Þjóðviljinn - 08.03.1973, Side 9

Þjóðviljinn - 08.03.1973, Side 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. marz 1973 Fimmtudagur 8. marz 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 HVERNIG VERÐA HÚSNÆÐIS- MÁL REYKVÍKINGA LEYST? Lóðaúthlutanir leysa ekki vanda þeirra, sem ekki eru samkeppnisfærir á almennum húsnæðismark- aði. Umsækjendur um leiguibúðir borgarinnar eru tald- ir verr staddir en heimilislausir Vestmannaeying- ar. Meginþorri umsækjenda um FB-ibúðirnar býr við íeyðarástand i húsnæðismálum. Eins og fram kom i ræðu öddu Báru Sigfús- dóttur borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins, sem birtist hér i Þjóð- viljanum á laugar- daginn, rikir nú i Reykjavik neyðar- ástand i húsnæðismál- um, sem bezt kom fram i þeirri staðreynd, að þeir sem sóttu um leigu- ibúðir borgarinnar og um söluibúðir FB i Breiðholti töldust verr á vegi staddir en þeir Vestmannaeyingar, sem orðið hafa að yfirgefa heimili sin. Vitnaöi Adda Bára ma. i upplýsingar félagsmálastjóra borgarinnar og tillögunefndar um ráöstöfun FB-fbúöanna en þar kom fram, aö 220 sóttu um 60 leigulbúöir borgarinnar, auk þess sem fyrir liggja óleystar umsókn- ir til Félagsmálastofnunarinnar frá 1972, en 395 sóttu um 90 ibúöir FB, þannig aö skjalfestur er i þessu sambandi húsnæöisvandi 463ja reykviskra fjölskyldna, og vitaö, aö um þessar ibúöir reyna svotil aðeins þeir að sækja, sem uppfylla tiltekin, ströng skilyröi. Viö þetta bætist vandi allra hinna, sem telja vonlaust aö sækja, og sjálfir eru að leita fyrir sér á frjálsum markaöi, aö ógleymdum Vestmannaeyingum, sem hingað hafa leitað, en hjá húsnæðis- miðlun Vestmannaeyinga voru á skrá fyrir helgina nær 600 um- sækjendur.og fer ekki hjá þvi, að það komi i hlut Reykjavikur að taka á móti verulegum hluta þessa fólks um lengri eða skemmri tima. Hefur húsnæðis- miöluninni tekizt aö útvega 170 ibúðir hér i borginni. Óþarfi er að rekja að nýju ræðu öddu Báru, en miklar umræöur urðu að henni lokinni um tillögu vinstriflokka-fulltrúanna, sem var á þá leiö, aö borgarstjórn endurskoöaöi áætlanir sinar um byggingu ibúöarhúsnæðis og kannaöi alla möguleika á auknum byggingaframkvæmdum á sinum vegum,svo og allar leiöir til fjár- mögnunar. Var i þvi sambandi sérstaklega bent á hagnýtingu hinna hagkvæmu kjara er felast i ákvæöum um verkamanna- bústaöi og Adda Bára benti á, að eölilegt væri aö snúa sér til.Viö- lagasjóös meö beiöni um framlag til að geta tekið á móti Vest- mannaeyingunum, sem mætti siöan endurgreiöa, þegar fólkiö úr Eyjum, sem húsnæöi fengi i borginni, gæti snúið heim aftur. Harður dómur Við umræöurnar sagði Björgvin Guðmundsson fulltrúi Alþýðu- flokksins ma. aö húsnæöismál heföu þróazt á óhagstæðan hátt, skortur á leiguhúsnæöi hefði aukizt, ibúöarleiga hækkað og fyrirframgreiösla oröið alger regla og vissi hann dæmi þess, aö leiga á 2ja-3ja herbergja Ibúðum heföi tvöfaldazt og nú algengt, aö 2ja herbergja ibúðir væru leigðar á 10 þús. kr. á mánuði, auk þess sem fjölmennar fjölskyldur fengju engar ibúöir leigöar, jafn- vel þótt i boði væri fyrirfram- greiðsla. Aðalástæðan væri fólksfjölgun i borginni, og þótt koma Vest- mannaeyinga heföi átt sinn þátt i þróuninni siöustu vikurnar færi þvi fjarri aö hún heföi skapað allt vandamáliö; þaö heföi veriö til staðar fyrr. Benti hann á, að vinstri fulltrúarnir heföu gert til- lögur um húsnæðismál við af- greiöslu siöustu fjárhagsáætlunar og sömuleiöis áriö áöur, en án árangurs. Fulltrúar Sjálfstæöis- flokksins heföu ekki viljaö viöur- kenna ástandiö þangaö til nýlegir atburöir leiddu til þess, að þeir uröu aö gera þaö, er félagsmála- stjóri gaf skýrsluna, sem Adda Bára vitnaði i vegna beiðni félagsmálaráöuneytisins um bráöabirgðaafnot af nýju leigu- ibúðunum fyrir Vestmanna- eyinga. Þá var þaö samdóma mat borgarráös alls, að húsnæöis- vandi skjólstæðinga borgarinnar væri meiri en vandræöi Vest- mannaeyinganna. betta er haröur dómur, sagöi Björgvin, og gefur tilefni til að leita úrræöa, enda augljóst og meirihlutinn hefur viðurkennt þaö, aö húsnæðismálin hafa verið vanrækt. Sjálfstæöismenn hafa brugöizt borgarbúum. Ekki nýjung i okkar augum. Steinunn Finnbogadóttir, full- trúi Samtaka vinstri og frjáls- lyndra, sagði að fulltrúar vinstri flokkanna i borgarstjórn hefðu árum saman hamraö á nauösyn þess að byggja ibúðir fyrir þá, sem viö erfiöust kjör búa i borginni; siöast i desember hefði minnihlutinn flutt tillögu um þetta efni, en meirihlutinn lagt hana á hilluna. Nú væri komið fram hjá félagsmálastjóra, að fólk hér heföi um langt árabil búið viö húsnæðisvandræði og virtist þetta nýtt i augum meirihlutans, en þaö er engin nýjung i augum okkar vinstri fulltrúanna, sagöi Steinunn, viö höfum reynt aö benda á þessa staöreynd á hverju ári. Til aö meirihlutinn kæmi auga á þetta þurfti utanaökomandi vandræöi og þá blasti við sá sann- leikur, að I Reykjavlk rikir neyöarástand i húsnæöismálum aö fornu og nýju. 1 borgarráöi var kveöinn upp kaldur dómur, en óumflýjanlegur: aö jafnvel hús- villtir Vestmannaeyingar væru ekki verr settir en húsnæðislausir Reykvikingar. Hún benti á, að framlag Reykjavikurborgar til byggingar verkamannabústaða væri lægra pr. ibúa en nokkurs annars bæjarfélags, sem á annað borð byggði verkamannabústaði, og væri þaö skömm meðan til væru vistarverur á borð við Höfðaborg og Selbúðir. Sérstök ástæða væri til aö benda á þau hagkvæmu kjör er fælust i ákvæðum um verka- mannabústaði, sagði hún, og kvaðst aö lokum vonast til, að framvegis fengju tillögur vinstri fulltrúanna um úrræði i hús- næðismálum betri undirtektir en verið hefur. Lóðaúthlutanir Gisli Halldórsson talaði af hálfu meirihlutans og sagði rétt hjá flutningsmönnum, að hér vantaði húsnæði, eins og fram hefði komið við siöustu auglýsingar um út- hlutun hjá FB og borginni. En fiestir, sem byggju við vandræði, sæktu um hjá þessum aðilum vegna þess að þar væru hag- stæðust kjör og lægst leigan hjá borginni. Hann sagöi, aö borgarstjórnar- meirihlutinn vildi vissulega nýta lögin um verkamannabústaði til hins ýtrasta og byggja skv. þeim, og ekki væri rétt aö Reykjavik legði minnst til þessara fram- kvæmda, þvi þrátt fyrir aö borgin heföi staðið i öörum framkvæmd- um og byggt leiguibúöir innan FB áætlunar, heföi hún jafnframt lagt í3 ár til verkamannabústaða. Heföi i fyrra verið samþykkt að fara i þaö hámark, sem þá gilti, en það heföi siöan verið hækkað skv. óskum utanaf landi. Eftir að lögin um verkamannabústaði tóku gildi heföi borgarstjórn séð, að hagkvæmt var að byggja skv. þeim,og árin 1970 og ’71 ákveðið framlagið i byggingasjóð verka- mannabústaða 200 kr. á ibúa, og hefði strax verið ákveðið að hefja framkvæmdir á þessu ári og áætlaö að byggja 400 Ibúöir fyrir árslok 1976. bessvegna varð sam- komulag við stjórn bygginga- sjóðsins um 300 kr. framlag á ibúa 1972 og það hækkað i 400 kr. fyrir árið 1973. Gisli sagðist sérstaklega vilja minna á, að lögin um verka- mannabústaöi væru fyrst og fremst ufn eignaríbúöir, en ekki leigufbúðir, en sýnt væri, að Reykjavik yrði ávallt aö byggja talsvert af leiguhúsnæði fyrir þá sem ekki væru samkeppnisfærir á almennum leigumarkaði. Astæðan til að ekki var strax hafizt handa þegar verkamanna- bústaðasjóðurinn var stofnaöur væri sú, aö þá heföi borgin verið i samvinnu viö Byggingaráætlun um byggingu 1200 ibúöa,og þegar lögin voru samþykkt heföi verið eftir að byggja 700. Var þvi gert ráð fyrir, að bygging verka- mannabústaða kæmi i kjölfariö og nú væri lokið skipulagningu fyrir fyrstu 310 ibúðirnár af þeim i Seljahverfi. Borgin hefði nú fengið 206 ibúðanna frá FB og væri nú verið að flytja inn i þær 60, sem síðast var úthlutað, en næsta ár yrði lokið 42 leiguibúðum borgarinnar i Breiöholti. Þá vitnaði Gisli I tölur um lóða- úthlutun að undanförnu, sem áður hafa veriðraktar i Þjóðviljanum, og sagöi, að hafnar yrðu fram- kvæmdir viö byggingu 1200 ibúöa i borginni á þessu ári. Trygging fyrir þvi aö ibúðir yrðu fljótt byggöar á lóöunum, sem úthlutað hefði verið, væri aö mikill hluti Ibúðanna væri byggður á vegum stærri aðila, en mjög litiö um að menn byggðu sjálfir eina og eina ibúö. Gisli áleit ástæðu til að ætla, að þau húsnæöisvandræði, sem væru i borginni nú, yröu leyst á næstu árum. A siðustu 5 árum hefðu verið fullgerðar árlega að meðal- tali 730 fbúðir og auk þess byggðar 150 ibúðir fyrir aldraða og öryrkja, en á sama tima hefði ibúðum fjölgað um 3740, þannig að byggð hefði verið ein Ibúð á hvern viðbótarborgara á þessum 5árum. Þvi hlyti að vera skammt undan að þessi mál leystust til frambúöar. I sambandi við Vestmanna- eyinga sagði Gisli, að borgar- stjórn væri tilbúin að gera ráð- stafanir ef ástæða væri til, en 2 rikisskipaðar nefndir hefðu verið settar á fót til að benda á leiðir til úrlausnar; auk þess rikti nú bjartsýni um að gosið væri á þann veg, að vonast mætti til, að Vest- mannaeyingar kæmust sem fyrst til sins heima. Komið hefði i ljós við komu þeirra, að óviða mundi betra ástand i húsnæðismálum en hér að þvi leyti, hve fólk byggi vel og þessvegna hefði það haft að- stöðu til að taka á móti jafnfjöl- mennum hópi á heimilum sinum. Ræðan frá i fyrra? Sigurjón Pétursson borgarfull- trúi Alþýðubandalagsins sagði, að ræða Gisla hefði eins getað verið sú, sem hann flutti I fyrra eða hitteðfyrra. Astand i hús- næðismálum væri eins og alltaf I hans augum : það væri að komast i eðlilegt horf, i byggingu væru svo og svo mörg hús, úthlutað hefði verið svo og svo mörgum lóðum. Og get ég ekki annað en dáðst að Gisla Halldórssyni að standa fast á þessu á sama tima og það er einróma álit allra, að húsnæðislaust fólk i Reykjavik sé verr statt en fólk sem orðið hefur að flýja heimili sin, sagði Sigur- jón. Nýting kjara við byggingu v e r k a m a n n a b ú s t a ð a er ábendingaratriði i tillögunni, sagði Sigurjón, en aðalatriði, að borgarráð kanni öll tiltæk ráð til lausnar. Alltaf væri talað um, hve margar ibúðir væru i byggingu,og rétt væri að á siðustu 5 árum hefðu verið byggðar sem svaraði einni ibúð á hvern nýjan borgara, en það benti kannski bezt á þá staðreynd, að húsnæðisvanda- málið hefði verið enn geigvæn- legra fyrir 5 árum, þótt það hefði sennilega e'kki verið það i augum Gisla Halldórssonar. Allt benti til, að ákveðnir hópar i borginni gætu ekki leyst sin hús- næðisvandamál gegnum lóðaút- hlutun; þeir gætu ekki byggt yfir sig,og þennan hóp yrði að aðstoða og tryggja, að þetta fólk gæti búiö i mannsæmandi húsnæði eins og aðrir. Fyrir 8 árum hefði verið gerð áætlun um byggingu 50 leiguibúða á ári, en byggðar hefðu verið innan við 30, en margir myndu betur á vegi staddir, hefði þetta verið gert. Of fáar leiguibúðir Kristján Benediktsson fulltrúi Framsóknarfl. taldi tillögu minnihlutans hógværa og áreitnislausa; mikið væri I mun að Reykjavikurborg gerði átak i þessum málum nú og tillagan gengi þvi þá braut innan borgar- kerfisins, sem vænlegust væri til árangurs. Hann kvaðst alltaf hafa álitið, að Reykjavik ætti alltof fáar leiguibúðir og hefðu siðustu atburðir fært heim sanninn um þetta. Ýmsar ástæður lægju til húsnæðisleysis og nægðu engar tölur um heildarrúmmetrafjölda og heildartölur fjölskyldna; hús- næði skiptist misjafnlega milli fólks. Hann sagði, að 1966 hefði lág- marksþörf leiguibúöa veriö metin 50á árinæsta 5ára timabil. Hefðu fulltrúar minnihl. talið þetta al gjört lágmark og flutt sameigin- lega tillögu um allverulega aukningu, en hún ekki náð fram að ganga. Ekki væri að undra, að nú, 7 árum siðar, væru vanda- málin geigvænleg, þvi reyndin varð sú, að byggðar voru um 25 ibúðir á ári i stað 50. Aætluninni væri ekki lokið enn og Reykjavik hefði tekið þann kostinn að skjóta sér bakvið FB. Þetta væri siðasta lifsmarkið frá hendi borgarinnar i húsnæðismálum. Kristján kvaðst ekki rengja Gisla um ibúðir, sem teknar hefðu verið i notkun á siðustu 5 árum; hins vegar leystu þær ekki vanda þeirra, sem þyrftu að leigja, og það þvi siður sem hér væru, gagnstætt nágranna- löndunum, ekki leiguibúðir á markaði og yfirleitt ekki byggt til að leigja og gerði það þörfina á að Reykjavík byggði leiguibúðir enn brýnni. Guðmundur Þórarinsson sagði, að ástandið i húsnæðismálunum lýsti sér i óeðlilega hárri húsa- leigu og óeölilega háu ibúðaverði, sem sæist td. á þvi, að byggjandi gæti kannski selt Ibúð að lokinni byggingu á 60% hærra verði en kostnaöi. Að byggja fleiri ibúðir væri vissulega ein leiðin til lausnar, en einnig hin að sjá um að nægilega margar lóðir væru til fyrir þá, sem vildu byggja. Aö undanförnu hefði að visu verið úthlutað gietti- lega miklu af lóðum, en það væri gerfiúthlutun,þvi framkvæmdir á þeim gætu ekki hafizt fyrr en eftir um 6 mánuði. Borgaryfirvöld yrðu að sjá fyrir nægilega mörg- um byggingarhæfum lóðum. Leysir ekki vandann nú Adda Bára Sigfúsdóttir benti á, að tölur eins og Gisla, um byggingarframkvæmdir undan- farin ár, leystu ekki vandamálin sem fást þyrfti við nú, auk þess sem framkvæmdir á almennum markaði leystu ekki vandamál þeirra hópa, sem mest þyrftu á að halda; þær íbúðir væru of dýrar. GIsli hefði flutt sina venjulegu ræðu um vissan vanda, sem leystist á næstunni, i þetta sinn væntanlega á þessu ári miðað við framkvæmdir ýmissa aðila. Langt væri frá þvi, að rétt væri hjá Gisla, að allir sæktu um leigu- ibúðir hjá borginni eða söluibúðir FB vegna þess, að þar væru hag- stæðust kjör; mjög margir sem vissu, að þeir kæmu ekki til greina hjá þessum aðilum, ættu engu að síður i miklum erfiðleik- um á þessum „frjálsa” húsnæðis- markaði 1 sambandi viö verkamannabú- staðina sagði Adda, að það væri jú matsatriði hvaö væri að standa sig vel og hvað illa; rétt væri, að Reykjavikurborg hefði snemma ákveðið að fara út i slikar fram- kvæmdir, en jafnframt að hafa framlagið i lágmarki. Reykjavik hefði verið á botni með 300 kr. pr. ibúa, en önnur bæjarfélög hefðu verið með 400-1200 kr. Þrátt fyrir hækkað framlag 1973 skyldi sig ekki undra þótt Rvik héldi áfram að vera lægst, enda væri langur vegur frá 300 kr. i 1200 og margar tölur þar á milli. Adda kvaðst hyggja það mis- mæli hjá Gisla, að eftirspurn eftir leigufbúðum borgarinnar væri meiri en réttlætanlegt væri að leysa; hins vegar gætu þau orðið sammála um, að leiga á ibúðum borgarinnar ætti að vera eðlileg og væri nú of lág, þrátt fyrir hækkun. Kæmi til kasta Félags- málastofnunarinnar ef einhver gæti ekki greitt eðlilega leigu. Ekki þyrfti byggingafræðinga til að sjá, að ekki yrði flutt i Vestamannaeyjar á næstu mánuðum og þvi full ástæða til að borgaryfirvöld reyndu þegar að leysa aukin húsnæðisvandamál Vestmannaeyinga. Siálfstætt fólk Albert Guðmundsson fulltrúi Sjálfstæðisfl. kvaðst sammála til- lögu minnihlutans, en vildi að könnun færi fram á þvi, hve margir af þeim borgarbúum, sem nú byggju i leiguibúðum borgarinnar, hefðu áhuga á að kaupa þessar ibúðir, og féð yrði siðan notaö til áframhaldandi ibúðarbygginga. Gefa þyrfti þessu fólki kost á löngum lánum á lágum vöxtum. Slikt yrði skref i að gera þetta fólk að sjálfstæðum ibúðareigendum, — sjálfstæðu fólki, það væri stefna Sjálfstæðis- flokksins! sagði Albert. Óskað var eftir upplýsingum um, hvort þetta væri privattillaga Alberts eða meirihlutans alls, og mótmælt, að skilyröi fyrir sjálf- stæði væri eign á ibúð. Samþykkt var að lokum sam- hljóða að visa tillögunni til borgarráðs. —vh SAGT FRÁ UMRÆÐUM í BORGARSTJÓRN ” \"l Bandariskir strlðsfangar i fangabúðum: I einangrun héidu þeir trú á innrættar dyggöir. NIXON DAÐRAR VIÐ HEIMKOMNA STRÍÐSFANGA Þaö kom mörgum Bandarík jamönnum á óvart/ þegar bandarísku stríðsfangarnir fóru að snúa heim frá Víetnam, hve ólikir þeir voru heima- mönnum í tali. Þeir sungu lof og dýrð þjónustu við föðurlandið, hlýðni, holl- ustu og fleiri dyggðum, sem heimamenn máttu ekki lengur heyra nefndar, svo mjög hafði styrjaldar- reksturinn og svívirða hans fellt þessi og önnur skyid hugtök í gengi. Að undanförnu hafa ýmis bandarisk blöö einmitt skrifað um þessar furður — þaö sé tskyggilegt spott örlaganna, aö þeir einu sem virðast hafa varð- veitt einhverja trú á „ættjarðar- ást, aga og marksækni” og annað það, sem áður tilheyrði svo- kölluöum 100% amerikanisma, skuli vera þeir, sem um margra ára skeið hafa verið einangraöir frá atburöum i fangabúöum suður i Asiu. Enginn hefur gert sér annan eins mat úr ýmsum tilsvörum fanganna, sem heim snúa, og Nixon forseti. Hann haföi á siðasta skeiði striösins látið sem þaö væri helzta markmiö þess aö fá alla bandariska fanga heim. Og kvaðst gera loftárásir á Noröur-Vletnam til aö fá úr haldi þá menn, sem þar sátu inni vegna þess að þeir höfðu kastað sprengjum á borgir þess lands. Og nú linnir ekki fagurgala for- setans um þessa „fanga sæmdar- friöar” og meöan hann kærir sig kollóttan um Itrekuö brot á vopnahléssáttmálanum i Suöur- Vietnam, er hann reiöubúinn til að gripa til refsiaögeröa, hvenær sem einhver töf verður á heim- sendingu bandariskra fanga. Þeir sem I hjólastól sitja gleymast eða hvað? enda töpuðu þeir striðinu, 2,5 miljón í öllum þessum gauragangi gleymist alveg annar þáttur málsins: hlutskipti þeirra hálfu þriöju miljón manna sem áður eru heim snúnir beint af vig- völlum I Vletnam. Blaöamaö- urinn Nicholas von Hoffmann segir á þá leiö, að þeir hafi drukknað i þeim húrrahrópum, sem rekin voru upp i Bandarikj- unum til að beina athyglinni frá skuggalegri hliöum striösins. 200 þúsund þessara gleymdu manna hafa skilið heilsu sina eftir i Vietnam, 25 þúsundir þeirra verða að vera i hjólastól það sem eftir er æfinnar. Og þessir menn hafa ekki verið boönir 1 veizlur, þeim hafa ekki verið gefnir bilar og þeirra biður heldur ekki neinn frami I starfi. 5,5% þeirra, sem heim hafa snúið, eru atvinnu- lausir og margir þeirra sem vinnu hafa fengið hafa orðið að sætta sig við það sem verst var á boðstólum. Mitt i fagnaöarlátunum út af striösföngunum sem heim sneru ætlaði Nixonstjórnin meira að segja að skera niður fjárveitingar til fyrrverandi hermanna i Viet nam um 160 miljónir dollara. Rikið ætlaði aö spara 169 dali á mánuöi á hverjum þeim sem hafði misst fót i Vietnam, og á hverjum týndum handlegg átti að spara 139 dollara. Hávær mót mæli biaða og einstakra þing manna neyddu Nixon þó til að hverfa frá þessari ákvöröun. Uppgja fahermennirnir — örkumla sumir, aörir eiturlyfja neytendur, langflestir uppgefnir á stjórnvöldum og herþjónustu — passa einfaldlega ekki i kram Nixons, segir Hoffmann. Eða voru það ekki þeir sem töpuðu striöinu? Heldur safnar Richard Nixon að sér þeim föngum, sem heim komnir biðja guð að blessa bæði Ameriku og Nixon. Hann hefur sin áform að þvi er þá varðar. Repúblikanir hafa þegar fundiö meðal heimkominna fanga nokkra menn, sem þeir ætla að ..byggja upp” sem þingmanna efni.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.