Þjóðviljinn - 29.08.1972, Page 12

Þjóðviljinn - 29.08.1972, Page 12
UOWIUINN Þriðjudagur 29. ágúst 1972 Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavikur, simi 18888. Kvöld- og helgidagavarzla apóteka vikuna 26. ágúst til 1. sept. er i Reykjavikur- apóteki og Borgarapóteki. Næturvarzla er i Laugarnes- apóteki. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Simi 81212. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstöðinni. Simi 21230. Kínverskur tundurduflaslæðari kominn inn til Haiphong! Er hafnbann Bandaríkjanna á Norður-Víetnam að fara út um þúfur? Washington 28/8 — Kin- verskur tundurduf laslæðari er nú kominn til hafnar i Haiphong i Noröur-Víet- nam þrátt fyrir hafnbann Bandarikjanna. Hefur hon- um einhvern veginn tekizt aö sigla framhjá banda- rísku herskipunum á Ton- kin-flóa og komast klakk- laust gegnum tundurdufla- beltin. Waldheim vongóður um bæði þýzku ríkin í Sþ WIKN 28/8. — Kurt Waldhcim aðalframkvæmdastjóri Samcin- uðu þjóðanna. segir i viðtali viði austurriskt blað, að bæði þýzku rikin ættu að fá aðild að Samcin- uðu þjóöunum scm fyrst. Waldheim taidi talsvert liklegt, að allsherjarþingið gæti nálgazt lausn á þessu vandamáli nú i haust. „Fersónulega held ég, að bæði þýzku rikin fái aðild að SÞ á árinu 1973”, sagði hann. Mótmæli gegn útflytjendaskatti á sovézka gyðinga MOSKVU 27/8 — Fyrrverandi blaðamaður við timarit sovézka rithöfundasambandsins Litera- túrnaja Gaséta, hvetur sovézka gyðinga sem flytja vilja úr landi til að visa á bug kröfunni um hið háa gjald sem sovézk stjórnvöld setja á þá sem hafa notið æðri menntunar. Hann segir, að út- flytjendagjald þetta af þeim 80 þúsund gyðingum sem nú hafa sótt um leyfi til að flytjast burtu, mundi nema yfir 20 miljörðum króna, en það mundi tefja brott- förina fyrir mörgum þúsundum þeirra um árabil. Það sem af er þessu ári munu um 20 þúsund gyðingar hafa fengið útflytjenda- leyfi, en alls eru i Sovétrikjunum 2.2 miljónir gyðinga, segir sama heimild. Blaðamaðurinn segir, að samkvæmt reglum frá 3. ágúst i sumar skuli hver útflytjandi greiða frá 5.400 til 20.300 rúblur, mismunandi eftir menntun. Leiðtogi franska sósialista- flokksins, Francois Mitterand, hefur ritað sovézkum yfirvöldum bréf og mótmælt útflytjendá- skattinum. Var það afhent i sendiráði Sovétrikjanna i Paris á sunnudag. Kveður Mitterand skattinn ekki samrýmast mann- réttindayfirlýsingunni. Það varð uppskátt i dag, að tundurduflaslæðari þessi hefur sézt úr bandariskum flugvélum, og er hann búinn að vera i Hai- phong i vikutima. Til þessa hefur hann ekki gert neinar lilraunir til að slæða upp dufl eða gera þau ó- virk. Tundurduflaslæðarinn er sagður litill, og er þegar komin upp kenning um, að hann hafi komið ofan úr landi um skurða- kerfið. Formælendur bandariska her- málaráðuneytisins hafa haldið þvi fram, að engar skipaferðir hafi verið til norður-vietnamskra hafna siðan Nixon setti hafnbann- ið á 8. mai s.l. Engu að siður hafa kinversk skip komið með vistir og nauðsynjar og lagzt úti fyrir Norður-Vietnam, en siðan hefur varningnum verið k jóklað i land á smábátum. Fulltrúi bandariska hermála- ráðuneytisins var að þvi spurður i kvöld, hvort bandariskar flugvél- ar mundu ráðast á tundurdufla- slæðarann ef hann tæki til að gera dufl óvirk. Þvi var svaraö svo, að Bandarikin hefðu þegar gert það ljóst, að þau mundu halda hafn- banninu uppi, hvort sem það krefðist þess að leggja yrði ný dufl eða gera aðrar ráðstafanir. Lúðvík Jósepsson rœðumaður hjá norskum EBE- andstœðingum í skeyti frá norsku frétta- stofunni NTB i gær segir, að Lúðvik Jósepsson sjávarút- vegsm álaráðherra muni koma fram á fundi á laugar- daginn kemur i Osló á vegum norsku æskulyðshreyfingar- innar gegn aðild að Efnahags- bandalaginu. Ræðuefni Lúð- viks verði: ,,Stórir og smáir i samfélagi þjóðanna”. Ef svo kynni að fara, að Lúðvik Jó- sepsson forfallaðist á siðustu stundu, mundi iðnaðarráð- herrann sennilega koma i staðinn, eða þá annar islenzk- ur ráðherra, hefur fréttastof- an eftir æskulýðshreyfing- unni. 1 norsku æskulýðshreyfing- unni gegn EBE taka þátt æskulýðssambönd flestra stjórnmálaflokkanna, ung- mennafélög, ungtemplarar og fieiri aðilar. Agreiningur milli fiskimála- og utanríkisráðuneyta Breta Ekki á eitt sáttir í landhelgismálinu 5 daga allsherj arverkf all á Gíbraltar GIBRALTAR 26/8.— Allsherj- arverkfallið, sem lamaði allt at- hafnarlif brezku nýlendunnar Gi- braltar i 5 daga i siðustu viku, leiddi til þess, að á laugardag komu atvinnurekendur fram með launatilboð sem verkalýðsfélög gátu sætt sig við. Vinna hefur nú hafizt á ný. Norska fréttastofan /,NTB/7 hefur það eftir //opinberum talsmanni rik- isstjórnarinnar" brezku að Bretland vilji reyna að koma í veg fyrir ögrunar- aðgerðir sem gætu leitt til nýs þorskastriðs við íslend- inga. Þessi sami talsmaður rikis- stjórnar Breta er i fréttaskeyti NTB sagður hafa neitað þvi, að á- greiningur sé til staðar milli ut- anrikisráðuneytisins og sjávarút- vegsráðuneytisins i afstöðunni til tslendinga og þá sérstaklega um það hvort beita eigi herskipum gegn Islendingum. Talið hefur verið, að sjávarútvegsráðuneytið reyndi að knýja fram harðvitugri stefnu gegn tslendingum en utan- rikisráðuneytið telur góðu hófi gegna. — Frétt NTB um ágreining i brezku ráðuneytunum staðfestir skoðun þeirra tslendinga sem kunnugastir eru landhelgismál- inu. Hefur þessi ágreiningur verið á ýmsum stigum og ijóst er að ut- anrikisráðherranna vill fara að með meiri gát en fiskimálaráð- herrann, Prior sem hefur látið 19. einvígisskákin: — og þarf nú 4 vinninga úr 5 skákum til að halda tithnum 19. einvigisskákin, sem tefld var á sunnudaginn, var ekki siöur skemmtileg og spennandi en þær sem tefldar hafa verið að undanförnu, og er ábyggilegt að áhorfendur fá vel fyrir pening- ana sina þessa dagana i Laugardalshöllinni. Ahorfendur voru spenntir að sjá hvaða byrjun Fischer myndi velja, hvort hann myndi freista þess að tefla Sikileyjarvörnina aftur eða jafnvel Pirc-vörnina eins og i sautjándu skákinni. Spasski lék eins og.gert hafði verið ráð fyrir,e4 i fyrsta leik, og Fischer kaus að tefla Aljekins-vörn. Það er ekki of- sögum sagt af þvi, hversu kjarkaður Fischer er. Það er öruggt, að eftir hið öriagarika tap sitt i þrettándu skákinni, þar sem Aljekins-vörnin var lka tefld, hefur Spasski búið sig undir að mæta þessari byrjun. Fischer kaus að breyta út af þegar i 4. leik; lék hann Bg4 i stað g6. Spasski tefldi byrjunina af miklu öryggi og jók yfirburði sina jafnt og þétt. 1 18. leik féll svo bomban, Spasski fornaði riddara og virtist ætla að fá yfirburða- stöðu. Fischer reyndist hins- vegar fundvis á varnarieiðí og hafnaði mannsfórninni i bili. Upp úr miklum sviptingum sem fylgdu i kjölfarið kom staða þar sem Fischer hafði tvo menn á móti hrók, en Spasski hafði að auki tvö peð. Fischer tókst að einfalda vörnina með drottningar- kaupum, en Spasski hafði stöðugt frumkvæði. t 23. leik missir Spasski sennilega endan- lega af vinningnum, er hann sleppti þeim möguleika að ná að tvöfalda hrókana upp á sjö- undu reitaröðinni. Eftir það var augljóst hvert stefndi. Spasski gerði skemmtilega tilraun til að flækja taflið i 30. leik, en allt kom fyrir ekki, og upp kom endatafl sem er fræðilegt jafn- tefli. Kapparnir sömdu svo um jafnteflið, er þeir höfðu leikið 40 leikjum. Með þessari skák fór senni- lega siðasta tækifæri Spasskir til að rétta hlut sinn — og vonin um áframhaldandi heims- meistaratign. Það var mögu- leiki að vinna upp tveggja vinn- inga forskot i fimm skákum, en að fá fjóra vinninga úr fimm skákum á móti Fischer er nokkuð sem ekki er hægt að ætlast til af nokkrum manni. Tuttugasta skákin verður svo tefld i kvöld, og hefur Fischer þá hvitt. Hvítt: B.Spasskí Svart: R. Fischer 1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Rf3 Bg4 5. Be2 e6 6. o-o Be7 7. h3 Bh5 8. c4 Rb6 undan þrýstingi brezka togara- auðvaldsins undir forustu Aust- ens Laings. Husák kveinkar sér undan gagnrýni PRAG 27/8. — Gustav Husák flokksleiðtogi i Tékkóslóvakiu, kveinkaði sér á laugardag i ræðu i Bratislövu undan þeirri gagnrýni sem hin pólitisku réttarhöld i Tékkóslóvakiu i sumar hafa sætt i Vestur-Evrópu. En hann neitaði þvi, að nokkur hefði verið dæmd- ur Vv.gna þeirrar afstöðu einnar sem hann hafi tekið á Dubcek timanum. Húsák visaði til þeirrar gagnrýni sem komið hefur frá kommúnistaflokkunum á Italiu, i Frakklandi og Bretlandi og sagði að vissir fulltrúar fyrir framsæk- in öfl á vesturlöndum hefðu kom- izt i slagtog með borgurunum i herferð gegn hinni sósialisku Tékkóslóvakiu. Spasskí misstí góða stöðu niður í jafntefli 9. Rc3 10. Be3 11. c5 12. Bxf3 13. b3 14: fxe3 15. e4 16. b4 17. bxc5 18. Rxd5 18. 19. Bh5 20. Bxf7 + 21. Hxf7 22 Dxd2 23. Hafl 24. exd5 25. Hd7 26. Khl 27. e6 28. Hxd5 29. Hel 30. Hd6 31. Hxc6 32. Hxe5 33. Hd5 34. Hh5 35. Kh2 36. c6 37. Ha5 38. Kg3 39. Kf3 40. Kf2 Jafntefli o-o d5 Bxf3 Rc4 Rxe3 b6 c6 bxc5 Da5 Bg5 cxd5 Hxf7 Dd2 Bxd2 Rc6 exd5 Be3+ Bxd4 Be5 He8 Hxe6 Kf7 Hxc6 Kf6 Ke6 h6 Ha6 Hxc6 a6 Kf6 Hc3+ Hc2+ Ólafur Björnsson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.