Þjóðviljinn - 25.08.1972, Síða 7
6. SIÐA — ÞJÓÐVILJINNl Föstudagur 25. ágúst 1972
Föstudagur 25. ágúst 1972 þJÓÐVILJINN SÍÐA 7
20. nútíma ólympiuleik-
arnir hefjast á morgun í
borginni Munchen í Bæj-
aralandi í V-Þýzkalandi.
Það fer víst vart milli mála
að þetta verða glæsilegustu
Ólympíuleikar sem haldnir
hafa verið frá því leikarnir
í þeirri mynd sem þeir eru í
dag voru endurreistir 1896.
V-Þjóðverjar hafa gert allt
sem hugsanlegt er til þess
að leikarnir megi verða
þeir glæsilegustu sem
nokkru sinni hafa verið
haldnir. Eða eins og Willy
Brandt kanzlari V-Þýzka-
lands sagði fyrir skömmu:
Við vonum að þessir leikar
græði endanlega þau sár
sem verið hafa milli
Þýzkalands og umheimsins
undanfarin ár. — Hvort
sem þessi draumur kanzl-
arans. rætist eða ekki, þá
hafa Þjóðverjar gert allt
sem í jjeirra valdi stendur
til þess að svo megi verða.
Munchen
burö, en voru aftur upp teknir í tíð
Ifitos konungs í Elis. A þeim
fæddist sú hugmynd, að efna til
almenns vopnahlés milli allra
striðandi afla á Grikklandi:
vopnahléð hófst um það bil þrjá
mánuði fyrir leikana og stóð
nægilega lengi til að keppendur
kæmust i griðum heim til sín aft-
ur. Sjálfir stóðu leikarnir i fimm
daga.
Leikarnir árið 776 f. Kr. — en
frá þeim hefur varðveitzt elzta
árið 776 f. Kr. eru nægar heimildir
um að þeir hafi verið haldnir allt,
að sex öldum fyrr. Aletrun ein,
sem talin er lúta að kappleikum i
Ólympiu, hefur verið dagsetl árið
1270 f. Kr. Enda þótt þessa dag-
setningu megi leiðrétta i ljósi
nýrra fornleifafunda, bendir flest
til þess, að saga Olympiuleikanna
spanni um það bil þrjátiu og þrjár
aldir.
Olympiuleikar liðu undir lok
um miðja niundu öld fyrir Krists
Olympíuleikar
til forna
Ólympiuleikareru eldri en flest-
ar skipulagðar samkomur
manna. Enda þótt ekki væri byrj-
að á þvi aö halda greinargóðar
skýrslurum Ólympiuleika fyrr en
nafn sigurvegara, viröast hafa
verið háðir i aðeins einni keppnis-
grein: 170 metra kapphlaupi, sem
Koroibos frá Olis sigraði i. En
leikarnir urðu fljótlega miklu
umsvifameiri — við bættust
lengri hlaup, fimmtarþraut
(hlaup, kringlukast, langstökk,
spjótkastog glima). Auk þess var
sérstaklega keppt i hnefaleikum
og glimu. Ennfremur leið ekki á
löngu áður en Grikkir hlutu að
keppa við bæði Sikileyjamenn og
Kritarbúa.
Þegar á þeim dögum komu
fram á hverjum leikum eftirlæt-
ishetjur — til dæmis sigurvegarari
tveim greinum spretthlaupa. Og
svo kom til þess, að konur eign
uðust sina eigin íeika.
Frægur kappi, Khionis, sem
uppi var á miðri sjöundu öld fyrir
Krist, stökk 7,05 metra i lang-
stökki, að þvi er fróðir menn geta
samþykkt, og þætti hreint ekki
slakur árangur enn i dag.
Upp frá þeim tima hafa varð-
veitzt nöfn og afrek margra sig-
urvegara, og siöar var bætt vi'ð
keppni i fögrum listum.
Fyrst hlutu sigurvegarar að-
eins lárviðarsveig að verðlaun-
um, en smátt og smátt var tekið
að veita þeim verðmæt verðlaun
og spilltust leikarnir mikið við
það, eins og vænta mátti. Hinn
Iangi annáll leikanna til forna
slitnar árið 369 eftir Krist, og árið
393 gaf Þeódósius keisari út þá til-
skipun frá Milanó að þá skyldi
leggja niður með öllu. Siðan liðu
1503 sumur þar til Ólympiueldur-
inn var kveiktur á ný — i föður-
landi leikanna, Grikklandi, árið
1896.
20. Olympíuleikarnir
Eins og áður segir reis Ólym-
piuþorpið og leikvangurinn á
gömlu höfuðbóli Bæjaralands,
Miinchen. Hefur undirbúningur
að leikunum staðið yfir i 3 ár. Alls
hafa 250 arkitektar unnið að gerð
mannvirkja undir stjórn eins
kunnasta arkitekts V-Þýzka-
lands, Freis Ottos. Þá hafa 4000
verkamenn frá ýmsum löndum
unnið við byggingu mannvirkj-
anna. Þau eru á 5 ferkilómetra
svæði og má geta þess að þak úr
stálneti og gerviefni er strengt yf-
ir 75. þús fermetra, þ.e. hálfan
aðalvöllinn, iþróttahöllina, sund-
laugina og hluta inngangs göngu-
brauta. Þannig á iþróttakeppnin
að vera óháð veðri og vindum.
Þessi mannvirki hafa verið
mjög umdeild og segja sumir
arkitektar að þau þoli alls ekki
þau veður sem stundum koma i
Miinchen. En þar koma eins kon-
ar sviftivindar mjög sterkir á
vissum árstimum. En hvað um
það, þessi gagnrýni var ekki tekin
til greina og Ólympiuþorpið á-
samt leikvöngum og iþróttahöll-
um er risið og biður þess nú að
keppni hefjist þar á mánudaginn,
en setningarathöfnin verður á
morgun.
Ólympiuþorpinu hefur verið
valinn all sögulegur staður og
hefur það sennilega verið gert
með það sama i huga og ummæli
Willys Brandts kanzlara gáfu til
kynna. Mannvirkin standa á rúst-
um gömlu Mönchen ef svo má að
orði komast. Hæðirnar sem
mannvirkin standa á eru mynd-
aðar af rústum bygginga i borg-
inni, sem eyðilögðust i striðinu,
mold sett yfir þær og siðan ræktað
upp með trjám og öðrum gróðri.
Var þessi staður mjög vinsæll úti-
vistarstaður fyrir borgarana áður
en bygging Ólympiumannvirkj-
anna hófst þar.
Ólympiuleikar hafa aðeins einu
sinni áður verið haldnir i Þýzka-
landi. Það var árið 1936, undir
Hitlers-stjórn i Þýzkalandi. Ým-
islegt sögulegt gerðist á þeim
leikum eins og til að mynda það,
þegar foringinn gekk út af leik-
vangnum, þegar bandariski
blökkumaðurinn Jesse Owens
vann 100 m hlaupið. Slik móögun
var það við hinn hreina Ariastofn.
En nú er öldin önnur að sögn, og
kynþáttadeilur eiga ekki að setja
svartan blett á leikana — eða
hvað?
Nú fyrir eins og hálfum mánuði
komu upp miklar deilur i sam-
bandi við þessa leika. Það var
þegar Nigeria krafðist þess að i-
þróttamenn frá Ródesiu fengju
ekki að taka þátt i leikunum
vegna kynþáttamisréttis þar i
landi. Þetta var aðeins litill
neisti, Nigeria er ekkert stórveldi
á iþróttasviðinu og menn voru ró-
legir. En eins og oft er með litla
neista geta þeir orðið að stóru báli
og einmitt það gerðist að þessu
sinni.
Fyrr en varði höfðu 24 riki i
Afriku, auk flestra blökkumann-
anna i bandariska landsliðinu,
ákveðið að hætta við þátttöku ef
Ródesiu yrði ekki meinuð þátt-
taka i leikunum. Það er þvi ljóst
að kynþáttavandamálið er ekki
úr sögunni hvað viðkemur
Ólympiuleikunum 36 árum eftir
að Hitler gekk út af Ólympiu-
keppni til að mótmæla sigri
blökkumanns.
En hvernig sem allt snýst á
þessum leikum, þá er vist að V-
Þjóðverjar munu gera allt sem i
þeirra valdi stendur til að þessir
ieikar megi heppnast sem bezt.
Annaö eins áróðursvopn hefur
aldrei verið lagt uppi hendur
Þjóðverja eftir striðið sem þessir
leikar. Nú ætla Þjóðverjar að
sýna umheiminum hvers þeir eru
orðnir megnugir. Þessir leikar
eiga að sýna umheiminum
Þýzkaland nútimans.
Leikarnir standa yfir i 16 daga
frá setningu til lokaathafnar. En
þá vaknar þessi spurning — hvaö
verður gert við þessi glæsilegu
mannvirki að Ólympiuleikunum
loknum? Þetta hefur alltaf verið
vandamál þar sem Ólympiu-
leikar hafa verið haldnir. Sem
dæmi má nefna að ibúðir
Ólympiuþorpsins i Mexikó, þar
sem siðustu leikar voru haldnir,
standa enn auðar, sökum þess
hve dýrár þær eru. 1 Tókió var
ólympiuþorpiö rifið til grunna, en
leikvangurinn stóð eftir.
Það fer ekki milli mála að ekki
liggur við að V-Þjóðverjar fái
kostnað sinn við gerð Ólympiu-
mannvirkjanna endurgreiddan
með sjálfum leikunum, þótt tugir,
ef ekki hundruð þúsunda gesta
komi á leikana. Þaðer þvi ljóst að
með einhverjum hætti ætla Þjóð-
verjar að ná þessum peningum
aftur. Það eina sem vitað er um
að hluti af Olympiuþorpinu verð-
ur notaður sem bústaður stild
enta. Þá er •innig ákveðið að
aðalleikvangurinn verður heima-
völlur knattspyrnuliðsins Byern
Mh'nchen og einnig aðalleik-
vangur v-þýzka landsliðsins i
knattspyrnu.
Kostnaöurinn við gerð Ólymp-
iumannvirkjanna hefur farið
Önnur eins tækni og beitt hefur
vcrið við flóðlýsingu leikvangsins
hefur aldrei þekkzt fyrr.
ISSw WpI
margfallt fram úr áætlun og nú er
svo komið að v-þýzkir skatt-
borgarar eru ráðamönnum mjög
reiðir vegna þessa. Upphæðin
sem mannvirkin kosta er tugir
miljarða og þetta verða þýzkir
skattborgarar að greiða að lang-
stærstum hluta. Þetta leggst þó
þyngst á MGnchen-búa, þar eð
Miinchen-borg tekur á sig miklu
stærri hluta þessa kostnaðar en
nokkur önnur borg, sem eðlilegt
er.
Það má geta þess til gamans,
að þegar islenzka handknattleiks-
liðið vigði eina af handknattleiks-
höllunum i Mönchen á dögunum
hélt einn af æðstu mönnum
Miinchen ræðu og hann var rétt
búinn að segja nokkur orð er hann
nefndi kostnað og þá upphófust
þvilik hróp og köll að maðurinn
varð að hætta ræðuflutningi.
Hann var hreinlega piptur niður.
Svo brýzt gremja borgarbúa og
annarra skattborgara i V-Þýzka-
landi út þegar kostnaðurinn við
gerð mannvirkjanna er nefndur.
lagt einstaka nienn i einelti. Sér-
staklega er honum uppsigað við
skiðamenn sem hann segir alla
vera atvinnumenn.
En það hlægilegasta við þess
vita vonlausu baráttu Brundage
cr að það er vitað að allir sem
eitthvað geta i iþróttum, eru at-
vinnumenn i einni eða annarri
mynd. Allt bezta iþróttafólk stór-
þjóðanna er atvinnumenn. Allt
bandariska iþróttafólkið er at-
vinnumenn, þótt það sé ætið skráð
sem stúdentar allt til fertugs.
Þetta veit Brundage, en hann hef-
ur aldrei skipt sér neitt af þessu
svindli. En leitaö uppi einstaka
afreksmenn minni þjóðanna sem
ekki hafa fariö eins klókt aö I aö
fcla atvinnumannaferil sinn.
Þróunin hefur meir og meir
haldiö áfram i átt til atvinnu-
mcnnsku. Og fyrst Brundage er
nú loks hættuur má gera ráð fyrir
aö áhugamannaslagoröiö i sam-
bandi viö Olympiuleikana hverfi
alveg og að i framtiöinni skipti
þaö ekki máli hvort menn eru at-
1. Olympiuþorpiö aöcins nokkur
hundruö metra frá aöalleik-
vangnum.
2. Aöalleikvangurinn þar sem
setningarathöfnin og lokaathöfn-
in fara fram.
3. Ilér má sjá hiö mikla og um-
dcilda gegnsæja þak yfir aöal
leikvangnum og fleiru.
1. Kajakrennan þar sem keppni i
kajakróðri fcr fram. Heimatilbú-
in straumhörö á.
5. Sundlaugin á leikunum er sögö
sú glæsilegasta og fullkomuasta
sem byggö hefur verið. Má nefna
að öldugangur frá einni braut
truflar ekki þann á næstu braut
við hliöina.
Don Quixote
okkar tima
llann hefur af mörgum veriö
kallaöur Don Quixote okkar tima
og ekki aö ástæöulausu. Og mað-
urinn scm þetta á viö um er Av-
ery Brundage, formaður alþjóöa
Óly mpiuncfndarinnar. Nú er
hann hættur sem slikur, hinar
miklu deilur sem risu upp vegna
þátttöku Ródesiuá dögunum urðu
til þess aö Brundage gafst upp,
enda er maðurinn orðinn 85 ára
og um hann hefur staöið meiri
styrr en nokkurn annan mann i
fararbroddi iþróttamála i heim-
inum undanfarin ár.
Allt er þetta útaf hinu sjúklega
hatri Brundage á atvinnu-
mennsku i iþróttum. Ilann hefur
gengið svo langt siðustu árin aö
sumir af beztu iþróttamönnum
heims hafa ýmist orðið að hætta
þátttöku i ÓL og sumir hafa alvcg
hætt. Brundage hefur nefnilega
vinnu- eöa áhugamenn i iþróttum.
Olympiuleikarnir verði opnir öll-
um sem iþróttir stunda, atvinnu-
mönnum jafnt sem áhugamönn-
um, og þaö fyrir opnum tjöldum
en ekki mcö svindli og klækjum
eins og nú cr. Ahugamennska er
hvergi lengur til i heiminum
nema á islandi og örfáum öörum
dvergrikjum.
Þeir sem þekkja Brundage bezt
segja hann hafa sérstaka ánægju
af aö standa i þessu málaþrasi.
Og vist er um það að þessi banda-
riski miljónamæringur gcrir ekk-
ert annaö en að standa i einhverj-
um deilum vegna Ólympiuleika.
Nokkuö hefur verið reynt að fá
hann til að scgja af sér á undan-
förnum árum en hann hcfur bara
herzt viö og hvergi gefið cftir. Nú
bognaöi gamli maöurinn aftur á
móti og sagði af sér og margur er
fcginn þvi.