Þjóðviljinn - 29.08.1972, Page 7

Þjóðviljinn - 29.08.1972, Page 7
6. SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. ágúst 1972 Þriðjudagur 29. ágúst 1972 Þ.IrtÐVIL.IINN — SÍÐA 7. 2. deild IBA vann stórsigur gegn Völsungum 8:2 Ekkert fær nú stöðvað sigur Akurcyringa i 2.-deildar- keppninni. Um siðustu helgi sigraði iBA Völsung frá Ilúsa- vik með miklum yfirburðum cða S:2, og er nú nánast formsatriði að Ijúka 2.- dcildarkeppninni. Sigur Akur- eyringa ætlar að verða álika glæsilegur i 2. deild i ár og sigur Vikings var i fyrra, og liefur liðið nú aðeins tapað 2 stigum, og i bæði skiptin var uin jafntcfli að ræða. FH marði sigur yfir ÍBÍ 3:2 FH marði sigur yfir Isfirð- ingum i bikarkeppni KSt um helgina. Leikurinn fór fram á tsafirði, og sigraði FH 3:2 og heldur þvi áfram i bikar- keppninni að minnsta kosti eina umferð enn. S.dór Haukarnir eru sloppnir Ilaukarnir unnu sætan sigur gegn Sclfyssingum um helgina 3:2 og eru þar með sloppnir úr allri fallhættu i deildinni i ár, og er Ijóst að það verður IBl sem fellur niður i 3. dcild. Leikur Ilauka og Sclfyssinga fór fram i llafnarfirði. en fyrri leik liðanna vann Selfoss með nokkrum yfirburðum. 999 Pólverjar hlutu gull Pólverjar hlutu sin fyrstu gullverðlaun á þessum ÓL, cr fluguvigtarly ftingarmaðurinn Zygmunt Smalcerz sigraöi í sinum þyngdarflokki með þvi aö lyfta samtals 337,5 kg. (Serian var 112,5, 100, og 125 kg.) Silfrið hlaut Lajos Szuecs frá Ungverjalandi, lyfti sam- tals 330,0 kg. Bronzið hlaut San Holczreiter frá Ungverja- landi, lyfti 327,5 kg. Glæsileg opnunarhátíð Svíar hlutu fyrstu gullverðlaunin á þessum Olympíuleikum Opnunarhátið 20. Ólympiuleikanna i Miinchen sl. laugardag er einhver sú glæsilegasta sem sög- ur fara af. Allt hafði verið gert til þess að hún mætti verða sem glæsilegust, og hvert einasta smáatriði tókst eins vel og vonazt hafði verið til. Forseti V-Þýzkalands Gustaf Heinemann setti leikana eftir að 10 þúsund þátttakendur frá 122 löndum höfðu gengið inn á leikvanginn og raðað sér upp. Fyrstir gengu grisku þátttakendurnir en siðan komu þátttakendur landanna i stafrófsröð. íslensku þátttakendurnir komu inn næstir á eftir írum, og var Geir Hallsteinsson fánaberi íslands. Eítir að 5000 hvitum dúfum hafði verið sleppt iausum, sem tákni fyrir hugsjón Ólympiuleik- anna, Heinemann hafði dregið ÓL-fánann að húni og hin 22ja ára gamla frjálsiþróttakona Heidi Schiller hafði svarið ÓL-eiðinn, kom Guenther Zhan 18 ára gamall Þjóðverji hlaupandi með Óiympiueldinn og tendraði hann, en eldurinn hafði verið tendraður í Grikklandi 28. júli sl. og siðan höfðu 5975 konur og karlar hlaupið með hann 5538 km. til Múnchen. Þar með Iauk þessari áhrifamiklu setningarhátið, og þátttakendur gengu útaf leikvanginum i sömu röð og þeir höfðu komið inn. Engin keppni átti sér stað i laugardaginn; hún hófst ekk fyrr en á sunnudag. Fyrsta greinin sem keppni lauk i vai skotkeppni með skammbyssu og þaö var Svlinn Ragnai Skanaker sem sigraði og varf þar með fyrstur til að hljóta gullverölaun á þessum leikum nokkuð sem Þjóðverja sjálfa dreymdi um að gera. A-Þjóðverjinn Harald Voll- mar veitti Ragnari harða keppni lengi vel, en varð svo að láta i minni pokann fyrir honum og einnig Rúmenanum Dan Iuga, sem hreppti silfrið, en Vollmar hlaut aðeins bronz- verðlaunin. Ragnar Skanaker hlaut 567 sitg, sem er nýtt Ólympiumet. Ragnar sem er 38 ára gamall hefur æft skotfimi i 5 ár, og árangur hans i byrjun var ekki á þann veg að menn geröu nokkru sinni ráð fyrir honum sem sigurvegara á Ólympiuleikum. ,,En fimm ár er nægur timi til þess að æfa sig fyrir Ólympiu- leika”, sagði hann að lokinni keppni á sunnudaginn. Arangur hans er að sjálfsögðu sænskt met og það bezta sem Ragnar hefur nokkru sinni náö, meira að segja á æfingu. ,,Ég var hræðilega tauga- óstyrkur fyrir keppnina”, sagði hann, ,,en þegar mér var til- kynnt um að ég hefði unnið og hlotið gullverðlaunin, þau fyrstu á þessum leikum, varð ég óumræðilega glaður, meira en orð fá lýst”. Ungverjar stefna að 3ja OL-sigri sínum í röð Allt útlit er fyrir, að Ung- verjum takist aö vinna knatt- spyrnukeppni Ölympfuleik- anna að þessu sinni, og yrði það þá i 3. sinn I röð sem þeir þá vinna þessa keppni. t sinum fyrsta leik i Miinchen sigruðu þeir irani 5:0. USA—Marokkó 0:0. Bandarikjamenn komu á óvart i knattspyrnunni á Ólympiuleikunum mcð þvi að ná jafntefli():0 gegn Marokkó- mönnum. Þeir geta einkum þakkað markvcrði sinum Maik Ivanov þetta jafntefli, og þess má geta að liðið hefur ckki tapað leik siðan þessi frá- bæri markvörður kom i liðið. V-Þýzkal. — Malasia 3:0. V-Þjóðverjar unnu lið Malasiu 3:0, en ollu þó þýzkum áhorfendum miklum vonbrigðum. Það liðu 56 minútur þar til Þjóðvcrjunum loks tókst að skora, cn þá brotnuðu Asiumennirnir, og 3:0 urðu úrslit leiksins. Hörð keppni > / \ * i roðri Greinilegt er, að róðrarkeppnin verður geysilega hörð á Ölympiuleikunum. Niu lönd liafa tryggt sér rétt til þátt- töku i undanúrslitum, og eru það: Bandaríkin, V-Þýzkaland, Austurriki, Nýja-Sjáland, Ung- verjaland, Argentina, Sovétrik- in, Ilolland og A-Þýzkaland. I riðlakeppninni foru leikar þannig, 3 efstu lönd, og þag. komast áfram i undanúrslit: 1. RIDILL USA 6:06,01 min. V-Þýzkal. 6:19,28 min. Austurriki 6:20,60 min. 2. RIÐILL Nýja-Sjáland 6:06,19 min. Ungverjaland 6:17,51 min. Argentina 6:20,31 min. 3. RIÐILL Sovétrikin 6:12,35 min. Holland 6:13,03 mín. A-Þýzkaland 6:14,06 min. r Ovœntur sigur Dana yfir Brasilíumönnum Danir gera það ekki endasleppt í knattspyrn- unni i sambandi við ÓL. Fyrst unnu þeir Rúmena í undankeppninni öllum á óvart og komust þar með til Múnchen, og nú byrja þeir lokakeppnina á því aðvinna Brasilíumenn 3:2. Þetta er sigur sem eng- inn átti von á og sjálfsagt allra sízt Danir sjálfir. Danska liðið byrjaði leikinn mjög vel, og hið unga brasiliska lið (meðalaldur 19 ár) réð ekki við hið harða danska lið. Það var hinn smávaxni Allan Simonsen, sem við sáum leika hér með danska liðinu i sumar er leið, sem skoraði fyrsta mark Dana. Það var á 29. minútu leiksins. Staðan i leikhléi var 1:0 Dönum i vil. Hægri bakvörður danska liðs- ins Per Röntved skoraði 2:0 á 50. minútu, en eftir þetta mark fór brasilska liðið loks i gang og náði að jafna 2:2 . En þá skoraði Allan Simonsen aftur og tryggði Dönum þennan óvænta sigur. Simonsen skoraði 8 minútum fyrir leikslok. Eins og áður segir, átti hið unga lið Brasiliumanna i erfið- leikum með Danina. Einkum var það i einvigi, hvort heldur var skallaeinvigi eða barátta um boltann á vellinum. En Brasiliumennirnir voru bæði fliótari og leiknari en Danirnir. Siglinga- keppnin i riölakeppninni i siglingum á ÓL urðu úrslit þessi: 1. riðill Argentina V-Þýzkal. Sviss Chile Bcrmuda Mexikó 2. riðill Sovétrikin A-Þýzkal. irland USA Tékkóslóvak. Sviþjóð 7:46,09 min. 7:48,12 min 8:00,20 min. 8:23,38 min. 8:29,20 min. 8:38,63 min. 7:42,67 min. 7:46,31 mln. 7:47,54 min. 7:57,85 min. 7:58,15 min. 8:12,92 min. ,á»% ^10 099 099 959 099 099 ‘099 r&9 099 ‘099 099 099 099 ÍSLANDSMEISTARARNIR í 3JA SÆTI — eftir sigur gegn Akranesi 2 — 0 i ákjósanlegasta knatt- spyrnuveðri sem hugsan- legt er fjölmenntu áhorf- endur á völlinn i Keflavik til að sjá skemmtilegan leik milli tveggja af efstu liðunum í ár. Hinn stórgóði völlur Keflvíkinga var í toppstandi, og alliráttu von á einum bezta leik sumars- ins. Vonbrigðin urðu mikil. Hvorugt liðið sýndi skemmtilega knattspyrnu. Leikurinn var þófkenndur og einkenndist af háum spörkum andstæðinga á milli. Að vísu komu ágætir kaflar inn á milli, en þeir voru svo fáir og stuttir, að varla tekur að nefna þá. Þótt þessi leikur geti varla tal- izt mikilvægur fyrir liðin, virtist gæta töluverðs taugaóstyrks hjá leikmönnum. Allavega var fumið á fyrstu minútunum mikið, barizt af miklu kappi, en minna af for- sjá. Þannig myndaðist mikið þóf á miðjum velli, og fyrsta færið kom ekki fyrr en á 15. min. Skagamenn voru þá sem oftar að dútla fyrir utan teig, en skyndilega kom snöggur bolti inn til Eyleifs sem lék inn fyrir varnarlinuna og skaut, en Þor- steinn varði, boltinn hrökk út til Teits Þórðarsonar sem skaut en hitti ekki. Skömmu siðar átti Steinar Jóhannsson fast skot fyrir utan teig, en knötturinn smaug stöngina að utanverðu. Litlu siðar fékk Eyleifur aftur stungubolta inn fyrir vörnina, en Þorsteinn var vakandi og hirti boltann af tám hans. A 29. minútu kom svo fyrsta markiö. ólafur Júliusson og Þröstur Stefánsson voru að kljást um boltann á vinstra kanti Kefl- vikinga. Þröstur hafði betur og hugðist hreinsa fram, en ekki tókst bctur til en svo, að boltinn hrökk i ólaf og þaðan til baka i átt að marki Akurnesinga. Ólafur var ekki lcngi að þakka fyrir sig, brunaði upp aö endamörkum og gaf þaðan gullfallegan bolta inn i markteig, og Steinar skallaði í netið. Enn komst Eyleifur einn inn fyrir, en Þorsteinn varði fallega. I siðari hálfleik skiptust liðin á um aö sækja, en þó var Kefla- vikurliðið öllu betra, sótti meira og skapaði sér öllu fleiri tækifæri. Fyrsta lærið átti þó Eyleifur. Hann hljóp vörnina af sér, en þó hann væri einn fyrir innan átti hann erfitt um vik, og allt rann út i sandinn. Rétt á eftir var Steinar kominn einn innfyrir vörn Skaga- manna, en skot hans var varið. A 13. mlnútu kom siðara mark Kcflvikinga. Meinlaus bolti kom frá hægra kanti inn i markteig. Einhverra hluta vegna stóðu markmaður og varnarmenn staö- ir. ólafur Júliusson kom aðvff- andi og skallaöi I netið. Dæmið snerist skemmtilega við frá fyrra markinu; þá gaf ólafur frá vinstra kanti á Steinar, en núna gaf Steinar frá hægra kanti á Ólaf. Eftir þetta var þófið i algleym- ingi, og spennan virtist vera að fjara út. En þegar stundarfjórð- ungur var eftir af leiknum endur- vöktu Keflvikingar hana all- hressilega. Þá pressuðu þeir stanzlaust, boltinn hrökk i stöng- ina, bjargað var á linu, og það er eiginlega óskiljanlegt að boltinn skyldi aldrei geta skriðið inn fyrir marklinuna. I einar 3-4 minútur gekk leikurinn út á eintómar „reddingar” Skagamanna, en siða* jafnaðist hann aftur. Á sl^ustu minútunum sóttu svo Skagamenn stift,og var Eyleifur þá eini maðurinn sem uppi stóð. Hann barðist vel og uppskar tvö ágæt færi á lokaminútunum. Hann komst þá einn inn fyrir, en i fyrra skiptið varði Þorsteinn, og i siðara skiptið bjargaði varnar- maður á linu — með hendinni. Þar var þvi augljóst víti, en ekk- ert var dæmt frekar en svo oft áður. Eins og áður segir var litið varið i þennan leik knattspyrnu- lega séð. Hann einkenndist af Framhald af bls. 11. Eyleifur Hafsteinsson bezti maðurinn á vellinum á hér I höggi viö Þorstein markvörð IBK. Eyleifur skaut framhjá Þorsteini, en skot hans var varið á línu með hendi án þess að dómarinn sæi ástæðu til að dæma vítaspyrnu. Fram var heppið að ná jafntefli gegn Víking 3:3 Framarar voru stál- heppnir aö ná jafntefli gegn Víkingum á sunnu- daginn; og að þarna skyldu eigast við botnliðið og toppliðið i 1. deild, því hefði enginn trúað sem ekki hefði þekkt til ís- lenzkrar knattspyrnu. En með þessu jafntefli hefur Víkingur mjakazt frá botninum, og Fram nær Islandsmeistaratitlinum,- Þá hefur það og gerzt með þessu jafntefli, að KR- ingar eru komnir inná fallhættusvæði og raunar Valur líka, en leikur þess- ara liða í gærkvöldi (sem sagt er frá annars staðar i blaðinu) sker úr um hvort þeirra heldur áfram í fall- hættunni. Fyrri hálfleikur leiks Fram og Vikings var mjög fjörugur og skemmtilegur, og ekki vantaöi mörkin. Strax á 3. minútu kom mark sem maður gleymir seint. Gunn- ar Gunnarsson tengiliður Vikings var með boltann á miðjum vallar- helmingi Fram og lék honum áleiðis aö markinu, og allt i einu reið þrumuskot hans af og boltinn hafnaði efst i samskeytum marksins og i netið. Þorbergur hreyfði hvorki legg né lið til varn- ar, enda hefði það ekki verið á færi nokkurs markvarðar aö verja þetta skot, þótt af 25 til 30 m. færi væri. Næstu minúturnar sótti Vik- ingur stift, þeir hreinlega gleymdu vörninni, og þaö átti eft- ir að reynast þeim dýrkeypt. Á 15. minútu komst Elmar einn inn fyrir Vikingsvörnina og lék upp að endamörkum og gaf þaðan fyrir markið til Erlendar, sem fylgt hafði eftir, og hann fékk boltann óvaldaður og jafnaði 1:1. Og þetta endurtók sig svo á 25. rninútu, nema hvað, að nú var það Erlendur sem gaf á Elmar, og hannstakk alla af og skoraði 2:1, og enn einu sinni komst Elmar i gegn aðeins 2 minútum siðar og skoraði 3ja markið. Þegar þessi ósköp höfðu dunið yfir tóku Vikingar að ugga að sér i vörninni, og slikt sem þetta kom ekki fyrir aftur. Nú hertu Vik- ingar sóknina að mun, og á 35. minútu var Stefán Halldórsson kominn i gegn, er á honum var brotið gróflega innan vitateigs og vitaspyrna réttilega dæmd. úr henniskoraöi Hafliði örugglega 2. mark Vikings. Staðan i leikhléi var þvi 3:2 Fram i vil, og vissulega hafði þetta verið einn skemmtilegasti hálfleikur sem maður hefur séð hér i sumar. Það voru ekki liðnar nema um það bil 30 sekúndur af siðari hálf- leik, þegar Vikingur hafði jafnað. Guðgeir lék upp hægri kantinn og gaf þaðan fyrir til Eiriks, sem lék að vitateigslinu og skoraði þaðan með fallegu skoti 3:3. Eftir þetta sótti Vikingur nær látlaust, og hvað eftir annað skall hurð nærri hælum við Fram-markið, en allt- Framhald á 11. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.