Þjóðviljinn - 14.12.1972, Síða 20
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar'
eru gefnar i simsvara'
Læknafélags Reyltjavikur,
simi 18888.
Apótek Austurbæjar og
Laugavegsapótek annast
helgar-, kvöld- og næturþjón-
ustu vikuna 9.
desember.
Slysavaröstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagar
vakt á heilsuvernarstööinnj.
Simi 21230.
Auðlindatillögu
frestað hjá SÞ
Búizt hafði verið við því, að tillaga
íslands, Perú og fleiri þjóða um rétt
strandríkja til auðæfa hafsins (,,auð-
lindatillagan") kæmi til atkvæða-
greiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna i dag, fimmtudag, en í gær
upplýstist að málinu hafi verið frestað
fram yfir næstu helgi. Er gert ráð fyrir,.
a.ð atkvæðagreiðslan fari fram á
mánudaginn eða þriðjudaginn.
Brandt endur-
kosinn kanslari
Fréttnæmt þykir að kona og
sósíaldemókrati
var kjörin þingforseti
BONN 13/12 — Vestur-
Þýzka sambandsþingið
kom saman til fyrsta
fundar í gær eftir þingkosn-
ingarnar sem fram fóru i
síðasta mánuði. Á þing-
fundinum bar það til
tiðinda, að kona var
kjörin þingforseti, og
hefur það ekki fyrr gerzt i
Vestur-Þýzkalandi. Þetta
er einnig i fyrsta sinn sem
jafnaðarmaður gegnir
þessu embætti, sem talið er
mesta virðingarembætti
landsins að undanskildum
forseta sambandslýð-
veldisins.
Hinn nýi forseti sambands-
þingsins heitir Annemarie
Renger, 53já ára gömul, hefur
setið á þingi i 19 ár. Hún var á
sinum tima einkaritari Kurts
Schumachers. Renger hefur lent i
nokkrum útistööum við hina
vinstri sinnuðu æskulýðshreyf-
ingu jafnaðarmanna (jusos).
í dag stendur til að sambands-
þingiðendurkjósi Brant kanslara
Vestur-Þýzkalands, en samn-
Annemarie Renger þingforseti
ingaþófi samsteypuflokkanna er
nú lokið. A morgun föstudag, mun
Brandt leggja fram ráðherralista
sinn. Ýmsar breytingar verða á.
stjórninni, og munar þar mestu
að frjálsir demókratar fá nú 5
ráðherraembætti i stað 3ja áður.
Stafar þetta veldi þeirra af veru-
legri fylgisaukningu i siðustu
kosningum.
Barizt með stórskotaliði
í Suður-Víetnam
Tíöindalaust
í Parísar-
viöræöunum
PARiS/Saigon 13/12 —
Þeir Le Duc Tho og Kiss
inger sátu á 6 stunda löng-
um fundi í gær, en að hon-
um loknum f laug Kissinger
vestgr til Washington til að
gefa Bandarikjaforseta
skýrslu um árangurinn.
Ekkert hefur verið látið
uppi um það, hvað fram
hefur farið á Parísarfund-
unum.
Blöð i Paris hafa verið mjög
bjartsýn á að lausn væri á næsta
leiti og vopnahléssamkomulag
kunni að veröa undirritað i þessari
viku, en i Washington hafa kunn-
ugir menn talið, að enn muni liða
nokkrar vikur áður en nokkur
endanleg niðurstaða er fengin i
viðræðurnar. Norður-Vietnamar
segja, að enn sé eftir að leysa
mörg viðkvæm mál, áður en frið-
arsamningar komist i höfn, úr þvi
að Bandarikjastjórn sveik það
samkomulag sem raunverulega
lá fyrir seint i október.
Bardagar halda áfram i Viet-
nam. Barizt er i um 50 kilómetra
fjarlægð frá keisaraborginni Hue
i Suður-Vietnam, og beitir þjóð
frelsisherinn þar skriðdrekum.
Hafa þeir komizt yfir Thach
Han-fljótið þar og berjast við suð-
ur-vietnamskar fallhlifarsveitir.
Bandariskar sprengjuflugvélar
hafa varpað þar niður farmi sin-
um.
Phnom Penh, höfuðborg
Kambódiu, hefur verið alveg ein-
angruð á landi um hrið af þjóð-
frelsissveitum, en nýlega komst
þangað lest herbila frá strönd-
inni, i fyrsta sinn i 6 vikur.
Öryggi og
hermál
tvennt
ólíkt?
HELSINKl — A undir
búningsfundi undir öryggis-
ráðstefnu Evrópu sem haldinn
er i Helsingfors var i gær sam-
þykkt tillaga frá Júgóslövum
um viðfangsefni fundarins, en
viðræðum verður haldið á-
fram eftir mánaðar jólahlé af
fulltrúum rikjanna 34urra sem
vinna að undirbúningi ráð-
stefnunnar.
Við afgreiðslu
júgóslavnesku tillögunnar
sátu Sovétrikin og nokkur önn-
ur A-Evrópuriki hjá, en full-
trúar allra rikja Vestur-
Evrópu á fundinum, auk
Bandarikjanna og Kanada,
studdu hana.
Moskvublaðið Pravda gagn-
rýndi i gær tillögur sem fram
hafa komið hjá nokkrum vest-
rænum rikjum, að á öryggis-
ráðstefnunni skyldi rætt um
hernaðarleg vandamál sam-
timis öryggismálum.
Jónas Árnason segir :
Notalegt í
Judith Point
Ákaflega gagnlegur fundur í
bandarískum útgeröarbæ
smábáta og samvinnustarfs
Landhelgisfundurinn i
Rhode Island á sunnudag-
inn sem nokkrir islenzku
fulltrúarnir hjá Sameinuðu
þjóðunum sóttu og sagt var
frá í blaðinu i gær, hefur
vakið hina mestu athygli.
Við höfðum samband við
einn af þeim sem fór á
fundinn, Jónas Arnason, og
spurðum hann frétta.
— Þetta var hin ágætasta ferð,
og ég efa ekki að fundurinn hefur
gifurlega þýðingu, einmitt núna
þegar auðlindatillagan er að fara
i gegn hjá Sameinuðu þjóðunum.
Það var hvergi ofsögum sagt i
fréttatilkynningunni, að við feng-
um þarna ákaflega verðmætan
siðferðilegan stuðning og eigum
eftir að verða enn betur varir við
hann siðar. Fundurinn var sóttur
af ýmsum áhrifamönnum, auk
annarra, en hann var aldrei opin-
berlega auglýstur.
— Hvernig staður var þetta þar
sem fundurinn var haldinn?
— Þetta er með meiri háttar
útgerðarbæjum á Rhode Island
hvað smærri bátana snertir.
Þarna i Point Judith eru þó ekki
gerðir út neinir togarar, þeir eru i
Boston og Gloucester. Höfnin er
ákaflega þröng og grunn þarna.
Fundurinn var haldinn alveg úti á
odda við innsiglinguna, og svo
voru þeir að koma inn meðan á
i sambandi við fundinn i Judith Point á sunnudaginn skoðuðu menn sig um í húsakynnum samvinnuút-
gerðarinnar. Hér eru þeir Jónas Árnason og Hannes Pálsson að grandskoða eitthvað sem við vitum ekki
hvað er, en hefur greinilega verið áhugavcrt.
fundinum stóð. Þeir höfðu róið
þótt sunnudagur væri, þvi það
hafði verið ógæftarsamt að undan
förnu. Svo gerði þoku og við
grilltum varla i bátana, en þeir
komu svona pipandi inn, eins og
gengur. Þetta var ekta stemmn-
ing fyrir okkur Islendingana, al-
veg eins og að vera kominn út á
Snæfellsnes.
— Hvernig leizt þér á útgerðina
hjá þeim?
— Þetta blessast bara ágæt-
lega hjá þeim, en margt var nú
heldur gamaidags miðað við það
sem gerist hjá okkur. Þarna er
mikil samvinnuútgerð sem er dá-
litið óvenjulegt fyrirkomulag hér
i landi. Formaður hennar er ein-
mitt hann Dykstra, kunningi
minn frá þvi ég var á ferð hérna i
fyrra, og hann var einn af þeim
sem hrundu fundinum af stað.
Það eru gerðir út á annað hundr
að báta þarna, svona frá 10 og upp
i 30 tonn. Þeir eru ýmist á humri,
eða þeir trolla fyrir annan fisk.
Þeir eru dálitið óánægðir yfir
skilningsleysi stjórnvalda á sin-
um málum þarna kallarnir, en
samfélagið i Judith Point er af-
skaplega notalegt, og greinilegt
að fólki liður þarna vel.