Þjóðviljinn - 29.08.1972, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 29.08.1972, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 29. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11,, Hvað heitir stofnunin eða félagið á ensku eða dönsku? _ Hagstofan gefur út rit sem svarar þeirri spurningu Samkvæmt nýútgefinni skrá Hagstofunnar um stofnanaheiti nefnist ASB, félag afgreiöslustúlkna i brauð- og mjólkurbúöum „Bageri- og mejeriudsalgs- ekspeditricernes fagforen- ing" á því góöa máli frænda okkar, dönsku. Hin vinsæla Innheimtustofnun sveitarfélaga heitir „Communal Alimony Coll- ection Center" á ensku. Um allt þetta og fjölmargar aðrar stofnanir er að finna upp- lýsingar i riti Hagstofunnar „Skrá um stofnanaheiti”. Þar er yfirlit um 1500 stofnanir og heiti þeirra birt á islenzku, ensku og dönsku. 1 formála hagstofustjóra Klem- ens Tryggvasonar, segir m.a.: ,,Það er reynsla margra, að oft sé furðu fyrirhafnarsamt að fá not- hæfa þýðingu á heitum stofnana, embætta og félagssamtaka, en til sliks þurfa menn oft að gripa vegna sivaxandi samskipta við önnur lönd. Fæstar stofnanir og félagssamtök hafa á reiðum höndum þýðingu á heitum sinum Nítján teknir fyrir ölvun við akstur Að sögn óskars ólasonar vfirlögregluþjóns um- feröarmára var mjög mikið um þaö að ökumenn Húsaleiga Framhald af bls. 1. heimild frá félagsmálaráuðu neytinu, og geta leigutakar þvi neitað að greiða hækkaða húsa- leigu, geti leigusali ekki fram- visað sliku ieyfi. Ef leiga hækkar er hægt að kæra slikt til sakadóms sem brot á verðlagslögum. Hyggist leigu- sali láta bera leigutaka út, sem þráast við að greiða hækkaða húsaleigu, getur leigutaki haldið uppi vörnum i fógetadómi. Ef skipti verða á leigutökum i ibúðum, er ekki heimilt að hækka leiguna við nýju leigjendurna frá þvi sem var hjá fyrri leigjendum. Húsaleigumiðstöð Þar sem slikt neyðarástand er rikjandi i húsnæðismálum sem hér á Stór-Reykjavikursvæðinu, er ekki lengur hægt að komast undan þvi fyrir opinbera aðila að gripa til einhvers þess ráðs sem tryggt getur rétt leigutakans og komið ég veg fyrir að á honum sé niðst vegna þess ástands sem rik- ir. Það sem væntanlega gæti komið i veg fyrir húsaleiguokrið i eitt skipti fyrir öll væri, að hið opinbera beitti sér fyrir stofnun húsaleigumiðstöðvar. Hlutverk slikrar stofnunar yrði að sjá til þess, að allir leigu samningar væru haldnir af báð- um aðilum, og undirskrift sliks samnings þýddi ekki afsal mannréttinda leigutakans, eins og virðist með húsaleigusamn- inga Húseigendafélags Reykja- vikur. Til þess að leigusamningar teldust löglegir þyrfti að koma til viðurkenning leigumiðstöðvar- innar á þeim, og jafnframt að þær ibúðir.sem ekki væru leigðar eftir viðurkenndum reglum slikrar leigumiðstöðvar, fengju ekki brunatryggingu né aðrar skyldu- tryggingar. Slik leigumiðstöð gæti leyst gifurlegan vanda og kæmi jafn- framt i veg fyrir meginhluta þess okurs á leiguhúsnæði, sem nú við- gengst. Er hér með skorað á stjórnvöld að koma slikri leigumiðstöð upp fyrir lok verðstöðvunar. —úb YFIRDEKKJUM HNAPPA SAMDÆGURS SELJUM SNIÐNAR StÐBUX- UR OG VMSAN ANNAN SNIÐINN FATNAÐ. BJARGARBOÐ H.F. Ingólfsstr. 6 Simi 25760. væru teknir ölvaðir við akstur um helgina. Frá þvi á föstudagskvöld og til mánudagsmorguns voru 19 bílstjórar teknir fyrir ölvun við akstur. Heildartala þeirra sem teknir hafa verið fyrir ölvun við akstur það sem af er árinu er nú um 500, eða mjög svipuð þvi sem hún var um þetta leyti i fyrra. Allt siðast- liðið ár voru 832 ökumenn teknir ölvaðir við akstur. Umferðarlögreglan hefur orðið vör við það, að menn hefji drykkju siðari hluta föstudags á vinnustöðum, og er mikið um að menn séu teknir grunaðir um ölv- un við akstur þegar þeir koma úr vinnu eftir að hafa fengið út- borgað. Astæða er til að benda drykk- felldum ökumönnum á, að fjár- hagsleg staða þeirra getur verið mjög hæpin, svo ekki sé meira sagt, valdi þeir tjóni i umferðinni undir áhrifum áfengis, en trygg- ingarfélög eiga endurkröfurétt á hendur þeim mönnum, sem sannanlega hafa valdið tjóni i umferðinni undir áhrifum áfeng- is. Jafnvel þótt ökumönnum þyki þeir færir i flestan sjó, þegar þeir eru orðnir hýrir, ættu þeir að taka þvi vel, þegar lögreglan stöðvar þá, þvi ódýrara og skaðlausara er að missa prófið einhvern tima og borga litilsháttar sekt, heldur en að lenda i þviað valda tjóni, sem ef til vill enginn er borgunarmað- ur fyrir, þó svo bezt sé að láta bil- inn eiga sig ef vin hefur verið haft um hönd. —úþ á erlend mál, og sum þýdd heíti, sem eru i notkun, eru litt fram- bærileg. Úr þessu má bæta með útgáfu litils uppsláttarrits og með þvi að það hefur enn ekki birzt ákvað Hagstofan að semja og gefa út þetta hefti með danskri og enskri þýðingu á heitum stofn- ana, embætta, félagssamtaka og starfsgreina.” Þess má geta að Alþýðubanda- lagið heitir samkvæmt þessari skrá „Folkealliansen” á dönsku og „The People’«s Alliance” á ensku. Leiðrétting Meinleg villa slæddist inn i við- tal við Ólaf M. Jóhannesson, for- mann Sambands islenzkra kennaranema. I viðtalinu stóð að verið væri að vinna að þvi að fá stúdentspróf kennaraskóla viðurkennd sem inntökuskilyrði i Háskólann. Auð- vitað er um kennarapróf að ræða — stúdentsprófið er jú löngu viðurkennt I þriðja sæti Framhald at dis. 6. miklu þófi á miiðjum velli, sókna- leikur beggja liðanna var frekar lokaður og fór um of fram á miðj- um velli. Varnarleikurinn var oft grófur og leiðinlegur á að horfa. Þannig kom ailtof litið út úr þess- um leik, sem annars hefði getað orðið góður, þvi aðstaða til að leika knattspyrnu var, eins og áður segir, eins góð og frekast er unnt. Dómari i leiknum var Einar Hjartarson, og verður honum vart hrósað fyrir frammistöðuna. Skipsstrand Framhald af bls. 3. að freista þess að sækja mennina á gúmibát, og hinkruðu þá björg- unarsveitarmenn við þar sem þeir voru komnir. Þegar svo tilkynning þess efnis, að mennirnir væru komnir heilu og höldnu um borð i Óðin, barst björgunarsveitinni sneri hún aft- ur til Klausturs. Ekki var vitað i gær hvað olli strandinu, en verið er að undir- búa björgun bátsins ar andinum. Til þess að það geti Oi jíö, þarf að flytja ýmis tæki austur á ' urnar, en þó er talið v: bjarga megi honum ef ekl mjög slæmt i sjó. Fram heppið Framhald af bls. 7. af bjargaðist markið á einhvern hátt. A 50. minútu var Þórhallur i dauðafæri en mistókst að skora, og á 70. minútu bjargaði Agúst Guðmundsson bakvörður Fram á marklinu, svo dæmi séu nefnd. Fram má sannarlega þakka fyrir þetta jafntefli, og það er greinilegt að íslandsmeistara- heppnin er yfir Fram þetta sumar, sú heppni sem þarf til að vinna mót. Þeir Ásgeir, Marteinn og Elmar voru beztu menn liðsins að þessu sinni eins og svo oft áður. Guðgeir Leifsson bar af i Vikingsliðinu sem og raunar á vellinum, og það er vart annar betri knattspyrnumaður til á Is- landi i dag. Þá áttu þeir Jóhannes Bárðarson, Gunnar Gunnarsson og Eirikur Þorsteinsson góðan leik, og Stefán kom mjög vel frá leiknum, en mætti vera ákveðn- ari. Dómari var Magnús V. Péturs- son og dæmdi vel. —Sjdór. Skrítlan Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar og Pick—Up bif- reið með húsi er verða sýndar að Grensás- vegi 9, þriðjudaginn 29. ágúst kl. 12-3.- Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri kl. 5. Sölunefnd varnarliðseigna. Kjörskrá fyrir prestskosningu, sem fram á aö fara I Nesprestakalli sunnud. 17. sept. n.k„ liggur frammi I félagsheimili Nes- kirkju kl. 13.00 til 19.00 alla virka daga nema laugardaga á timabilinu 28. ágúst til og með 5. sept. Kærufrestur er til kl. 24.00 10. sept. n.k. Kærur skulu send- ar formanni sóknarnefndar, Þórði Ag. Þórðarsyni, Greni- mel 44. Kosningarétt við prestskosningar þessar hafa þeir, sem búsettir eru i Nesprestakalli I Reykjavlk og Sel- tjarnarnesi, hafa náð 20 ára aldri á kjördegi og voru f Þjóðkirkjunni 1. des. 1971, enda greiði þeir sóknargjöld til hennar á árinu 1972. Þeir sem siðan 1. des. ’71 hafa flutzt I Nesprestakall, eru ekki á kjörskrá þess eins og hún er nú lögð fram til sýnis, og þurfa þvi að kæra sig inn á kjörskrá. Eyðublöð undir kærur fást á manntalsskrifstofu Reykja- víkur i Hafnarhúsinu og skrifstofu sveitarstjóra Seltjarn- arneshrepps. Sömu skrifstofur staðfesta, með áritun á kærur, að flutningur lögheimilis i prestakaliið hafi verið tilkynntur og þarf ekki sérstaklega greinargerð um mála- vexti til þess að kæran vegna flutnings lögheimilis I prestakallið verði tekin til greina af sóknarnefnd. Þeir sem flytja lögheimili sitt I Nesprestakall eftir að kærufrestur rennur út 10. sept n.k. verða EKKI teknir á kjörskrá að þessu sinni. Kjördagur og kjörstaðir nánar auglýst slðar. REYKJAVIK 17. ágúst 1972. SÓKNARNEFND NESSÓKNAR. Orðsending Framhald af bls. I. vegna máls þess, sem nú sé fyrir dómstólnum, og að hún muni reiðubúin til að fara eftir henni. Jafnframt er þvi lýst yfir, að brezka rikisstjórnin sé reiðubúin til aðhafa viðræður við rikisstjórn tslands um viðhorfin svo fljótt sem báðum aðilum hentar. Sams konar skilaboð hafa bor- izt frá rikisstjórn Sambandslýð- veldisins Þýzkalands. BRIDGESTONE NYLON hjólbarðarnir japönsku fóst hjó okkur. Allar stærðir á fólksbíla, jeppa og vörubíla. Sendum gegn póstkröfu um allt land. Verkstæðið opið alla daga frá kl. 7.30 til kl. 22.00. CðMHIÍVlllUSTOFAN^ SKIPHOLTI 35, REYKJAVÍK, SlMI 31055^-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.