Þjóðviljinn - 14.12.1972, Side 16
16. SÍÐA — ÞJÓÐAMLJINN Fimmtudagur 14. desember 1972
SKILIN EFTIR . . .
Teiknimyndasaga frá Kína
69. Þá ákærir Shih-mei aftur á móti Hsiang-lien fyrir að þykjast vera
eiginkona háttsetts manns og fyrir að reyna að kúga fé út úr meðlimi
keisarafjölskyldunnar. Hann hefur ekki hemil á skapi sinu og hefði
barið Hsiang-lien ef ekki hefði verið komið i veg fyrir það. Og Pao fursti
lætur þung ávitunarorð falla i hans garð.
70. Þegar Shih-mei heldur áfram að afneita réttmæti allra ákæranna
á hendur honum af sömu ófyrirleitninni, biður Pao um að komið sé með
risastórt sliðraðsverð. Þegar Shih-mei sér það verður hann óttasleginn,
og biður leyfis að fara undir þvi yfirskini að hann þurfi að fara i áheyrn
hjá keisaranum.
F R A SJÚKRASAMLAGI
REYKJAVÍKUR
Halldór Hansen læknir
lætur af störfum frá næstkomandi ára-
mótum. Samlagsmenn sem hafa hann að
heimilislækni, vinsamlegast snúi sér til
afgreiðslu samlagsins, með samlags-
skirteini, og velji sér lækni i hans stað.
SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR.
Sauma-
námskeið
Eins og fram hefur komið i fréttum út-
varps og blaða, verður haldið sauma-
námskeið við IÐNSKÓLANN í
REYKJAVÍK dagana 15. jan,—9. febr.
Kennd verða undirstöðuatriði verk-
smiðjusaums og meðferð hraðsaumavéla.
Umsóknir þurfa að hafa borizt fyrir 20.
des. Þátttökugjald er kr. 1000.00.
Nánari upplýsingar veittar i skrifstofu
skólans.
SKÓLASTJÓRI.
Skólamót í Kópavogi
i vetur eins og undan-
farin ár, gekkst
knattspyrnudeild
Breiöabliks fyrir skólamóti
i knattspyrnu milli barna-
skólanna í Kópavogi. Hver
skóli sendi 2 lið og var þetta
því 6 liða keppni. A-lið
Kársnesskóla bar sigur úr
býtum í ár,en 2 undanfarin
ár sigraði Kópavogsskóli.
Keppt er um farandbikar.
Sl. laugardag boðaði Breiðablik
alla þátttakendur skólamótsins,
svo og alla yngri flokka
Breiðabliks, á fund er haldinn var
i bió-sal Félagsheimilis Kópa-
vogs. Fór þar fram verðlaunaaf-
hending i Skólamótinu,og kvenna-
lið Breiðabliks, er lék í sumar i 1.
tslandsmótinu i kvennaknatt-
spyrnu, var heiðrað. Einnig var
tekin upp sú nybreytni hjá
Breiðabliki að veita einum leik-
manni hvers yngri flokks titilinn
„knattspyrnumaður ársins” og
fengu þeir Vignir Baldursson
(3.f 1.), Valdimar Valdimarsson
(4.fl.) og Sigurður Halldórsson
(5.fl.) hver sinn farandbikar, auk
verðlaunapenings.
Þá voru sýndar nokkrar teikni-
myndir og forystumenn félagsins
fluttu stuttar ræður.
AHir þátttakendur skólamóts
barnaskólanna i Kópavogi fengu
myndir af sinu liði og er myndin
hér að ofan tekin við afhendingu
þeirra.
Aukið starf Samb.
iðnskóla á Islandi
Laugardaginn 2. des. 1972 var
haldinn aðalfundur Sambands
iðnskóla á tslandi (SIl). Sam-
bandið var stofnað 1948 og
höfuðverkefni þessara samtaka
er að samræma námsefni i iðn-
skólunum og prófkröfur þeirra,
koma fram fyrir skólana út á við,
reýna að bæta úr námsbókaþörf-
inni við hóflegu verði og bæta um
sérmenntun kennaraliðs.
t sambandi iðnskóla eru flestir
starfandi iðnskólar á landinu.
Þegar á öðru ári eftir að Slt var
stofnað, var hafizt handa um út-
vegun kennslugagna og jafnframt
stofnað til útgáfu kennslubóka
þýddra og frumsamdra.
Þróunin hefur siðan orðið sú að
Samband iðnskóla á Islandi, sem
hefur aðsetur sitt i Iðnskólanum i
Reykjavik, annast rekstur Iðn-1
skólaútgáfunnar og Iðnskóla-
búðarinnar, þar sem nemendur
og kennarar allra iðnskólanna i
landinu geta fengið þau kennslu-
gögn og tæki sem notuð eru við
iðnnámið. Þar sem þörf sérskól-
anna fyrir tæki og bækur fer stöð-
ugt vaxandi og þessir aðilar hafa
ekki i önnur hús að venda um
fjárhagslegan stuðning en hið
opinbera, þá hafa þau bæjar- og
sveitarféíög sem að rekstri iðn-
skóla standa, svo og Reykja-
víkurborg, nú nýverið veitt góðar
undirtektir við fjárhagslega
fyrirgreiðslu Iðnskólaútgáfunni
til handa.
Stjórn Slt þakkar þessum aö-
ilum fyrir skjóta og góða fyrir-
greiðslu, og væntir þess að sú
endurskipulagning sem hafin er
inna Sambandsins megi verða
öllum þeim er að iðnfræðslu
starfa vakning til frekari dáða.
Fyrirhugaðar eru á vegum útgáf-
unnar tvær nýjar kennslubækur,
sem eiga að bæta mikið úr brýnni
þörf.
Stjórn Sambands iðnskóla á ts-
landi skipa eftirtaldir menn: Þór
Sandholt skólastjóri formaður,
Sigurgeir Guðmundsson skóla-
stjóri og Ingólfur Halldórsson
skólastjóri. Til vara Sverrir
Sverrisson skólastjóri og Ás-
mundur Jóhannsson kennari.
Framkvæmdastjóri Sambands
iðnskóla á tslandi er Magnús
Þorleifsson.
Japönsku NYLON hjólbarðarnir.
Allar vörubílastærðir.
825x20, — 900x20, — 1000x20 og 1100x20
seldar á Tollvörulagersverði gegn staðgreiðslu
Verkstæðið opið alla daga
fró kl. 7.30 til kl. 22.00.
GUMMIVINNUSTOFAN
SKIPHOLTI 35, REYKJAVÍK, SÍMI 31055