Þjóðviljinn - 29.08.1972, Page 3
Þriðjudagur 29. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3.
Fallegur
heimilis-
iðnaður
Á laugardaginn var sinn, sem efnt er til sýn-
opnuð í Norræna húsinu
sýning á sænskum
heimilisiðnaði. Sýningin
verður opin til 10. sept-
ember. Þetta er í fyrsta
ingar á sænskum heim-
ilisiðnaði, utan Svíþjóð-
ar.
Á sýningunni eru vefn-
aðar-, trjáiðnaðarvörur,
járngripir o.fl. Þarna
eru ennfremur margir
skemmtilegir munir frá
Lapplandi, en Lappar
eru heimskunnir hand-
iðnaðarmenn.
Myndirnar eru teknar
á sýningunni. Á stærri
myndinni sést yfir sýn-
ingarsalinn,en á hinni er
vefstóll þar sem sýn-
ingarstúlkur kenna
börnum að vefa.
I
I
SKIPSSTRAND
!Á KÁLF AFELLS*
i
N orður-Prinsinn”
og félagar hans
Togarafélagið „Northern
Trawlers Ltd" hefur að-
setur i Grimsby og átti það
togarann sem fyrstur var
rekinn frá Færeyjum. Fé-
lag þetta á marga togara
sem allir eru kenndir við
norðrið: Northern Chief,
N. Eagle, N. Gift, N.
Sceptre, N. Sea, N. Sky, N.
Isles, N. Jewel, N. Prince,
N. Princess, N. Queen, og
1 N. Reward.
Hér er þvi um að ræða 12 tog-
ara, Flestir eru þeir gamlir, þar
af þrir frá 1949, — Prinsinn,
Drottningin og Prinsessan eins og
islenzkir togarasjómenn kalla þá.
Allt eru þetta stórir togarar.
Skipstjórinn á Northern Prince
skýrði frá þvi i Færeyjum að mál-
að hefði verið yfir nafn og númer
skipsins að kröfu útgerðarinnar.
Ennfremur sýndi hann Færey-
ingum bækling með fyrirmælum
um hegðan skipverja ef til átaka
kæmi við íslendinga. —- Þetta
þarf að hafa i huga þegar
„Norður” — togararnir leita næst
að tslandsströndum.
iFJORU
Vélbáturinn Fjóla BA 150
_ strandaði upp úr miðnætt-
I inu aðfaranótt mánudags-
ins á KálfafelIsfjöru í
B| Austur-Skaftafellssýslu.
Tveirmenn voru á Fjólu og
komust þeir heilir frá borði.
Að sögn Hannesar Hafstein hjá
Slysavarnarfélaginu varð strand-
ið klukkan 01.20 á mánudags-
morguninn, en Fjóla var á leið frá
Djúpavogi til Vestmannaeyja
þegar strandið varð, en frá
Djúpavogi hefur verið róið á
bátnum á handfæri i sumar.
Fjóla, sem er 28 tonna fram-
byggður eikarbátur smiðaður á
Fáskrúðsfirði 1971, strandaði á
Kálfafellsfjöru, milli Nýjaóss og
Bergvatnsóss.
Varðskipið Óðinn, sem var
þarna skammt undan, fór þegar
af stað á strandstað, og frá
Kirkjubæjarklaustri lagði deild
slysavarnarfélagsins af stað i átt
aö strandstað.
Kaldaskitur var, 4-5 vindstig,
en sjólitið, og mennirnir tveir um
borð i Fjólu ekki i yfirvofandi
hættu.
Háfjara var um klukkan 03.30,
og komust mennirnir þá af sjálfs-
dáðum frá borði og upp á þurrt.
Rétt fyrir klukkan 5 var björg-
unarsveitin komin að Hvalsiki og
bjó sig undir að komast þar yfir
þegar boð kom frá Óðni þess
efnis, að varðskipsmenn ætluðu
Franihqld á II. siðu.
Fátt gerist í
Hamranesmálinu
Að sögn fulltrúa við sýslu-
mannsembættið i Hafnarfirði
hefur ekki enn dregið til tiðinda i
svonefndu Hamranesmáli, sem
snýst um hver orsök hafi veriö
fyrir þvi, að togarinn Hamranes
sökk vestur af landinu fyrr i
sumar.
Fulltrúinn fékkst ekki til að
segja annað en það, að ákveðið
yrði i vikulokin hvort málið yrði
sent saksóknara. —“Þ
Stór-
meistarinn
varð
aftarlega
á merinni!
Skáksamband Islands gekkst
fyrir hraðskákmóti i Glæsibæ um
helgina.
Þátttakendur voru 14 talsins og
tefldu allir við alla, og voru hverj-
um manni ætlaðar 5 minútur á
skák.
Sigurvegari varð argentiskur
alþjóðameistari, Quinteros að
nafni og hiauthann 11 1/2 vinning.
Annar varð Ingi R. Jóhannsson
sem hlaut 10 1/2 vinning, og þriðji
varð sovézki alþjóðameistarinn
Nei, sem er i fylgarliði Spasskis,
en hann hlaut 10 vinninga.
Aðeins einn stórmeistari tók
þátt i mótinu, Kavaleck frá
Bandarikjunum, og hlaut hann 6
1/2 vinning —-úþ
Fox fellur frá
málsókn á hendur
Fischer hérlendis
Skáksamband tslands hefur
gert samning við kvikmynda-
tökumann heimsmeistaraein-
vigisins, Fox, þess efnis að
hann falli frá málssókn á
hendur áskorandanum hér á
landi, og með þvi verður hægt
að afhenda Fischer þau verð-
laun sem hann hlýtur i pen-
ingum fyrir þátttökuna i ein-
viginu, hvort sem hann nú
vinnur það eða ekki.
Frá þessu skýrðu Skáksam-
bandsmenn á blaðamanna-
fundi að Hótel Loftleiðum
siðastliðinn laugardag, og þvi
jafnframt að Skáksambandið
hefði,vegna þessarar afstöðu
Fox, fallið frá fjárkröfum i
tekjursem hugsanlega yrðu af
kvikmyndun einvigisins.
Fox er þó ekki búinn að gefa
upp vonina um að ná fé af
Fischer, þvi ætlun hans er að
ferðast um og láta kyrrsetja fé
sem hugsanlegt er aö Fischer
eigi i vændum, og verður byrj-
unin sú að lögfræðingur hans
mun fljúga til London og láta
leggja löghald á verðlaunafé
það sem brezki milljónamær-
ingurinn Siater bauðst til að
leggja i verðlaunasjóðinn
Chester Fox
þegar F'ischer var i sem
mestri fýlu, en eins og kunn-
ugt er barg það framlag ein-
viginu.
Ekkert hefur enn verið gefið
út um það af skattayfirvöldum
hvort verðlaunafé þeirra
Spasskis og Fischers verði
skattlagt hér á landi eða ekki,
en samkvæmt gildandi lögum
ber að skattleggja það hér.
Hins vegar halda þeir Skák-
sambandsmenn að ekki verði
úr sköttun verðlaunafjárins.
Rannsóknum i Laugardals-
höllinni eftir beiðni Sovét-
mannanna er nú lokið, en
sýnishorn það sem tekið var af
fyllingarefni sem fannst i stól
Spasskis er enn i rannsókn, en
von er á niðurstöðum þeirra
rannsókna i dag.
Dr. Max Euwe, forseti
Alþjóðaskáksambandsins, var
væntanlegur hingað til lands i
gær til að fylgjast með siðustu
skákum einvigisins, en hann
mun að þvi loknu sæma sigur-
vegarann heimsmeistaratign.
—úþ