltaf eitthvað
til að styðjast við og rök
styöja spádóminn, þótt sá
rökstuðningur reyndist ekki
alltaf haldgóður. Óvæntu úr-
slitin sáu fyrir þvi. En nú þegar
deildarkeppnin byrjar aftur,
eftir sumarfri leikmanna og
endurskipulagningu flestra liö-
anna, þá er hreint ekki neitt til
að styðjast við til aö byrja með.
Ekki þýðir, eða a.m.k. mjög
litið, að fara eftir þvi hvernig
liðunum gekk á siðasta keppnis-
timabili. Bæði er það að nýjar
stjörnur koma fram hjá
liðunum og leikmenn eru seldir
milli liða og siðast en ekki sizt á
sér stað endurskipulagning á
liðunum, sem ekki kemur fram
fyrr en liöa tekur nokkuð á
keppnina. Sterk lið frá i fyrra
verða að miðlungsliðum og þau
sem þóttu heldur slök i fyrra
komast kannski á toppinn i ár.
Þannig hefur þetta alltaf verið.
En við skulum samt reyna við
þennan fyrsta seðil keppnis-
timabilsins og sjá hvernig fer.
Birmingham — Sheff. Utd 2
Birmingham kom upp úr 2.
deild i vor og mætir þarna einu
af sterku liðunum frá i fyrra. t
þeim æfingaleikjum sem fram
hafa farið að undanförnu hefur
Sheffield-liðið komið mjög
sterkt út rétt eins og i byrjun
keppnistimabilsins i fyrra svo
að við látum slag standa og
spáum þvi sigri þótt á útivelli
sé.
Chelsea — Leeds 2
Aftur spáum við útisigri enda
segja fróðir menn að Leeds-liðið
hafi aldrei verið jafn vel undir-
búið fyrir deildarkeppnina og nú
og er þá mikið sagt um þetta
frábæra lið.
Leicester — Arsenal 2
Og enn spáum við útisigri.
Það er erfitt að rökstyðja þessa
spá nokkuð að marki, en þó má
segja að Arsenal sé alltaf
Arsenal og það hefur ekkert það
gerzt, sem bendir til að það
GETRAUNA-
verði ekki áfram með eitt af
beztu liðum deildarinnar eins og
undanfarin ár.
Liverpool — Man. City X
Þarna mætast tvö af topplið-
unum. Þessi tvö lið hafa alltaf
undanfarin ár verið á eða viö
toppinn. Á þvi verður sjálfsagt
engin breyting nú og þótt
Liverpool sé illvinnandi á
heimavelli ætla ég að spá jafn-
tefli i þessum leik.
Man. Utd. — Ipswich 1
Loks kemur heimasigur og ég
hygg að flestir séu þessari spá
sammála. Manchester Utd.
byrjaði keppnistimabilið i fyrra
fádæma vel en svo eyðilagði
mórallinn i liðinu allt gengi liðs-
ins er á leiö. Ótrúlegt er að slikt
endurtaki sig og þá verður
Man.Utd. eitt af sterkustu liðum
deildarinnar.
Ncwcastle — Wolves X
Hér er erftitt að spá um úrslit.
Það má segja að heimasigur
komi allt eins til greina, en ætli
við látum ekki exið standa þrátt
fyrir það.
Norwich — Everton 1
Norwich kom uppúr 2. deild i
fyrra og var þá með eitt af beztu
liðunum i Englandi. Oft byrja
liðin sem koma uppi 1. deild
afar vel og ég spái þvi að svo
verði með Norwich og þess
vegna spái ég þvi sigri á heima-
velli.
Southampton — Derby 2
Viö hljótum að spá Englands-
meisturunum sigri i fyrsta
leiknum, þótt titillinn sé enginn
trygging fyrir gengi liðsins i
vetur.
Stoke — C.Palace 1
Stoke stendur alltaf fyrir sinu
og ekki sizt á heimavelli og þvi
spáum við þvi hiklaust sigri i
fyrsta leiknum.
Tottenham — Coventry 1
Einhver óánægja kom upp i
sumar hjá leikmönnum Totten-
ham, en eftir gengi þeirra i
æfingaleikjunum að dæma að
undanförnu, virðist hún hafa
hjaönað. Það ætti þvi að vera
óhætt að spá „dýrasta” liði
Englands sigri á heimavelli
gegn Coventry.
WBA — West Ham X
Hér getur allt gerzt. En þótt
maður áliti West Ham sterkara
lið, þá ætti heimavöllurinn að
duga WBA til jafnteflis að
minnsta kosti.
Iluddersfieid — Blackpool 1
Hér erum við komin i 2. deild
og það er liðið sem féll niður i
fyrra, sem á þarna heimaleik og
við spáum þvi hiklaust sigri.
Hér er sem sé spáin fyrir
fyrsta seðilinn og við skulum
vona að þótt hún sé ekki byggð á
sterkum rökum, þá standist hún
ekki verr en þegar maður þykist
hafa hvaö bezt rök fyrir sinu
máli.
S.dór
r
18 ára Islands-
meistari í golfi
Eftir 10 ára hlé, varð Reykvíkingur íslands-
meistari i golfi er hinn 18 ára gamli kylfingur Loftur
Ólafsson varð íslandsmeistari eftir mikla keppni
við Akureyringinn Björgvin Þorsteinsson, sem er
aðeins 19 ára gamall. Einvigi þessara ungu manna
er eitt hið tvisýnasta sem nokkru sinni hefur verið
háð um íslandsmeistaratitilinn i golfi. Hinir 200
áhorfendur, sem fylgdu þeim eftir siðasta hringinn,
þar sem þeir skiptust á um að leiða i keppninni, áttu
vart orð til að lýsa þeirri spennu sem rikti þessar 18
siðustu holur keppninnar. Á endasprettinum
reyndist svo Loftur sterkari og sigraði með glæsi-
brag og kom sieur hans i mótinu nokkuð á óvart.
frá i fyrra 'hafði 228 og það var
Eyrir siðustu umferðina (18
holur) var staðan þannig að
Loftur hafði 224 högg, en Björgvin
Þorsteinsson, Islandsmeistarinn
ljóst fyrir þennan siðasta hring að
keppnin myndi standa milli
þessara tveggja ungu manna.
Eftir aðeins 5 holur hafði Björg-
vin náð Lofti og eftir 6 hoiur var
Björgvin kominn 4 höggum ytir
Loft. Gekk svo á ýmsu næstu
holurnar en þegar 5 holur voru
eftir var Loftur aftur búinn að ná
Björgvin. Þegar svo aðeins voru
eftir tvær holur voru þeir renn
jafnir. A 17. holu náði Loftur mjög
góðu höggi og sló boltann alveg
innað stöng á grininu og fór þessa
holu á 3 höggum en Björgvin á 4.
Þar með var Loftur kominn eitt
högg yfir.
Það var þvi ljóst að siöasta
holan myndi skera úr um hvor
þeirra yrði Islandsmeistari.
Báðir slógu illa að 18. holunni.
Loftur hitti ekki grínið og Björg-
vin sló langt til hliðar við það. En
svo fór, að Loftur fór 18. holuna á
4 höggum, en Björgvin fór hana á
5 höggum. Þar með hafði Loftur
Ólafsson unnið keppnina mef
samtals 302 höggum en Björgvin
fór á 304 höggum.
Sigur Lofts kom nokkuð á
óvart. Búizt var við að einhver
hinna sterku kylfinga úr GR svo
Lokastaðan í Englandi
1. deild:
Derby 42 24 10 8 69-33 58
Leeds 42 24 9 9 73-31 57
Liverp. 42 24 9 9 64-30 57
Man.City 42 23 11 8 77-45 57
Arsenal 42 22 8 12 58-40 52
Spurs 42 19 13 10 53-42 51
Chelsea 42 18 12 12 58-49 48
Man. Utd. 42 19 10 13 69-61 48
Wolves 42 18 11 12 65-67 47
Sheff.Utd. 42 17 12 13 61-50 46
Newcastle 42 15 11 16 49-52 41
Leichester 42 13 13 16 41-46 39
Ipswich 42 11 16 15 39-53 38
West. Ham 42 14 14 18 47-51 36
Everton 42 9 18 15 37-48 36
W.B.A. 42 12 11 19 42-54 35
Coventry 42 9 15 18 44-67 33
Southampt. 42 12 7 23 52-80 31
C. Palace 42 8 13 21 39-65 29
Nottm. For. 42 8 9 25 47-81 25
Huddersf. 42 6 13 23 27-59 25
Notth. F. og Hudderf. falla niður i
II. deild.
Birmingh. 42 19 18 5 60-31 56
Millwall 42 19 17 6 64-46 55
Q.P.R. 42 20 14 8 57- 28 54
Sunderl. 42 17 16 9 67-57 50
Blackp. 42 20 7 15 70-50 47
Burnley 42 20 6 16 70-55 46
Bristol C. 42 18 10 14 61-49 46
Middl.bro 42 19 8 15 50-48 46
Carlisle 42 17 9 16 ,61-57 43
Swirdon 42 15 12 15' 47-47 42
Hull 42 14 10 18 49-53 38
Luton 42 10 18 14 43-48 38
Sheff.Wed. 42 13 12 17 51-58 38
Oxford 42 12 14 16 43-55 38
Portsm. 42 12 13 17 59-68 37
Orient 42 14 9 15 50-61 37
Preston 42 12 12 18 52-58 36
Cardiff 42 10 14 18 56-69 34
Fulham 42 12 10 20 45-68 34
Charlton 42 12 9 21 55-77 33
Watford 42 5 9 28 24-75 19
Aston V. 46 32 6 8 85-32 70
Brighton 46 27 11 8 82-47 65
sem Einar Guðnason eða Óttar
Ingvason ynnu keppnina, þar
sem keppt var á þeirra heima-
velli. En Loftur lét engan bilbug á
sér finna og lék allan timann af
öryggi og það gerði Akureyring-
urinn Björgvin Þorsteinsson líka
og sannaði að sigur hans á mótinu
i fyrra var engin tilviljun, þótt
hann léki þá á heimavelli. Röð 10
efstu manna í mfl. varð þessi:
Islm. Loftur Ólafsson NK 302
högg
2. Björgvin Þorsteinsson GA 304
3. Óskar Sæmundsson GR 318
4. Jóhann Benediktsson GS 319
5. Óttar Ingvason GR 320
6. Jóhann Ó Guömundsson GR 320
7. Gunnlaugur Ragnarsson GR
321
8. Jóhann Eyjólfsson GR 321
9. Thomas Holban NK 323
10. Einar Guönason GR 327 högg.
Norwich og Birmingham
flytjast upp i I. deild. Charlton og Watford
falla niður i III. deild.
II. deild: Aston V. og Brighton
Norwich 42 21 15 6 60-36 57 flytjast upp i II. deild.
1. flokkur. 40 keppendur.
1. Ómar Kristjánsson GR 330
2. Pétur Auöunsson GR 350
3. Jónatan Ólafsson NK 350
4. Kári Elíasson GR 351
5. Gisli Sigurðsson GK 351
2. fl. 32 keppcndur
1. Sigurjón Hallbjörnsson GR 372
högg. (Þess má geta að Sigurjón
er 56 ára gamall og hefur tekið
þátt i 26 Islandsmótum i golfi.
Mun enginn hafa tekið þátt i fleiri
Islandsmótum en hann i nokkurri
iþróttagrein.)
2. Henning A. Bjarnason GK 376
3. Bergur Guðnason GR (og Val)
378
3. fl. 20 kcppendur
1. Jón Carlsson GR 383
2. Samúel Jónsson GK 386 högg
3. Sigurður Þ. Guðmundsson NK
389
Loftur Ólafsson tslandsmeistari
Breiðablik—ÍA í kvöld
1 kvöld heldur 1. deildarkeppnin
áfram eftir langt hlé og er þá
settur á einn leikur. (Niðurröðunin
frábæra hjá mótanefnd KSt lætur
ekki að sér hæða og kemur það
þó enn betur i ljós um næstu
helgi.)
Leikurinn i kvöld er á milli
Breiöabliks og Skagamanna og
fer fram á Melavellinum, heima-
velli Kópavogsliðsins. Jafnvel
þótt Skagamenn séu nú á
toppnum og aö þeim sé spáð sigri
i deildinni i ár, þá verður þetta
þeim erfiöur leikur. I fyrsta lagi
eru Skagamenn alltaf veikari á
mölinni en á grasinu, alveg þver-
öfugt við Blikana, sem aldrei
njóta sin betur en á Melavell-
inum.
Það er þvi vist að þetta verður
jafn og skemmtilegur leikur, eins
og hver einasti leikur héðan af i
deildinni, þvi að hvert stig er
orðiö dýrmætt i baráttunni um
sigur eða fall. Leikurinn i kvöld
hefst kl. 20. g dór