Þjóðviljinn - 05.11.1972, Side 3
Sunnudagur 5. nóvember 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
HELGI SELJAN
FÁEIN ORÐ UM
ÁFEN GISMÁLIN
örfáar linur um þessi mál i til-
efni bindindisdags.
Bindindi — hvað er nú það? Er
nema von menn spyrji: Ófrelsi —
höft — bönn — er bindindi ekki
eitthvað i ætt við þessi voðalegu
orð?
Vinpostular hafa fyrr og siðar
reynt að tengja þessi orð saman,
en orð eins og frelsi, sjálfsákvörð-
unarréttur o.s.frv. hafa átt að
vera i samfylgd vindrykkjunnar.
Hvað leiðir athugun svo i ljós?
Efar t.d. nokkur frelsi of-
drykkjumannsins, er ekki
sjálfsákvörðunarretturinn i lagi
hjá þeim, sem fremur hvers kyns
ódæði i ölæði eða hjá hófdrykkju-
manninum, sem sezt ölvaður inn i
bifreið sina og drepur eða lim-
iestir samborgara sina?
Eða hvað um frelsi og reisn
unglingsins, sem alla sina fridaga
reikar eða veltist um i ölvunar-
vimu og á sér ekkert markmið
eða áhugamál i tómstundum
sinum?
Það getur orðið býsna teygjan-
legt frelsishugtakið, þegar betur
er að gáð.
Aldrei hef ég hitt bindindis-
mann, sem talið hefur sig ófrjáls-
an af þeim sökum, engan, sem
séð hefur eftir þvi að vera bind-
indismaður. En ófáir eru þeir,
iðrast hafa ævilangt fyrsta
staupsins vegna þess, að þeir
hafa seinna orðið ofdrykkju að
bráð. Margir eru þeir einnig hóf-
drykkjumennirnir svokölluðu,
sem hafa þurft að skammast sin
og sjá einlæglega eftir orðum og
gerðum. sem áfengið hefur verið
bein eða óbein orsök að. Talar
þetta ekki allglöggu máli? Hóf-
drykkjumenn — þá tel ég reyndar
hættulegri umhverfi sinu að
mörgu leyti en ýmsa aðra, þeim
vilja margir likjast, einnig þeir,
sem siðar verða undir i viður-
eigninni við vinið. Enginn vill
likjast rónanum istrætinu, mann-
inum. sem kemur óorði á guða-
veigarnar að dómi vinmenn-
ingarpostulanna.
Og teygjanlegt er einnig hug-
takið ,,hófdrykkjumaður”,
einkum, ef miðað er við álit
sjálfra þeirra, sem drekka i hófi
að eigin áliti, löngu eftir að þeir
eru orðnir háðir vininu — já
aumir þrælar þess.
En það siæddist inn hjá mér
orðið vinmenning. Fint orð, og
hvað táknar' það þá? Nokkur
dæmi skulu nefnd.
Eitthvert bezta dæmið eru hin
svokölluðu finu ,,partý”, svall-
veizlur betri borgaranna i fyrstu,
en nú hvarvetna sem lýsandi vin-
menningardæmi.
Hinir frjálsu, opnu, vinbarir
eru fagurt dæmi einnig — kemur
mönnum kannski ekki menning i
hug, ef litið er þar inn?
Vimumaðurinn, sem aldrei
rennur alveg af, en aldrei er beint
ofurölvi. eitt vinmenningarfyrir-
bærið mun það vera af betra tag-
inu. Unglingar við vindrykkju
undir handarjaðri göfugra for-
eldra njótandi tilsagnar i finni
drykkjusiðum, s.láandi menn-
ingarfordæmi.
Eða kalla þessi alþekktu dæmi
vinmenningarinnar á andsvör,
benda þau e.t.v. á ranghverfu
sannrar menningar? Dæmi hver
sem vill.
Dekkri hliðar áfengisnautnar
skal enn nel'na. Mannlif fara for-
görðum i fleiri en einum skilningi,
vinnustundir tapast þúsundum
saman, hvers konar afbrot og
ógæfa fylgja hvarvetna i kjölfar
vinneyzlunnar.
Ilelgi Seljan.
En hvað skal þá til ráða?
Algilda lausn hef ég ekki á tak-
teinum. Bindindismenn hafa oft
bent á leiðir. vinbann hefur verið
oiarlega á þeirra stefnuskrá.
Um vinbann vil ég segja, að auð-
vitað er það bezta og æskilegafsta
leiðin. ef nógu sterk og öflug
fjöldahreyfing stendur þar að
baki. en hana eigum við ekki i
dag.
Keglulegir andstæðingar
áfengisneyzlu eru hryggilega fáir
i dag. Margir bera að visu
áfengisbölið sér i munn og
hneykslast jafnt á ofdrykkju-
manninum sem unglingnum ofur-
ölvi, en biða jafnframt i sælli
eftirvænting eftir næsta ,,partý”
eða fara inn á næsta vinbar til að
drekkja áhyggjum sinum út af
spillingu heimsins.
Það þarf að breyta almennings-
álitinu, virkja fólk til beinnar
baráttu við vandann, verkefnið
þarf ekki að vera óleysanlegt, ef
vel er á þvi tekið. Það er mjög
talað um það i heilbrigðismálum
okkar nú, að fyrirbyggjandi að-
gerðir eigi að sitja i fyrirrúmi,
það þurfi að koma i veg fyrir
sjúkdómana.
Sama gildir um áfengisneyzl-
una, við eigum þar fyrst og
fremst að snúa okkur til æsk-
unnar, fræða hana, vera henni
fordæmi, fá hana i lið með okkur.
Ég er sannfæröur um það að æsk-
an mun i þessu sem fleiru risa
upp og færa til betri vegar ýmis-
legt það, sem gengið hefur úr
skorðum.
Eg heiti á liðsinni æskunnar við
uppræting áfengisbölsins, en til
þess verðum við einnig að leggja
okkar hlut. Og málið þolir enga
bið.
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32
LJÚSASTILLINGAR
HJÓLASTILLINGAR MÓTDRSTILLINGAR
Látið stilla í tima. 4
Fljót og örugg þjónusta. I
13-10 0
llelgi Seljan.
ERUM FLUTTIR
FRÁ MIKLATORGI í ÁRMÚLA 23
(INNGANGUR Á NORÐURHLIÐ)
NÝTT SÍMANÚMER 82140
Það er hægt að nota plastgler til margs.
Plast í plötum
Akrylgler — báruplast —Sunlux riflaðar
plastplötur — PVC plastþynnur
Ljósaskilti
Þakrennur
^fGeislaplastsf.
YiOkN ÁRMÚLA 23 SÍMI 82140
Konan
þarf ekki
að sit ja
heima
Konan þarf ekki að sitja heima, þegar
eiginmaðurinn flýgur með Flugfélaginu
í viðskiptaerindum. Hún borgar bara
hálft fargjald - það gerir
fjölskylduafslátturinn. Þegar fjölskyldan
ferðast saman, greiðir einn fullt
gjald - allir hinir hálft.
Fjölskylduafsláttur gildir allt árið innan-
lands og 1. nóv. - 31. marz til Norður-
landa og Bretlands.
Veitið konu yðar hvíld og tilbreytingu.
50% afsláttur
FLUCFÉLAG fSLAMDS