Þjóðviljinn - 25.08.1972, Síða 8

Þjóðviljinn - 25.08.1972, Síða 8
8. SIÐA — ÞJÓÐVILJINN iKöstudagur 25. ágúst 1972 EVA RAAAM: AAANNFALL OG AAEYJAVAL Laura Storhaug leit á eigin- mann sinn og hló. — Þegar maöur lendir i sömu nefndinni og þarf aö vinna aö sömu málunum, þá lagast þetta allt saman. Er þaö ekki Jens? Hún láumaði hendinni i lófa Viða liggja landans leiðir Stangl fer af stað eftir langt hlé og nýtur sem fyrr góðs af einum eftirlætisskribent þáttarins, en það er Arni Johnsen hjá Morgunblaðinu. Hann er aö skrifa um ferð til Venezúelu — og meðal annars á þessa leið: Fólitísk skapr- skyggni. Eins og i flestum löndum Suður-Ameriku er herstjórn i landinu og ekkert þessara rikja hefur eins strangt eftirlit með ferðamönnum sem koma inn i landið. Þar var lika minnst um mannrán i þvi mannránaflóði, sem gekk yfir Suður-Ameriku ekki alls fyrir löngu. Hógværð heims- mannsins Það kom fljótt i ljós að þetta var glæsilegasta hótel, semég hafði augum litið og hefur maður þó af tilviljun rekizt á ýmislegt i þeim efnum. Ileinisinennska með þjóðlegu ivafi. Fimm þjónar tóku sér stöðu við borðið um leið og við settumst, svo að ekki þurftum við að biða og hrópa eins og kallinn forðum : „Mat á borðið kerlingardjöfuli og engar refjar.” Að reka reksturinn — og plata sveitamann- inn Dr. Urban er oliukóngur, búsettur i Moskvu og borgar stórar fúlgur til þess að geta ferðazt að vild. Hann á oliu- turna við Venezúela og rekur margháttaðan rekstur. Gjörhygli náttúru- skoðarans Annars var ýmislegt fleira á lifi þar en menn, þvi að mikið er i Venezuela af alls kyns skordýrum og smærri dýrum þó aö fulgarnir séu langfjöl- breyttasti dýraflokkurinn. Hin látlausa kimni- gáfa Ég hef hvorki fyrr né seinna séð manneskju synda eins hratt og hraðbátur á hraðri ferð. En svo fannst mér þetta spaugilegt að ég var nærri drukknaður þarna úr hlátri. Hef liklega aldrei komizt iaðra eins lifshættu i sjó, og þó hef ég orðið að bjarga mér á sundi i brimgörðum við Landeyja- sand, Surtsey og viðar. hans og hann leit niður til hennar og brosti ástúðlega. I fimmtán ár hafði hún verið eiginkona hans og hugsað um heimili hans og fætt honum börn, allt með dugnaði og sóma, en einu myndi hann aldrei gleyma: hvernig hún hafði staðið með honum á þessum erfiðu timum og útvegað honum for- mannsstarfið i TTR. Gunda and- varpaði yfir allri þessari ást, og henni varð hugsað til annarra hjóna. — llvernig gengur annars með Lillugullu, Brita? Hún var svo ósköp hnuggin þegar hann Ivar Kroken fluttist héðan? Jú,hún fékk bréf frá honum um daginn, sagði Brita. — Faðir hans aftekur að hann komi i heimsókn hingað i sumar ! Gunda hristi höfuðið i uppgjöf. — Þessir karlmenn! Þeir eru þrjózkir og þverir, rétt eins og asnar. En skilaðu kveðju til Lillu- gullu, og segðu henni frá mér að ég skuli sjá um þetta mál. Ég skal hvisla fáeinum pólitiskum sann- indum að honum Sivert Kroken, og þá mætti segja mér,að hann yrði svo hræddur um framtið sina, að hann reki Ivar með harðri hendi út i bátinn til Totta. — Þakka þér kærlega fyrir, Gunda, sagði Brita þakklát. — Ekkert að þakka. — Og fyrst ég er nú farin að tala um roman- tik, — hvernig gengur það hjá ykkur Toren, Liva? Liva hló ibygginn. — 6g er búin að kaupa mér l'jórar nýjar hárkollur, eina græna,eina fjólulita, eina ljósa og eina svarta, og i hvert sinn sem ég kem inn i stofuna, sprettur Dagur upp úr stólnum, þvi að hann veit aldrei með vissu hvort það er ég eða einhver önnur kona. ()g i gær kom hann heim með kon- fektkassa, — i fyrsta skipti i tuttugu ár, held ég. En ég veit ekki hvort það er vegna þess að ég er komin i bæjarráð, eöa vegna þess að ég er allt i einu orðin svo ómótstæðileg. Enda kemur það út á eitt! Gunda andvarpaði og horfði fjarrænum augum fram fyrir sig. Hún tautaði viðutan: — Kannski — ef ég fengi mér fjólulitt parruk — Svo tók hún aftur til við skýrsl- una. — Þetta elliheimili er félags- legt vandamál, sem hefði átt að vera búið að leysa fyrir löngu, en auðvitað hefur það stundum verið erfitt. Nú. — Merete Bang leit á hana særð á svipinn. — Við i hægri flokknum höfum alltaf — — Heyrið mig nú, sagði Gunda, — Eigum við sem hér erum stödd ekki að koma okkur saman um að segja aldrei oftar „Við hægri menn” eða „Við i verkamanna- flokknum” eða við konur eða við karlmenn. heldur göngum út frá þvi að við séum öll sömul heiðar- legt fólk sem leggur sig fram. Væri það að minnsta kosti ekki reynandi? — Samþykkt samhljóða! hróp- uðu Laura, Brita og Liva i kór. En Merete hristi höfuðið ein- beitnislega og horfði á Gundu eins og hún hefði stungið upp á ein- hverju fráleitu og ósiðlegu. — Nei, ég get ekki fallizt á það. Við hægri flokknum höfum að- eins eitt takmark að berjast fyrir: að — — -----aðstefnan megi sigra, stundi Brita. — Já, einmitt, sagði Merete. Jens Storhaug sýndist álika hneykslaður. — Já, aldrei þessu vant er ég sammála frú Bang. Við i verka- mannaflokknum erum þeirrar skoðunar að — ------sósíalisminn nái fram að ganga. Rétt eins og pósturinn, flissaði Laura. — Já vissulega, sagði Jens Storhaug og leit áminningar- augum á eiginkonuna. — Nú, jæja, jæja, þá er vist ekkert við þessu að gera, and- varpaði Gunda, — Baráttan heldur áfram þar til veröldin springur. Hún ieit á klukkuna. — Nú er aðeins eitt mál eftir á dagskrá. Það þarf að kjósa nefnd til að undirbúa vigsluhátið vatns- og klóakkerfisins i norðurbæ — við gerum ráð fyrir að allt verði tilbúið fyrir sumarleyfin, og mér finnst viö ættum að gera okkur dagamun, halda ræður og svo- leiðis, en við verðum að vera rösk, þvi að á eftir er ég að fara á lund i fjárhags- og stjórnunar- nefndinni. Rersrud og Storhaug litu hvor á annan; siðan klappaði Jens Stor- haug forsetanum föðurlega á herðarnar. Þú skalt bara þjóta, Gunda min Þó það nú væri. Við Persrud skulum sjá um þetta með hátiða- nefndina. Það er alveg óþarfi aö þú sért að eyða tima i slikt. Þú hefur mikilvægari málum að gegna. — Þakka þér fyrir, sagði Gunda. — Þá þýt ég á næsta stað. Verið þið öil sömul bless. Hún þaut til dyra. — Þakka þér fyrir, sagði Gunda. Þá þýt ég á næsta stað. Verið þið öll sömul bless. Hún þaut til dyra og veifaði til þeirra brosandi og hún tók ekki eftir þvi, að karlmennirnir tveir áttu erfitt með að dylja sigrihrós- andi bros. Það var eins og þeir horfðu nú inn i fyrirheitna landið, sem hafði verið glatað um skeið en virtist nú opnast þeim með ótal dýrlegum loforðum. XXI I júnilok var vatn og salerni lagt inn i siðasta húsið i norður- bænum i Totta. Þetta nálgaðist kraftaverk: kippt var i snúrur og skrúfað frá krönum og vatnið kom fossandi út úr rörum og pipum. Bæjarráð var sammála um að halda þessi timamót hátiðleg með dálitlum gleðskap fyrir verka- mennina, bæjarfulltrúana og nokkra af ibúunum i norðurbæ, og hátiðanefndin, undir forustu Persruds snikkara , og Storhaug fyrrverandi forseti, Henriksen bilasmiður og Torén bankastjóri sem stjórnarmeðlimir unnu að þvi öllum árum,aö hátiðin fengi hinn rétta hátiðasvip og andblæ. Konurnar i bæjarstjórninni voru dolfallnar yfir allri þeirri vinnu sem þeir lögðu i undirbúning hátiðarinnar, með skriffinnsku og simhringingum i allar áttir, skreytingu á hátiðasalnum i Alþýðuhúsinu og risapöntunum á gosi og öðru góðgæti. Og þeir af- j þökkuðu alla aðstoð. — Nei, þakk fyrir, Gunda,1 sagði Hermann með göfuglyndi, þegar Gunda minntist á að hún gæti vel verið hjálpleg og hringt i nokkra staði og gert eitt og annað. — Þú hefur nóg annað að gera. Láttu okkur sjá um þetta, það er allt i góðu gengi. — En við gætum kannski séð um aö leggja á borð og hagræða blómum og annað slikt — — Nei, mikil ósköp, sagði Her- mann i skyndingu. — Viö sjáum um þetta allt saman. Við erum búnir að fá þjónustufólk og þú skalt engar áhyggjur hafa, Gunda, hugsaðu bara um bæjar- stjórnina og við skulum sjá um þessa hátið, það er nú þaö minnsta sem við getum gert. — Nú jæja, sagði Gunda og þaut af stað á nýjan fund. Hátiðin átti að fara fram á Jónsmessukvöld og i tæka tið fóru boðin að streyma til bæjar- stjórnarfulltrúa, verkamanna og nokkurra fjölskyldna i norðurbæ, þar sem tveir úr hverri fjölskyldu voru hjartanlega velkomnir til dátlitils fagnaðar i tilefni af þvi að Totta var nú orðinn samein- aður hamingjubær. Búizt var við rúmlega hundrað gestum sem boðið skyldi upp á gómsætt og margbreytilegt smurbrauð FÖSTUDAGUR 25. ágúst 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl ), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45. Morgunleikf. kl. 7.50 Morgunstund barnanna 8.45: Guðjón Sveinsson les framhald sögu sinnar um „Gussa á Hamri” (9). Til- kynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Spjallað við bændurkl. 10.05. Tónleikar kl. 10.25 C. Arrau leikur á pianó „Impromptu” nr. 2 I Es-dúr eftir Schubert / Hu- bert Barwasher og Felix de Nobel leika Inngang og til- brigði op. 160 fyrir flautu og pianó eftir Schubert. Fréttir kl. 11.00. Tónleikar: Alfredo Campoli og Filharmóniu- sveitin i London leika Konsertfyrir fiðlu og hljóm- sveit i e-moll op. 64 eftir Mendelssohn, Sir Adrian Boult stj. / Filharmóníu- hljómsveit Berlinar leikur Sinfóniu I F-dúr nr. 8, op. 93 eftir Beethoven: Herbert von Karajan stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Eftir hádegið. Jón B. Gunnlaugsson leikur létt lög og spjallar við hlustendur. 14.30 Sfðdegissagan: „Þrútið loft” eftir P. G. Wodebouse Jón Aðils leikari les (10), 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Lesin dagskrá næstu viku. 15.30 Miðdegistónleikar Kirsten Flagstad syngur lög eftir Sinding og Alnær. Westi syngur lög eftir Lange-Múller. 16.15 Veðurfregnir. Létt lög. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 17.30 Ferðabókalestur: t borgarastyrjöldinni á Spáni e. dr. Helga P.Briem.fyrr verandi sendiherra. Höf- undur les fyrri hl. 18.00 Fréttir á ensku 18.10 Tónleikar. Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Fréttaspegill 19.45 Bókmenntagetraun 20.00 I.ög eftir Schubert.Þor- steinn Hannesson syngur við undirleik Arna Krist- jánssonar. 20.30 Tækni og visindi.Páll Theodórsson eðlisfræðingur og Guðmundur Eggertsson prófessor sjá um þáttinn. 20.50 Sumartónleikar frá út- varpinu i Astraliu.a. For- leikur að „Astföngnu garð- yrkjustúlkunni” eftir Moz- art. b. Sónata fyrir óbó og pianó eftir Saint-Saens. c. Slavneskir dansar nr. 8 i g- moll og nr. 1 I C-dúr op. 46 eftir Dvorák. d. Þrir dansar úr „Rómeó og Júliu” eftir Prokofjieff. e. „Vinar- stúlkur” vals eftir Ziehrer. Flytjendur: Sinfóniuhljóm- sveit Suður-Astraliu, Jiri Tancibudek, óbóleikari og John Champ, pianóleikari, Henry Krips stj. 21.30 Útvarpssagan: „Dalalif” eftir Guðrúnu frá Lundi. Valdimar Lárus- son les (14). 22.00 Fréttir 22.15 Kvöldsagan: „Maöur- inn, sem breytti um andlit" eftir Marcel Aymé.Kristinn Reyr les (15). 22.35 Danslög i 300 ár. Jón Gröndal kynnir. 23.05 A tólfta timanum. Létt lög úr ýmsum áttum. 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. FÖSTUDAGUR 25. ágúst 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Af sjónarhóli Svisslend- ings. Hér lýsir svissneskur rithöfundur löndum sinum og hendir gaman að ýmsum siðvenjum þeirra. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 21.05 Frá Listahátið i Reykja- vik 1972. Bandariski pianó- leikarinn André Watts leik- ur tólf valsa eftir Franz Schubert. 21.20 Ironside. Bandariskur sakamálaflokkur. Bræður munu berjast. Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir. 22.10 Erlend málefni. Um- sjónarmaður Sonja Diego. 22.40 Frá Heimsmeistaraein- viginu i skák. Umsjónar- maður Friðrik ólafsson. 23.00 Dagskrárlok. BÍLASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32. LJÚSASTILLINGAR HJÓLASTILLINGAR MÓTORSTILLINGAR Látið stilla í tíma. 4 Fljót og örugg þjónusta. I 13-100 Nýjar vorur komnar. Nýkomið mjög mikið úrval af sérkenni- legum, handunnum austurlenzkum {BIhQBI skrautmunum til tækifærisgjafa m.a.: I Útskorin borð (margar gerðir), vegghill- LJ » J n ur, kertjastjakar, styttur, rúmteppi, flókamottur, könnur, vasar, skálar, ösku- bakkar, silkislæður, o.m.fl. — Einnig AÉmIK reykelsi og reykelsisker. Gjöfina, sem veitir varanlega ánægju, fáiö þér i Aíl JASMIN, við Hlemmtorg.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.