Þjóðviljinn - 08.03.1973, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 08.03.1973, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. marz 1973 Stefnuskrá Stúdentaráðs i utanrikismennta- og hagsmunamálum Stúdentaráð Háskóla Is- lands samþykkti á fundum sínum dagana 4. og 21. febrúar s.l. stefnuskrá í ýmsum veigamiklum hagsmunamálum stúdenta, menntamálum og félags- málum. —- -r“ Hér að neðan birtum við hluta af stefnuskrám hagsmuna- nefndar, menntamála- nefndar og utanríkisnefnd- ar. Stúdentaráð vill taka fram að hér er ekki um tæmandi lýsingu á stefnu þess að ræða og áskilur það sér rétt til að bæta við og útfæra nánar stefnu sína. Hér kemur fyrst stefnuskrá utanrikisnefndar og er hún birt i heild. a) SHÍ styöur útfærslu Islenzku landhelginnar á grundvelli verndunarsjónarmiöa og þess aö islenzku þjóftinni beri forgangs- réttur til að nýta þau náttúruauð- æfi, er þar finnast. Ráöiö telur að sllkar náttúruauðlindir veröi að- eins verndaðar með þvl að hvert strandriki hafi einhliöa yfirráöa- rétt yfir sinni landhelgi. A þessum forsendum styöur SHÍ þau rlki sem berjast fyrir sams konar útfærslu landhelgi sinnar. Jafnframt vill SHl skipa sér i hóp þeirra afla, sem um þessar mundir berjast fyrir út- færslu landhelgi rikjanna viö Norður-Atlanzhaf. b) Herverndarsamningnum frá 1951 og NATO-samningnum frá 1949 verði sagt upp. c) SHl er aöili að stofnun Viet- namnefndarinnar á Islandi, og mun halda áfram aöild á grund- velli málefnasamþykktar hennar. SHl mun einnig vinna sjálfstætt aö framgangi baráttumála Viet- namnefndarinnar. d) Aðild Islands að EBE kemur ekki til greina m.a. vegna ákvæöa Rómarsáttmálans um skert full- veldi aðildarþjóöa. Þeir samning- ar sem tsland gerir viö EBE, mega á engan hátt skerða efna- hagslegt og stjórnskipulegt sjálf- stæði þjóðarinnar. e) öllum þeim öflum, sem berj- ast gegn arðráni auðvaldsins á þróunarlöndunum, veröi veittur pólitiskur stuöningur SHI. SHt skorar á rikisstjórn tslands að veita þessum öflum pólitiskan og efnahagslegan stuðning án skil- yröa, og með pólitískt og efna- hagslegt sjálfstæöi þróunarlands- ins fyrir augum. f) SHI er aöili aö ýmsum fé- lagasamtökum, svo sem ÆSl. Ótimabært er talið aö leita aðild- ar aö IUS, bæöi vegna vafasamr- ar fortíðar samtakanna og hins, aö SHl er innan dreifikerfis IUS og nýtur þvi góðs af öllum þeim upplýsingum semdreift er. Þá kemur stefnuskrá mennta- málanefndar. Um hana urðu nokkrar deilur og var henni breytt nokkuð á siðari fundinum. I slðasta tölublaði Stúdentablaðs- ins má finna upphaflegu gerðina og einnig gagnrýni á hana. Við birtum hér nokkra kafla úr siðari geröinni. Inntökuskilyrði I. Stefna ber aö þvl, aö rýmka inntökuskilyrði i Ht eins og unnt er innan þess ramma, sem hús- rými og kennslukraftar marka. Lokatakmarkiö er, að allir, sem það kjósa og náð hafa ákveðnum aldri eöa fullnægja öörum inn- tökuskilyrðum, geti stundaö nám við Hl. II. Það er stefna SHl, aö þegar næsta haust (1973) verði miöað við, að þeir, sem fullnægja einu eöa fleiri eftirfarandi skilyrða, verði teknir I Hl. a) hafi lokið stúdentsprófi, b) hafi lokiö öðru sambærilegu námi eða þvi sem fullnægjandi undirbúningur undir visst ákv. háskólanám telst, c) hafi náð 35 ára aldri. Siöan skuiu þessi skilyrði rýmkuð I áföngum. Aldurstak- markiö fært niður 1 t.d. 25 ár og undirbúningsnámskröfur gerðar eins viðar og sveigjanlegar og framast er unnt. III. Með inntöku I Ht á SHl aö sjálfsögöu við full réttindi viö- komandi til ,aö gaagast undir próf, áfanga- sem embættispróf. Leggja ber áherzlmá að auka húsrými og f jölga kennaraliði viö Hl, til þess að þeir þaattir standi ekki I vegi rýmri inntöWuskilyrða. Ennfremur er nauðaynlegt aö gera þeim mönnum loeift, sem litið skortir til að fullitegja inn- tökuskilyrðum I b)-lið, að auka menntun sina á viökomandi sviði á fljótlegan hátt. Greinargerð: Lita má svo á, að hlutierk Há- skólans I hinu stærra þjcCfélags- samhengi sé þrenns konar: 1 fyrsta lagi menntar h@nn og þjálfar menn I ýmsar sérþæföar stöður i atvinnu- og stjóinkerfi þjóðfélagsins. t öðru lagi útdeilir hann Iformi menntunar ýmsum þeim ijðrum félagslegum gæöum, sem eftir- sóknarverð teljast, t.d. auii og völdum. Sem sllkur gegnir hann mikilvægu hlutverki I viðbaldi stéttakerfis þjóöfélagsins. '■ t þriðja lagi er Háskólinn teöa öllu heldur hefur tækifæri ti) aö vera virkt breytinga- og framfcró- unarafl i samfélaginu i krafti þeirrar sérþekkingar sem hpnn hefur yfir að ráða. Sú stefna i inntökuskilyrðum, sem Háskólinn hefur fylgt fram aö þessu, tekur einkum og sér i lagi mið af hinu fyrsta þessara þriggja hlutverka, sem SHt hefur kosið að eigna Háskólanum. Þ.e.a.s. inntökuskilyrði virðast a.m.k. til skamms tima hafa veriö sett með það i huga að framleiða úr stöðluðu hráefni tannhjól I meira og minna staöl- aðar stöður þjóðfélagsins á sem ódýrastan hátt. Segja má að þessi stefna nái hámarki i skýrslu há- skólanefndar frá 1968. Það er hins vegar skoðun SHÍ, að rétt sé aö skoða inntökuskilyröi I Háskólann ekki siður I ljósi þeirra hlutverka annarra, sem Háskóli Islands gegnir óneitan- lega. Stöðlun háskólanáms og ströng inntökuskilyrði draga vafalaust úr gagnrýnni afstöðu Háskólans til hinna ýmsu þjóðfélagsþátta, en slik afstaða Háskóla tslands er að áliti SHl bæði gagnleg og nauð- synleg I framþróun þjóöfélagsins. Einnig eru ströng inntökuskil- yrði og timaákvæöi i námi til þess fallin að halda háskólanámi á stigi sérréttinda hærri stétta I þjóðfélaginu, en slíku er SHt algerlega andvigt. Af þessum ástæðum m.a. hefur SHl markað ofangreinda stefnu SHl varðandi inntökuskilyrði i Háskóla Islands. Um þennan kafla stóð mestur styrinn, og hefur honum verið breytt i meginatriðum. Næst kemur stuttur kafli sem bætt var viö i seinni geröinni. Nefnist hann Náms- og kennslu- fyrirkomulag,og birtum Við hluta af honum. Við teljum markmið kennsl- unnar geta verið og eigi að vera: a) gagnrýnin skoðun nemenda á greininni. b) að vekja og halda vakandi áhuga nemenda á greininni. c) kennsla starfsaðferða og kynning á uppbyggingu greinar. d) greining aðalatriöa frá aukaatriðum. e) umsjón meö aö nemandi fái beitt þekkingu sinni. f) útskýring flókinna atriða. Viö teljum að þessum atriöum verði bezt komiö til skila meö kennslu i umræðuformi (seminarformi), en fyrirlestrum beri að fækka mjög og hlutverki þeirra verði breytt. Þetta hefur veriö eitt helzta baráttumál stúdenta I sambandi við bætta kennsluhætti I mörg ár, en árang- ur þeirrar baráttu verið litill. Má þvi ætla að þörf sé á róttækari baráttuaðferðum. Næsti kafli heitir Próf.og birt- um við smáhluta af honum. Þetta skal látið nægja um stefnu SHl um menntamál. 2. Verkefnaúrvinnsla nemenda á námstímanum (Þ.e. ritgerðir, skýrslur o.s.frv.) skal gilda til áfanga- eða lokaprófa. 3. Stefnt skal aö vlðtækara mati, þ.e. prófað verði á breiöum grundvelli úr aðalatriðum náms- efnis og lögð áherzla á, að nem- endur þekki sem flestar hliðar þess. 4. Leyfa skal notkun handbóká og annarra gagna á prófum, þar sem þaö á við, enda sé þess getiö i marklýsingu. 5. Einkunnagjöf verði einfölduð eins og hægt er og samræmd milli allra deilda Háskólans. Við mæl- um með notkun þriggja-einkunna- stigans, þ.e. aö einkunnir veröi: fallið-staðið-staðiö með sóma.— Stúdentar er verða á fallmörkum verði prófaðir munnlega aftur skömmu eftir prófið. Að lokum er það stefnuskrá hagsmunanefndar. Fyrst er kafli um námsaöstoð, og birtum við þann hluta hans sem fjallar um fyrirkomulag og markmið náms- aðstoðar. Form: Námsaðstoð getur veriö I ýmsu formi. Hún getur falizt I kynningu og útbreiðslu upplýsinga um þær námsleiöir, sem til boða standa, og eiginleika og möguleika hverr- ar fyrir sig. Hún kann að vera I formi óbeins fjárhagsstuðnings t.d. ódýru húsnæði, fæði o.þ.h., eöa i formi beins fjárhagsstuðnings o.s.frv. Hér á eftir er f jallað um beina fjárhagslega námsaðstoö,einkum með tilliti til námsmanna á há- skólastigi. Markmið: SHl telur, aö beint fjárhagsl. námsaðstoðarkerfi skuli stefna að og vera I sem beztu samræmi við eftirtalin markmið, aöal- markið A og undirmarkmið B. A. Markmið fjárhagsl. námsaö- stoöar er að allir geti sótt það nám, sem þeir kjósa og er þjóöfé- lagslega viðurkennt án tillits til efnahagslegra aöstæðna. B. Undirmarkmiö. a) Námsaðstoð^má ekki stuðla að eða vera einn þátturinn enn i hinum félagslegu forréttindum hinna menntuðu stétta, sem nú- verandi þjóðskipulag hefur skap- aö. b) Námsaðstoð má ekki verða til þess aö slita enn meir tengslin milli námsmanna og mennta- manna og hinna vinnandi stétta þjóðfélagsins. c) Námsaðstoð skal ekki bæta aðstöðu þeirra, sem þegar hafa næg efni til náms, þ.e.a.s. henni skal aðeins skipt með þeim sem ekki hafa slik efni i samræmi við fjárþörf þeirra. d) Námsaöstoð skal ekki vera þess eðlis, að þiggjendur hennar veröi verulega illa settir vegna hennar siðar á ævinni, þ.e.a.s. hún skal ekki vera frestun á fjár- hagserfiðleikum vegna náms. e) Námsaðstoð skal ekki vera þess eðlis að hún hvetji til veru- legrar vannýtingar á innlendum fjármunum eða óhóflega langs námstíma. Þessi markmið, sem hér hafa veriö upp talin, eru i samræmi við og reyndar byggð á þeirri skoðun SHt, að námsaöstoðarkerfi eigi fyrst og fremst aö stuöla aö fyllra og raunhæfara jafnrétti þjóðfé- lagsþegnanna, en ekki aðeins vera eitt af tækjunum til að út- vega islenzkum atvinnuvegum það sérhæfða vinnuafl, sem þeir krefjast. Og við ljúkum þessi með tveim köflum sem fjalla um barnaheim- ilis- og húsnæöismál. Barnaheimilismál: Barnaheimilismál stúdenta verða tekin til endurskoðunar. Stefna skal að þvi, að börn stúdenta verði ekki alin upp á stofnunum, þar sem þau eru ein- angruð frá öörum hópum og stétt- um þjóðfélagsins. Til þess að sllkt sé mögulegt, álltur SHt, að stúdentar eigi ekki að reka sérstök barnaheimili, heldur sé æskilegra að ná samn- ingum við Sumargjöf um það, að stúdentar fái ákveðinn fjölda á hinum ýmsu dagheimilum borg- arinnar. Meö þvi móti geta stúdentar komið börnum slnum fyrir á þvi dagheimili, sem þægi- legast er fyrir þá meö tilliti til bú- setu. Þessum rúmum, sem stúdentar fá, verði úthlutað af barna- heimilisnefnd stúdenta eftir regl- um sem SHt setji. Húsnæðismál: SHt álitur, að ekki eigi að leysa húsnæðismál stúdenta með bygg- ingaframkvæmdum fyrir þá eina. SHI mun stefna að þvl, að markmið hjóna- og stúdenta- garða verði tekin til endurskoð- unar, og vinna að þvi, að lausn á húsnæðismálum verði fundin i samvinnu við aöra aöila sem hagsmuna hafa að gæta i þessum málum, svo sem launþegasam- tökin, félag einstæðra foreldra, aðra námsmannahópa o.s.frv. Mun SHI hefja viðræður viö þessa aðila sem fyrst. —ÞH Kópavogsapótek Opið öll kvöld til kl. 7, nema laugardaga til kl. 2, sunnudaga milli kl. 1 og 3. Simi 40102. SAMVl N N UBANKINN ■ AKHANESI GHUNDARFIRDI PATREKSFIRDI SAUDARKROKI HUSAVIK KOPASKERI VOPNAFIRDI STODVARFIRDI VIK I MYRDAL KEFLAVIK HAFNARFIRÐI REYKJAVlK SAMVINNUBANKINN LITLISKÓGUR Herrabuxur Terelin kr. 1785 Herrabuxur Baconkr. 1525 (i yfirstærðum) Gallabuxur kr. 485 Vinnuskyrtur kr. 365 Prjónanælonskyrtur kr. 495 LITLISKÓGUR Snorrabr. 22 Sími 25644 Saásioirí ht L/ i^nvrncv inunnivprai n INDVERSK UNDRAVERÖLD Nýjar vörur komnar, m.a. ilskór, útskorin borö, vegghillur, vegg- stjakar, könnur, vasar, borðbjöilur, öskubakkar, skálar og mangt fleira. Einnig reykelsi og reykelsiskerin I mikiu úrvali. Gjöfina sem veitir varanlega ánægju fáið þér I JASMÍN Laugavegi 133 (viö Hiemmtorg) HBiaauiíftflBifHiiii Prentsmiðja Þjóðviljans tekur aö sér alls konar setningu og prentun. Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Skólavörðustíg 19 Sími 17505 Xmnkinn er Xmklijarl rBÚNAÐARBANKINN FÉLAG ÍSLENZKRA HUOMUSTARMANKA Jfljk úlvegar yður hljóðfœraleikara og idjómsveitir við hverskonar lœkifœri ‘ isiini^ast hringið í ^10255 miiii kl. M-i?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.