Þjóðviljinn - 25.08.1972, Síða 12
Föstudagur 25. ágúst 1!>72
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Næturvarzla lyfjabúðanna
vikuna 19.—25. ágúst er i
Ingólfs Apóteki, Laugarnes-
apoteki og Borgar Apóteki.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Nixon hefur
baráttuna
— sakar McGovern um „óameríska”
Til talsverftra óeirða hefur komið fyrir utan þingstað Repúblikana í
Mianii, og er mynd þessi þaðan. Lögreglan hóf f jöidahandtökur þegar á
þriðjudaginn, og er síðast fréttist sátu sex hundruð manns i fangelsi
sakaðir um uppsteyt.
Beita ekki
valdi —
virða ekki
mörkin
Talsmaður vestur-þýzkrar
tugaraútgerðar sagði i gær^að
ekki væru fyrirhugaðar sam-
ræmdar aðgerðir gegn
islenzku varðskipunum i
islenzkri landhelgi eftir I.
september. Talsmaðurinn
sagði að Þjóðverjar myndu
ekki licita valdi, en þeir
myndu ckki virða landhelgis-
linuna 50 milur fyrir utan is-
land.
Það kom og fram að verka-
menn i Bremenhaven hafa
ckki á prjónunum að neita að
lesa eða losa islenzk skip komi
tii landhclgisdeilu, eins og
Samband brcz.kra flutninga-
manna hefur þegar ákveðið.
Alsirborg 24/8. — Alsirstjórn
afhenti i gær fulltrúum banda-
riska flugfélagsins Delta Airlines
miljón dollara lausnargjaldið,
sem fimm manna hópur flugræn-
ingja hafði með sér til Alsir um
siðustu mánaðamót.
stefnuskrá
Miami 24/8. — Nixon
forseti hóf i dag baráttu
sina fyrir endurkjöri, og
fyrstu áfangastaðir hans
á kosningaferðinni
verða rikin Illinois,
Miehigan og Kalifornia.
Eins og búizt var við,
byggir hann áróður sinn
að miklum hluta á árás-
um á McGovern, keppi-
nautinn um forsetaem-
bættið, þótt hann taki
ekki jafn djúpt i árinni i
aðdróltunum sinum og
llokksbræðurnir Itonald
Ileagan og Barry Gold-
water.
t útnefningarræðu sinni í gær-
kveldi sakaði forsetinn
McGovern um að leggja fram
stefnuskrá, sem myndi veikja
stööu Bandarikjanna á erlendum
vettvangi, og leiða til efnahags-
hruns heima fyrir. Republikanar
setja traust sitt á, að þeim takist
að gera McGovern tortryggilegan
i augum hins almenna borgara og
að kjósendur fái þá hugmynd, að
stefna frambjóðanda Demókrata
sé „óamerisk”. Þá lætur Nixon
ekkert tækifæri ónotað til að
skora á „heimilislausa
Demókrata” að snúa „heim” i
Repúblikanaflokkinn, sem haldi
nú einn uppi merki hinnar „sönnu
bandarisku stefnu”.
Miklar óeirðir urðu i gærkveldi
fyrir utan fundarstað Repú-
blikana. Mikill fjöldi fólks, eink-
um ungmenna, safnaðist saman á
götunum, og reynt var að hindra
þingfulltrúa og aðra þá er erindi
áttu á fundinn, að komast leiðar
sinnar. Fjölmennt lögreglulið
dreif að, og sló i bardaga með þvi
og mótmælendum. Lögreglan
varpaði þá táragasi á mannfjöld-
ann, og urðu ýmsir fyrir þvi auk
mótmælendanna, svo sem
öryggisveröir, fulltrúar og lög-
reglumenn. Að sögn yfirvalda
slasaöist enginn alvarlega i átök-
unum, en fjöldahandtökurnar,
sem hófust á þriðjudaginn, héldu
áfram, og nú lætur nærri að sex
hundruð manns sitji i fangelsi i
Miami, sakaðir um óspektir og
þrjózku við fyrirmæli lögreglunn-
ar.
Nóbelsræða Solzhenitsyns
— hvassyrt ádeila á ofbeldi og kúgun
Stokkhólmi 24/8. —
Sovézki rithöfundurinn
Alexander Solzhenitsyn
hefur nú efnt loforð sitt
um að birta ræðu sina i
tilefni Nóbelsverðlauna-
afhendingarinnar, en
hann hlaut verðlaunin
1970 fyrir bókmenntaaf-
rek sin.
Ilæðan var birt i heild i árbók
Nóbelsstofnunarinnar i dag, og
þar skorar rithöfundurinn á
skapandi menningaröfl veraldar,
að heyja baráttu gegn einræði og
kúgun fyrir opnum tjöldum.
Ritari sænsku akademiunnar hef-
ur staðfest, að ræðan sé hin sama
og Solzhenitsyn hafi ætlað að
flytja við fyrirhugaða móttöku
verðlaunanna i einkaibúð i
Moskvu. Aflýsa varð þeirri mót-
töku, þar sem ritara
akademiunnar var neitað um
vegabréfsáritun til Sovétrikj-
anna. Eins og menn mun reka
minni til, varð ekkert úr þvi að
rithöfundurinn veitti verðlaunun-
um móttöku i Stokkhólmi þar sem
sovézk yfirvöld sögðu hann ekki
eiga afturkvæmt til heimalands-
ins, ef hann héldi utan.
Ræða Solzhenitsyns er að sögn
hvassyrt uppgjör við valdastefnu
og ofbeldi á vorum timum, hvort
heldur það beinist að einstakling-
um eða þjóðum. Hann fer hörðum
orðum um ritskoðun og menning-
arlega kúgun, og vandar rauðu
varöliðunum i Kina ekki kveðj-
urnar, er hann sakar þá um eyði-
leggingu á andlegum og listræn-
um verðmætum á dögum menn-
ingarbyltingarinnar. Þá ræðst
skáldið gegn pólitisku ofbeldi og
þeim „MUnchen-anda ”, sem
tröllriði heimspólitikinni
Ræðan sem er sextán bókarsiö-
ur að vöxtum, endar á áskorun til
allra rithöfunda veraldar um að
skera upp herör gegn valdbeit-
ingu og kúgun.
ÁTJÁJNDA EINVIGISSKAKIN I BIÐ:
Skemintilega tvísýn staða
Fischer hefur peð yfir, en möguleikar á báða bóga
Atjánda skákin sem tefld var i
gærkvöldi var vettvangur mik-
illa sviptinga, og enn einu sinni
eru skoðanir skiptar um það
hvernig biðskákinni muni reiða
af.
Fischer, er hafði hvitt lék i
fyrsta leik e4, og Spasski sem i
tvö undanfarin skipti hefur
svarað með e5 breytti nú út af
og valdi Sikileyjarvörn, eins og
hann tefldi i fjórðu skákinni.
Ekki virðist Fischer hafa fundið
endurbót fyrir hvitan frá þeirri,
skák, og kaus hann að leika i 6.
leik Bg5, en hann hefur nær
alltaf leikið 6. Bc4.
Báöir keppendur hófu sókn,
Fischer sótti að kóngi Spasskis
sem var dæmdur til að standa
fyrir miðju borði. Spasski aftur
á móti sótti fram á drottningar-
væng.
en Fischer hafði engan áhuga á
að þiggja hann.
Einmitt i þann mund er menn
voru að telja Spasski algerlega
af i stöðunni, lék hann i 31. leik
e5 og siðan i 33. d5. Fischer fékk
upp úr öllum þessum svipting-
um peð á h-linunni. 1 biðstöð-
unni hefur hann peð yfir, og
drottning hans og hrókur hafa
rutt sér leið bak við viglinur
svarts, Spasski hefur hinsvegar
þvingað hann til að leika hrók til
bl þar sem hann stendur ekki
beinlinis vel. Spurningin um
biðstöðuna er þvi sú hvort
Spasski takist að halda Fischer
i þessari klemmu eða hvort
Fischer nær að koma hróknum
sinum i gagnið aftur, án þess að
raska stöðunni á annan hátt.
Spasski lék biðleikinn sem var
42. leikur.
Ólafur Björnsson.
11. Bxf6 gxf6
12. Bd3 Da5
13. Kbl b4
14. Re2 Dc5
15. f5 a5
16. Rf4 a4
17. Hcl Hb8
18. c3 b3
19. a3 Re5
20. Hhf 1 Rc4
21. Bxc4 Dxc4
22. Hcel Kd8
23. Kal Hb5
24. Itd4 Ha5
25. Rd3 Kc7
26. Rb4 h5
27. & He5
28. Rd3 Hhb8
29. De2 Ha5
30. fxe6 fxe6
31. Hf2 e5
32. Rf5 Bxf5
33. Hxf5 d5
34. exd5 Dxd5
35. Rb4 Dd7
36. Hxh5 Bxb4
37. cxb4 Hd5
38. Hcl + Kb7
39. De4 Hc8
40. Hbl Kb6
41. Hh7 Hd4
42. Dg6 Hér lék Spasski biðleik
A B C 1) 1 : F G II
a>
cn
M
sa
mm\
«0
c-
u»
'l'
A B C I) E F G H
Rannsóknir í höllinni
Atjándi leikur Spasskis vakti
ekki mikla hrifningu, og virðist
sem með þeim leik hefði Spasski
setið af sér allt mótspil. Kóngur
Spasskis hóf nú ferðalag út á
drottningarvænginn til að koma
hróknum á h8 i baráttuna.
Fischer lék hinsvegar riddurum
sinum út á drottningarvænginn
og virtist algerlega halda niðri
öllum leikjum sem gætu létt á
stöðu svarts svo sem e5 og d5.
Spasski bauð upp á skiptamun,
Hvitt: Fischer.
Svart: Spasski.
1. e4 C5
2. Rf3 d6
3. Rc3 Rc6
4. d4 cxd4
5. Rxd4 Rf6
6. Bg5 e6
7. I)d2 a6
8. 0-0-0 Bd7
9. f4 Be7
10. Rf3 b5
Nokkrir islenzkir sérfræðing-
ar voru kvaddir til að rannsaka
Laugardalshöllina i fyrrinótt og
gær. og stóðu vonir til i gær-
kvöldi að úrskurður þeirra yrði
birtur i dag. Mikil leynd var yfir
þessari rannsókn sem vonlegt
er og fengu fréttamenn ekki að
vita nöfn sérfræðinganna.
Sérfræðingarnir athuguðu
ljdsaútbúnaðinn. og stólarnir
voru röntgenmyndaðir i bak og
fyrir.
Stein. lögfræðingur Chester
Fox. kom til landsins i gær-
morgun. en hann hélt blaða-
mannafund i New York i fyrra-
dag. Þar lýsti hann þvi yfir að
lögsóknin á hendur Fischer væri
eingöngu á vegum Chester Fox
og ætti Skáksambandið þar eng-
an hlut að máli.
Hann tók einnig fram að
Fischer og aðstoðarmenn hans
hefðu ekkert látið heyra frá sér i
sambandi við lögsóknina. Stein
Solzlienitsyn.
kvaðst ætla að reyna einu sinni
enn að ná samkomulagi um
kvikmyndun i siðustu umferð-
um en ef það tækist ekki myndi
hann gera allt sem i hans valdi
stæði til að leggja hald á verð-
launafé Fischers að einviginu
loknu.
Það hefur vakið nokkra at-
hygli, i sambandi við yfirlýs-
ingu Gellers, að Cramer fulltrúi
Fischers hér er ljóstæknifræð-
ingur. og Schutz, sem er nýr að-
stoðarmaður Fischers og kom
hingað fyrir nokkrum dögum er
rafeindafræðingur starfandi hjá
stórfyrirtækinu IBM. Það liggur
þvi i augum uppi að aðstoðar-
menn Fischers eru mjög vel
menntaðir á þvi tæknisviði, sem
nú er svo mjög til umræðu.
ooOoo
Aðsókn i gærkvöldi var óvenju
góð miðað við fimmtudag, rösk-
lega 1000 manns.
ooOoo
Það hefur valdið Skáksam-
bandinu leiðindum og erfiðleik-
um að óvandað fólk hefur stolið
taflmönnum af sýningarborð-
um. og hefur orðið að panta sett
með hraði að utan. sj.