Þjóðviljinn - 25.08.1972, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 25.08.1972, Qupperneq 11
Föstudagur 25. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11. Blikur á lofti í Feneyjum Feneyjum 24/8. — Enn hefur bliku dregið á loft á kvikmynda- hátfðinni i Feneyjum, en það er nánast orðin hefð þar syðra. Kvikmyndahátíðin, sem hófst á ntánudaginn, hcfur nú fengið skæðan keppinaut, sérstaka kvik- ntyndahátið ungra og róttækra italskra leikstjóra, sent ekki sætta sig við hina hefðbundnu sýningarhátiö, Forráðamenn hinnar opinberru hátiðar urðu fyrir óvæntu áfalli i Leiðrétting 1 frétt af ónæði smábáta sem róa frá Óiafsvik og birt var i blað- inu i gær slæddust með nokkrar villur. I upphafi fréttarinnar var heimildarmaður blaðsins feðrað- ur Þorgilsson, en á að vera Þorgeirsson. Þá er hann siðar i fréttinni nefndur Magnús, en á að vera Markús. Siðast er ekki ástæðulaus að benda á að ónæði það sem bátarnirhafa orðið fyrir er innan við núverandi landhelgislinu, —- þ.e.a.s. innan 12 milnanna. Furðufregn Framhald af bls. 1. bandariskra erindreka að fá ts- lendinga til að falla frá uppsögn hernámssamningsins frá 1951. t fréttinni segir, að um þetta hafi náðst samkomulag og þar með, að frá þvi yrði formlega gengið eftir forsetakosningarnar i Bandarikjunum i haust. Gerði samkomulagið ráð fyrir að herinn bandariski færi af landi brott i áföngum, dregið yrði úr styrk- leika bandariska hermannasjón- varpsins, en Keflavikursamning- urinn yrði endurnýjaður. Einar Agústsson utanrikisráð- herra bar þessa frétt til baka og kvað hana tilhæfulausa með öllu. Engar viðræður væru hafnar við Bandarikjamenn um herstöðina, en þær myndu hefjast i byrjun vetrar. dag, er franski kvikmynda- gerðarmaðurinn Jean Luc Godard afturkallaði sýningu á nýjustu mynd sinni, „Tout va bien”. Godard gefur þá skýringu á þessu i simskeyti, ,,að hann dragi kvikmyndina til baka i mót- mælaskyni við ólýðræðislegt fyr- irkomulag hátiðarinnar”. Forráðamennirnir eru þó ekki af baki dottnir. Þeir segja Godard hafa undirritað samning um sýn- ingu myndarinnar, og að þeir muni sýna hana á föstudaginn, eins og ráð var gert fyrir, svo fremi að þeir komist yfir annað eintak af henni. Landhelgin Framhald af bls. 4 tslands og reiðubúinn til varnar nefndan dag. Og þá skulum við sjá hvort brezka „ljonið” verður ekki fljótt að hypja sig heim, þegar Tjallinn sér næst stærsta flota veraldar reiðubúinn til varnar, og hrekja Bretann á brott. Floti Samúels frænda er sem sé ekkert lamb að leika sér við, og Tjallinn yrði þvi fljótur að leggja niður rófuna og sigla hið snarasta til heimahafnar, hlaðinn skömm og smán. Svo yrði og um skip hugsanlegra annarra þjóða. Hér duga engin vettlingatök og timinn er naumur til að knésetja Tjallann og hin fáu fylgiríki hans. Knésetja fyrir fullt og allt. Kynni að fara svo ógæfulega, að Banda- rikjamenn brytu gerðan samning við tsland, eða drægju aðgerðir á langinn, ber stjórnvöldum skylda til, að leita til stærsta flota ver- aldar, — rússneska flotans, og óska eindregið verndar hans, þó sumum kynni ^ að finnast það ógeðfellt, og þ.á.m. mér. En eins og áður er fram tekið, eru Islendingar vopnlaus þjóð, og hún verður að fá aðstoð flota er- lends rikis, til að hrekja Breta og flygilönd þeirra burt úr löglegri landhelgi landsins. Það er lifs- spursmál þjóðarinnar, — lifæð þjóðlifsins. Nesprestakall Sr. Gunnar Kristjánsson, sem er einn af fjórum um- sækjendum um prestakallið, messar i Neskirkju n.k. sunnudag 27. ágúst kl. 11 f.h. Útvarpað verður á miðbylgju 212 metrar eöa 1412 k. Hz. Sóknarnefndin. Yélskóli íslands Endurtekin próf Endurtekin próf i 1. og 2. stigi fara fram þriðjudaginn 5. september og miðviku- daginn 6. september. Prófin hefjast kl. 9, og verða þau nánar auglýst á próftöflu i skólanum. Innritun Innritun fer fram dagana 4. og 5. septer ber. Þeir sem sótt hafa um skólavisí mæti til innritunar, láti mæta fyrir sig eða hringi i sima 23766. Skólasetning Skólasetning. Skólinn verð- ur settur 15. september kl. 14. SKÓLASTJÓRI. CQ C= Stærsti kosturínn við Volvo er hvad eigandinn endist lengi í tölum Svensk Bilprovning um aldur og endingu bifreiða í Svíþjóð er' ending Volvo bifreiða 14.2 ár að meðaltali. Það er ef til vill óþarft að geta þess, að meðal ending Volvo bifreiða er lang mest allra bifreiða á sænskum markaði í dag. Kostur rannsókna Svensk Bil- provning fyrir væntanlega kaup- endur bifreiða er ómetanlegur. Hinar opinberu tölur rannsókn- anna sýna greinilega, að þeir sem velja Volvo velja trausta bifreið, sem endist lengur. Þessi staðreynd byggist einfald- lega á gæðum, sem á hinn bóginn tryggja hóflegan reksturskostnað bifreiðarinnar og hærra endursöluverð. Stærsti kosturinn er auðvitað hvað eigandinn endist lengi,- það er að segja hve bifreiðin er yfirleitt lengi í eigu sama aðila. Kostur? Öryggi! Þeir, sem bera ábyrgð á öryggi annarra, treysta Volvo fyrir sínu eigin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.