Þjóðviljinn - 22.08.1972, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 22.08.1972, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 22. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3. Fischer hefur örugga forustu - Spasski reyndi 1 rúma tuttugu leiki að vinna jafnteflisstöðu Mikill mannfjöldi fylgdist með er sextánda einvigisskákin var tefld á sunnudaginn. Svo mikil var aðsóknin að takmarka varð aðgang að skáksalnum. Greinilegt var að margt fólk hafði lagt leið sina þangað sem ekki hafði komið áður auk hinna föstu áhorfenda. Fischer sem hafði hvitt lék i fyrsta leik uppáhaldsleik sinum e4, en hann hefur aðallega leikið c4 i þessu einvigi. Spasski svaraði með e5 og upp kom spánskur leikur i annað skiptið i þessu ein- vigi. í tiundu skákinni þar sem einnig kom upp spánskur leikur var teflt hið svokallaða Breyer- afbrigði, og vann Fischer eftir miklar sviptingar. Að þessu sinni kaus Fischer að tefla svo kallað uppskiptaafbrigði, sem var mikið teflt af þeim miklu meisturum Lasker og Capablanka laust eftir aldamótin siðustu. Fischer hefur vakið þetta afbrigði til lifsins að nýju og beitti hann þvi fyrst á Olympiuskákmótinu á Kúbu 1966. Ýmsir stórmeistarar hafa siðan brugðið þvi fyrir sig. Spasski var greinilega undir þetta búinn og lék byrjunina af öryggi, en ekki tefldi hann þó byrjunina á þann veg sem Fisch- er álitur bezt fyrir svartan. Kaus hann að valda peðið á e5 i 9. leik, en Fischer álitur að betra sé að skipta fyrst upp á f3. Fischer lék i 10. leik Rbd2, i bók sinni um spánska leikinn nefnir Keres leiðina 10. Bg5-h6 11. Bh4 — Re7. 12. Rbd2—Rg6 13. Bg3—Be6 14. Rfl—0—0 og telur þá svartan standa vel. Spasski tefldi miðtaflið skemmtilega og tókst að vinna peð en við það einfaldaðist staðan mikið og Fischer sem tefldi vörn- ina mjög vel tókst að halda i horf- inu. Eftir rúma þrjátiu leiki blasti jafnteflið við, en Spasski reyndi i rúma tuttugu leiki i viðbót að vinna fræðilega jafnteflisstöðu og loks er Fischer ætlaði að fara að leika biðleik sá hann fram á til- gangsleysi þessara tilrauna og rétti Fischer hendina til merkis um að hann biði jafntefli, sem Fischer þáði að sjálfsögðu. Fischer heldur þvi áfram þriggja vinninga forustu og með hverri skák færist hann nær hin- um langþráða titli. Möguleikar Spasski fara úr þessu nánast að vera fræðilegir. Hann þarf að fá 5 1/2 vinning út úr siðustu átta skákum, en Fischer aftur á móti þarf ekki nema 3 vinninga til að fá hinn eftirsótta titil. Sautjánda skákin verður tefld i dag kl. 17 og hefur Spasski þá hvitt. Hvítt: R. Fischer Svart: B. Spassky Spánski leikurinn. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 16. EINVIGISSKÁKIN 4. Bxc6 dxc6 33. Hxa6 Hxh2 5. 0-0 f6 34. Kf3 Hd2 6. d4 Bg4 35. Ha7 + Kf6 7. dxe5 Dxdl 36. Ha6 + Ke7 8. Hxdl fxe5 37. Ha7 + Ifd7 9. Hd3 Bd6 38. Ha2 Ke6 10. Rbd2 Rf6 39. Kg2 He7 11. Rc4 Rxe4 40. Kh3 Kf6 12. Rcxe5 Bxf3 41. Ha6 + He6 13. Rxf3 0-0 42. Ha5 h6 14. Be3 b5 43. Ha2 Kf5 15. c4 Ha-b8 44. Hf2 + Kg5 16. Ha-cl bxc4 45. Hf7 g6 17. Hd4 Hf-e8 46. Hf4 h5 18. Rd2 Rxd2 47. Hf3 Hf6 19. Hxd2 He4 48. Ha3 He6 20. g3 Be5 49. Hf3 He4 21. H1-C2 Kf7 50. Ha3 Kh6 22. Kg2 Hxb2 51. Ha6 He5 23. Kf3 c3 52. Kh4 He4 + 24. Kxe4 cxd2 53. Kh3 He7 25. Hxd2 Hb5 54. Kh4 He5 26. Hc2 Bd6 55. Hb6 Kg7 27. Hxc6 Ha5 56. Hb4 Kh6 28. Bf4 Ha4 + 57. Hb6 Hel 29. Kf3 Ha3 + 58. Kh3 Hhl + 30. Ke4 Hxa2 59. Kg2 Hal 31. Bxd6 cxd6 60. Kh3 Ha4 32. Hxd6 Hxf2 1 Jafntefli. Skáksamband íslands: Eigum engan þátt í að stefna Fischer „Við eigum alls engan þátt í þessari stefnu Chesters Fox á hendur Bobby Fischer", sagði Ásgeir Friðjónsson lög- fræðingur Skáksambands islands, en eins og kunnugt er hefur Fox og lögfræð-, ingur hans stefnt Fischer fyrir samningsrof varðandi kvikmyndun einveigisins og dregið nafn Skáksam- bands islands inní þá stefnu sem meðstefnanda. Um leið og það kom fram i fréttum frá New York, að Skák- samband Islands væri viðriðið þessa stefnu, sendi sambandið frá sér yfirlýsingu um að það væri al- rangt að það ætti nokkurn þátt i þessari stefnu og að það hefði ekkert um hana vitað fyrr en það kom fram i fréttum. ,,Ég veit ekki nákvæmlega hvernig á þvi stendur að við erum innfþetta dregnir”, sagöi Ásgeir, en þá má vera að meira sé úr þessu gert en efni standa til, að þetta sé blásið upp i fréttum. Við höfðum samband við Fox og lögfræðing hans og þeir lofuðu að senda þegar út leiðréttingu á þessu máli.„Það má vera’’ sagði Ásgeir„að vegna klásúlu i samn- ingi okkar við Fox um að hann mætti undir vissum kringum- stæöum nota nafn sambandsins ef til málaferla kæmi, þá hafi þetta gerzt, en að þessu sinni átti þessi klásúla alls ekki við og við sverj- um af okkur alla þátttöku i þessu máli. —S.dór. Hattur Churchills seldur fyrir stórfé SYDNEY A uppboði sem hér var nýlega haldið var hattur sá, sem Winston Churchill hafði á höfðinu þegar hann stundaði áhugamannamyndlist á Rivier- unni, seldur á uppboði fyrir 275 dollara — en það jafngilda um 26 þúsund krónum. Var þetta verð miklu hærra en það sem fékkst fyrirhatta sem þeir Truman fyrr- um Bandaríkjaforseti, Eisen- hower, einnig forseti hér áður fyrr og Charlie Chaplin höfðu heiðrað með þvi að stinga i þá höfðum. Mannfrœðirannsóknir hafnar á Arnesingum Eins og áður hefur verið sagt frá í fréttum, stundaði Jens Pálsson mannfræð- ingur rannsóknir á Þing- eyingum í sumar, sem gárungar kölluöu loftmæl ingar, en það er önnur saga. Nú mun þessum rannsóknum á Þingeying- um hætt i bili a.m.k. Þess i stað hefur Jens snúið sér að Árnesingum og stundar þessar rannsóknir að Flúðum i Hruna- mannahreppi. Að þvi er Jens sagði i örstuttu viðtali við Þjóðviljann i gær er mikið um að vera þarna fyrir austan vegna þessa og hann önn- um kafinn frá morgni til kvölds við hverskonar mælingar á Árnesingum. —S.dór. Gullfoss siglir ekki í vetur Sjónvarpsmynd um landhelgismálið 40 eintök til 10 ríkja i siðustu viku var frumsýnd i London kvikmyndin „The Living Sea”. Þetta er sjónvarpskvik- Æskaog stjómmál Samkvæmt nýjum skoðana- könnunum virðist sænskt æsku- fólk hafa takmarkaða trú á ágæti vestræns lýðræðis. Sænska rikis- útvarpið kannaði fyrir skemmstu afstöðu ungmenna á aldrinum 16 til 25 ára til stjórnmála, og svörin einkenndust af vantrú og tor- mynd um landhelgismálið og þegar hafa verið pöntuð 40 eintök af myndinni frá sjónvarps- stöðvum um allan heim. Má nefna sjónvarpsstöðvar i eftirtöldum rikjum: Sierra Leone, Ástralia. Bretland, margar stöðvar, Trinidad og Tobago, Keny.a, Uganda Pakistan, Mauritius, Nýja Sjá- land, Sviþjóð, Noregur, Ungverjaland. Equador, Danmörk, Austur-Þýzkaland, Tékkóslóvakia, Albania, Pólland, Brasilia, Kina. Þá hafa verið send eintök af tryggni. Attatiu af hundraði að- spurð'a kváðust ekki hafa minnstu trú á að almenningur i landinu réði nokkru um stjórn þess. Sextiu og átta af hundraði töldu að forráðamenn iðnaðarins hefðu aðeins áhuga á eigin gróða, og einungis tólf af hundraði töldu að atvinnurekendur bæru þjóðar- heill fyrir brjósti. myndinni til sendiráða Islands i 10 erlendum borgum. 1 tilefni af frumsýningu myndarinnar, efndi Hannes Jóns- son, blaðafulltrúi rikisstjórnar- innar til blaðamannafundar um landhelgismálið i London á dögunum. Segir i frétt frá blaða- fulltrúanum að árangur hafi verið ágætur af fundinum. Stjórn H.f. Eimskipafélags ís- lands hefur ákveðið, aö farþega- skip félagsins, M.S. GULLFOSS, verði ekki i förum i vetur, og verður skipinu lagt á timabilinu frá miðjum október til maimán- aðar 1973. Ráðgert er, að m.s. GULLFOSS hefji aftur reglubundnar sigling- ar um 15. mai 1973 og sigli þá eins og undanfarin ár milli Reykjavik- ur og Kaupmannahafnar, með viðkomum i Skotlandi. Þó verður sú breyting gerð á ferðum skips- ins, að það mun fara þrjár ferðir i mánuði i stað tveggja áður og verða ferðir skipsins eingöngu miðaðar við farþegaflutninga og bifreiðir farþega. Vegna vöruflutninga munu hin nýju skip Eimskipafélagsins, m.s. ÍRAFOSS og m.s. MÚLA- FOSS, halda uppi vikulegum ferðum milli Reykjavikur og Kaupmannahafnar. (Fréttatilkynning)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.