Þjóðviljinn - 08.09.1972, Qupperneq 2
2 SIÐA — Þ.IÓÐVILJINN Föstudagur S. september 1972
Húsbyggjendur —
Yerktakar
Kambstál: 8, 10, 12, 16, 20, 22, og 25 m/m. Klippum ‘og
beygjum stál og járn eftir óskum viöskiptavina.
Stálborgh.f. t
Smiðjuvegi 13, Kópavogi. Simi 424S0.
Sýningin
Búnaður safna
i bókageymslu Norræna Hússins verður
opin almenningi daglega 8. -12. september
kl. 9 - 19.
Ókeypis aðgangur. Verið velkomin.
NORRÆNA
HUSIO
Mjólká H
Um mánaðamótin febr. — marz 1973
verða væntanlega boðnar út bygginga-
framkvæmdir við vatnsaflsvirkjunina
Mjólká II (5,700 kW) i Arnarfirði.
Væntanlegir tilbjóðendur geta fengið
frumgögn að útboði á skrifstofu raf-
magnsveitustjóra frá og með mánu-
deginum 11.09.72 gegn 2.000 kr. skila-
tryggingu.
ltafmagnsveitur rikisins
I.augavegi 116
Iteykjavik.
Frá Námsflokkum
Hafnarfj arðar
Gagnfræðadeildir verða starfræktar i
Námsflokkum Hafnarfjarðar i vetur.
Kennt verður námsefni 3. og 4. bekkjar.
Væntanlegir nemendur geta þvi valið um
að taka gagnfræðapróf á einum eða tveim
vetrum.
Kennt verður 5 kvöld vikurnnar, samtals
20 stundir i viku. Kenndar verða allar
greinar gagnfræðaprófs.
Kennsla fer fram i húsi Dvergs h.f.,
Brekkugötu 2, og þar mun skrifstofa
Námsflokka Hafnarfjarðar einnig verða
til húsa.
Innritun fer fram dagana 13/9 til 15/9 kl.
17-21 i Lækjarskóla.
Skólinn verður settur 20/9 i húsi Dvergs
h/f.
Upplýsingar munu liggja frammi frá og
með 12. þ.m. á fræðsluskrifstofunni og i
bókabúðum bæjarins. Allar nánari upp-
lýsingar gefa forstöðumaður i sima 51792
eða 41228 (heima) og Fræðsluskrifstofc
Hafnarfjarðar, simi 53444.
FORSTÖÐUMAÐUR.
Samkomulag milli Belgíu og
íslands um landhelgismálið
Á blaðamannafundi sem
rikisstjórnin efndi til i gær
var afhent samkomulag
Belga og islendinga i land-
helgismá linu. Þjóðviljinn
birtir hér i heild erinda-
skipti Belga og islendinga.
i dag skiptust Kinar Ágústsson
utanrikisráöherra og E. Harford
sendiherra Belgiu á erindum
þeim sem hér fara á eftir:
Erindi utanrikisráöherra:
Háttvirti sendiherra,
Ég leyfi mér aö visa til við-
ræöna íulltrúa rikisstjórna fs-
lands og Belgiu og aö staðfesta
eftiríarandi niöurstööur, sem viö-
ræöurnar hafa leitt til:
Hikisstjórnir islands og Belgiu
hafa gert meö sér eftirfarandi
samkomulag vegna vandamála*
þeirra. sem skapast vegna út-
færslu islenzku fiskveiðimark-
anna úr 12 i 50 milur frá 1.
september 1972:
1. Ekkert ákvæði samkomulags
þessa skal taliö hafa áhrif á
kröfur eöa sjónarmið aðila
þess. aö þvi er varöar almenn-
an réttstrandrikis til að ákveða
viöáttu fiskveiðilögsögu sinnar.
2. Veiöileyfi þau sem veitt verða
belgiskum skipum i samræmi
viö samkomulag þetta skulu
taka til botnfiskveiða.
3. Skipum þeim. sem skráð eru i
fskj. I. viö samkomulag þetta,
skal veitt veiöileyfi af islenzk-
um stjórnvöldum til að stunda
veiðar á þeim svæðum, sem
talin eru i fskj. II. Veiðileyfi
veröa gefin út fyrir 6 mánaða
timabil i senn.
4. Belgisk veiöiskip skulu gæta
sérstakrar varúöar vegna neta
islenzkra fiskiskipa á þeim
svæðum, sem lýst er i fskj. II og
fara eftir þeim reglum, sem
islenzk stjórnvöld kunna að
setja, varöandi sérstök neta- og
linusvæði islenzka bátaflotans.
5. Samkomulag þetta skal gilda
til 1. júni 1974.
6. Landhelgisgæzlan skal eiga
rétt á aö rannsaka veiðiútbún-
aö þeirra skipa. sem veiðileyfi
hafa,og krefjast hvers konar
upplýsinga varðandi veiöarnar
sem hún telur nauðsynlegar.
Við móttöku svars yðar þess
efnis að rikisstjórn Belgiu fallist á
ofangreind ákvæði, mun rikis-
stjórn islands lita svo á, að með
erindi þessu og svari yðar hafi
náðzt samkomulag milli rikis-
stjórna Islands og Belgiu um
þetta efni og að samkomulagið
taki gildi við dagsetningu svarer-
indis yðar.
Ég leyfi mér. háttvirti sendi-
herra, að votta yður sérstaka
virðingu mina.
Einar Ágústsson.
Krindi utanrikisráðherra fylgir
fylgiskjal um þau 18 belgisku skip
sem hafa heimild til fiskveiða hér
við land, samkvæmt samkomu-
laginu. Stærstu skipin eru:
John. 555 tonn smiðaður 1952;
Lans 288 tonn. smiðaður 1967:
Belgian Skipper 350 tonn, smiðað-
ur 1952 og Belgian Lady smiðuð
1959, 414 tonn. Þessi fjögur skip
eru þau stærstu, en hin 14 öll
minni, frá 127 til 280 tonn. Skipin
eru yfirleitt gömuþátta þeirra frá
þvi fyrir 1950. Skipin eru frá Ost-
ende, með einkennisstafinn O
framan við númerið, en eitt skip-
anna er frá Zeabriicke.
Þá fylgir samkomulaginu fylgi-
skjal um svæðaskiptjngu,
sem kemur glöggt fram á með-
fylgjandi korti. Þar sést lika
hversu langan tima Belgarnir
geta á ári hverju veitt innan hólf-
anna.
Loks er hér birt svarerindi
sendiherra Belgiu:
Svarerindi sendiherra Beigiu:
Herra utanrikisráðherra,
Ég leyfi mér að viðurkenna
móttöku erindis yðar, dags. 7.
september 1972, er hljóðar þann-
•g:
(Samhljóða erindinu hér að
framan).
Vil ég hér með staðfesta við yð-
ur að rikisstjórn Belgiu fellst á
ákvæði ofangreinds erindis og
samþykkir tillögu yðar um að
með erindi yðar og svari minu
hafi náðzt samkomulag milli
rikisstjórna islands og Belgiu um
þetta efni og að samkomulagið
taki gildi við dagsetningu þessa
svars.
Ég leyfi mér. háttvirti
utanrikisráðherra. að votta yður
sérstaka virðingu mina.
E. Harford
sendiherra
Gefa í land-
helgissjóð
Stjórn Félags járniðnaðar-
manna hefur ákveðið, að Félag
járniðnaðarmanna leggi kr.
50.000.00 i fjársöfnun til Land-
helgissjóðs i tilefni útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar i 50 milur 1.
september s.l.
Framlag Félags járniðnaðar-
manna mun afhent Alþýðusam-
bandi Islands, sem mun safna
saman framlögum verkalýðs-
félaga og félagsmanna þeirra og
afhenda siðan til Landhelgis-
sjóðs.
Ljósmœður
Ljósmóðir óskast strax til afleysinga i
hálfan mánuð frá 11.-25. sept. i
mæðradeild Heilsuverndarstöðvar
Reykjavikur.
Forstöðukona veitir nánari upplýsingar i
sima 22400.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Eftir kröfu bæjarsjóðs Kópavogs, Agnars
Gústavssonar hrl., Björns Sveinbjörns-
sonar hrl., Hauks Jónssonar hrl. og skatt-
heimtu rikissjóðs i Kópavogi verða
bifreiðirnar Y 1398 — Y 2138 — Y 2715 — R
22545 — G 4257 og hjólmúgavél og
snúningsvél seldar á opinberu uppboði,
sem haldið verður i félagsheimili Kópa-
vogs föstud. 15. sept. 1972 kl. 15.00.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn i Kópavogi