Þjóðviljinn - 25.08.1972, Síða 5
Kostudagur 25. agúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5.
Sjónvarp nœstu viku
SUNNUDAGUR
27. ágúst 1972.
17.00 Endurtekiö efni. Svip-
niyndir frá ólafsvöku.
Kvikmynd sem islenzkir
sjónvarpsmenn tóku i Fær-
eyjum i fyrrasumar. Um-
sjónarmaður og þulur Tage
Ammendrup. Aður á dag-
skrá 7. ágúst siðastliðinn.
17.30 Mandala. Hljómsveitin
Trúbrot flytur frumsamin
ljóð og lög. Aður á dagskrá
9. júni siðastliðinn.
18.00 Teiknimyndir.
18.10 Chaplin.
18.30 Nikita sterki. Sovézk
teiknimynd, byggð á æva-
gamalli þjóðsögu frá þeim
tima, er rússneska rikið var
enn ekki orðið til, en borgin
Kiev, eða Kænugarður, var
höfuðborg hins svonefnda
Garðarikis. Sútari nokkur,
Nikita að nafni tekur við
hlutverki herforingja og
heldur af stað með mönnum
sinum að hefna þjóðhöfð-
ingjans, sem her aðvifandi
ójafnaðarmanna hefur lagt
að velli.
18.50 lllé.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Frá þvottakonu keisar-
ans og fleira fólki i Japan.
Gisli Gestsson, kvikmynda-
tökumaður, tók þessa mynd
fyrir Sjónvarpið, er hann
var á ferðalagi i Japan fyrr
á þessu ári.
20.45. Böl jarðar. Framhalds-
leikrit, byggt á skáldsögu
eftir Gustav Wied. 4. þáttur.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir. Efni 3. þáttar: Manu-
el fer með köttinn og hanann
til Myllubæjar, til þess að
fullvissa sig um, að þeir
komist þangað lifandi. Dag-
inn eftir vinnur hann stórfé i
happdrætti. Knagsted fær
boð um að heimsækja
konsúlinn, sem liggur fyrir
dauðanum, og segir honum
nú frá erfðaskrá sinni. Meg-
inhluti eignanna rennur til
fátækra, en Knagsted fær
einnig riflegan skerf. Þann-
ig komast Manuel og Knag-
sted báðir i efni á sama
tima. (Nordvision —
Danska sjónvarpið)
21.35 Maður er nefndur.
Kristján Aðalsteinsson,
skipstjóri. Arni Johnsen
ræðir við hann.
22.05 Frá heimsmeistaraein-
viginu i skák. Umsjónar-
maður Friðrik ólafsson.
22.25 Að kvöldi dags. Biskup
Islands, herra Sigurbjörn
Einarsson, flytur kvöldhug-
vekju.
22.35 Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR
28. ágúst 1972.
18.00 Frá Olympiuleikunum.
Fréttir og myndir frá Ólym-
piuleikunum i Mtinchen,
teknar saman af Ómari
Ragnarssyni. (Evrovision)
Hlé.
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Hver er Scan Kenny?
Brezk mynd um hönnuðinn
Sean Kenny, sem kunnur
hefur orðið fyrir hin ný-
tizkulegu verk sin. En þau
voru m.a. áberandi á
heimssýningunni i Montreol
1967. Þýðandi Jón O. Ed-
wald.
20.55 Skólahljómsveit Kópa-
vogs. Hljómsveitin leikur
nokkur bandarisk lög.
Stjórnandi Björn Guðjóns-
son.
21.05 Titanic-slysiö. Þýzk bió-
mynd frá árinu 1943, byggð
áö verulegu leyti á söguleg-
um heimildum um mesta
sjóslys, sem orðið hefur,
þegar risaskipið Titanic
fórst á Atlantshafi og með
þvi hátt á annað þúsund
manna. Leikstjóri Herbert
Selpin. Aðalhlutverk Sybille
Schmitz, Kirsten Heiberg og
Hans Nielsen. Þýðandi Ósk-
ar Ingimarsson. t april árið
1912 leggur risaskipið Titan-
ic af stað frá Southamton i
sina fyrstu og siðustu ferð.
Eigandi skipsins, skipafé-
lagið White Star, hefur var-
ið of fjár til smiðinnar og
rambar á barmi gjaldþrots.
Hlutabréfin falla stöðugt og
forstjóri félagsins hyggst
koma þvi aftur til vegs og
virðingar með nýju hraða-
meti i Atlantshafssiglingu.
Hann sinnir engu tilkynn-
ingum um rekis á hafinu, og
krefst þess, að vélarorka
skipsins sé nýtt til hins ýtr-
asta. En nóttina áður en
koma á til New York dynur
ógæfan yfir. Inn i þessa
slysasögu fléttast svo við-
burðir um borð og einkamál
Ismey forstjóra og ýmissa
farþega.
22.30 Dagskrárlok.
ÞRIDJUDAGUR
29. ágúst 1972.
18.00 Frá Olympiuleikunum.
Fréttir og myndir frá Olym-
piuleikunum i Múnchen,
teknar saman af Ómari
Ragnarssyni. (Evrovision)
Hlé.
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Ashton-fjölskyldan.
Brezkur framhaldsmynda-
flokkur. 18. þáttur. Tveggja
daga leyfi Þýðandi Jón O.
Edwald. Efni 17. þáttar:
Shefton Briggs vill breyta
prentsmiðjurekstrinum i
hlutafélagsform. Hann
heldur þvi af stað i langferð
að hitta son sinn, sem er i
höfn um tima. Þegar þang-
að kemur er pilturinn að
leggja af stað i ferðalag með
vinkonu sinni, og vill sem
minnst ræða um prent-
smiðjumálin. En Shefton
gamla lizt vel á stúlkuna og
vonar að þessi kunn-
ingsskapur geti orðið til
frambúðar.
21.25 Setið fyrir svörum. Um-
sjónarmaður Eiður Guðna-
son.
22.00 iþróttir.M.a. myndir og
fréttir frá Olympiuleikun-
um i Múnchen. Umsjónar-
maður Ömar Ragnarsson
(Evrovision)
22.50 Frá Heimsmeistaraein-
viginu i skák. Umsjónar-
maður Friðrik Ólafsson.
23.15 Dagskrárlok.
MIDVIKUDAGUR
30. ágúst 1972.
18.00 Frá Olympiuieikunum.
Fréttir og myndir frá Olym-
piuleikunum i Múnchen,
teknar saman af Ómari
Ragnarssyni. (Evrovision)
Hlé
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 TheLiving Sea.Ný kvik-
mynd, gerð að tilhlutan rik-
isstjórnarinnar i tilefni af
útfærslu landhelginnar, og
sýnd i ýmsum sjónvarps-
stöðvum viða um heim um
þessar mundir. Kvikmynd-
un Sigurður Sverrir Páls-
son. Hljóðsetning Marinó Ó-
lafsson. Þulur Magnús
Magnússon. Umsjónarmað-
ur Eiður Guðnason.
20.40 Carl Wolfram. Þýzki
söngvarinn Carl Wolfram
kynnir gamla söngva og
gömul hljóðfæri i sjónvarps-
sal. Hljóðfærin sem hann
leikur á eru bassalúta og
meir én 500 ára gömul lira.
Þýðandi Óskar Ingimars-
son.
21.05 Valdatafl. Brezkur
framhaldsmyndaflokkur.
10. þáttur. Eftirköst. Þýð-
andi Heba Júliusdóttir. I
siðasta þætti greindi frá þvi,
að Kenneth Bligh hafði
milligöngu um viðamikla
íramkvæmdasamninga.
Wilder og Straker, sem
einnig er við þessar fram-
kvæmdir riðinn, eru á nál-
um um að samningarnir
hafi stórfellt fjárhagstjón i
för með sér. En að lokum
kemur i ljós að Kenneth hef-
ur snúið á þá báða.
21.50 Afreksmcnn á öld hraða.
Bandarisk mynd um hrað-
akstur og tilraunir manna,
til að setja hraðamet i akstri
bifreiða. Greint er frá þróun
hraðaksturs og tilraunum,
sem gerðar hafa verið um
árabil á saltsléttum Utah-
rikis. Þýðandi og þulur EU-
ert Sigurbjörnsson.
22.40 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
1. september 1972.
18.00 Frá Olympiuleikunum.
Fréttir og myndir frá Olym-
piuleikunum i Múnchen
teknar saman af Ómari
Ragnarssyni. (Evrovision)
lllé.
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Landhelgisdagurinn.
Dagskrá kvöldsins er til-
einkuð útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar i fimmtiu mil-
ur. I dagskránni verður
fjallað um sögu islenzku
landhelginnar og spjallað
við sjómenn viðs vegar um
land um viðhorf þeirra til
útfærslunnar. Sýndar verða
svipmyndir úr þorskastrið-
inu 1958, og rætt við tslend-
inga, sem þar komu við
sögu, og greint verður frá
afstöðu ýmissa þjóða til út-
færslunnar. Þá verður sýnd
kvikmynd frá heimsókn
sjónvarpsmanna til útgerð-
arbæjarins Aberdeen, þar
sem rætt var við forystu-
menn á sviði fiskveiða og
fiskiðnaðar. Og loks verður
svo rætt við islenzka fiski-
fræðinga um verndun og
hagnýtingu fiskistofnanna
við landið. Umsjónarmaður
Eiður Guðnason.
Frá Heimsmeislaraeinvig-
iim i skák.Að lokinni land-
helgisdagskránni greinir
Friðrik Ólafsson frá nýjustu
einvigisskákinni.
Dagskrárlok óákveðin.
LAUGARDAGUR
2. september 1972.
17.00 Frá Olympiuleikunum.
Myndir og fréttir frá Olym-
piuleikunum i Munchen,
teknar saman af Ómari
Ragnarssyni. (Evrovision)
18.30 Enska knottspyrnan.
19.20 lllé.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Hve glöð er vor æska.
Brezkur
gamanmyndaflokkur.
Kynslóðabilið. Þýð Jón
Thor Haraldsson.
20.50 Bi, bi og hlaka.Fræðslu-
mynd frá Time Life um þörf
ungbarna fyrir ástúð og um-
hyggju. Raktar eru tilraun-
ir, sem gerðar hafa verið
með mannabörn og apa-
unga, og sýnt, hvernig at-
ferli móðurinnar hefur áhrif
á þroska barnanna. Þýðandi
Þórhallur Guttormsson.
Þulur Guðbjartur Gunnars-
son.
21.20 Birgitta i Björgvin.
Norska söngkonan Birgitte
Grimstad syngur og leikur á
gitar. Upptakan var gerð á
Tónlistarhátiðinni i Björg-
vin i fyrra. (Nordvision —■
Norska sjónvarpið)
Klukkan hálf tiu á laugar-
dagskvöld vcrður rétt ein eld-
forn bandarisk kvikmynd á
dagskránni. Að þessu sinni cr
óvist nema áhorfcndur fái
nokkra skemmtan og upp-
fræðslu af, þvi að myndin er
hyggð á ævisögu uppfinninga-
mannsins Tomasar Edison en
Spencer Tracy leikur hann.
21.50 Edison. (Edison The
Man) Bandarisk biómynd
frá árinu 1939, byggð á ævi-
sögu frægasta uppfinninga-
manns allra tima. Leik-
stjóri Clarence Brown. Að-
alhlutverk Spencer Tracy,
Rita Johnson og Charles Co-
burn. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir. 1 myndinni er
rakið hvernig simritarinn
Thomas Alva Edison tekur
að fást við tilraunir og upp-
finningar og öðlast loks
heimsfrægð fyrir störf sin.
23.30 Dagskrárlok.
Klukkan 21.35 á sunnudagskvöld vcrður á dagskrá Sjónvarpsins
þátlurinn Maður er nefndur. Að þessu sinni ræðir Arni Johnsen
blaðamaður við Kristján Aðalsteinsson, sem verið hcfur skipstjóri á
Gullfossi árum saman.
italir i frii: við byggjum ,,brú”.
Hvar eru
flestir
frídagar?
Einatt heyra menn
útlendinga jafnt sem sam-
landa tala um þau kynstur
af fridögum, sem haldnir
eru á islandi. Og reyndar er
þaö svo, að þeir verða
nokkuö margir, þegar allt
er saman komið.
Þó er það svo af, tslend-
ingareiga ekki met i þessum efn-
um. heldur llalir. l>eir hafa 17
fridaga á ári fyrir utan venjuleg-
ar helgar, og cru 13 þeirra tengdir
helgidögum kaþólsku kirkjunnar,
en 4 eru á vegum rikisins. Ilér við
ba'tist, að i mörgum héruðum, er
haldið upp á sérstaka fridaga. I
héraðinu Vercelli er það til da'mis
siður að efna til þriggja daga
hátiðahalda i sambandi við
froskaveiðar, i Bassano del
Grappa er haldið upp á aspaupp-
skeru, og þannig mætti lengi
telja.
Ekki eru allar lystisemdir ítala
enn upp taldar. Svo er mál með
vexti, að ýmsa helgidaga ber upp
á til dæmis þriðjudaga, eða
fimmtudaga, og oft verður úr öllu
saman það sem kallað er ,,ponte”
eða brú — menn mæta einfald-
lega ekki til vinnu þann vinnudag
sem kemur á milli helgar og
fridaga.
Eins og að likum lætur eru
ábyrgðarmenn i landinu nokkuð
svo áhyggjufullir yfir þessu
ástandi. Kaþólska kirkjan segist
fyrir.sitt leyti geta fallizt á að
ýmsir helgidagar hennar séu
færðir yíir á sunnudaga eða
laugardaga. Sum verklýðsfélög
leggja það til, að þetta smá-
skammtakerfi verði lagt niður og
i staðinn tekið upp viðbótarorlof
fyrir almenning.
SAMVINNU
<»> BANKINN
VIPPU - BllSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
- 210 - x - 270 sm
Aðrar staerðir. smíðaðar eftír beiðnL
GLUGGA8IHIÐJAM
'°kim4la 12 - Simi 38220 .