Þjóðviljinn - 14.12.1972, Qupperneq 7
Fimmtudagur 14. desember 1972 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 7
Ljóðasafn Jóns
úr Yör á norsku
bækur
Sextán
prestar
saman
í bók
Hugurinn flýgur víða —
þættir sextán fyrrverandi
sóknarpresta — heitir bók
sem Bókaútgáfan Grund
hefur gefið út.
Fyrrverandi sóknarprestar
hafa um alllangt skeið haft með
sér félagsskap og hefur hann um
hrið haft Elliheimilið Grund að
fundarstað. Forstjóri þess, Gisli
Sigurbjörnsson, átti hugmyndina
að útgáfu þessarar bókar, og er
hún tengd hálfrar aldar afmæli
elliheimilisins.
Gunnar Árnason segir i for-
spjalli frá tilorðningu bókarinnar.
Segir hann að leitað hafi verið til
fyrrverandi sóknarpresta um
efni, og þeim i sjálfsvald sett,
hvað þeir veldu sér að viðfangs-
efni. Hefðu flestir sem til var leit-
að tekið vel i erindi þetta. Sjálfur
skrifar sr. Gunnar endurminn-
ingaþátt. Sr. Gunnar Benedikts-
son skrifar hugleiðingu um ungt
menntafólk nú á dögum og starf
presta. Sr. Benjamin Kristjáns-
son um suðurgöngu sina i tið Jó-
hannesar páfa 23ja — svo að
nokkur dæmi séu nefnd.
Með hverjum þætti fytgja
myndir af prestunum, konum
þeirra og þeim stað er þeir lengst
af sátu.
Út er komið á norsku
Ijóðasafn Jóns úr Vör, sem
ber heitið Stilt vaker Ijuset.
Ivar Orgland hefur þýtt
ijóðið og skrifar hann ítar-
lega greinargerð um skáld-
ið. Er þetta áttundá Ijóða-
safn íslenzks skálds sem
Ivar Orgland hefur komið á
framfæri við Norðmenn —
hið fyrsta var eftir Davíð
Stefánsson, Ég sigli i haust,
og kom út árið 1955.
Bókarheitið tekur nafn af þessu
erindi:
Stillt vakir ljósið
i stjakans hvitu hönd,
milt og hljótt fer sól
yfir myrkvuð lönd.
Jón ur Vör.
1 formála rekur Ivar Orgland
itarlega ævi- og skáldferil Jóns úr
Vör og vitnar mjög til heimilda:
islenzkra og sænskra gagnrýn-
enda, itarlegs formála Einars
Braga við 100 Ijóð.blaðagreina og
viðtala. Undir lokin segir hann á
þessa leið:
Sannarlega hefur Jón úr Vör
þekkt baráttuna fyrir þvi að til-
einka sér andleg verðmæti. Hann
HUGSVNIR CROISETS
Jack Harrison Pollack
HUGSÝNIR CROISETS
Ævar Kvaran íslenzkaói ■
VIKUWJTGAFAN
Huqsýnir Gerards Croi-
sets er forvitnileg bók
um skyggnigáfu þessa
stórmerka Hollendings.
Croiset telst til hinna
merkustu manna, sem
dularsálfræðingar hafa
rannsakað og greinir
hér frá afrekum hans
við að koma upp um
þjófa og morðingja,
finna börn, fullorðna
menn, dýr og hluti.
Þýðinguna gerði Ævar
R. Kvaran. Verð f vönd-
uðu bandi kr. 700,00
auk söluskatts.
i|
hefur einnig sótt fram til hljóðláts
og áhrifasterks skáldskapar, sem
er fullur heiðarlegrar alvöru.
Enda þótt Jón muni ávalt hafa
hlutverki að gegna sem braut-
ryðjandi frjálslegra ljóðforms á
tslandi, þá er það i enn rikari
mæli það iburðarlausa og sanna i
tjáningunni sem tryggir þeim
skáldskap lif. Allar götur siðan
skósmiðssonurinn frá Patreks-
firði fyrst barði hljóðlega að
dyrum á Parnassinum hefur hann
„komið til dyranna eins og hann
er klæddur”. Hann hefur aldrei
fylgt tizku tizkunnar vegna, en
verið „samkvæmur sjálfum sér”.
Ljóðasafnið skiptist i sex kafla
og er þar valið úr átta ljóða-
bókum Jóns, allt frá „Ég ber að
dyrum” (1937) til „Mjallhvitar-
kistunnar” (1968) — er sá þáttur
safnsins langmestur að vöxtum.
Bókin er 212 bls„ útgefandi er
Fonna Forlag.
En dur minnin g ar
Snorra Sigfúss.
Lokabindi endurminn-
inga Snorra Sigfússonar,
fyrrum skólastjóra og
námsstjóra, sem höfundur
nefnir ,,Ferðin frá
Brekku”, er komið út.
Greinir þar frá mikilvæg-
ustu þáttum ævistarfs
hans: skólastjórn á Akur-
eyri og námsstjórn norðan
landsog austan í aldar-
f jóðrung.
Endurminningar Snorra eru
samtals þrjú bindi og greinir
hvert þeirra frá tiltölulega skýrt
afmörkuðum þætti i lifi hans og
starfi. 1 fyrsta bindi segir frá upp-
vexti hans i Svarfaðardal, náms-
árum innan lands og utan og
fyrstu starfsárunum við Eyja-
fjörð. t öðru bindi segir frá 18 ára
starfsferli á Vestfjörðum við
skólastjórn, þátttöku i atvinnulifi
og margvíslegum störfum varð-
andi félags- og menningarmál.
Og nýja bindið — hið þriðja og sið-
asta — greinir frá aldarfjórð-
ungsstarfi hans norðan lands og
austan við skólastjórn og náms-
stjórn, auk ýmissa annarra
starfsþátta þessi árin. 1 28 ár
samfleytt starfaði Snorri að
sildarmati og fullan helming þess
tima sem yfirmatsmaður. Geyma
endurminningar hans m.a. drjúg-
ar heimildir islenzkrar atvinnu-
sögu, einkum að þvi er Vestfirði
varðar.
Við sögu Snorra kemur margtN
fólk, svo sem að likum lætur.
Starfsævi hans varð löng og giftu-
drjúg, starfsorkan mikil og
áhugamálin mörg. — Andrés
Kristánsson ritstjóri, sem ritar
formála að lokabindi endurminn-
inganna, segir m.a. á þessa leið:
”Þeir, sem þekkja Snorra Sigfús-
son persónulega, vitað að hann er
engum manni likur að fjöri sinu,
áhuga og starfsþreki, enda er
ævistarfið eftir þvi. Hinir, sem
kynnast honum fyrst i þessum
bókum, komast að raun um, að
þar er óvenjulegur maður á
ferð.”
1 bókunum þremur er fjöldi
mynda, þar á meðal af mörgum
samferðarmönnum höfundarins.
— Útgefandi er bókaútgáfan
Iðunn.
Snorri Sigfússon
2.bindiþjóðsagna-
bókar Sig.Nordals
Almenna bókafélagið hefur
sent frá sér annað bindið af Þjóð-
sagnabókinni, eða Þjóðsagnabók
Sigurðar Nordals, einsog hún
oftast er nefnd. Kom fyrsta bindi
hennar út fyrir siðustu jól, en
verkinu lýkur með þriðja bindinu,
sem er væntanlegt á næsta ári.
Þetta nýja bindi af Þjóðsagna-
bókinni skiptist i sex efnisflokka
og bera þeir þessi heiti: Draugar,
Kynjagáfur, Töfrabrögð, Galdra-
menn, Náttúrusögur og Máttar-
völd i efra og neðra.Þá er hér enn <
fram haldið hinni miklu þjóð-
sagnaritgerð Sigurðar Nordals,
sem hófst með fyrsta bindinu, og
nefnist sá hluti hennar, sem nú
birtist, Margt býr i þokunni.
Fjallar hann að meginefni um
trúna á huldar verur’og vikur höf-
undurinn þar á skemmtilegan
hátt að sambúð lands og
þjóðar, málefni, sem nú er mikið
á dagskrá.
Þjóðsagnabókin, i samantekt
Sigurðar Nordals, miðlar lesend-
um sinum miklum auði, hvort
sem þeir meta sögurnar öðru
fremur eftir skemmtanagildi,
listrænni frásögn eða leiðsögn
þeirra inn i hugarheim liðinna
kynslóða. Og siðast en ekki sizt er
hér um að ræða þá einu grein bók-
mennta, sem sennilega er öllum
aldursflokkum jafn-hugtæk og
heillandi.
Þjóðsagnabókin annað bindið
er 346 bls. að stærð. Prentsmiðja
Jóns Helgasonar annaðist setn-
ingu og prentun.en Félagsbók-
bandið batt.
Grallarast j arnan
Grallarastjarnan heitir barna-
bók cftir Inger og Lassc Sandberg
sem bókaútgáfan Þing gefur út og
Guðrún Svava Svavarsdóttir hcf-
ur islenzkað.
Segir þar frá geimgrallaranum
sem fer á milli stjarna og leitar
uppi hið illa og góða. I bókinni
sýnir hann telpunni Barbró
hvernig umhorfs er heima hjá
honum, þar sem allt er að farast
úr mengun.
Höfundarnir eru sænsk hjón
sem hafa gert margár barnabæk-
ur saman um það, hvernig
börnum og fullorðnum vegnar i
samfélagi okkar nú á timum. Þau
fjalla um leiðinleg háhýsi og mis-
heppnaða skóla og hættulegt loft,
en einnig um það hvað gaman er
að gera það sem mann langar
sjálfan og hve náttúran er fögur.
Ódýr náttföt
Herra, poplin kr. 395/-
Drengja, poplin kr. 295/-
Telpnanáttföt frá kr. 200/-
Litliskógur
Snorrabraut 22, simi 32612.
lárn
'blómið
Guómundur
Daníelsson
Einhver sérkennilegasta og
djarfasta skáldsaga Guðmundar
Daníelssonar. Þetta er 30. bókin,
sem hann skrifar og tvímælalaust
ein hin merkasta.
Umdeilt stórvirki úr hendi þessa
afkastamikla rithöfundar.
Bók, sem á erindi til allra lesenda
góðra bókmennta.
bókaskrá
ísafoldar
bókaskrá
ísafoldar
Skrá yfir allar jólabækurnar á
einum stað. Forðizt ys og þys
á síðustu stundu, veljið bækurnar
í ró og næði heima.
Skóla
dagar
Stefán Jónsson
Annað bindið i heildarútgáfu
Isafoldar á bókum Stefáns
Jónssonar. Bókin er beint
framhald af Vinum vorsins,
sögunni af Skúla Bjartmar, sem Jj
nú flytur í nýtt umhverfi í
Reykjavík.
ÍSAFOLD