Þjóðviljinn - 29.08.1972, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 29.08.1972, Qupperneq 5
Þriðjudagur 29. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5. Skipulagning fiskveiða og hagnýting afians fiskimál ^eftir Jóhann J. E. Kúld^, Menn hafa ekki gert sér grein fyrir þvi hér á íslandi nema að nokkru leyti, hvers virði góð skipulagning við sjálfar fiskveið- arnar og hagnýtingu á aflanum er. En i nútima tækniþjóðfélagi er það undirstaða góðrar afkomu, að skipulagning vinnu og vinnslu sé i samræmi við þá tækni sem notuð er. Þegar maður kynnir sér þetta hjá þeim sem lengra eru komnir á þessu sviði, þá verður manni það ljósara en áður, að margra endurbóta er hér þörf. 1 þessu sambandi vil ég bregða upp mynd af Findusuitgerðinni i Hammer- fest i Noregi, þar sem hún hefur löngum verib talin standa mjög Ég held að það væri hollt fyrir þá aðila sem kalla sig sérfræð- inga i efnahagsmálum á íslandi, að glugga betur niður i þær stað- reyndir sem valdið hafa koll- steypum i okkar framleiðsluþjóð- félagi á undanförnum áratug, með gengislækkun á gengislækk- un ofan. Gengislækkun var engin lækning i sjálfu sér á óhagstæðu rekstrarástandi útflutningsat- vinnuvega okkar, heldur miklu fremur flótti frá varanlegri lausn, framkvæmdur hvað eftir annað i trausti þess að almenningur i landinu tryði þvi, að annað væri ekki hægt að gera. Og þvi yrði hann að taka á sig skellinn; önnur leið væri ekki til. Leiðin niður brekkuna þykir ýmsum auðveld- ari heldur en sækja gegn brattan- um, þvi það kostar meiri áreynslu. En þeir, sem sækja upp, losna oft við þær byltur sem hinir fá er undan hallanum hlaupa; þannig er þetta i bókstaf- legri merkingu orðsins og eins þar sem likt stendur á. Gengis- lækkun er i flestum tilfellum hlaup niður hallann undan brekk- unni, i stað þess að sækja gegn brattanum og yfirstiga hann. Sjávarútvegurinn, fiskveiðar og fiskvinnslateru atvinnugreinar sem við verðum að treysta á i út- flutningsbúskap okkar. Verði til- kostnaður þessara atvinnugreina til langframa meiri heldur en sú summa sem fyrir framleiðsluna fæst, þá er kominn hallarekstur. Að ætla sér að lækna slika þjóð- félagsmeinsemd með lagasetn- ingu um lækkað gengi einu ráða, það er barnaskapur sem um of rifjar upp úrræði þeirra frægu Bakkabræðra. Eftir stórfelldar gengislækkan- ir æ ofan i æ á Viðreisnarárunum, framarlega um alla skipulagn- ingu, enda byggð upp af sérfræð- ingum, bæbi á sviði tæknivinnslu og reksturs. Findus hefur sett sina eigin reglugerð um meðferð á veiddum afla; þessi reglugerð stendur feti framar um allar kröfur, heldur en rikisreglugerðin norska, sem þó stendur framar heldur en islenzk reglugerð um sama efni. Svo þá stóðu útflutnings-atvinnuvegir okkar ekki eins styrkumfótum og vænta hefði mátt, hefði allt verið með felldu. En hvers vegna stóðu þeir þannig? Þessu verður ekki svarað af viti, nema á einn veg. Ástæðan var sú og sú ein, að það var vanrækt að byggja upp þessa sömu atvinnuvegi sem verið var að bjarga með gengisfellingu. Bezta og öruggasta ráðið til björgunar var vanrækt með þvi, að vanrækja endurnýjun og upp- byggingu okkar fiskiskipastóls, ásamt þvi að fiskiðjuverum okkar var haldið i ástandi sem i flestum tilfellum svaraði ekki kröfum timans um hagkvæman rekstur og stóðu þvi vanbúin, að geta keppt við annarra þjóða fiskiðn- að, þar sem á raunsannari hátt t ýmsum sjávarplássum þarf að byggja upp ný fiskiðjuver frá grunni, þvi að þau sem fyrir eru svara á engan hátt kröfum tim- ans og breytingar á þeim ekki gerlegar svo að nokkurt vit sé i. Á öðrum stöbum er hins vegar hægt að gera hagkvæmar breytingar með viðbyggingum þannig, að þau fiskiðjuver komist i hag- kvæmt rekstrarlegt ástand á eft- ir. Þá er sem betur fer nokkur hópur fiskvinnsluhúsa sem aðeins þarfnast minniháttar breytinga og lagfæringa svo að þau geti tal- izt viðunandi. En eitt er hins veg- dæmi séu nefnd gerir norska rikisreglugerðin ráð fyrir að ekki sé skipað á land eldri isvörðum fiski heldur en 8 sólarhringa gömlum; þarna er hins vegar Findusreglugerðin með 7 sólar- hringa sem algjört hámark. Þegar ég spurði framleiðslustjór- ann hjá Findus-fyrirtækinu hverju þetta sætti, þá sagði hann, að rikið setti sinar reglur til að hafði verið staðið að málum. Nú er byrjað að endurnýja okk- ar fiskiskipaflota og við verðum að vona að sú endurnýjun takist vel. En hins vegar standast ekki nema fá fiskiðjuver okkar þær kröfur sem gera verður til þeirra svo þau geti haldið uppi hag- kvæmum rekstri i samkeppni við þjóðir sem lengra eru komnar á þessu sviði. Þarna er mikið átak i okkar efnahagsmálum, sem ekki verður lengur skotið á frest án þess að það hafi alvarlegar af- leiðingar i för með sér. Þessi óhjákvæmilega uppbygging okk- ar er nauðsynleg, bæði vegna rekstrarlegrar afkomu fyrirtækj- anna i náinni framtið, svo og þeirra auknu krafa frá neytend- um markaðslandanna, að full- ar sameiginlegt með öllum fisk- hraðfrystihúsum landsins, og það er að þau vantar kaldar hráefnis- geymslur, þar sem hægt er að geyma fisk isvarinn i kössum. Með tilkomu kassa og kaldra geymslna eiga að skapast skilyrði fyrir betri hráefnisnýtingu og hagkvæmari rekstri. Þá verður auðveldara en nú er að jafna vinnu á milli daga, án þess að eiga á hættu að fiskurinn eyði- leggist. Ýmsum vex i augum sú fjárfesting sem þessu hlýtur að vera samfara. En án slikrar fjár- festingar komum við ekki útflutn- tryggja lágmarksgæbi. ,,En við setjum okkar til að ná sem bezt- um árangri”. Hjá Findusfyrir- tækinu hefur framleiðslustjórinn yfirsýn yfir allan rekstur fyrir- tækisins, á sjó jafnt sem landi. Hver togari félagsins hefur sam- band við fyrirtækið einu sinni á sólarhring á ákveðnum tima; frá þeirri reglu er ekki leyfilegt að vikja. komnasta hreinlætis sé gætt við alla matvælaframleiðslu. Þessi aðkallandi uppbygging þolir af báðum þessum ástæðum mjög takmarkaða bið, og á þvi að minu viti að vera algjört forgangsverk- efni hvað fjárfestingu áhrærir. Án hagkvæmrar uppbyggingar i okk- ar undirstöðuatvinnuvegum, get- ur reynzt erfitt að verjast nýjum kollsteypum i okkar efnahags- málum, en gegn þeim þurfum við að berjast; annað væri svik við okkur sjálfa. Leiðin sem fara verður er ein- faldlega sú og sú ein að byggja upp á hagkvæmari hátt en hingað til okkar aðalútflutningsatvinnu- veg, sjávarútveginn, svo að hann verði fær um að standa undir auk- inni yfirbyggingu þjóðfélagsins. ingsframleiðslu okkar i sam- keppnisfært ástand til frambúð- ar, en að þvi verðum við að keppa, þvi að það er okkar undir- staða. Vinnsla sjávarafurða okk- ar er viða i úreltum óhagkvæm- um húsum, sem sum hafa aldrei verið nema hálfbyggð, og er búin að vera okkur of dýr gegnum ár- in, svo að við erum neyddir til þess nú að taka þessi mál föstum tökum. Fjármagn sem til þess þarf að þetta sé hægt að gera verður að útvega, sé það ekki fyr- ir ' hendi. Kollsteypur efna- hagslifsins verða bezt fyrir- Sólarhringsafli hvers togara er færður á veggtöflu i sérstöku her- bergi i iðjuverinu, svo að auðvelt er að sjá hvernig aflamagnið breytist hjá hverju skipi frá degi til dags. Oftast eru svo togararnir kallaðir inn með 4-5 sólarhringa gamlan fisk. Samskonar skipu- lagning á sér stað við vinnsluna; þar er alltaf verið með elzta fisk fyrirtækisins i vinnslu hverju sinni. Sé aflinn það mikill á mið- unum að fyrirsjáanlegt er, að hann verði ekki unninn upp á hæfilega löngum tima i hrað- frystihúsinu i flök, þá er hann strax heilfrystur til vinnslu siðar eða rábstafað i aðra verkun. í það minnsta tveir af Find- ustogurunum hafa tæki um borð til hraðfrystingar á heilum fiski; þá eru lika slik tæki tiltæk hverju sinni i fiskiðjuverinu i landi. Findus lét vinna á tveimur 8 tima vöktum á sólarhring þegar ég heimsótti þá 1970. En hins veg- ar var unninn vinnutimi tæpar 7 klst. á vakt, þvi að frá 8 timunum dragast 30 minútur sem er matarhlé, þar við bættust 7 minútur fjórum sinnum á vakt, svo kallaður afslöppunartimi, tekinn eftir vissum reglum, og enn fremur voru innifaldar i 8 tima vaktinni nokkrar minútur þegar vinna hófst sem fóru i það að skipta um föt. Hins vegar afklæddist fólkið og snyrti sig til i sinum eigin tima, að aflokinni vaktinni. Þetta var árið 1970, en hvernig þetta er nú, veit ég ekki. Það hefði verið alveg útilokað á þessum tima og er það raunar ennþá, að minu mati, að islenzkt fiskiðjuver gæti greitt starfsfólki sinu kaup fyrir sömu vinnu sem veitti álika lifskjör og starfsfólk Findusiðjuversins naut árið 1970. Til þess að það væri hægt, yrði að skipuleggja betur bæbi veiöar og vinnslu hjá okkur. Veigamestu atriðin og þau sem mestu máli skipta i þvi sambandi eru: i fyrsta lagi — betur meðfarinn fiskur, i öðru lagi — kældar hrá- efnisgeymslur i landi við fiskiðju- verin og notkun kassa undir isvarinn fisk, bæði á sjó og landi. i þriðja lagi — meiri fullvinnsla vörunnar og betri nýting hrá- efnisins. Sé hægt að koma tveim- ur fyrst töldu liðunum i þessari upptalningu minni i bætt og betra horf, þá tryggir það aukna og betri nýtingu á hráefni þvi sem unnið er úr. Hér er um staðreynd- ir ab ræða og þær blasa óviða bet- ur við augum heldur en einmitt hjá Findusiðjuverinu, þar sem gömul áunnin reynsla ásamt visindalegri nútimaþekkingu hafa verið teknar i þjónustu fisk- framleiðslunnar, svo bezta fáan- legum árangri yrði náð i vöru- gæðum og nýtingu. byggöar með þvi, að við komum sjávarútvegi okkar, fiskveiðum og fiskiðnaði i eins hagkvæmt nútimahorf og hægt er. Þetta er nauðsynlegt, aö bæði þjóðin og valdamenn þjóðfélagsins skilji, þvi á annað höfum við ekki að treysta. Þess vegna verður lika arðvænlegasta fjárfestingin sú, sem við leggjum i það að tryggja undirstöðu þjóðfélagsins i efna- hagsmálum, en það gerum við bezt með þvi, að koma fiskveiðum okkar og fiskvinnslu i tæknilegt nútimahorf. Um það þurfum við að sameinast nú. Það sem verður að gera Kollsteypur efnahagslífsins

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.