Þjóðviljinn - 09.08.1972, Qupperneq 12
' ^ 'JJJULLhJiÁ
Miövikudagur 9. ágúst 1972
Kvöldvarzla lyfjabúöa vikuna
29. júli til 4. ágúst er i Lyfja-
búðinni Iðunni og Garðs
Apóteki. Næturvarzla er i Stór-
holti 1.
Almennar uppiýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavfkur,
simi 18888.
NIXON MAGNAR ENN STYRJÖLDINA:
MESTU LOFTÁRÁSIR
SÍÐUSTU MÁNAÐA
SAIGON 8/8. Bandarikjastjórn hefur nú enn
magnað hernaðinn í Indókina, með þvi að láta B-52
risasprengjuþotur hefja heiftarlegar loftárásir á
Norður Vietnam, hinar umfangsmestu sem gerðar
liala verið á siðustu tveimur mánuðum.
l$-52 rÍKaspreiigjuþolur
etnain. Með árásunum i ;
glæpaeðli silt i verki.
rpa farmi sinum á stiflugarða i Norður-Vi-
r liefur Nixon-stjórnin rétt cinu sinni sýnt
Talsmaður bandarísku
herstjórnarinnar i Saigon
skýrði frá þvi í dag, að
spreng juþoturnar, sem
fljúga frá bækistöðvum í
Thailandi og á eynni Gu-
am, hefðu varpað mörg
hundruð lestum sprengja á
nágrenni hafnarborgarinn-
ar Dong Hoi, en hún er
skammt norðan hlutlausa
beltisins, sem skilur Víet-
nam í tvö riki. Þá vörpuðu
bandariskar þotur ógrynni
Vilja banna
Rhódesíumönn-
um þátttöku
I50NN 8/8. Vestur-þýzka stjórn-
in helur enn á ný beint þeim til-
mælum til alþjóðlegu Ólympiu-
nefndarinnar, að hún útiloki
Rhodesiu Irá leikunum i
MUnehen.
af sprengjum á svæðið
vestan Hue, þar sem talið
er að fjölmennar sveitir
Þjóðfrelsisherjanna haldi
sig, sem og á skriðdreka-
herdeild, sem sögð var á
leið til fylkishöfuðborgar-
innar Quang Tri.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
IRLAND:
500 FALLNIR
BELFAST 8/8. Tala fallinna i
átökunum á Noröur-trlandi sté
upp i fimm hundruð i gærkveldi,
er fertugur heimavarnarliðs-
maður tættist sundur i kúlnaregni
leyniskyttu, skammt frá landa-
mærum Irska lýðveldisins. Hinn
myrti, Creighton að nafni, var
riðilsstjóri i deiid heimavarnar-
liðsins i borginni Newton og var
nýkominn úr eftirlitsferð er at-
burðurinn varð. Lögreglan telur
tilræðismanninn hafa staðið bak
við runnaþykkni og skotið af
fimmtán metra færi.
Fjórum mönnum öðrum var
banað i gær á Norður-trlandi.
Tveir brezkir hermenn týndu lifi
er bifreið þeirra ók á jarð-
sprengju og sautján ára piltur
fannst skotinn til bana i einu
kaþólsku hverfanna i Belfast. Sá
fjórði, brezkur hermaður, beið
bana er unglingar köstuðu múr-
steini inn um framrúðu bifreiðar
hans, með þeim afleiðingum að
hann missti vald á henni.
Enn djarfar ekki fyrir lausn hafnarverkfallsins
Matvælabirgðir
senn á þrotum
Brezka stjórnin á milli steins og sleggju
LONDON 8/8.
Hafnarverkamenn í Lond-
on féllust í dag á að skipa
upp fimmtán nashyrn-
ingum, upprunnum úr
Austur Afriku.
Undanþágan var einungis
veitt sakir góðvildar i garð
dýranna, en ekki atvinnu-
veitenda, því að verkfallið
heldurenn áfram, og lausn
þess virðist ekki á næsta
leiti.
Enn sem komiö er hafa ibúar
Bretlandseyja nóg að býta og
brenna, en fulltrúar land-
búnaðarráðuneytisins létu þó á
hyggjur i ljós i gær vegna þverr-
andi matvælabirgöa og kváðu
fjöldasiátrun búfjár standa fyrir
dyrum, ef ekki rættist úr ástand-
inu á næstunni.
Brezka stjórnin er nú milli
steins og sleggju, hvað verkfallið
varðar. Ef hún lætur dragast úr
hömlu að beita lögunum um
neyðarástand, kann svo að fara
að alvarlegur matvælaskortur
verði i Bretlandi; en ef hún á hinn
boginn lætur herflokka skipa upp
vörum, eykur hún enn á gremju
hafnarverkamanna og torveldar
þar með að samningar takist i
vinnudeilunni. Fulltrúar deiluað-
ila halda viðræðum sinum áfram
og i dag skoraði nefnd þeirra á
flutningafyrirtækin að ráða fleiri
menn til starfa, en tækniþróun
flutningaiðnaðarins hefur leitt til
viðtækra uppsagna og vaxandi
atvinnuleysis verkamanna. Við-
brögð eigenda flutningalyrirtækj-
anna hafa þó verið neikvæð fram
til þessa.
Matvadaskorts er nú farið að
g;rta á Hjaltlandseyjum, en
eyjarskeggjar, sem eru um 17
þúsund talsins,' fá flestar lifs-
nauðsynjar sinar frá meginland-
inu. Fylkisstjóri eyjanna, Ian
C’lark, skýrði frá þvi i gærkveldi,
að aðeins væru til eins sólar-
hrings birgðir af grænmeti og
nauta- og svinakjöti og að aörar
tegundir matvæla myndu ganga
til þurrðar á næstu dögum. Svip-
aða sögu er að segja frá Orkn-
eyjum og Suðureyjum, en þar búa
um 20 þúsundir manns.
Bent Larsen í Ekstrabladet
LOKSINS HINN
RÉTTISPASSKÍ
Danski stórmeistarinn Bent
Larsen skrifar um heimsmeist-
arakeppnina fyrir EKSTRA
BLADET i Danmörku. Hann
segir m.a. um 11. skákina:
11. skákin er eins og krafta-
verk. Spasski, sem hefur leikið
furðu óöruggt i siðustu skákum,
vaknaði eins og af dvala og
sýndi afburða tafimennsku. . . .
Fischer hefði eiginlega átt að
gefast upp i 24. leik, en lék sjö
leiki til viðbótar, enda þótt hann
fengi aðeins mann fyrir drottn-
ingu. Þegar hann um siðir gafst
upp, gerðist það á þann hátt að
hann skrifaði „resigns” á skák-
blaðið meðan Spasski var ekki á
sviðinu. bvi næst rauk hann út,
var ekkert að hafa fyrir þvi að
biða og taka i höndina á and-
stæðingnum, hvað þá klappa
eins og Spasski gerði eftir eina
vinningsskákFischers. Það eru
m.a. slikir hlutir sem hafa gert
það að verkum að dregið hefur
úr hylli Fischers er hann naut á
tslandi áöur en einvigið byrjaði.
Þvi er haldið fram með vissu að
Henry Kissinger hafi beðið
Fischer að haga sér eins og
herramanni sæmir. tslendingar
hafa i hyggju að segja bráðlega
upp Keflavikursamningnum, og
einvigið er svo mikill atburður
hér, að svo getur farið aö það
hafi áhrif á endanlega afstöðu i
þessu erfiða pólitiska máli.
Þegar einn af lögfræðingum
Fischers hegðar sér illa, eða ef
Fischer gleymir aö gefast upp á
verðugan hátt fær það enn
nokkra íslendinga til að hugsa
„Yankee go home”.
Kissinger þyrfti að hringja
enn einu sinni enn til Bobby.
Heimsmeistarinn er næs,tum of
róiegur. Ég spurði að þvi á hó-
telinu hvernig Spasski hefði litið
út þegar hann kom til baka. —
Spasski leit út eins og venju-
lega, þaö sjást aldrei nein svip-
brigði á honum, sagði stúlkan i
móttökunni.
Siðan lýsir Larsen skákinni lið
fyrir liö og segir siðan i lokin:
,, . . . Skyndilega er einvigið
afturorðiö spennandi. Ég sé eft-
ir þvi að hafa lýst þvi yfir fyrir
þremur dögum að Spasski ætti
enga möguleika lengur. En
hvernig stendur á þvi að hann
teflir svo veikt i hverri skákinni
á fætur annarri, og sýnir svo
skyndilega afburða tafl-
mennsku á þeirri stundu þegar
allt virðist vonlaust?.....”
Verkalýðsfélög vestanhafs:
E/
styður
McGovern
Framboð Shrivers talið styrkja flokkinn
WASHINGTON 8/8. Ef aö
likiim lætur niun yfirgnæfandi
ineiriiiluti niiðstjórnar Dcmó-
kra taflokksins bandariska
samþykkja útiiefningu Sarg-
enl Slirivers seni varaforseta-
efnis á fundi siiuim i Wasliing-
ton i kvöld.
George McGovern fram-
bjóðandi flokksins til forseta-
embættis, tilnefndi Shriver
sem varaforsetaefni sitt að-
Sargent Slirivcr, hinn nýi
fylgifiskur McGoverns i kosn-
iiigabaráttunni, nýtur fylgis i-
lialdssaniari arms Demó-
krataflokksins og er seni slík-
ur taliiin styrkja framboö
McGoverns.
faranótt sunnudags, eftir að
ýmsir helztu forkólfar demó-
krata, þ.á.m. Edmund
Muskie, höfðu hafnað tilboði
hans um útnefningu.
Shriver nýtur viðtæks stuðn-
ings meðal ihaldssamari
flokksmanna og má telja vist
að McGovern sé styrkur að
framboði hans, auk þess sem
Shriver ,,á góða að” i fjár-
málaheiminum, sem munu ef-
laust láta eitthvað af hendi
rakna til kosningabaráttunn-
ar, en fjárskortur hefur til
þessa staðið McGovern all-
mjög fyrir þrifum.
Bandariska Alþýðusam-
bandið (AF’L/CIO) styðurekki
opinberlega frambjóðanda
demókrata, eins og annars
hefur verið venja.
Mikill meirihluti verkalýðs-
félaga styður þó McGovern,
og eru meðlimir þeirra rösk-
lega sex miljónir talsins. Þau
verkalýðsfélög er styðja Nix-
on telja aðeins um tvær og
hálfa miljón félagsmanna.