Þjóðviljinn - 08.09.1972, Page 8
8. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 8. september 1»72
JENNY BARTHELIUS:
SPEGIL-
MYND
blaöi allt um misheppnaö lif sitt.
llann skrifaði um kvikmyndir og
leikhús, var með skegg og einn
þeirra sem alls staðar ,,sást”. Pía
var simastúlka með leikhús-
áhuga. Gat hann gert nokkuð fyr-
ir hana? (Það gat hann, en ekki
það sem hún hafði i huga).
Ingela og maðurinn sem kallað-
ur var Toni, sátu i sófanum. Hann
hélt utanum mittið á henni, þau
drukku úr sama glasi, reyktu
sömu sigarettuna. Hann var fölur
og það var eins og hann væri með
stóra klukku innaní höfðinu sem
tifaði eins og timasprengja. Hann
stóðst freistinguna að leggjast út-
af, sofna frá öllu saman og vakna
aftur til eðlilegs lifs. Ef til vill var
þetta allt saman martröö, ef til
vill lá hann i rúminu sinu i Málm-
ey og ekkert hafði gerzt? Hann
þreyfaði sem snöggvast á umbúð-
unum: þær voru raunverulegar.
Ingela var raunveruleg. Andlitið
á Berthinum megin i stofunni var
raunverulegt:
— Þú litur hálfilla út, Toni. Þú
ættir að skreppa út sem snöggv-
ast. Gakktu nokkra hringi kring-
um blokkirnar. Þér veitir ekki af
fersku lofti.
Hann hlýddi og reis á fætur.
Ingela stóð lika upp.
— Ég kem með, sagði hún i
skyndi.
En Bert kom til þeirra, tók
utanum Ingelu og sagði:
— Ljót stelpa, þú hefur ekki
dansað einn einasta dans við mig.
Komdu nú.
Bert dró hana með sér út á gólf-
ið og hann sem kallaöur var Toni
stóð tviráður eftir.
— Labbaðu þig út smástund,
sagði Bert þegar hann og Ingela
dönsuðu hjá. — Vertu úti og and-
aðu djúpt, þá liður þér betur á eft-
ir. Klukkan er ekkert orðin. Er
það ekki? hrópaði hann. — Við
höldum áfram lengi enn. Veit
nokkur hvað klukkan er, min hef-
ur stanzað.
Það var kallað úr þrem áttum
að minnsta kosti að klukkan væri
hálfeitt. Hann sem kallaður var
Toni gekk undir græna tjaldið og
fram i yfirþyrmandi anddyrið.
Andartak starði hann á spegil-
mynd sina án þess að þekkja
sjálfan sig. Hann tók sjálfan sig
taki. litlaði við lásinn á útihurð-
inni og komst loks fram i stigann,
þar sem loftið var svalt og hress-
andi.
Strax og hann komst útundir
bert loft leið honum betur. Andr
tak stóð hann og hallaði sér upp
að húsveggnum, svo gekk hann
hægt af stað eftir götunni. Hann
hafði enga hugmynd um hvert
hann ætlaði. Enda stóð það á
sama.
Hann heyrði rösklegt fótatak
bakvið sig, glamur i íéttum næia-
háum skóm. Ingela, hugsaði
hann. Hönd greip um handlegg
hans.
— Afsakið, er nokkuð að?
Hann hafði aldrei heyrt röddina
áður og hann hafði aldrei séð
stúlkuna áður. Samt var eitthvað
kunnuglegt við hana eins og hann
þekkti hana vel, en ef til vill frá
annarri tilveru, öðru lifi, ein-
hverju fyrir langalöngu.
— Nei, nei, sagði hann. —
Hvaðan komið þér?
Hún benti i áttina að húsinu sen»
hann var að koma úr.
— Ég var þarna inni. Ég var á
leiðinni inn. Þegar ég kom fram
af snyrtiherberginu hjá Beatrice,
kom ég auga á yður og mér fannst
þér lita svo illa út. Og mér fannst
ekki rétt að þér færuð aleinn út,
svo að ég sótti kápuna mina og
hljóp út. Liður yður eitthvað illa?
— Já, mér leið illa, sagði hann.
— En ekki lengur. Nú liður mér
ágætlega. Voruð þér að koma i
veizluna hans Berts?
— Já, ég gat ekki komið fyrr en
seint, en þau sögðu að það stæði
alveg á sama hve seint ég kæmi.
Getið þér áreiðanlega komizt
heim hjálparlaust? Eigum við
ekki að reyna að ná i leigubil?
Nei, engan leigubil. Ég ætl-
aði bara að ganga svolitinn spöl
og fá mér ferskt loft. Svo fer ég til
baka. Þetta er eiginlega furðuleg
veizla. Að þér skuluð nenna að
fara á svona samkundur. Þær eru
svo skelfilega leiðinlegar.
— Stundum, sagði hún. —
Stundum geta þær verið
skemmtilegar. Var Kenneth
þarna?
— Já, En ég missti vist af
fyllirisskopstælingunni hans. Rolf
var þar lika.
1 bjarmanum frá götuljósi sá .
hann að hún gretti sig. Hún var
með stutt, beint nef og há kinn-
bein. Hún var með hendur i vös-
um og kraginn á hvitu regnkáp-
unni var uppbrettur.
— Var Ingela þar?
— Já. Hún virtist aðlaðandi.
Hún yppti öxlum og horfði beint
fram fyrir sig.
- Eigið þér sigarettu?
Hann bauð henni sigarettu og
kveikti i henni. Þau gengu hægt
eftir götunni og þögðu. Einu sinni
leit hún upp til hans og brosti i
svip.
— Fyrirgefið þótt ég sé leiðin-
leg. Ég er þreytt i kvöld.
Hann kinkaði kolli.
— Eg er lika leiðinlegur. Og ég
get ekki einu sinni kennt þvi um
að ég er þreyttur. þvi að ég er
leiðinlegur lika þar fyrir utan.
Það er ólæknandi.
— Ekki trúi ég þvi. Bert á enga
leiðinlega kunningja.
— Eg vinn hjá Bert. Þaö er
ekki þar með sagt að ég sé úr
glaða samfélaginu hans.
— Bert er ágætur, sagði hún út
i bláinn, eins og Bert þyrfti varn-
ar við.
Þau komu að skemmtigarði og
settust á bekk við einn stiginn
sem lá að litilli tjörn. Hann hall-
aði höfðinu afturábak og horfði
upp i himininn sem var stjörnu-
bjartur og kyrrlátur og hátt uppi.
Hún sat i hnipri við hliðina á hon-
um, sagði ekki neitt, rótaði bar
dálitið i mölinni með öðrum skón-
um. Þau reyktu aftur og minút-
urnar liðu hjá milli þeirra eins og
sandkorn og allt i einu stóö timinn
kyrr, ekkert var til nema stjörnu-
björt nótt og þögn. Það marraði i
mölinni þegar næturhrafn gekk
hjá. Hann horfði yfir til þeirra
eins og hann væri að reyna að
greina andlit þeirra i myrkrinu.
— Er þetta sárt? spurði hún og
snerti umbúðirnar með fingur-
gómunum.— Er það reglulega
sárt, á ég við?
— Ekki núna. Slátturinn er
hættur. Áðan var eins og allt ætl-
aði að springa en nú er allt með
kyrrum kjörum. Þeir eru búnir að
leggja sig þeir sem eru annars að
hamra án afláts með hömrum og
verkfærum.
— Rétt eins og Karius og
Baktus, sagði hún hlæjandi. —
Þetta er synd og skömm. Hefur
þetta verið svona iengi?
Ekki sérlega lengi. Ég lenti i
bilslysi. Kékk smáheilahristing.
Ekkert alvarlegt.
Veslingurinn.
Ilún strauk honum um vangann
og lét höndina hvila þar andartak.
Ilún varhlý og mjúk. Hann lokaði
augunum.
— Gerið þetta aftur, bað hann
og höndin kom aftur og hvildi
kyrr við andlit hans. í fyrsta
skipti á þessum sólarhring sleppti
angistin tökum á honum og léttir-
inn var svo mikill að hann tók
andköf, næstum eins og þegar
óbærilegum sársauka linnir.
Er þetta betra?
Hann kinkaði kolli, færði sig
nær henni og lokaði augunum.
Fannst hann allur liggja upp við
höndina á henni. Honum fannst
hann vera að sofna. Hann seig
ögn saman á bekknum og hún
lagði lausa handlegginn utanum
hálsinn á honum og hélt honum
upp að sér með föstu en mildu
taki.
Blundaðu andartak. hvislaði
hún. — Þér veitir ekki af. Svo
getum við farið til baka.
Ilann leið mótstöðulaust inn i
eins konar svefn og i svefninum
fannst honum hann heyra rödd:
Af hverju sagðist Bert ekki hafa
neina klukku? Hann var með úr —
fyrr um kvöldið að minnsta kosti.
Eða sagði hann að klukkan væri
stönzuð eða gengi vitlaust? Engin
svör fengust við spurningunum.
Hann svaf og hvildi höfuðið upp
við öxlina á ókunnugu stúlkunni.
(Kringum þau er skemmti-
garðurinn i skugga og það
skrjáfar dálitið i þurrum blöðum
runnanna. Stúlkan andvarpar og
hagræðir sér i sætinu. svo að
höfuðið á manninum sigur fram á
brjóst hennar. Það marrar aftur i
mölinni og skuggi kemur fram úr
myrkrinu. skugginn verður að
manni sem stanzar fyrir framan
þau.
Hæ. Hafið þér eldspýtu,
segir hann lágri röddu.
Stúlkan leitar i kápuvasanum
með lausu hendinni. nær i eld-
spytustokk sem hún réttir mann-
inum. Hann kveikir i sigarettu,
blæs frá sér reyknum og segir:
Það lilaut svo sem að vera, að það væru þessir
eineggja tviburar nágrannans.
■CO
FöSTUDAGUR 8. september
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00 Morgunbænkl. 7.45.
Morgunleikf im i kl. 7.50
Morgunst. barnanna kl.
8.45: Lilja S. Kristjánsdóttir
heldur áfram sögunni af
,,Mariönnu” eftir van Holst.
(5). Tilkynningar kl. 9.30Ú
Létt lög milli liða. Spjallað
við bændur kl. 10.05. 10.25
I’op-tónleikar. P’réttir kl. 11.00
Tónleikar: Nýja Filharmóniu-
sveitin leikur Sinfóniu nr. 1 i
B-dúr „Vorsinfóniuna” eftir
Schumann, Otto Klemperer
stj. / Alicia De Larrocha
leikur á pianó Capriccio i a-
moll, op. 33, nr. 1 og
Variationes Sérieuses i d-
moll, op. 54 eftir Mendels-
sohn.
12.00 Dagskráin. Tónleikar
Tillkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið. Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 Siðdcgissagan: „Þrútið
loft” cftir F.G.Wodehousc.
Jón Aðils leikari les (20).
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Lesin dagskrá næstu viku.
15.30 Miðdegistónleikar Jan-
et Baker syngur tvö lög
eftir Richard Strauss, „Die
Nacht” og „Morgen”
Gerald Moore leikur með á
pianó. Cleveland-hljóm-
sveitin leikur Sinfóniu nr. 10
eftir Gustav Mahler,
George Szell stjórnar.
16.15 Veðurfregnir. Létt lög.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.30 Ferðabókarlestur:
Skólaferðin eftir séra As-
mund Gislason Guðmundur
Arnfinnsson les (3) sögulok.
18.00 Fréttir á ensku
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Frá Ólympiuleikunum i
Munchen Jón Asgeirsson
segir frá.
19.40 Fréttaspegill
19.55 Bókmenntagetraun
20.10 Gestur i útvarpssal Hein-
rich Berg pianóleikari frá
Hamborg leikur. a. Sex pre-
lúdiur eftir Rakhmaninoff.
b. „Dóná svo blá”, vals eftir
Johann Strauss, búinn út
fyrir pianó af Schulz-Evler.
20.40 Tækni og visindi. Páll
Theodórsson eðlisfræð-
ingur og Guðmundur
Eggertsson prófessor sjá
um þáttinn.
21.00 Sumartónleikar frá
finnska útvarpinu. Útvarps-
hljómsveitin i Helsinki leik-
ur finnska skemmtitónlist.
Einsöngvarar: Taru Val-
jakka og Jorma Hynninen.
Stjórnendur: Paavol Berg-
lund, Okku Kamu o.fl.
21.30 útvarpssagan: „Dala-
lif” eftir Guðrúnu frá Lundi
Valdimar Lárusson les (20)
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Smásaga:
„Tilfinningasemi” eftir
Dorthy Parker i þýðingu
Steinunnar Gisladóttur.
Valgerður Bára Guðmunds-
dóttir les.
22.35 Danslög i 300 ár. Jón
Gröndal kynnir.
23.05 A tólfta timanum. Létt
lög úr ýmsum áttum.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
o &
FöSTUDAGUR 8. september
18.00 Frá Ólympiulcikunum.
Kynnir ómar Ragnarsson.
(Evrovision)
lllé.
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Tónlcikar unga fólksins.
Hljómsveitaleikur. Hér út-
skýrir Leonard Bernstein
útsetningu og flutning
hljómsveitarverka og
stjórnar Filharmóniuhljóm-
sveit New York-borgar. sem
leikur kafla úr verkum eftir
Copland. Haydn, Stra-
vinsky, Beethoven, Mozart,
Brahms, Debussy.Gersh-
win og fleiri öndvegistón-
skáld siðustu alda. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
21.20 Ironsidet Bandariskur
sakamálaflokkur. Þrihyrn-
ingurinn. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
22.10 Erlend málcfni.Umsjón-
armaður Sonja Diego.
22.40 Frá Ólympiuleikunum.
23.00 Dagskrárlok.
FÉLAG mim HUÖMUSTARMANIHA
#útvegar yður hljódfœraleikara
og hljómsveitir við hverskonar tœkifœri
Vinsamlcgast hringið í 202SS milli kl. 14-17
FRAMTÍÐARSTARF
Samgönguráðuneytið óskar eftir að
ráða karl eða konu til vélritunar, skjala-
vörzlu og annarra almennra skrifstofu-
starfa.
Laun samkvæmt 13. launaflokki hins al-
menna launakerfis starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist samgöngu-
ráðuneytinu fyrir 15. september 1972.
Reykjavik, 5. september 1972.
Samgönguráðuneytið.
□
□□