Þjóðviljinn - 14.12.1972, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 14. desember 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19.
AUG-
LÝSING
um skelfiskveiðar í Breiðafirði
Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið
að heimila takmarkaðar skelfiskveiðar i
Breiðafirði eftir n.k. áramót. Fyrirkomu-
lag veiðanna verður sem hér segir:
1. Veiðar skulu hefjast 2. janúar. Há
mark þess afla, sem leyft verður að
veiða á fyrri hluta ársins, er 1,500 tonn,
og er reiknað með þvi að það taki 5—6
vikur að ná þessu marki. Að þeim tima
liðnum má búast við stöðvun veiðanna,
jafnvel þótt þessu aflamagni hafi ekki
verið náð. Jafnframt áskilur ráðuneytið
sér rétt til þess að lækka þennan há-
marksafla, ef ástæða þykir til.
2. Veiðileyfi verða veitt 15 bátum i senn og
verða leyfi aðeins veitt bátum, sem
skráðir eru við Breiðafjörð, enda hafi
eigendur þeirra verið búsettir þar i eitt
ár. Sæki fleiri en 15 um leyfi, sem upp-
fylla ofangreind skilyrði, verður veiði-
timi allra bátanna styttur, miðað við
það sem segir i lið 1. hér að ofan, þannig
að allir eigi sem jafnasta möguleika á
þvi að ná sinum hlutfallslegu skerfi af
heildaraflamagninu — 1,500 tonnum.
3. Leyfin verða bundin þeim skilyrðum, að
öllum afla verði landað á Breiða -
fjarðarhöfnum og aflinn unninn á þvi
svæði.
4. Leyfin verða bundin við ákveðin svæði á
Breiðafirði, sem nánar verða tilgreind i
veiðileyfum.
Þegar veiðarnar hafa verið stöðvaðar
sbr. lið nr. 1, verða þær ekki leyfðar að
nýju fyrr en á næsta hausti.
Skipstjórar þeir, sem hafa i hyggju að
stunda ofangreindar veiðar nú eftir n.k.
áramót á þessu fyrra timabili, skulu
sækja um veiðileyfi til sjávarútvegsráðu-
neytisins ekki siðar en 21. desember n.k.,
ella má búast við þvi að umsóknir þeirra
verði ekki teknar til greina.
Sjávarútvegsráðuneytið.
Útför eiginmanns mins, föður okkar og tengdaföður
SIGMUNDAR KIl. ÁGÚSTSSONAR
Grettisgötu :!0
sem andaðist 9. des. fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 15. des. ki. 10.30 f.h.
Þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á
liknarstofnanir.
Magnea Bjarnadóttir
synir og tengdadætur.
Hernámsliö
Framhald af bls. 1
starfsmönnum islenzku rikis-
stjórnarinnar. „Þetta er fyrst og
fremst viðvörunarkerfi fyrir
Ameriku”.
1 samræmi við þá greiningu
hefur forsætisráðherra Islands,
Ólafur Jóhannesson, lýst þvi yfir
opinberlega að hann stefni að þvi
að fá Bandarikjamenn burt frá
tslandi i áföngum á næsta hálfa
þriðja ári, en halda landi sinu inn-
an Atlanzhafsbandalagsins. Og
hvað sem Bandarikjastjórn kann
að finnast um þær framtiðarhorf-
ur, þá er það ekki með öllu óað-
laðandi fyrir Bandarikjamenn i
Keflavik, sem finnst oft og iðu-
lega verið komið fram við sig sem
hernámslið”.
Timaritið heldur siðan áfram
og nefnir dæmi um þessa frarh-
komu Islendinga við herliðið:
,,Ég var á gangi úti á götu um
daginn og skipti mér ekki af
neinu. Þá kemur stráksláni vað-
andi og lemur mig i hrygginn. Ef
ég hefði goldið honum rauðan
belg fyrir gráan, sæti ég inni
núna”. Þetta hefur blaðið eftir
einum sjóliðanna.
Svo er það kvenfólkið. Einn
hermaðurinn hefur þetta að segja
eftir tilraun til aö ná i stelpur á
einum af þessum sjaldgæfu (!)
dansleikjum utan Vallar: „Við
fórum allir út til að spjalla við
kvensur og það eina sem við gát-
um skilið var „Nixon, Vietnam og
amerisk svin”. Einn af strák-
unum var laminn i hausinn með
kók-flösku, og svo var kastað
steinum á bilinn okkar. Ég hef
aldrei farið aftur”.
Siðan segir að lægra settir hér-
menn séu skyldaðir til að bera
einkennisbúning ef þeir fari út af
Vellinum, og þá liggi þeir enn
betur við höggi af hálfu þeirra Is-
lendinga sem hafa imugust á
Amerikönum. Auk þess séu þeir
reknir heim með harðri hendi
klukkan 10 á kvöldin, nema á
miðvikudögum hafi þeir leyfi til
miðnættis, en þá eru barir
lokaðir.
Þá er getið þeirra ráðstafana
sem gerðar hafa verið til varnar
smygli og svartamarkaðsbraski
frá Keflavikurflugvelli (sem
einnig gegnir þvi hlutverki að
vera alþjóða flughöfn Reykjavik-
ur — eins og segir innan sviga i
Newsweek). Leyft sé að fara út
með 1 myndavél og 2 filmur, 2
sigarettupakka, annan opinn, en
engan bjór, rafmagnstæki,
ameriska gosdrykki, ilmvatn eða
silfurmuni. Þeim 270 bandarisku
fjölskyldum sé vorkunn sem búi
utan Vallar, svo naumt sé þeim
skammtað. I PX-verzlum hersins
geti þær aðeins keypt fyrir 11
dollara (ca. 950 kr.) á viku fyrir
hvern fullorðinn og 8 dollara (ca.
680 kr.) fyrir hvert barn.
Newsweek endar grein sina
svo: ,,Að lokum fer svo, að þrir af
liverjum fjórum hermönnum sem
gegna þjónustu á Keflavikurflug-
vclli fara aldrei út fyrir, þetta
hcila ár sem þeir dveljast þar.
„Mér þótti meira gaman i Viet-
nam”, sagði einn af óbreyttu her-
mönnunum ólundarlega. En það
er svo kaldhæðnislegt, að þrátt
fyrir allar þær takmarkanir sem
islenzka stjórnin gctur upphugs-
að, seitlar amerisk poppmenning
óaflátanlega frá Keflavikurveili
og dreifist yfir landið. Þegar
sjónvarpsstöð hersins i Keflavik
hóf að senda út bandariska knatt-
spyrnuleiki og hnefaleika, þætti
eins og „All in the Family” (Allir
i fjölskyldunni), „Johnny Cash”
(Nonni reiðufé) og „Gunsmoke”
(Byssurcykur), þá ruku 70% af
ibúum Beykjavikur til og kcyptu
sér dýr þýzk loftnet og-breytibún-
að til að draga amcrisku útsend-
inguna inn á heimili sin”.
Forsætisráðh.
F’ramhald af bls. 1
grein fyrir niöurstöðum valkosta-
nefndarinnar. Niðurstaða rikis-
stjórnarinnar getur orðið i sam-
ræmi við einhvern valkost nefnd-
arinnar, en gæti lika orðið sú að
velja enn aðra leið, eða sambland
af fleiru en einu þeirra tilbrigða,
sem þar eru sett fram.
Ég útiloka engan valkost af
þeim, sem er að finna i skýrsl-
unni. Höfundar skýrslunnar eru 7
sérfræðingar með mjög mismun-
andi sjónarmið, en þeir urðu
sammála um að ganga frá skýrsl-
unni á þann hátt sem gert var, og
er það út af fyrir sig mjög at-
hyglisvert. Ég tel þetta mjög
merkilega úttekt, og enginn ætti
að geta láð rikisstjórninni, þó hún
vilji kanna þessi gögn gaumgæfi-
lega áður en hún gengur frá sinni
eigin tillögugerð.
Um fullyrðingu Jóhanns Haf-
stein varðandi það atriði að i mál-
efnasamningi rikisstjórnarinnar
væri ákvæði um að stjórnin skuld-
bindi sig til að gripa aldrei til
gengislækkunar, sagði forsætis-
ráðherra, að það væri að visu
rangtúlkun. Akvæði málefna-
samningsins segði aðeins, að
rikisstjórnin hyggðist ekki gripa
til gengislækkunar vegna þess
vanda, sem þá var við að glima.
Hittgætiengin rikisstjórn sagt i
eitt skipti fyrir öll, að gengislækk-
un komi aldrei til greina.
Og ráðherrann bætti við: „Með
þessu er ég á engan hátt að gefa i
skyn að gripið verði til gengisfell-
ingar nú”.
Jóhann Hafsteiu lalaði aftur og
sagðist vera sammála forsætis-
ráðherra um það, að plagg val-
kostanefndarinnar væri vel þess
virði, að það væri athugað vand-
lega. Ekki hafi verið svo hættu-
legt að birta skýrsluna, en hins
vegar hættulegt að láta reka á
reiðanum, — með þvi umtali, sem
nú er i bænum.
ólafur Jóhannessoii forsætis-
ráðherra talaði aftur og sagði:
„Ég skal ekki tala eins hátt og
háttvirtur siðasti ræðumaður. En
sá vandi, sem fyrir er, verður
ekki leystur með hávaðanum ein-
um”. Ólafur sagði, að sér hafi
engin kvörtun borizt frá við-
skiptabönkunum um neinar óeðli-
legar gjaldeyrisyfirfærslur, en
hvað sölu á áfengi snerti, þá hafi
hann nú ekki komið i áfengisbúð-
irnar, en sér væri ekki kunnugt
um neina nystárlega söluaukn-
ingu þar. Forsætisráðherra
minnti á, að það væri ekkert nýtt i
þingsögunni að á alþingi væri
annasamt dagana fyrir jól, og
komið hefði fyrir að „bjargráð”
hafi fyrst komið fram eftir ára-
mót.
Það kom fram hjá ráðherra, að
að ekki væri algild regla, að þing-
menn fari burt i jólaleyfi, og verði
ekki búið að ganga frá afgreiðslu
tillagna i efnahagsmálum l'yrir
jól, þá væri hann reiðubúinn að
taka til greina ósk frá sljórnar-
andstöðunni, ef fram kæmi, um
að halda þingfundum áfram milli
jóla og nýárs.
Matthias Mathiescn sagðist
vilja beina þeirri fyrirspurn til
Magnúsar Kjartanssonar, iðn-
aðarráðherra, hvort það væri
rétt, sem heyrzt hefði, að Alþýðu-
bandalagið hafi algerlega hafnað
gengislækkunarleið.
Magnús Kjartansson iðnaðar-
ráðherra sagðist vilja vekja at-
hygli á þvi, að þessar umræður
ÞM
ALLIR VEGIR
FÆFyRÁ
Yokohama
SNJÓBÖRÐUM
HJÓLBARÐA-
VIÐGERÐ KÁ
SELFOSSI
utan dagskrár hefðu þegar upp-
tekið nær allan reglulegan
fundarlima alþingis. Magnús
sagði, að þessi mál hlytu fljótlega
að koma með eðlilegum hætti á
dagskrá alþingis og muni hann þá
gera grein fyrir stefnu Alþýðu-
bandalagsins i efnahagsmálum.
Ráðherrann sagðist hins vegar
ekki telja sér skylt að svara nein-
um yfirheyrsluspurningum frá
Matthiasi Mathiesen utan dag-
skrár.
Við umræðuna utan dagskrár
tóku einnig til máls Ingólfur Jóns-
son, Gylfi Þ. Gislason, Lárus
Jónsson og Guðlaugur Gislason.
Munið jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar
Gleðjið einstæðar mæður og
aldraðar.
Þeir sem leita aðstoðar
nefndarinnar hafi samband
sem fyrst við skrifstofuna a?
Njálsgötu 3 hér i bæ. Simi
14349.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
eiginmanns mins
EIRÍKS SNJÓLFSSONAR
Bárugötu 46
Guðbjörg Eiriksdóttir
Ilörður Eiríksson Eirikur Svavar Eiriksson
Þökkuni innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför
GEIIIS ASMUNDSSONAR
frá Viðum.
Lilja Jónsdóttir
llaukur Geirsson Hulda Jónsdóttir
Þórhallur Geirsson Hjördis Geirsdóttir
Erna Geirsdóttir
Ilrafnhildur Geirsdóttir
Útför
GUNNLAUGS SCHEVING listmálara,
sem andaðist 9. þ.m„ fer fram frá Dómkirkjunni laugar-
daginn 16. þ.m. kl. 10,30.
F.h. frændfólks hans,
Vilhjálmur Þ. Gislason.