Þjóðviljinn - 05.11.1972, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 5. nóvember 1972
FflÁ FLUGFÉLJXGINU
Skrifstofustarf
í Stokkhólmi
Flugfélag íslands h.f. óskar að ráða stúlku
til starfa á skrifstofu félagsins i Stokk-
hólmi.
Ráðningartimi frá 1. febrúar 1973, eöa eftir samkomulagi.
Góð kunnátta i sænsku, ensku og vélritun
* nauðsynieg.
Umsóknareyðublöðum, sem fást i skrifstofum félagsins,
sé skilað til starfsmannahalds fyrir 20. nóvember n.k.
FLUGFELAC /SLANDS
Frá fræðsluskrifstotu
Reykjavíkur
Námskeið fyrir kennara i byrjunar-
kennslu i lestri verða haldin dagana 13.-17.
nóvember og 20.-24. nóvember næstkom-
andi.
Námskeið fyrir kennara sex ára barna i
byrjunarkennslu i lestri og meðferð Orff
hljóðfæra verður haldið dagana 27. nóv. -
5.des.
Innritun fyrir fimmtudaginn 9. nóvember.
Upplýsingar i fræðsluskrifstofu Reykja-
vikur. Simi: 2 14 30.
Bókavörður
Starf forstöðumanns Bókasafns ísa-
fjarðar er laust til umsóknar, umsóknar-
frestur er til 1. desember n.k. Starfið veit-
ist frá 1. janúar 1973.
Allar nánari upplýsingar um starfið gefa
bæjarstjórinn á ísafirði og bókafulltrúi
rikisins, Stefán Júliusson.
BÆJARSTJÖRINN ISAFIRÐI
Starfsstúlknafélagið Sókn
Námskeiö
Starfsstúlknafélagsins Sóknar
hefst miðvikudaginn 8. nóv. — Þátttakendur koma saman
einu sinni i viku, á miðvikudögum, 5 sinnum alls, isfðasta
sinn miðvikudaginn 6. desember.
Námskeiðið fer fram i húsi Hins isienzka prentarafélags
að Hverfisgötu 21, efri hæð og hefjast kl. 20.30 hvert kvöld.
A námskeiðinu verða fluttir fyririestrar, siðar umræður
um efni þeirra og svara fyrirlesararnir fyrirspurnum.
FJALLAÐ VERÐUR UM EFTIRFARANDI EFNI:
8. nóvember: Hlutverk og skyldur trúnaðarmanna á
vinnustöðum : Guðjón Jónsson, járnsmiöur.
15. nóvember: Kjarasamningarnir og túlkun þeirra:
Þórir Danielsson, framkv. stj. Verkamannasamb. ts-
lands.
22. nóvember: Vinnulöggjöfin: Nánar augl. síðar.
29. nóvembef: Stéttabaráttan og grundvöllur hennar:
Brynjólfur Bjarnason fyrrv. ráðherra.
0. desember: Staða verkakonunnar I þjóðfélaginu: Nánar
augl. síðar.
Reykjavik, nóvember 1972.
STARFSSTOLKNAFÉLAGIÐ SÓKN.
rnrrrií
iiiiP iM
r ---------------i
þingsjá þjóðviljans
Yarnir gegn
mengun sj ávar
Rikisstjórnin hefur lagt fram
frumvarp um að alþingi heimili
stjórninni að staðfesta fyrir
tslands hönd alþjóðasamning, er
geröur var 15. febrúar 1972, um
varnir gegn mengun sjávar
vegna losunar úrgangsefna frá
skipum og flugvélum.
Þegar samningurinn hefur
verið staðfestur öðlast hann laga-
gildi á Islandi. 1 athugasemdum
við frumvarpið segir m.a.
„Samningurinn felur fyrst og
fremst i sér bann eða tak-
markanir við losun úrgangsefna i
hafið frá skipum og flugvélum. 1
viðauka nr. 1 með samningnum
eru upptalin þau efni, sem alger-
lega er bannað að losa i hafið. 1
viðauka nr. II eru talin efni, sem
kasta má i hafið með sérstöku
leyfi stjórnvalda þess lands, sem
um er að ræða en fastanefnd sem
stofnuð er með samningnum, er
einnig falið að fylgjast með þess-
um heimildum. Bannað er að losa
nema litið magn þessara efna, og
er magnið einnig háð ákvörðun
nefndarinnar. Engin þessara efna
má losa á minna dýpi en 2000
metrum og heldur ekki nær landi
en 150 sjómilur. Samningurinn
nær til Norðaustur-Atlanzhafsins
og hluta tshafsins, nánar tiltekið
til þeirra hafsvæða, sem eru
norðan við 36 nl.br. og á milli 42
vl.l. og 51 al.l., —að viðbættu haf-
svæði Atlanzhafsins norðan við 59
nl.br. og á milli 44 vl.l. og 42 vl.l. t
stórum dráttum er þetta allt haf-
svæðið austan við linu i suður frá
suðurodda Grænlands, suður að
norðlægri breiddargráðu
Gibraltarsunds. Svæði þetta er
hið sama og Norðaustur-
Atlanzhafsfiskveiðisamþykktin
nær til. Aðildarrikin skuldbinda
sig þó einnig til að forðast losun
skaðlegra efna i hafið utan þess
svæðis, sem samþykktin nær til
Einnig eru ákvæði um, að
aðildarrikin samræmi aðgerðir
sinar og vinni sameiginlega og
hvert i sinu lagi að þvi að koma i
veg fyrir mengun sjávar. Einnig
skuldbinda samningsrikin sig tii
gagnkvæmrar aðstoðar i neyðar-
tilfellum og til þess að koma á
samræmdum eða sameiginlegum
visindalegum og tæknilegum
rannsóknum, þar með töldum
rannsóknum á mismunandi að-
ferðum við að fjarlægja skaðleg
efni og skiptast á þeirri vitneskju,
sem fæst á þennan hátt.”
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐ VERZLA í KR0N
VERÐTRYGGÐ
SPARISKlRTEINI
1 Í maí s. I. var boðið út 300 milljón króna spari- skírteinalán ríkissjóðs. Af þessari útgáfu eru nú um 200 millj. kr seldar og hefur sala farið vaxandi á ný að undanförnu. Ekki verður gefið út meira af þessum flokki og verður afgangur bréfanna til sölu á næstunni hjá bönkum, bankaútibúum og sparisjóðum um allt land, auk nokkurra verðbréfasala. Þessi flokkur spariskírteina er bundinn vísitölu byggingarkostnaðar frá 1. júlí þessa árs.
2 Spariskírteinin eru tvímælalaust ein bezta fjárfestingin, sem völ er á, þau eru fyrirhafnar- og áhyggjulaus, skatt- og framtalsfrjáls og eina verðtryggða sparnaðarformið, sem í boði er.
3Sem dæmi um það hve spariskírteinin eru
arðbær fjárfesting skal upplýst, að tíu þúsund
króna skírteini áranna 1965, 1966 og 1967
eru nú innleyst á rúmlega 41 þúsund,
33 þúsund og 29 þúsund, hvert fyrir sig og
hafa þvi gefið árlegan arð liðlega
22-24 af hundraði.
Innlausnarverð spariskírteina hefur rúmlega
fjórfaldazt frá 1965, en það mun vera talsvert
meira en almenn verðhækkun íbúða í
Reykjavík á sama tímabili.
Skírteini: Gefa nú. Arlegur arður.
Frá sept. 1965 kr. 10.000 kr. 41.586 22,6%
Frá sept. 1966 kr. 10.000 — 33.032 22,1%
Frá sept. 1967 kr. 10.000 — 29.428 24,1%
RÍSPAPPÍRSLAMPINN
FRÁ JAPAN
Japanski rispappirslampinn fæst nú einnig á tslandi i 4
stærðum.
Hentar hvar sem er, skapar góða birtu og er til skrauts
bæði einn og einn og i samsetningum eins og á myndinni.
Athyglisverð og eiguleg nýjung.
HÚSGAGNAVERZLUN
,\XELS EYJÓLFSSONAR
SKIPHOLTI 7 — Hcykjavik.
Símar 10117 og 18742.