Þjóðviljinn - 14.12.1972, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. desember 1972
Fimm ár
í
ríki Nixons
Fyrir ekki ýkja löngu sendi
bandariska rannsóknarlögreglan,
FBI, frá sér glæparegistrið fyrir
árið 1971.
Þar kemur fram ma., að 39.
hverja sekúndu er framinn glæp-
ur i Bandarikjunum. 30. hverja
minútu er framið morð. 13.
hverja minútu er konu nauðgað.
82. hverja sekúndu er framið
vopnað bankarán og 86. hverja
sekúndu verður almennur borg-
ari fyrir árás.
Glæpir hafa aukizt,i*m 7% frá
árinu áður, 1970. Morð, rán og
nauðganir hafa aukizt um 11% á
einu ári. Arið 1971 voru myrtir
17.630 manns, þ.e. 1770 fleiri en
árið áður. A fimm ára timabili
hefur morðum fjölgað um 61% og
sama er að segja um nauðganir
(1971 var 42.000 konum nauðgað),
þeim hefur fjölgað um 11% á einu
ári og 64% á fimm árum. Vopnuð-
um ránum hefur fjölgað um 11% á
einu ári og 145% á fimm árum.
A árinu var stolið 941.600 bilum,
en bilstuldur er enn algengasta —
og saklausasta afbrotið i landi
Nixons; þar er stolið bil 33. hverja
sekúndu. Margir segja, að ekki
borgi sig að kaupa bil i Banda-
rikjunum. — Borgar sig að lifa
þar?
Ef áætlunin
stenzt
Óvænt útgjöld hafa oft gert náms-
mönnum leiðan grikk. Margir hafa orðið
að verða sér úti um starf jafnhliða nám-
inu, ef til vill á versta tíma námsársins.
Áætlanir geta brugöizt.
Nú eiga aðstandendur námsmanna
auðveldar með að veita þeim aðstoð, ef
þörf krefur. Með hinu nýja sparilánakerfi
Landsbankans er hægt að koma sér upp
varasjóði með reglubundnum sparnaði,
og eftir umsaminn tíma er hægt að taka
út innstæðuna, ásamt vöxtum, og fá lán
til viðbótar.
Varasjóðinn má geyma, því lántöku-
rétturinn er ótímabundinn. Þér getið
gripið til innstæðunnar, og fengið lán á
einfaldan og fljótlegan hátt, þegar þér
þurfið á að halda.
Reglubundinn sparnaður og reglu-
semi í viðskiptum eru einu skilyrði
Landsbankans.
Kynniö yður sparilánakerfi Lands-
bankans. Biðjið bankann um bæklinginn
um Sparilán.
Brnki allva landsmanna
innlend
Nýr 12
tonna bátur
Keflavik, 12/12 — A dögunum
kom hingað 12 tonna bátur smið-
aður i Hafnarfirði. Heitir hann
Fram KE og er ætlunin að gera
hann út á linu. Eigandi er Bene-
dikt Guðmundsson.
Færist i vöxt að
leigja Könum
Ytri Njarðvik’ 12/12 — Hér eru
60-70 ibúðir leigðar Könum á Vell-
inum. Sækja þeir eftir ibúðum
utan Vallarins til þess að losna
undan aga þar og ýmsum tak-
mörkunum. Heldur hefur færzt i
vöxt, að peningamenn hafi hug á
þvi að ávaxta sitt fé i húsabygg-
ingum til þess að leigja Könum er
greiða oft riflega fyrirfram.
Ekkert lát er á þessari fjárfest-
ingu.
Sjómenn vantar
á vertíðarbáta
Keflavik, 12/12 — Þó að litill
landburður sé af fiski hér er
ekkert atvinnuleysi i plássinu.
Miklar framkvæmdir eru hér á
vegum bæjarfélagsins við skólp-
lögn og malbikun gatna. Er
heldur skortur á vinnuafli hér.
Þegar gætir uggs hér við að
manna bátana á komandi vertið.
Sjómenn sækja heldur i pláss á
loðnubátum, en þar eí búizt við
uppgripum i vetur.
4 róðrar
i desember
Keflavik 12/12 — Gæftaleysi
hefur verið hjá Keflavikurbátum
i desember. Hafa þeir farið i fjóra
róðra og fengið þetta 3 til 4 tonn i
róðri.
t gær fóru bátar á sjó og fékk
hæsti linubáturinn 4,3 tonn.
Um 30 bátar eru á linu núna i
haust og um 7 bátar á netum.
Hafa netabátar gert það betra á
haustvertiðinni. Þannig hefur
Skagaröst fengið 400 tonna afla i
net siðan i haust.
SÍS fjárfesti fyrir
tæplega ÍOO
miljónir
F járfestingar Sambandsins
fyrstu niu mánuði þessa árs nema
94.7 milj. kr. Stærstu liðirnir eru
f járfestingar i Ullarverk-
smiðjunni Gefjun 38,5 milj., i
Fataverksmiðjunni Heklu 15,2
milj. og i Kjötiðnaðarstöðinni 22,2
milj. 1 nýju fóðurblöndunar-
stöðinni við Sundahöfn hefur á
þessu timabili verið fjárfest fyrir
3.7 milj. kr.
Nýtt Disarfell
Svo sem almennt er kunnugt
seldi Sambandið Disarfell i s.l.
ágústmánuði. Það skip hafði það
sérstaka verkefni að sigla
aðallega til hinna smærri hafna,
og Sambandið hefur talið
þýðingarmikið, að i flota sam-
vinnumanna væri skip af áþekkri
stærð.
Undanfarið hefur verið leitað
að skipi hentugu sem arftaka
Disarfells, og nú hafa tekizt
samningar um kaup á dönsku
skipi, sem heitir Lene Nielsen, en
er að visu nokkuð stærra en
Disarfell var. Skip þetta var
byggt i Danmörku árið 1967 og er
þvi fimm ára gamalt. Það er
byggt samkvæmt Lloyds flokk-
unarreglum og styrkt fyrir
siglingar i is. Skiðið er með milli-
þilfari, og getur það siglt bæði
sem opið milliþilfarsskip (1220
tonn) og sem lokað (2200 tonn).
Það er með 1400 ha. Mak-aðalvél
og lestarrými er um 100 þús.
teningsfet.
Skipið verður afhent i Dan-
mörku, væntanlega s. hl. febrúar
n.k.
Blaðamaður frá
Hamborg
heldur ræðu
Hamborgarbúar hafa gefið-
Reykvikingum jólatré fyrir
undanfarin jól. Hefur það verið
reist við Hafnarbúðir við Reykja-
vikurhöfn.
Að þessu sinni senda
Hamborgarmenn jólatré með
Dettifossi og er hann væntanlegur
á fimmtudag til Reykjavikur.
Við afhendingu senda
Hamborgarbúar menningar-
ritstjóra frá þýzka blaðinu „Die
Zeit” og kemur hann til meða að
halda ræðu.
Skólast j ór askipti
á Hallormsstað
Hallormstað, 12/12 — Um
hundrað nemendur eru i Barna-
og unglingaskólanum hér i vetur.
Skólastjóraskipti urðu hér i
haust. Hætti Guðjón Jónsson, sem
hefur verið hér skólastjóri frá
upphafi. Var ráðinn hingað i stað-
inn Birgir Ás Guðmundsson og
gegnir hann skólastjórastörfum.
Birgir var áður kennari i Kópa-
vogi. Guðjón tók við skólastjórn i
Varmahlið i Skagafirði og er
skólastjóri Barna- og unglinga-
skólans þar i vetur.
A Hallormstað er starfræktur
húsmæðraskóli i vetur.
Útibú frá útibúi
Neskaupstað, 12/12 — 1 ofan-
verðum nóvembermánuði sam-
þykkti bankaráð Landsbankans
að fela bankastjórninni að hefja
undirbúning að stofnun útibús i
Neskaupstað, sem yrði rekið
undir umsjá Eskifjarðarútibús-
ins.
Ráðgert er að útibúið taki til
starfa á næsta ári. Það mun hafa
á hendi hlaupareikningsviðskipti,
sölu á ferðagjaldeyri. Þá fær úti-
bússtjórinn leyfi til þess að kaupa
vixla upp að vissu marki og eftir
ákveðnum reglum. önnur vixla-
kaup verða háð samþykki útibús-
stjórans á Eskifirði. Þá verða af-
urðalán áfram hjá Eskifjarðar-
útibúinu.
Þannig verður útibúið eiginlega
útibú frá útibúinu á Eskifirði.
Dýralæknir
í Mýrasýslu
Forseti Islands hefur þann 11.
þ.m. að tillögu landbúnaðarráð-
herra skipað Sverri Markússon,
héraðsdýralækni á Blönduósi, til
að vera héraðsdýralæknir i
Mýrasýsluumdæmi, frá 1. marz
1973 að telja.