Þjóðviljinn - 14.12.1972, Page 13
Fimmtudagur 14. desember 1972 ^JÖÐVILJINN — SÍÐA 13.
Blómlegt starf
hjá Breiðabliki
F'yrir nokkru var haldinn ahal-
fundur Ungmenna féla gsins
Breihabliks Kópavogi (U.B.K.).
i skýrslu aðalstjórnar og deilda
félagsins'kom fram að starfsemi
þess hefur verið inikil á árinu og
árangur ágætur i fjölmörgum
grcinum. Knattspyrnulið félags-
ins var nú annað árið i fyrstu
deild, og var i 5.—(í sæti.
Yngri flokkar félagsins stóðu
sig vel, einkum 4. fl. sem komst i
úrslit i Islandsmótinu, og 5. fl.
sem komst i undanúrslit.
I Ford-knattþrautakeppninni
komust 15 drengir úr Breiðabliki i
úrslitakeppnina, eða fleiri en úr
nokkru öðru félagi, og fjórir hlutu
verðlaun.
Frjálsiþróttafólkið stóð sig
ágætlega á árinu og var i öðru
sæti i Bikarkeppni F.R.t.#og fé-
lagið hlaut 13 Islandsmeistara og
fjölda af silfun-og bronzverðlaun-
um.
Arndis Björnsdóttir setti nýtt
tslandsmet i spjótkasti og
stúlkurnar tvibættu tslandsmetið
i 4X400 m. hlaupi.
t Drengjahlaupi Armanns
vannst sigur bæði i 3 og 5 manna
sveitakeppni. t handbolta stóðu
stúlkurnar sig einna bezt. 1
tslandsmótinu utanhúss munaði
einu marki að þær kæmust i
úrslitaleikinn um 1. sætið. Yngri
flokkarnir eru mjög efnilegir, og i
haust sigraði 4. fl. i Reykjanes-
mótinu.
Sundfólk félagsins tók miklum
framförum á árinu og
Steingrimur Daviðsson setti nýtt
tslandsmet i 50, 100 og 200 m.
bringusundi sveona.
Fjöldi unglinga stundar auk
þess körfubolta og glimu innan
félagsins, og er þar margt efni-
legra iþróttamanna.
A aðalfundinum var ákveðið að
stofna borðtennis- og badminton-
deild og skiðadeild innan fé-
lagsins.
Úr sljórn félagsins gengu nú:
Daði Jónsson og Grétar
Kristjánsson, og voru þeim
þökkuð vel unnin störf. Gestur
Guðmundsson, sem verið hefur
formaður Breiðabliks siðan 1967
baðst nú undan endurkjöri. Var
honum þakkað fórnfúst starf um
árabil, og hlaut hann félags-
málabikar Breiðabliks fyrir sin
störf.
1 stjórn voru kosnir: Þórir
Hallgrimsson, formaður, Gestur
Guðmundsson, varaformaður,
Guðmundur Óskarsson, féhirðir,
Frimann Helgason, ritari og
Hulda Pétursdóttir spjaldskrár-
ritari. I varastjórn: Hrafnhildur
Helgadóttir, Einar Óskarsson og
Pétur Eysteinsson.
I kvöld gangast forráðamenn
Ungmennafélagsins Breiðabliks
fyrir stofnun skiðadeildar innan
félagsins. Er þetta gert eftir
könnun sem fram fór i skólum
Kópavogs um hvaða iþróttagrein
væri vinsælust. Kom þar i ljós að
skiðaiþróttin naut mestrar hylli.
Stofnfundurinn verður haldinn i
Félagsheimili Kópavogs og hefst
kl. 20.30. Eru allir skiðaáhuga-
menn velkomnir á fundinn.
Þessi mynd er úr einum af leikjum Breiðubliks liðsins i sumar og má sjá þá Þór Hreiðarsson og
Einar Þórhallsson (8) i baráttu við tvo Skagamenn.
Urslit úr síðustu
leikjum R-mótsins
Siðustu leikir Reykja-
vikurmótsins i handknattleik
voru leiknir ufn siðustu helgi og
urðu úrslit þcssi.
3. fl. kvenna
Valur — Fram 4:1 (Valur
meistari)
4. fl. karla
Ármann — Þróttur 3:2 (Ármann
meistari)
2. fl. kvenna
Valur — Fram 10:5 (Valur
meistari)
tR — KR 2:12
Fylkir — Ármann 2:8
Vikingur — Þróttur 4:4
3. fl. karla
1R — KR 7:9
Fram — Fylkir 7:8
Þróttur — Ármann 7:4
Valur — Vikingur 9:9 (Fram —
Armann i úrslitum)
2. fl. karla
Fram — Valur 8:4
KR — Þróttur 7:3
Fylkir — tR 2:6
Vikingur — Ármann 8:2
(Vikingur meistari)
Ajax
byrjað
að dala?
Hið sterka hollenzka lið Ajax,
sem unnið hefur Evrópu-
meistaratitilinn 2 siðustu ár og
einnig titilinn sem bezta félagslið
lieims, virðist nú eitthvað farið að
dala. Það tapaði nýlcga 1:3 i
deildarkeppninni hollcnzku fyrir
liðinu Sparta og einnig var það
slegið útúr bikarkcppninni af lið-
inu Breda sem vann á vita-
spyrnukeppni eftir að jafnt var
2:2 cftir framlengingu.
Það er þvi skiljanlegt að Ajax,
sem er komið i undanúrslit i EB
3ja árið i röð.sæki nú fast að fá
pólska snillinginn Lubanski i liðið
Umsjón: Siguraór Sigurdórsson
Flokkaglíma
Reykjavíkur
fer fram um
næstu helgi
Fyrsta glimumót vetrarins
verður háð um næstu helgi og
er það flokkaglima Rcykja-
vikur, sem þá verður háð. Fer
keppnin fram á laugardaginn i
iþróttasal Mclaskólans og
hefst kl. 16.
Aðeins þrjú félög senda
þátttakendur i keppnina en
það eru KR, sem sendir 8
keppendur, UMF Vikverji,
sem einnig sendir 8, og
Ármann sem aðcins sendir
einn keppanda og þykir mönn-
um illa kornið fyrir eina félag-
inu sem ber glimuna i nafni
sinu , Glimufélagið Ármann.
Glimukóngur islands, Jón
Unndórsson, verður ekki
meðal keppenda að þessu
sinni, en hinsvegar mun Sig-
tryggur Sigurðsson fyrrum
glimukóngur nú aftur verða
með, en hann liefur vcrið frá
keppni um skeið vegna vcik-
inda. Þá mun hinð skcmmti-
legi glimumaður Hjálmur Sig-
urðsson ekki vcrða með, þar
eða hann hefur litið æft i
haust.
Sigtryggur Sigurðsson
KR
hefur
leikið
10
leiki
á
15
dögum
KR-liðið i körfuknattleik
hefur ekki átt sjö dagana sæla
að undanförnu. Ilefur liðið
leikið 10 leiki á 15 dögum,
unnið 6 en tapað 4. Þessir
leikir eru i islandsmótinu,
Rey k ja v ikur mótinu, eða
„leynimótinu” eins og það er
almennt kallað, Evrópu-
kcppninni og móti þvi i irlandi
sem KR tók þátt i áður en
Evrópukeppnin hófst.
Maður man vart cftir að hafa
heyrt um annað eins álag á
nokkru liði.
Manchester City hefur
áhuga á að kaupa George Best
frá nágrannaliði sinu
Manchester Utd. fyrir allt að
300 þúsund sterlingspund, eða
sein svarar til rúmlega 52ja
milj. kr. islenzkra.
Malcom AUison fram-
kvæmdastjóri Man. City sagöi
að hann ætlaði að skrifa
Man.Utd. bréf þar sem hann
ætlar aðfaráfram á umræður
um málið.
Enn hefur ekkert heyrzt til
Bests, en sumir tclja að hann
dveljist einhversstaöar á
Spáni.
M. City
vill kaupa
Best