Þjóðviljinn - 14.12.1972, Síða 17
Fimmtudagur 14. desember 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA17
54]
Alistair Mair:
Það
var sumar í
gær
Júlia. — Þú skalt ganga i skrokk á
honum, ég á henni.
— Hann þarf ekki að ganga i
skrokk á mér, sagði Peter, —
Eins og mér liður nú i svipinn, þá
virðist mér hugmyndin ágæt.
Elisabet leit á hann undrandi.
— Attu við að þú værir til i að
fara?
— Já, svo sannarlega. Þvi ekki
það? Ég á rétt á vikuleyfi að
vetrarlagi. Af hverju skyldi ég
ekki fara?
— Og þú myndir skilja Bob
einan eftir?
— Já, það myndi ég gera. Fyrr
eða siðar verð ég að láta hann
einan um hituna. Til þess er leik-
urinn gerður. Hann lærir aldrei
nema hann fái að finna til
ábyrgðar.
Hún lét þetta gott heita. Þetta
gæti verið værðarástand eftir
góðan mat og vin. En hún vonaði
þó að þetta væri upphaf að
breyttu hugarfari.
— Hvernig fellur hann inn i
kramið? spurði Bill. — Ég er að-
komumaður og heyri ekki bæjar-
slúðrið.
— Agætlega, sagði Peter. —
Hann er dálítið svifaseinn, vegna
þess að hann er varla farinn að
rata um umhverfið. Og þegar
hann er ekki á vakt, er hann
næstum eins og fiskur á þurru
landi —
— Hann vantar eiginkonu,
sagöi Jim.
— En hann er i þann veginn að
fá hana, sagði Elisabet. — Og ég
verð að segja að hún virðist ósköp
indæl —
— Vá, sagði Júlia. — Ertu búin
að hitta hana?
Elisabet kinkaði kolli.
— A laugardaginn var, sagði
hún. — Þau voru i húsaleit um
daginn og svo —
— Já, satt segirðu! Júlia bar
höndina upp að munninum. — Ég
frétti af þvi. Hús Mollýar —
— Já, sögðu þau. Mollý sagði
mér það einmitt. Og hún var
næstum háskælandi veslingurinn,
og ég lái henni það svo sem ekki.
En hún var sannfærð um að það
væri ásigkomulagið á húsinu. Og
auðvitað fer það versnandi með
hverri viku sem liður. —
— En heyrðu mig, sagði Jim. —
Ég held að hin ungu hónin.. hvað
hétu þau nú aftur? Frá Glasgow.
Carstairs?
— Já, alveg rétt, Carstairs. Ég
hélt að þau væru að hugsa um
það.
— Tja, þau skoðuðu það, sagði
Júlia. — En það eru margar vikur
siðan. Eftir það eru þau búin að
kaupa hús McLeans læknis.
Peter fann að hann stirðnaði.
— Jæja? sagði Elisabet. — Ég
vissi ekki að þau væru búin að
ganga frá kaupunum i alvöru.
— Vissirðu það ekki? Ég hélt
að allir vissu það. Það hafa verið
málarar þar í heila viku.
— Hvenær flytja þau inn?
spurði Peter kæruleysislega. —
Hefurðu heyrt nokkuð um það?
— Um jólin, skilst mér, sagði
Júlia. — Að minnsta kosti eiga
málararnir að vera búnir þá. Svo
segir mjólkurpósturinn mér að
minnsta kosti. Og ég hugsaði með
mér... ef við gefum þeim svo sem
eina til tvær vikur til að koma sér
fyrir, og köllum svo á þau i drykk
með ykkur, Bill, ef hann kemst,
og einhverju fleira hálfungu fólki
sem við náum i, þá geta þau
kynnzt sæg af fólki á einu bretti
og við getum séð hvernig þau eru
i alvöru. Það veit nefnilega
enginn. Enginn veit neitt um þau
nema að þau eru ung og einhver
stæll á þeim.
Elisabet brosti.
— Peter hefur hitt þau, sagði
hún.
— Peter þó! Er þetta satt?
Peter ók sér vandræðalega til i
sætinu.
— Það hef ég reyndar.
Júlia teygði sig nær honum.
— Vertu nú ekki lummulegur,
hrópaði hún. — Segðu okkur allt
af létta.
— Það er ekkert að segja, sagði
Peter. — Ég fór i vitjun til hennar
tvisvar sinnum, meðan þau
bjuggu á hótelinu. Það er allt og
sumt.
— Það getur ekki verið allt og
sumt. Þú hlýtur að hafa orðið ein-
hvers visari.
Peter yppti öxlum.
— Eiginlega ekki. Maðurinn er
arkitekt. Þau eiga engin börn. Og
þar með er allt upp talið.
— Uss, nú ertu naglalegur.
Jim Pearson hló.
— Þagnarskylda sagði hann.
— Hann má ekki segja meira.
— Mér finnst hann nú nagla-
legur samt, sagði Júlia. — Og
hvað sem þvi liður, hver var þá
hin stúlkan, sú sem var með
þeim, geysilega vel klædd og
flott.
— Ég sá hana, sagði Jim. —
. Hún þeyttistum i rauðum Porche
— Það var systir, sagði Peter.
— Systir eiginkonunnar.
— Og ætlar hún að flytjast
hingað lika? spurði Júlia. — Ef
svo er þá getur engin eiginkona i
Pitford sofið rólega eftirleiðis.
Hefurðu séð hana? spurði
Elisabet.
— Tja, rétt i svip. En nóg til
þess að vita að hún er ekkert blá-
vatn. Ég á við, að konur eins og ég
og þú lita rétt á hana og gefa allt
upp á bátinn. Og þess vegna vil ég
fá að vita þetta, meðan enn er
eitthvaðeftir af hjónabandinu hjá
mér. Hvar fellur hún inn i mynd-
ina?
— Hún gerir það ekki, sagði
Peter. — Hún á heima i London.
— Og hefurðu lika hitt hana?
— Sem snöggvast sagði Peter.
— Og það gæti svo sem nægt,
sagði Júlia. Hún sneri sér að
Elisabetu. — Hefurðu engar
áhyggjur af þessu? Ég á við, að
hann er úti allan daginn, gengur á
milli svefnherbergja og hittir
allar þessar kynbombur?
— Ekki hingað til, sagði Elisa-
bet. — Fram að þessu hefur ekki
verið sérlega mikil hætta á
ferðum.
— En það gæti breytzt, sagði
Júlia aðvarandi. — Og þegar Car-
stairs hjónin koma, gæti verið von
á breytingu.
Elisabet brosti.
— Ég er ekki að leita að vand-
ræðum, sagði hún. —- Ég tekst á
við þau ef til kemur.
Bill Lambton brosti til Peters
Ashe.
— Ég held hún þurfi engar
áhyggjur að hafa. Hann ætti að
vera farinn að vita hvað að
honum snýr.
— Það held ég lika, sagði Peter
og lauk við konjakið sitt.
En næstu dagana á eftir fannst
honum, sem hann væri að biða
þess aö eitthvað gerðist. Barrie
vandist starfi sinu óðum og smám
saman fór allt að ganga eins og
smurt. í tiu daga enn hélt Peter
áfram að jafna sig og losna við
áralanga spennu og þreytu. Hann
var orðinn likamlega hressari en
hann hafði verið arum saman. Og
einn morguninn, þegar þeir hitt-
ust i kaffihléi til að ræða starfið,
sagði Bob Barrie:
— Já, meðal annarra orða, það
kom langlinusamtal til þin i gær-
kvöldi. Meðan á heimsóknartim-
anum stóð. Það var einhver frá
London.
— Frá London.
— Svo sagði hún. Hún vildi ekki
skilja eftir boð og sagði ekki til
nafns. En ég sagði henni að þú
yrðir við i kvöld og hún sagðist
ætla að hringja þá.
Þakka þér fyrir, sagði Peter. —■
Ég held ég viti hvað er um að
ræða.
Hann hafði vitað það undir eins.
Hið eina sem kom á óvart var að
simtalið skyldi vera fra London.
Ef Anne var farin heim til sin, var
GLENS
Fimmtudagur 14. desember
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnirkl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10,00. Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50-
Morgunstund barnanna kl.
8,45: Svanhildur Kaaber
byrjar lestur á öðru ævin-
týri eftir Robert Fisker, lí
..Tritill fer i kaupstaðar- lí
ferð”.Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög F
milli liða. Þáttur um heil- 1!
brigöismál kl. 10.25:
Geðheilsa IV. Jóhannes
Bergsveinsson læknir talar 1'
um neyslu áfengis og
annarra ávana- og fikni-
efna. Morgunpoppkl. 10.45:
Allman Brothers leika og 2
syngja. Fréttir kl. 11.00.
Hljómplötusafnið (endurt.
þáttur G. G.)
12.00 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar 2
13.00 A frivaktinni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna
14.15 Búnaðarþáttur. Gisli
Kristjánsson ritstjóri talar
við Svein Jónsson bónda á
Egilsstöðum um holdanaut
og fiskirækt (endurt.)
14.30 Siðdegissagan: „Gömul
kynni” eftir Ingunni Jóns-
dóttur. Jónas R. Jónsson á
Melum les (16)
15.00 Miðdegistónleikar:
Gömul tónlist.Jean—Pierre
Rampal og Viktoria
Svihliková leika Kammer-
sónötu fyrir flautu og
sembal eftir F’rantisek
Xaver Richter. Roberto
Michelucci og I Musici leika
Konsert i e-moll fyrir fiðlu
og strengjasveit op. II nr. 2
eftir Vivaldi. Annelies 5
Huckl sópransöngkona og
hljóðfæraleikarar flytja
kantötu eftir Hándel. Nýja
f ilharmóniusveitin i í
Lundúnum leikur sinfóniu i
B-dúr op. 9 nr. II eftir
Johann Christian Bach:
Leppard stj.
16.00 Fréttir. 16.15. Veður-
fregnir. Tilkynningar.
16.25 Popphornið.Dóra Ingva-
dóttir kynnir. '
17.10 Barnatimi: Pétur
Pétursson stjórnar.a. Jól á
næsta leiti.Sigriður Hannes-
dóttir og telpur úr Réttar-
holtsskóla flytja frásagnir
og sönglög. b. Útvarpssaga
barnanna: „Sagan hans
Hjalta litla” eftir Stefán
Jónsson. Gisli Halldórsson
leikari les (23)
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Daglegt mál. Páll
Bjarnason menntaskóla-
kennari flytur þáttinn.
19.30 G lugginn. Umsjónar-
menn: Guðrún Helgadóttir,
Gylfi Gislason og Sigrún
Björnsdóttir
20.10 Gestir i útvarpssal:
Meðlimir úr skozku
barokksveitinni leika verk
eftir Hándel, Quants og
Rawsthorne.
20.45 Leikrit: „Krókódillinn”,
óvenjulega saga eftir
Fjodor Dostojevskij
Þýðandi og leikstjóri:
Stefán Baldursson.
Persónur og leikendur:
Nikita Semjonov..Robert
Arnfinnsson. Ivan
Matvejevitj..Steindór Hjör-
leifsson. Jelena Ivanovna
kona hans..Herdis Þor-
valdsdóttir. Ninotsjika
dóttir þeirra. .Þórunn
Sigurðardóttir. Popovitj
Malisjkin forstjór. .Valur
Gislason. Lögreglufulltrú-
inn.. Karl Guðmundsson.
Herra Schmidt, þýzkur
krókódilseigandi..Erlingur
Gislason. Frú Schmidt kona
hans..Guðrún Stephensen.
Hershöfðinginn..Baldvin
Halldórsson. Gömul
kona..Nina Sveinsdóttir.
21.50 Að laufferjum Gisli
Halldórsson leikari les úr
nýrri ljóðabók Ólafs
Jóhanns Sigurðssonar.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Reykjavikurpistill Páls
Heiðars Jónssonar.
22.45 Manstu eftir þessu?
Tónlistarþáttur i umsjá
Guðmundar Jónssonar
pianóleikara.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok
PIERPONT-ÚRIN
ÚR OG KLUKKUR
Laugavegi 3. Simi 13540.
Valdimar Ingimarsson úrsmiður.
Óskar Kjartansson gullsmiður.
handa þeim sem
gera kröfur um
endingu, nákvæmni
ogfallegt
útlit.
Kven-og
karl-
manns
úr af
mörgum
gerðum
og verð-
um.
Áskriftasíminn 17-500
DJOOVHJm