Þjóðviljinn - 14.12.1972, Qupperneq 3
Fimmtudagur 14. desember 1972. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3
Átökin í Sjálfstæðisflokknum:
Geir smalaöi, en var aðeins 80
atkvæöum hærri en Gunnar!
— meirihluti Sjálfstæðisflokksins í borgarráði er
valtur. Þar er nú aðeins einn Geirsmaður í dag!
A fundi fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna i Heykjavik i
fyrrakvöld var harður bardagi
milii Gunnarsmanna og Geirs-.
Þessi átök voru framhald hverfa-
funda Sjálfstæðisflokksins þar
sem Gunnarsmenn báru sigur úr
býtum i sex hverfum af tiu. Töldu
Geirsmenn sér vænst að smala nú
rösklega til fundarins og höfðu
árangur nokkurn: Gunnarslið féll
en Gunnar situr einn inni i miðj-
um fjandafansinum.
Morgublaðið skýrir frá þessum
fundi fulltrúaráðsins i gærdag. Er
nú fyrr brugðizt við að segja
fréttir af flokksstarfi Sjálfstæðis-
flokksins en stundum áður þegar
úrslit mála hafa ekki verið
Moggaklikunni að skapi. Nú ger-
istþaðað Geirsmenn vinna stjórn
fulltrúaráðsins og ritstjórar
Morgunblaðsins samfagna. Að
visu er „sigur” Geirsmanna
knappur. Þeir fengu niður i 249
atkvæði en hinir fengu upp i 234
atkvæði.
Klofiö borgarráð
Þeirsem féllu i kosningunum á
fundinum eru allir mjög andstæð-
ir Geir Hallgrimssyni og hans
forustu i flokknum. Má þar nefna
til Albert Guðmundsson, Kristján
J. Gunnarsson og Magnús Ósk-
arsson, en sá siðastnefndi er eins
konar erindreki Gunnars
Thoroddsens á borgarskrifstofun-
um.
Með þvi að þeir Albert og
Kristján falla er kominn upp
alvarlegur klofningur meðal
þriggja borgarráðsmanna Sjálf-
stæðisflokksins. Borgarráð er
æðsta stofnun borgarstjórnar
milli funda hennar. Þar eiga sæti
fimm menn: Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur þrjá þeirra. Þeir eru
fyrrnefndir Albert og Kristján —
og Ólafur B. Thors, sá eini sem
talinn er Geirsmeginn. Fer nú að
verða valtur meirihluti nýja
borgarstjórans i borgarráði og
var þó staða hans nógu veik fyrir
að flokksmenn hans flestir telja.
Samsæriö mikla
Fyrir fundinn i fulltrúaráði
Sjálfstæðisflokksins i Rvik. höfðu
Geir og Jóhann fallizt á það við
Gunnar að þeir stuðluðu að
óbreyttu ástandi innan ráðsins —
þ.e. sömu valdahlutföllum þar.
En þeir félagar notuöu samt tim-
ann fyrir fundinn til þess að
smala liði sinu, en Gunnarsmenn
höfðust litt aö. Er til fundar kem-
ur og umræðum þar er lokið hefst
stjórnarkjör. Verður formaður
sjálfkjörinn — samkvæmt fyrr-
nefndu samkomulagi — en þegar
kemur að kosningu meðstjórn-
enda stendur upp Jóhann Haf-
stein og lýsir þvi yfir að hann
muni ekki gefa kost á sér, en
skorar á fundarmenn að kjósa
Geir Hallgrimsson i sinn stað.
Þar með verður samspil þeirra
Geirs og Jóhanns ljóst og sam-
særið jafnframt.
Kosningin fór svo sem fyrr er
greint, en þrátt fyrir smölunina
er Geir aðeins 80 atkvæðum hærri
en Gunnar Thoroddsen!
Kani í fimmta
hverju húsi
Keflavik, 12/12 — Samkvæmt
lauslegri könnun eru 207 ibúðir
leigðar Bandarikjamönnúm hér i
kaupstaðnum. Búa þannig um
þúsund manns hér i Keflavik á
vegum Kana, en ibúafjöldi er
tæplega sex þúsund manns.
Einn af mörgum Keflvikingum
hefur verið aðleitaað ibúð i haust.
Hefur hann nú gengið frá sex
ibúðum, sem voru leigðar Kön-
um. Bauð þó Keflvikingurinn tólf
þúsund króna mánaðarleigu. Sér
hann ekki framá annað en hann
firekist með fjölskyldu sina á
burtu úr kaupstaðnum. Færzt
hefur i vöxt, að Bandarikjamenn
taki ibúðir á leigu hér i Keflavik
siðustu mánuði.
Ármann vann
Fram 23:20
t gærkvöld vann Ármann Fram i
islandsmótinu i handknattleik
með 23 mörkum gegn 20, sem
mörgum mun þykja ótrúleg
úrslit. Vikingur vann KH með 32
mörkum gegn 23.
Tító
kveöur
nauðsyn
að hreinsa
flokkinn
BELGHAD 12/12 — Miklar
„hreinsanir” hafa farið fram
að undanförnu i Kommúnista-
sambandinu i Júgóslaviu. Titó
forseti landsins hefur nú
útskýrt þessar aðgerðir á
þann hátt, að flokkurinn hafi
þurft að losna við persónur
sem ekki voru lengur færar
um að flytja byltingarsinnaðri
stefnu. Likti Titó aðgerðunum
við jarðskjálfta sem styrkti
stöðu verkalýðsstéttarinnar.
Titó viðhafði þessi ummæli i
ræðu i Ljubljana, höfuðborg
Slóveniu. Forsætisráðherra
slóvenska lýðveldisins dró sig
i hlé fyrir sex vikum eftir að
flokksforystan i lýðveldinu
var ásökuð um „teknókrátisk-
ar” tilhneigingar.
SVEINN
SÆMUNDSSON
Einn í
ólgusjó
Pétur Pétursson er sjó-
maður ( orðsins fyllstu
merkingu. Hann fer sina
fyrstu ferð milli landa á
barnsaldri og kemst þá í
kynni við Bakkus konung.
Ævintýri hans eru með
ólíkindum. Pétur sjómaður
Pétursson siglir um allan
heim, fyrst á íslenzkum
skipum og síðar með öðr-
um þjóðum. Kynni af fjar-
skyldustu þjóðflokkum,
löndum og borgum er
menntandi líf. Þetta er há-
skóli lífsins. En Pétur er
samur við sig, hvort sem
hann berst við æðandi
öldur Norður-Atlantshafs-
ins eða nýtur gestrisni fag-
urra meyja á Bali eða
Montevideo.
Þetta verður ógleymanleg
lífssigling, þar sem oft gef-
ur á skútuna, en eins og
Pétur sjómaður Pétursson
segir sjálfur í bókinni:
„Maður siglir nú hvort sem
er ekki alltaf í logni.“
EINN i ÓLGUSJÓ er frá-
sögn íslenzks sjómanns
og ævintýramanns, sem
segir söguna eins og hún
gengur og dregur ekkert
undan.
Setberg
Ögri RE-72 reif sig allt í einu
lausan í miðri móttökuathöfn
Keyrði á fullri ferð
á annan togara
„Fall er fararheill"
kom mönnum saman um
að kalla það atvik er
hinn nýi skuttogari ögri
RE 72 reif sig allt i einu
lausan i miðri mót-
tökuathöfn og keyrði á
fullri ferð áfram út með
Togarabryggjunni og
hitti fyrir stefni Úranus
og beyglaði það, —
lyftist úranus upp að
framan og seig siðan
aftur niður er ögri
skrapaði af skipsbógn-
um og lagðist á hliðina
um skeið. Vírtog og sver
nælontóg frá skut-
togaranum bundin við
bryggju að aftan
slitnuðu eins og tveinna-
spottarí þessum átökum
og færðist skuttogarinn
frá bryggju.
Fjöldi fólks var kominn i brú
togarans, og mátti lita þarna
pelsklæddar og föngulegar
frúr og þybbna útgerðarfor-
stjóra. Blaðamenn stóðu með
blokk og blýant yfir
skipstjóranum við stjórntækin
og voru að yfirheyra hann um
heimsiglinguna þegar togar-
inn reif sig svona allt i einu
lausan eins og ólmur foli og
sleit landfestar.
Pelsklæddar frúr
missa fótanna
Er togarinn hallaðist á
hliðina misstu sumir fótanna i
brúnni og tóku stefnuna út i
vegg stjórnborðsmegin —
lentu þar i bendu pelsklæddar
frúr og þybbnir útgerðarmenn
og blaðamann með blýant og
blokk. Voru þá sumir farnir að
jesúa sig i þessari sjálfvirkni
áður en togarinn rétti sig við
aftur.
Greinilegt var að skipstjóri
náði ekki sambandi viö vél, og
upplýsti siðar, að fyrsti
vélstjór hafði hlaupið til og
stöðvað aðalvél. Hefur liklega
enginn skipstjór verið undir
svona nánu eftirliti press-
unnar á vettvangi er áhapp
sem þetta skeði, og hélt hann
vel stillingu sinni.
Sérstakan þátt áttu blaða-
ljósmyndarar á þessum vett-
vangi. Hurfu þeir skyndilega
úr brúnni og létu sér ekki
nægja minna en klifra upp á
brúna undir forystu hins hvat-
lega Bjarnleifs, og þaðan
skutu þeir i allar áttir er
togarinn ólmaðist áfram, og
skeyttu hvergi um halla skips-
ins.
Skuttogarinn lagðist aftur
að bryggju i annað sinn og var
bundinn á nýjan leik. Var ekki
laust við óróa á mannsöfnuði á
bryggjunni. Verður haldinn
sjóréttur i þessu máli.
Smiðaöur í
Póllandi
ögri RE 72kom til landsins i
gær og lagðist að Togara-
bryggjunni laust fyrir kl. 15.
og hafði þá verið fimm daga á
leiðinni heim frá Póllandi.
Skipstjórinn Brynjólfur Hall-
dórsson
Svona bcyglaöist stefni
Úranusar.
ögri RE 72 er systurskip
Vigra RE 71 er kom til lands-
ins fyrir rúmum mánuði.
Hefur Vigri farið eina sjóferð
og selt i Þýzkalandi. Er Vigri
nýkominn heim og lá við hina
hliðina á Togarabryggjunni.
Þessir nýju skuttogarar eru
801 tonn að stærð, og reyndist
ögri frábærlega vel á heim-
siglingu — fékk á sig sex til
tólf vindstig og stórsjóa, og
sannaði skipið vel sjóhæfni
sina, sagði Brynjólfur
Halldórsson, skipstjóri. Þeir
höfðu pólskan Fiat á dekkinu
og lagðist billinn saman i ein-
um brotsjónum. Hafði billinn
veriðkeyptur á kr. 120 þúsund
ytra.
Brynjólfur hefur verið einn
og halfan mánuð ytra og kvað
liklegt, að hinn nýi togari færi
út i siðustu viku fyrir jól. Þá
vantar að visu ennþá bobbinga
og hlera. Koma þeir til lands-
ins með skipi á morgun.
Mikill aflamaður
Brynjólfur var áður 1. stýri-
maður á b.v. Sigurði, og kvað
hann nýja skuttogarann betra
sjóskip. Brynjólfur er mikill
aflamaður og fékk 400 tonna
afla á Sigurði i einum siðasta
túrnum og var þá skipstjóri
um borð. Er hann 35 ára
gamall.
Áhöfn telur 23 menn og
verður 1. stýrimaður Þórarinn
Haukur Hallvarðsson , áður á
Mai, 2. stýrimaður Einar
Jónsson, áður á Karlsefni og 1.
vélstjóri Sveinn Sigurðsson.
Á varðskipshraða
Stefni skuttogarans er
sérstaklega styrkt fyrir
siglingar i is. Sér ekkert á
stefni ögra eftir áreksturinn,
utan fáeinar rispur á máln-
ingu.
Þegar ögri RE 72 kom hér
inn Flóann gekk hann 16 milur
á klst. með 75% álagi á vél. Er
þetta vel varðskipshraði.
Á þessum skuttogurum er
hægt að toga allt að 350 faðma
niður með trolli eða föðmum
dýpra en á gömlu togurunum.
Þótti íslenzkum togara-
skipstjórum stundum miður
að sjá til þýzkra skuttogara
veiða fisk i djúpkanti á meira
dýpi en hægt var að toga á
gömlu togurunum og þykir
enn.
Einn útgerðarforstjórinn
kvað hinn nýja skuttogara
kosta 130 miljón kr. Ef sett
yrði á 15% gengisfelling ykist
skuldin um 16. til 17 miljonir
kr. Það er útgerðarfélagið
Ögurvik er gerir þennan
togara út.
g.m.