Þjóðviljinn - 29.08.1972, Side 9
Þriðjudagur 29. ágúst 1972 &j«I>VILjÍNN — SÍÐA 9. j
BEDFORD
í BANN
Nú horfir heldur illa fyrir
einum bezta langhlaupara
heims. Bretanum David Bed-
ford. Alþjóða ÓL-nefndin hef-
ur ákvcðið að kalla hann fyrir
sig, og verður hann ákærður
fyrir að hafa notað nafn sitt til
auglýsinga fyrir dagblað eitt.
Áður hafði þetta mái komið
upp, en Bedford þá hrcinsað
sig af þessari ákæru, en nú
segist nefndin hafa ný sönnun-
argögn i höndunum, og á Bed-
ford að mæta hjá nefndinni i
dag. Ef henni tckst að sanna
það á Bedford, að hann hafi
notað nafn sitt til auglýsingar,
þá verður hann umsvifalaust
settur i kcppnisbann á ÓL.
N-Kórea
hreppti
gull
í gœr
1 skammbyssuskotkeppni,
liggjandi, sigraði N-Kóreu-
maður öllum á óvart, og ekki
nóg mcö það, hann setti um
leið nýtt heimsmet, hlaut 599
stig af 600 mögulcgum. Ann-
ars urðu úrslit þessi:
Ho Jun Li, N-Kóreu 599 stig.
(Nýtt heimsmet)
Victor Auer, USA 598
Nicolar Rotaru, Kúmeníu 598
Guiseppe dc Chirico, ttal. 597
Jiri Vogger, Tékkóslóvak. 597
Jaime Santiago, Puerto Rico
597
Laszlo Dr. Hammerl, Ung-
verjal. 597
Andrzej Trajada, Póll. 597
Dofald Brook, Astral. 596 stig
999
. J
Metaregn í sundinu
Mark Spitz og Shane Gould Ólympíu-
meistarar á nýjum heimsmetum
Shane Gould með sitt fyrsta en
sjálfsagt ekki sitt sfðasta
hcimsinet á þessum ÓL i gær.
Það ætlar greinilega að
rætast sú spá manna, að
þessir ólympíuleikar verði
mestu metleikar frá upp-
hafi i sundinu. Strax á
fyrsta degi sundkeppninnar
og það í undanrásunum
voru sett 5 ný ólympíumet,
og eitt heimsmet var jafn-
að. Þó er vitað, að kepp-
endur taka ekki á öllu sínu
fyrren í úrslitakeppninni, í
undanrásunum er aðeins
hugsað um að tryggja sér
áframhald í keppninni, en
þó féllu metin eins og
skæðadrífa. Það var eink-
um bandaríska sundfólkið
og svo hún Shane litla
Gould frá Ástralíu sem setti
þessi met. Þó keyrði fyrst
úr hófi i þeim tveim grein-
um sem keppt var til úrslita
i. Þar sigraði Mark Spitz á
nýju heimsmeti 2,00,70
mín. og Shane Gould sigr-
aði i 200 m. fjórsundi
kvenna á nýju heimsmeti
2:23,07 min.
Keppni i sundinu hófst kl. 10 i
gærmorgun, og var byrjað á 100
m skriðsundi kvenna. 1 fysta riðli
sigraði Shirley Babashoff frá
USA á 59,51 sek. og takið eftir að
timinn er nú orðið mældur brota-
brot úr sekúndu, og verður svo
einnig í spretthlaupunum. Gabri-
ela Westszko frá A-Þýzkalandi
vann 2. riðil á 1:00,40 min. 3. riðil
vann Enith Brigitha frá Hollandi
á 1:00,02 min. 4. riðil vann Mag-
dolna Patoh frá Ungverjalandi á
59,47 sek. 5. riðil vann Jutta Web-
er frá V-Þýzkalandi á 59,72 sek.
Þá var komið að 6. riðli, og þar
sigraöi Shane Gould frá Astraliu
á nýju ÓL-meti 59,44 sek. Og
menn spyrja nú, hvað gerir þetta
undrabarn i sundinu þegar i úr-
slitakeppnina kemur?
1 200 m. f jórsundi kvenna var að
visu ekki sett ÓL-met, en timarn-
ir voru frábærir. I 1. riðli sigraði
Mina Petrova frá Sovétr. á
2:27,20 min. I 2. riðli sigraði Eve-
lin Stolze A-Þýzkalandi á 2:25,45
min. 3. riðil vann Jenny Bartz
USA á 2:25,83 min. og 4. riðilinn
vann Kornelia Ender frá A-
Þýzkalandi á 2:25,39 min; þann 5.
vann Lynn Vidali USA 2:24,61
min, og 6. riðilinn vann svo Shane
Gould frá Astral. á 2:26,44 min.
Bandarikjamenn komu mjög á
óvart i 100 m. baksundi karla.
Þeir tvibættu ÓL-metið i undan-
rásunum. En litum á úrslit riðl-
anna. Fyrsta riðil vann Igog Gri-
vennikov frá Sovétr. á 1:00,05
min. 2. riðil vann Bob Schoutyen
frá Hollandi á 1:00,76 min. 3. riðil-
inn vann John Murpy frá USA á
59,93 sek. 4. riðilinn vann Mike
Stamm frá USA á nýju ÓL-meti
58,63 sek. Þetta met stóð þó ekki
nema nokkrar minútur, þvi aö
landi hans Mitchell Ivey bætti það
strax i næsta riðli á 58,15 sek. sem
er mjög góður timi. 6. riðilinn
vann svo heimsmethafinn Roland
Matthes frá A-Þýzkal. á 1:00,01
min, svo hann hefur greinilega
tekið það rólega og sparað sig til
úrslitanna.
Þótt mikið gengi á i baksund-
inu, kastaði fyrst tólfunum þegar
flugsundið kom. Þar byrjaði
Garry Hall, USA á að setja nýtt
ÓL-met i 1. riðli á 2:03,70 min.
Landi hans (þvi miður var nafn
hans ólæsilegt i fréttaskeytinu)
bætti það enn i 2. riðli, synti á
2:03,11 min. Hans Fassnacht frá
V-Þýzkal. vann 3. riðilinn á
2:05.39 min. 1 4. riðli sigraði svo
Mark Spitz, USA á nýju ÓL-meti
2:02,11 min. Þarna hafði metið
sumsé verið þribætt i 4 riðlum.
Þá var komiö að 4x100 m skrið-
sundi karla. Þar jafnaði USA-
sveitin heimsmetið sem hún á
sjálf, synti á 3:28,84 min. en A-
Þjóðverjar urðu aðrir i riðlinum,
syntu á 3:35,13 min. 1 1. riðli sigr-
uðu Sovétmenn á 3:32,73 min. en
Frakkar urðu aðrir á 3:35,10 min.
Síödegis i gær var svo keppt til
úrslita i 200 m flugsundi karla, og
uröu úrslit þessi:
ÓL-MEISTARI Mark Spitz USA
2:00,70 min (Nýtt heimsm).
2. Garry Hall USA 2:02,86 min.
3. Robin Backhaus USA 2:03,23
min.
4. Jorge Delgado Equador 2:03,35
mín.
Andreas Hargity Ungverjal.
2:04,69 min.
200 m. FJÓRSUND KVENNA.
ÓL-meistari:
Shane Goutd Astral. 2:23,07 min
(Nýtt heimsm.)
2. Kornelia Ender A-Þýzkal.
2:23,59 min.
3. Lynn Vidali USA 2:24,06 min.
4. Jenny Bartz USA 2:24,55 mln.
5. Cliff Leslie Kanada 2:24,83
min.
Þá var i gær siðdcgis keppt i
undanúrslitum i 100 m. baksundi.
Þar sigraði Roland Matthes A-
Þýzkal. i I. riðli á 58,44 min, cn I
hinum riðlinum sigraöi Mitchell
Ivcy USA á 57,99 sek, sem er nýtt
ÓL- met.
Svíar leiða
í dýfingum
kvenna
Eftir 8 af 12 grein n i dýf-
ingum kvenna á ÓL leiðir
sænska stúlkan Ulrika Knap
með 292,59 stig, og landa henn-
ar Agneta Henriksson er I 2.
sæti með 290,79 stig. Þær eru
báðar mjög bjartsýnar á
framhaldið og segjast vinna
gullið og silfrið. Annars er
staða 5 efstu þessi:
Ulrika Knap, Sviþ. 292,59 stig.
Agneta Henriksson, Sviþ,
290,79 Stig.
Micilei King USÁ 289,14 stig.
Heidi Brecker, A-Þýzkal.
281.88 stig.
Cristina Kohler, A-Þýzkal.
278.88 stig.
999
Riðla-
keppni í
sundknatt-
leik á ÓL
I gær fór fram riðlakeppni i
sundknattleik á ÓL, og urðu úrslit
þessi:
1. riðill.
Kúba—-Mexikó 6:4 (2:1-1:0-1:1
og 2:2)
USA — Rúmenia 4:3 (1:0-2:1-0:1
og 1:1).
2. riöill.
Ungverjal. — Holland 3:0 (0:0-
2:0-0:0 og 1:0)
Grikkl — Astralia 7:7 (3:3-1:2-1:1
og 2:1)
3. riðill.
' Sovétr. — ttalia 4:1 <0:l-2:0-2:0
og 0:1)
Spánn — Japan 6:4 (2:1-1:2-1:1
og 2:0)
Mark Spitz, með nýtt heims-
met i 200 m flugsundi.
\7