Þjóðviljinn - 05.11.1972, Qupperneq 7
Sunnudagur 5. nóvember 1972 ÞJáÐVtLJINN — StÐA 7
Sovézk
kvikmynda-
vika
í Reykjavík
N.k. miðvikudag 8. nóv. hcfst i
l.augarúsbiói sové/.k kvikmynda-
vika. Sýndar vcrða 5 nýjar
sovézkar kvikmyndir.
Frelsisstríd.
t>essa mynd hafa Sovdlmenn
kallað mestu striðsmynd sem
gerð hefur verið. Hún er i fjórum
hlutum, en tveir þeirra verða
sýndir hér nú. Eins og kunnugt er
hafa Sovétmenn gert ótal myndir
með heimstyrjaldirnar að bak-
sviði, þ.e. sögur sem gerast i
skugga striðsins, um örlög ein-
stakra hermanna o.s.frv. En litið
hefur verið fjallað um striðið
sjálft frá sögulegu sjónarhorni og
erþessum myndum ætlað að bæta
úr þvi. Einnig þótti ærin ástæða
til þess að rifja upp hversu stóran
hlut Sovétrikin áttu i þvi frelsis-
striði sem þjóðir Evrópu háðu
gegn nazistum. Þess er hvergi
getið i hinum fjölmörgu banda-
risku myndum sem gerðar hafa
verið um seinni heimstyrjöldina.
25 ár eru liðin frá striðslokum,
heil kynslóð hefur vaxið úr grasi,
hún d heimtingu á að fá aö vita
sannleikann.
Þetta eru sjónarmiðin sem réðu
gerð myndarinnar og Sovétmenn
hafa ekki sparað neitt til þess að
gera hana sem nákvæmasta og
dreiðanlegasta. Kvikmyndun fór
fram á sögustöðunum viða i
Evrópu og stuðzt var við ljós-
myndir og oftlega sóttir hlutir i
söfn viða i álfunni og notaðir i
myndinni, eins og t.d. 12 tonna
brynvarður bill sem Stalin notaði,
skrifborð Hitlers og fleira i þeim
dúr. Myndin er tekin á 70 mm lit-
filmu og eru leikararnir af ýms-
um þjóðernum. Fjórði og siðasti
hlutinn fjallar um orustuna um
Berli og var að mestu leyti tekin i
striðsrústum i Austur Berlin, sem
eru ekki lengur til, þar hafa ný-
lega verið byggð ibúðahverfi.
Sovétmenn virðast hafa náð
yfirlýstum tilgangi sinum með
þessum myndum, þvi þær hafa
hlotið óhemju aðsókn i Sovétrikj-
unum og einnig utan þeirra. Þær
hafa komið mörgum á óvart og
haft áhrif i þá átt að breyta hinni
einhliða mynd sem fólk á Vestur-
löndum hefur fengið af gangi
seinni heimstyrjaldarinnar i
vestrænum kvikmyndum. En
myndirnar eru einnig kallaðar
minnisvarði þeirra er féllu i
striðinu.
Dansljóö.
Ballet — breiðtjaldsmynd i lit-
um. Hún er gerð um eina mestu
ballerinu Sovétmanna fyrr og
siðar, Maju Plisetskaju. Leik-
stjórinn notar mjög vel mögu-
leika kvikmyndatækninnar til
þess að lýsa á ljóðrænan hátt
margbreytileika balletsins, en
Plisetskaja dansar brot úr hinum
ólikustu dansverkum.
Dansljóð.
Sirkusinn mikli.
Stórkostlegasta sirkusmynd
sem ég hef séð. Myndatakan ein-
stök og stundum raunar óskiljan-
legt hvernig hún hefur farið fram.
„Hernaðarleyndarmál”, segir
leikstjórinn. Þarna gefur að lita
alla fremstu fjölleikamenn, trúða
og dýraþjálfara Sovétmanna i
hinum heimsfræga sirkus
Moskvuborgar.
Hinn síðasti helgidómur.
Myndin byggir á sögulegri
skáldsögu eftir Eduard Bornhel
sem út kom árið 1893. Hún gerist
á 16. öld og segir frá baráttu eist-
lenzkra bænda við þýzka og
sænska innrásarmenn. Þetta er
viðburðarik og spennandi „ævin-
týramynd”, gerð af sögulegri ná-
kvæmni. Flestir leikaranna eru
ungt fólk og á það sinn þátt i að
myndin er hröð og hressileg.
Langt i vestri.
Myndin gerist árið 1944 i fanga-
búðum i Frakklandi, en nánari
upplýsingar hef ég ekki um þessa
mynd.
☆
Nánar verður sagt frá sýn-
ingardögunum hér i Þjóðviljan-
um eftir helgina, en myndirnar
verða varla sýndar nema einn
dag hver, og þvi nauðsynlegt að
fylgjast vel með. Ég vil eindregið
hvetja fólk til þess að sjá eitthvað
af þessum myndum sem eru kær-
komin tilbreyting þessa dagana
þegarnákvæmlega ekkert mark-
vert er að sjá i hinum bióunum.
Þ.S.
mm
Sirkusinn mikli.