Þjóðviljinn - 08.09.1972, Page 12
UOBVIUINN
Föstudagur 8. september 1972
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar'
eru gefnar I simsvara
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Kvöld— og helgidaga-
varzla apóteka vikuna 2. til
8. september er i Laugavegs-
, Holts- og Garðsapótekum.
Næturvarzla i Stórholti 1.
Slysavaröstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Spasski: „Kischcr vann cinfaldlega vegna þess að hann tcfldi bctur".
Spasski á brottfarardaginn:
„Mér geðjast vel að Bobby”
,,Mér geöjast vel að
Bobby Fischer og tel
mig skilja hann. Bobby
bindur ekki bagga sína
sömu hnútum og sam-
ferðamennirnir, en það
er að sinu leyti ánægju-
leg tilbreyting í hvers-
dagslífi okkar aldar".
A þessa leið fórust
Boris Spasski orð um
manninn sem rændi
hann heimsmeistara-
tigninni, er hann sat fyr-
ir svörum á fundi með
blaðamönnum á Hótel
Sögu i gær.
Spasski mætti einn sins liðs
til fundarins og var hinn
hressasti að sjá. Ekki kvaðst
hann vera of sleipur i enskri
tungu, og fór þess á leit við
rússneskumælandi menn, ef
einhverjir væru þar inni, að
veita sér aðstoð og túlka, hvað
einn erlendur blaðamaður
gerði með ágætum.
Heimsmeistarinn fyrrver-
andi kvaðst vera hinn ánægö-
asti með dvölina hér. öll að-
staða hefði verið eins og bezt
yrði á kosið, hérlendis rikti
góður skákandi. og hann hefði
mikinn hug á að koma hingað
aftur. þá ekki siður til að taka
þátt i skákkeppni.
„Framkoma Fischers fyrir
einvigið kom mér að vissu
leyti úr jafnvægi”, sagði
Spasski. „Hins vegar var ekk-
ert að framkomu hans að
finna i einviginu sjálfu, og
hann tefldi mjög vel. Þrett-
ánda skákin þótti mér
skemmtilegust, en undir lokin
urðu skákirnar rislægri.
Þegar á heildina er litið, má ef
til vill segja, að ég hefði getað
gert betur, en nokkrum sinn-
um i einviginu leið mér bein-
linis illa. Ég veit ekki enn
hverju það sætti, en ég og
félagar minir töldum réttast
að láta fara fram rannsókn i
Laugardalshöllinni, til að
ganga úr skugga um hvort
eitthvað kynni að leynast þar,
sem gæti hafa valdið vanliðan
minni.
Sigur Fischers hefur vita-
skuld mikil áhrif á stil skák-
manna ekki aðeins i sovétrikj-
unum, heldur og öllum heim-
inum. Heima i Sovétrikjunum
úir og grúir af aðdáendum
Fischers, sem von er. Fischer
er frábær skákmaður. og
hann vann mig einfaldlega
vegna þess að hann tefldi bet-
ur”.
Spasski bað blaðamenn fyr-
ir kveðjur sinar til islenzku
þjóðarinnar og þakkaði vel-
vild og hlýhug almennings i
sinn garð. Þau hjónin
Boris og Larissa héldu áleiðis
til Kaupmannahafnar siðdegis
i gær. Þar dvelja þau til
sunnudags og halda siðan til
sins heima i Moskvu.
Arabar klofnir vegna
Mtinchenatburðanna
Ovist um
leiðtoga-
fund
BRÚSSEL 7/9. —Enn er óvist
hvort unnt verður að halda fund
leiðtoga Efnahagsbandalags-
rikjanna i október, eins og áform-
að hefur verið. h'rá þessu var
skýrt i BrOssel i dag, eftir að
sendiherrar Efnahagsbandalags-
rikjanna og sendiherrar land-
anna, sem sækja um aðild að
bandalaginu, hafa setið á stöðug-
um undirbúningsfundum siðan á
mánudag.
Kaupfélag
Hafnarfjarðar
opnar útibú í
Noréurbœnum
Kaupfélag Hafnarfjarðar mun
opna nýtt útibú i Norðurbænum i
Hafnarfirði i dag. Verzlunin er að
Miðvangi 41, á neðstu hæð átta
hæöa fjölbýlishúss, sem þar er að
risa. Þetta er bráðabirgðaraðset-
ur i austurenda hússins, en siðar
verður verzlunin flutt i nýtizku
verzlunarmiðstöð norðar i lóð-
inni. Yfirbyggður gangstigur
mun þá liggja á milli fjölbýlis-
hússins og verzlunarmiðstöðvar-
innar.
Þessi nýja verzlun sem nú er
verið að opna er 300 fermetrar að
stærð og að sjálfsögðu með
kjörbúðarsniði. Innréttingarnar
og kæliklefar er innflutt frá
sænska Samvinnusambandinu.
Þar verða á boðstólnum allar
matvörur, mjólk og mjólkurvör-
ur, brauð og kjötvörur. Þótt
verzlunin sé hér til bráðabirgða,
hefur verið til hennar vandað eins
og til frambúðar væri.
A neðstu hæð þessa stóra
fjölbýlishúss verða, auk þessarar
nýju kjörbúðar, margskonar
þjónustufyrirtæki, svo sem apó-
tek, pósthús, þvottahús, snyrti-
stofur, bankaútibú, sérverzlanir
o.s.frv.
Verzlunarstjóri verður Gisli
Halldórsson, en kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Hafnarfjarðar er
Ragnar Pétursson.
— úþ.
Blaðberar
óskast
Þjóðviljinn óskar aö
ráöa blaðbera í eftir
talin hverfi:
Seltjarnarnes
Kvisthaga
Hjaröarhaga
Kaplaskjól
Skjól
Hóskólahverfi
Drápuhlið
Blönduhliö
Mávahlíð
Stórholt
Háteigsveg
Lönguhlíð
Nökkvavog
Grunna
Álfheima
Laugarnes
Leifsgötu
Vogahverfi
Háaleitisbraut
Safamýri
Laugaveg
Þjóðviljinn
sími 17500
BEIRUT 7/9. — Atburð-
irnir i Munchen, þegar
arabiskir skæruliðar drápu
ellefu menn úr liði israels á
Ólympiuleikunum, hafa
valdið klofningi meðal
Araba.
Ýmsir leiðtogar Araba, einkum
Hússein Jórdaniukonungur. hafa
forda'mt aðgerðir skæruliðanna.
Hússein sendi fjölskyldum hinna
drepnu samúðarkveðjur og sagði
i sjónvarpsviðtali að hann teldi
ekki að Palestinuarabar styddu
skæruliða. „Þeir eru Arabar, en
gerðir þeirra voru ekki að sið
Araba”, sagði konungurinn.
Stjórn Libanons hefur einnig for-
dæmt aðgerðirnar, en ekki eins
harðlega. Ýmsir skæruliðar hafa
tekið svipaða afstöðu.
Ýmsir aðrir Arabar m.a.
egypzka stjórnin hafa viljað
skella skuldinni á vestur-þýzku
lögregluna og stjórn V-Þýzka-
lands. Þeir segja að það hafi verið
hún, sem hóf skothriðina. og
þannig hafi hún rofið það sam-
komulag. sem hún hafði verið bú-
in að gera við skæruliðana um að
leyfa þeim að komast óhultum úr
landi. Aðrir hal'a tekið enn harð-
ari afstöðu með skæruliðunum og
sagt. að menn ætlist til þess að
Arabar fylgi reglum, sem
lsraelsmenn virði ekki sjálfir.
Stjórn Vestur-Þýzkalands
visaði ásökunum Egypta á bug i
dag, en viðurkennir þó, að ýmsir
lögreglumenn hafi byrjað að
skjóta á skæruliðana án þess að
hafa fengið fyrirskipun um það.
Lögreglustjórinn i Miinchen gaf i
dag út yfirlýsingu. þar sem sagt
var að skæruliðarnir hefðu orðið
fyrri til að skjóta. en það stangast
á við yfirlýsingu innanrikisráð-
herra Bayern um, að lögreglan
hafi skotið fyrst. Það mun taka
langan tima að rannsaka málið
og komast að sannleikanum.
Lik hinna látnu Olympiufara
voru flutt til Israels i dag. og var
haldin minningarathöfn um þá á
Gyðingar
handteknir
MOSKVU 6/9. — Lögreglan i
Moskvu handtók i gærkvöld um 30
Gyðinga, scm reyndu að efna til
mótmælaaðgerða fyrir utan
sendiráð Libanons I borginni.
Fjöldi einkennisklæddra lög-
regluþjóna hafði tekið sér stöðu
fyrir utan sendiráðið, þegar Gyð-
ingarnir komu, og voru margir
þeirra handteknir þegar i stað, en
nokkrum tókst að komastundan.
Gyðingarnir ætluöu að afhenda
sendiráösmönnunum bréf, þar
sem þeir sögðu að Libanonsmenn
væru samsekir arabisku skæru-
liðunum i Miinchen, þvi að þeir
hefðu leyft skæruliðunum að
dveljast i landinu.
flugvellinum að viðstöddum
fjölda manns.
Vetraráætlun Ft innanlands
verður eingöngu framkvæmd
með Fokker Friendship skrúfu-
þotum, en fclagið á nú fjórar slik-
ar flugvélar.
1 einstökum atriðum er vetrar-
áætlunin sem hér segir: Milli
Reykjavikur og Akureyrar verða
17 ferðir i viku fram og aftur. Þar
af halda ferðirnar á miðvikudög-
um og sunnudögum áfram til
Egilsstaða og til baka um Akur-
eyri, og ferðirnar á mánudögum
og föstudögum halda áfram frá
Akureyri til Raufarhafnar og
Þórshafnar og sömu leiö til baka.
Til Vestmannaeyja verða 10
ferðir i viku sem er sami ferða-
fjöldi og siðastliðinn vetur, en
þess ber að geta að nú verða allar
ferðir flognar með Friendship
skrúfuþotum. Til Isafjarðar
verða ferðir alla daga, þar af sex
ferðir beint fram og til baka og
Nýir yfirkennarar
við Fellaskóla og
Austurbæj arskól a
Nýir yfirkennarar hafa verið
ráðnir að tilhlutan fræðsluráðs
Reykjavikur að Fellaskóla og
Austurbæjarskóla. Yfirkennari
Fellaskóla verður Sigurjón Fjeld-
sted, en Austurbæjarskólans
Hjalti Jónsson.
ein með viðkomu á Þingeyri. Til
Egilsstaða verður flogið alla
daga. Þar af fimm beinar ferðir
frá Reykjavik en tvær um Akur-
eyri. Til Húsavikur verða þrjár
ferðir i viku frá Reykjavik, á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum. Til Hafnar i Horna-
firði verða fjórar ferðir i viku, á
þriðjudögum og fimmtudögum,
laugardögum og sunnudögum.
Allar ferðir til Hafnar eru
morgunferðir nema sunnudags-
ferðin, sem er farin siðdegis. Er
þetta meðal annars gert til þess
að auðvelda hópum, félagssam-
tökum og einstaklingum helgar-
dvöl á Hornafirði.
Til Patreksfjarðar verða þrjar
ferðir i viku, á mánudögum, mið-
vikudögum og föstudögum. Til
Þingeyrar verður flogið á mið-
vikudögum og sunnudögum i
Framhald á bls. 11.
Vetraráætlanir Flugfélags íslands
Farþegar mæti nú
aðeins með 15
minútna fyrirvara