Þjóðviljinn - 29.08.1972, Page 2
2 SÍÐA — Þ.IÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. ágúst 1972
Horn
✓
í
Viða um heim dreymir menn
dagdrauma. Draumaveraldir eru
yfirleitt einkaveraldir dreym-
andans, og lætur hann ógjarnan
hafa sig i að opinbera þær.
Hérlendis er ekki siður mikið
um dagdrauma en viða annars
staðar, — kannski meir vegna
legu landsins, sögu þess, ættgöfgi
landsbúa og hjátrúarinnar.
Oftar en ekki sjá menn slíka
draumóra hverfa án þess að þeir
verði nokkru sinni að veruleika.
Hins vegar reyna dreymendur oft
á tiöum aö magna slika drauma
með sér, og gera með þvi tilraun
til að láta þá verða að veruleika.
Einkenni dagdraumamannsins er
það, að honum er margt betur
gefið en biðlund, og þvi verkar
tregða draumsýnarinnar til veru
leikamyndunar oft þannig á
dreymandann, að taugar hans
bila og sýnin dregur hann til
óraunveruleikaheims draumsins,
og þar lifir hann siðan flestum
stundum i óverulegum tengslum
við raunveruleika liðandi
stundar. Orð og gerðir slíkra
draumóramanna orka þvi oft á
tiðum undarlega á okkur hin sem
enn lifum i raunveruleikanum.
Þegar svo um þverbak keyrir i
draumórunum, eru dreymendur
færöir á geðveikrahæli þar sem
sérfróðir menn glima við að koma
þeim til raunveruleikans á ný.
oOo
Ritsjórnarfulltrúi dagblaðsins
Visis birti á laugardag frétta-
grein um áhuga umheimsins fyrir
Islandi, en þar i birtist eftirfar-
andi draumsýn:
„Nærtækt dæmi um áhuga er-
lendis á fréttum héðan er
miövikudagsblaö Intcrnational
llerald Tribune. Þetta er banda-
riskt blað gcfiö út i Parls og fyrst
og fremst ætlað Bandarikja-
mönnum erlendis. BLAÐID
LEGGUR ÞVÍ SKILJANLEGA
IIOKUÐAHERZLU A BANDA-
IUSK MALEFNI."
Mikið hlýtur raunveruleikinn
að veröa manninum sár, ef hann
kemst til hans aftur.
—Úþ.
Fíknilyfin og
Miðnesstöðin
Mikil kvein eru öðru hvoru rek-
in upp af sjálfskipuðum verndur-
um siðgæðis og hreinlifis i blöðum
Sjálfstæðisflokksins Morgunblað-
inu og Visi, um aukna fiknilyfja-
neyzlu, fiknilyfjasmygl og-söíu.
Lögreglustjórar og aðrir laganna
verðir taka undir þessar kvartan-
ir og kveinstafi. Hasshundurinn
þefar dag og nótt, og sá sem gætir
hundsins á vist ekki sjö dagana
sæla. Baráttan gegn fiknilyfja-
neyzlu er i algleymingi.
Þrátt fyrir harðvituga baráttu
virðist nóg af fiknilyfjum; ekki
þarf annað en aö sækja dansleiki
út um hinar breiðu byggðir til
þess að eiga greiðan aðgang að
hassi, LSD og fleiru sliku góðgæti.
Það væri ósköp auðvelt fyrir lag-
anna verði að senda sina menn
eða fara sjálfir á slikar gleðisam-
komur, biðja einhvern ungling að
útvega sér nokkrar töflur, og það
myndi ekki standa á afgreiðsl-
unni, svo framarlega sem
eitthvað af óeinkennisklæddum
hermannaskril af Miðnesheiði
væri tagltækur, en það er sjald-
gæft að svo sé ekki. Lögregluyfir-
völd á hverjum stað virðast ekk-
ert hafa að athuga við nærveru
þessara aðila, og þeir geta þess-
vegna stundað sölumennskuna að
sinum hætti. Nú ættu þessir ágætu
verðir laga og réttar að gera smá-
reisu og athuga málin.
Allt eiturlyfjasmyglið er ekki
nema brot að magni til, miðað við
það sem hermannaruslið af Mið-
nesheiði prangar inn á unglinga á
opinberum dansleikjum og við
aðrar aðstæður einnig. Hvernig
væri, að Morgunblaðið og Visir
hvettu nú löggæzlumenn til að
rannsaka þessi mál, eða sendu
lagna blaðamenn á venjulegan
dansleik einhverja helgina? Eða
vilja þessi góðu blöð hylma yfir
með hermannaskrilnum?
— ess.
I |úffen*:ir réttir
}uúj!umin^ur
||j I riimrciti fr.i
'jj kl 1M0 1S00
oj kl iv 21 M)
!|i BnrOp.mtamr hjá
! yftrframrcMíVlumanm
i;! Sími 11122
Askriftasími
Þjóðviljans er 17500
„Stéttabaráttan99
prentuð í Svíþjóð
Stéttabaráttan boðin til sölu i Lækjar-
götu. Þetta róttæka blað er prentað i
Sviþjóð af einhverjum ástæðum. Annað
þekkt blað eða timarit, Iceland Review.er
prentað i Hollandi. Kanski islenzkir
prentarar eigi eftir aö taka upp kjörorðið:
Prentunina aftur inn i landið!
Cassius keppir
við
Floyd Patterson
Það stóð til, að Cassius Clay
kæmi til Múnchen sem hnefa-
leikafréttamaður fyrir banda-
riska sjónvarpsstöð, en hann
hætti við á siðustu stundu.
Cassius Clay á að mæta hinum
þolgóða hnefaleikamanni
Fioyd Patterson i hringnum
eftir mánuð og fannst ráðlegra
að hefja æfingar af alvöru fyr-
ir keppnina.
Risataflborð
Áhugamennska úr sögunni?
Heimsmeistaraeinvigið i
skák hefur vakið svo mikla at-
hygli, að ekki þótti annað þor-
andi en hafa risataflborð
hingað og þangað i MUnchen á
meðan olympiuleikarnir
standa. Hér sjáum við leik-
stjórann Roman Polanski
skemmta sér við tafl, en hann
er einn af fáum útvöldum sem
hefur verið boðið að spreyta
sig á að gera OL-kvikmynd
eftir frjálsu vali.
*
I rikinu Costa Rica búa um
1,7 miljón manns. Þaðan er
sendur einn maður til keppni á
ÓL, og heitir sá Rafael Perez.
Hann mun keppa i 10 km
hlaupi, en samtimis er hann
fararstjóri, þjálfari og flokks-
stjóri. Varla hefur þátttaka
hans valdið miklum deilum
hjá skattborgurum.
Það virðist svo sem menn
liti nú mun bjartari augum á
framtíð iþróttanna og þá sér-
staklega þeirra fþróttagreina
scm keppt er i á ólympiu-
leikunum, eftir að ákveðið var
aðBrundage, hinn hálf niræði
formaður Alþjöða ÓL-nefnd-
arinnar, ætlaðiað hætta. Þessi
Don Quixote nútimans verður
ekki i endurkjöri til formanns-
sætisins, en hann hefur barizt
eins og ljón gegn atvinnu-
mennskunni, og þvi hefur
orðið að nota allskonar svindl
til að koma mönnum á ÓL, svo
sem með þvi að skrá þá
stúdenta og fieira.
Bandariski stangar-
stökkvarinn Bob Seagren
sagði i Miínchen að hann
fagnaði þvi að nú virtist þess
skammt að biða að atvinnu-
mennska yrði viðurkennd.
Sagðist hann búast við þvi að
innan fárra ára yrði kominn
upp „iþrótta sirkus” þar sem
iþróttamönnum gæfist kostur
á að stunda iþrótt sina á
fullum launum.
Hjóluðu til Munchen
*
Ennio Ponte, 42 ára
gammall Texasbúi, kom
einnig hjólandi til Múnchen.
Hann hafði farið 10 þús km.
vegalengd, skipt sjö sinnum
um keðju, og 21 sinni mátti
hann bæta slöngu á hjóli sinu.
Sjá mynd til vinstri.
*
M Chkkana frá Mysore i
Indlandi var tvo mánuði og
fimm daga að hjóla frá Ind-
landi til Múnchen. Hann ætlar
ekki að keppa á ÓL,er bara
duglegur trimmari og hyggst
hjóla sömu leið til baka að
leikunum loknum.
Sjá mynd til hægri.