Þjóðviljinn - 05.11.1972, Qupperneq 15
Sunnudagur 5. nóvember 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15.
Ragnar Arndals:
Um sameiningarmál
„Alþýðubandalagið hefur
ekki gert neinar sérstakar
samþykktir um sameiningar-
mál. Alþýðubandalagið hefur
talið árangursrikast, að sam-
starf vinstrimanna þróaðist
með eðlilegum hætti á
grundvelli sem viðtækastrar
samstöðu um baráttu vinstri-
manna.
Skyndiupphlaup og yfir-
borðskennd slagorð um sam-
einingu munu að sjálfsögðu
litlu breyta, ef hugur fylgir
ekki máli. Þó að nokkrir
stjórnmálaforingjar komi sér
saman um að styðja hvor
annan i kosningum til að
treysta völd sin, þá er ekki þar
með sagt, að styrkur vinstri-
hreyfingarinnar aukist við
það. Að sjálfsögðu ræður það
úrslitum hvort rikari sam-
staða skapist um þau við-
fangsefni og vandamál, sem
efst eru á baugi i islenzku
þjóðfélagi.
Þeir sem ekki geta starfað
saman i rikisstjórn geta . að
sjálfsögðu enn siður starfað
saman i flokki. Foringjar
Alþýðuflokksins hafa um ára-
bil verið i svo nánu samstarfi
við ihaldsöflin i landinu, að
jafnvel flokksmenn þeirra
þekktu ekki lengur muninn á
stefnu Alþýðuflokksins og
Sjálfstæðisflokksins. Alþýöu-
flokknum var boðin
þátttaka i myndun vinstri-
stjórnarinnar, en foringar
flokksins fengu þvi ráðið, að
þvi boði var hafnað.
Enn bendir þvi miður ekkert
til þess að forystumenn
Alþýðuflokksins, sem eitt sinn
var helzti merkisberi is-
lenzkra vinstrimanna og
verkalýðs, hafi breytt um af-
stöðu i mikilsverðum málum,
Að visu er stefna þeirra harla
óljós i fjölmörgum málum, en
i þeim málum, þar sem linur
skerast einkum milli hægri og
vinstristefnu og andstæð við-
horf mætast, virðast þeir þvi
vera hægra megin, til dæmis i
afstöðu sinni til islenzkra
atvinnumála og stóriðju á ts-
landi, i afstöðu sinni til utan-
rikismála og bandariskra her-
stöðva á Islandi og til annarra
helztu átakamála i islenzkum
stjórnmálum.
Hægrisinnuð lifsviðhorf for-
ystumanna . Alþýðuflokksins
komu einkar skýrt i ljós,
þegar norska þjóðin hafnaði
aðild að Efnahagsbandalagi
Evrópu og kom þar með i veg
fyrir, að alþjóðlegir auð-
hringar næðu tökum á norsku
atvinnulifi. Formaður Alþýðu-
flokksins lýsti þá yfir óánægju
sinni og sorg vegna þessara
úrslita, á sama tima og
brezkir jafnaðarmenn og
ungir jafnaðarmenn og
vinstrimenn á öllum Norður-
löndunum fögnuðu mjög inni-
lega þessum sigri, likt og
Samtök frjálslyndra og
vinstrimanna og Alþýðu-
bandalagið hér á landi. Ein-
mitt i þessu máli, i afstöðunni
til hins kapitaliska stóriðn
aðar, sem verið er að koma á
fót i Evrópu, mætast andstæð
lifsviðhorf, sem skera úr um
afstöðu manna i fjölda-
mörgum smærri málum.
í hópi samherja má að sjálf-
sögðu alltaf reikna með ein-
hverjum skoðanamun i
ýmsum málum. Annað er
óeðlilegt. Hins vegar ætti að
vera ljóst, að vinstrimönnum
er enginn greiði gerður með
þvi að grauta saman i einn
pott alls konar pólitiskum
sjónarmiðum jafnt frá hægri
sem vinstri. Sundurleitur
milliflokkur, sem reikar um
vettvang stjórnmálanna,
þverklofinn og stefnulaus, er
ekki liklegur til að verða að
miklu gagni fyrir islenzku
þjóðina.
Við Alþýðubandalagsmenn
erum vafalaust reiðubúnir að
taka þátti endurskipulagningu
islenzkrar vinstrihreyfingar,
málefnalegur grundvöllur er
fyrir hendi og um er að ræða
samstarf, sem byggt er á
traustum grunni.
Baráttan fyrir betra þjóðfé-
lagi og árangur hennar er
aðalatriðið, en formið skiptir
minna máli. Við litum ekki á
flokk okkar sem neitt takmark
i sjálfu sér. En við teljum
mestu máli skipta, að sam-
vinna vinstri manna um stjórn
landsins takist vel, og við
erum tortryggnir á yfirborðs-
kennt atkvæðabrask, sem ekki
byggir á málefnum, heldur
miðast aðallega við að stofna
hlutafélag um varðveizlu
þingsæta.
Þess háttar stjórnmálabrölt
er liklegra til að sundra meira
en það sameinar. Við viljúm
raunverulegt samstarf við
alla þá, sem við eigum sam-
leið með, lika við Alþýðu-
flokkinn, og við viljum ráða af
þvi samstarfi, hvort nánari
skipulagsleg samstaða kemur*
til greina.”
Af dundi
hráskóla
Hr. ritstjóri.
f grein minni um haskóladund
s.l. laugardag brá eg fyrir mig
gömlum islenzkum húsgangi,
sem prentvillupúkinn hefur káfað
alvarlega ofani.
Siðustu tvær linurnar birtust
þannig:
„þvi góðborgarans hringa
hrund
i háskólanum” ...o.s.frv.
Eins og allir vita er visan þann-
■g:
Ráðherrann i reiðri lund
rosalegan er með hund,
þvi góðborgarans hringa hrund
i hráskólanum stundar dund.
Yðar einlægur
Flosi.'
Nýtt námskeið
hjá Kórskólanum
Annað kvöld, mánudag, hefst
nýtt námskeið hjá Kórskóla Pólý-
fónkórsins og stendur i 10 vikur.
Kennslan fer fram i Vogaskóla og
er kennt 2 stundir i senn á mánu-
dagskvöldum. Kennarar verða
Ingólfur Guðbrandsson, Ruth
Magnússon, Einar Sturluson og
Lena Rist. Gert er ráð fyrir að
nemendur Kórskólans séu á aldr-
inum 16-40 ára.
SÉNDIBÍLASTÖDIN HF
Skuggsjá
Framhald af bls. 6.
þvi að almenningi að allar væru
skattaupphæðirnar ákveðnar af
rikisstjórninni.
Nú kaus Geir flokkinn. Hann
kaus flokkinn vegna þess að ella
er valdaaðstaða Moggaklikunnar
innan Sjálfstæðisflokksins i veru-
legri hættu. Þess vegna ákvað
Moggaklikan að taka þá áhættu
að setja léttari mann i borgar-
stjóraembættið til þess að Geir
gæti óskiptur snúið sér að innan-
flokkserjunum. Geir er ekki að
losa sig úr starfi borgarstjóra til
þess að gegna þingmannsstarfi,
hann er að kasta sér út i innan-
flokkserjurnar i Sjálfstæðis-
flokknum. Fjalar.
V íetnamnef nd
Framhald af 5. siðu.
málalegum og efnahagslegum
stuðningi við þjóðfrelsisöflin i
Vietnam, vinna að þvi m .a. að
islenzka rikisstjórnin viður-
kenni Alþýðulýðveldið
Vietnam og Bráðabirgða-
byltingarstjórnina i
Lýðveldinu Suður - Vietnam.
Vietnamnefndin litur svo á að
nærtækur stuðningur við
vietnömsku þjóðina i hetju-
legri baráttu hennar gegn
bandarisku heimsvalda-
stefnunni sé að reka banda-
riska NATO-herinn burt af
Islandi. Vietnamnefndin
SAMVINNU
BANKINN
Útför eiginkonu minnar
ÁSU GUÐBRANDSDÓTTUR
frá Spágilsstöðum
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. nóv. kl. 3. e.h.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna.
Iljálmar Sigurðsson.
FÉLAGSLÍF
Félagsstarf eldri borgara
Langholtsveg 109-111.
Miðvikud. 8. nóv. verður opið
hús frá kl. 1.30 e.h. Meðal
annars verður upplýsinga-
þjónusta, bókaútlán, og kvik-
myndasýning. Fimmtud. 9.
nóv. hefst handavinna föndur
og félagsvist kl. 1.30 e.h.
Grensásprestakall
Fermingarbörn ársins 1973
mæti til skráningar mánu-
daginn 6. nóv. kl. 17.30 I
safnaðarheimilinu. Séra Jónas
Gislason
Breiðholtssókn.
Fermingarbörn komi til
viðtals i samkomusal skólans
mánudag 6. nóv. kl. 4.10.
Séra Lárus Halldórsson
Neskirkja. .
Æskulýðsstarf Neskirkju.
Fundir pilta og stúlkna 13 til 17
ára mánudagskvöld kl. 8.30.
Opið hús frá kl. 8.
Sóknarprestar.
Bústaðakirkja
Væntanleg fermingarbörn eru
beðin að mæta i kirkjunni
miðvikudag kl. 17.30. Séra
Ólafur Skúlason.
Langholtsprestakall
Fermingarbörn Langholts-
kirkju eru beðin að mæta til
innritunar miðvikudaginn 8.
nóv. i safnaðarheimilinu, til
séra Áreliusar kl. 6, til séra
Sigurðar Hauks kl. 5. Munið að
hafa með ritföng.
Kvenfélag
Laugarnessóknar.
Fundur verður haldinn
mánudaginn 6. nóv. kl. 8.30
e.h. Pétur Maach stadthor
talar um heimili og skóla.
Umræður, kaffidrykkja.
Stjórnin.
/V
Framleiði SÓLÓ-eldavélar af mörgum stærðum og gerð-
um, — einkum hagkvæmar fyrir sveitabæi,sumarbústaöi
og báta.
— Varahlutaþjónusta. —
Viljum sérstaklega benda á nýja gerð einhólfa eldavéla
fyrir smærri báta og litla sumarbústaði
ELDAVÉLAVERKSTÆÐI
JÓIIANNS FR. KRISTJÁNSSONAR H.F.
KLEPPSVEGI 62. — SÍMI 33069.
ORÐSENDING FRÁ
RAFMAGNSVEITU
REYKJAVÍKUR
Undanfarið hefur staðið yfir endurskoðun og
breyting á gagnavinnslukerfi Rafmagnsveitunn-
ar, m.a. að þvi er varðar mælaálestur og útskrift
reikninga, og hafa þess vegna óhjákvæmilega
orðið tafir á útsendingu reikninga í nokkur hverfi
á orkuveitusvæðinu. Þessar tafir stafa m.a. af
þvi að álestrarumferð hefur verið breytt til
samræmisvið fasteignaskrá og reikningar koma
þvi ekki út i sömu röð en áður. Þetta veldur þvi,
að i mörgum tilfellum fá notendur nú reikninga
yfir lengra timabil en áður.
Jafnframt því að biðja velvirðingar á þeim
óþægindum, sem einstakir notendur rafmagns og
hitaveitu verða fyrir, af þessum sökum, skal tekið
fram, að frá og með næsta útsendingartímabili
reikninga, sem hefst i byrjun desember, verða
reikningar sendir út ársfjórðungslega eins og
áður.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Hreppsnefnd
Mosfellshrepps
Auglýsir:
Aðalsteinn Sigurðsson hefur tekið að sér
eftirlit með óskilahrossum.
BÓKASÝNING
í tilefni bókaársins sýnum við næstu viku
nokkurt magn sovézkra bóka, aðallega
listaverkabækur, hand- og tæknibækur.
Bækurnar eru til sölu.
Bókabúð Máls og menningar
Laugaveg 18.