Þjóðviljinn - 14.03.1973, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVJL.IINN Miövikudagur 14. marz 1973
Auglýsing
um fræðimannastyrki og styrki til nátt-
úrufræðirannsókna.
Menntamálaráð úthlutar á þessu ári 800
þús. kr. til fræðistarfa og náttúrufræði-
rannsókna.
Umsóknir eiga að hafa borizt Mennta-
málaráði fyrir 10. april n.k.
Umsóknareyðublöð fást i skrifstofu ráðs-
ins, Landshöfðingjahúsinu við Skálholts-
stig.
Menntamálaráð íslands.
Lektorsstaða við
Uppsalaháskóla
Staða lektors i islenzku máli og bókmennt-
um við háskólann i Uppsölum er laus til
umsóknar.
Staðan verður veitt frá 1. júli n.k., en
kennsla hefst 1. sept. n.k. Laun eru nú
sæ.kr. 5,400,- á mánuði. Kennsluskylda er
396 stundir á ári, og á Stokkhólmsháskóli
rétt á, að helmingur hennar sé inntur þar
af hendi.
Umsóknum, er greini frá menntun og fyrri
störfum, ásamt fræðilegum ritum um-
sækjenda skal skilað til Heimspekideildar
Háskóla Islands fyrir 15. april n.k., en þær
stilaðar á Institutionen för Nordiska sprák
vid Uppsala Universitet.
Fulitrúastarf
Fulltrúastarf hjá Bókaútgáfu Menningar-
sjóðs er laust til umsóknar.
Umsóknir, er greini frá aldri, námsferli
og fyrri störfum, sendist Bókaútgáfu
Menningarsjóðs, Skálholtsstig 7, fyrir 25.
marz n.k.
’ : / "'*•
" V r>-"'
Simastúlka
Óskum eftir að ráða simastúlku, nokkurra
ára reynsla ásamt enskukunnáttu nauð-
synleg. Ráöning nú þegar eða eftir sam-
komulagi.
Þoiin, si-m eiga eldri umsóknir hjá fyrirtækinu.er bent á
að hafa samband við starfsmannastjóra.
Umsóknareyöublöö fást hjá bókaverzlun Sigfúsar
Kymundssonar, Austurstræti, Reykjavfk og bókabúö Oli-
vers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar eigi sföar en 23. marz 1973 i póst-
hólf 244, Ilafnarfiröi.
ÍSLENZKA ÁLF’ÉLAGIÐ H.F.
STRAUMSVÍK
INDVERSK UNDRAVERÖLD l-ÆM J l
Nýjar vörur komnar, m.a. ilskór,
útskorin borö, vegghillur, vegg-
stjakar, könnur, vasar, boröbjöllur,
öskubakkar, skálar og mangt fleira.
Einnig reykelsi og reykelsiskerin I
miklu úrvali.
Gjöfina sem veitir varanlega ánægju
fáið þér i
JASMÍN
Laugavegi 133 (viö Hlemmtorg)
ORÐIÐ ER LAUST
Að treysta
Efnahags-
bandalagi
Ef menn lita á baráttu norskrar
alþýöu gegn EBE og tilraun
norskrar rikisstjórnar og ein-
okunarauövalds viö aö binda
landiö EBE sést aö bandalagiö er
ekkert annaö en skipulagstæki v-
evrópsks auövalds til aö auka
arörán og tryggja borgara-
stéttum V-Evrópu hámarks-
gróöa. Frjáls fjármögnun, frjáls
tilflutningur gróöa, frjáls flutn-
ingur vinnuafls og tollafriöindi
eru einkennismerki heimsvalda-
stefnu EBE. Willy Brandt, friöar-
verölaunahafi Nóbels, sagöi i
fyrra i viötali, aö ekki væri annaö
fyrirsjánlegt en aö stofna bæri
Evrópuher fyrir áriö 1980 til
„öryggis”. Ekki sagöi friöarpost-
ulinn til hvers nota ætti heraflann
— varla veröur þaö gegn NATO,
ekki Bandarikjunum, ekki
Varsjárbandalagslöndunum, sem
efla dag hvern viöskiptin viö
EBE.
Einokunarauðvaldinu og
Borgarastéttum V-Evrópu stafar
mest hætta af hinum arðrændu
verkalýösstéttum i sérhverju
bandalagslandi, enda var banda-
lagiö stofnaö og eflt til mótvægis
viö baráttu þessa arörænda f jölda
og til aö bæta samkeppnisaö-
stööuna viö bandarískt ein-
okunarauövald.
A bak viö fátækrahverfi
evrópskra stórborga, innflutta
réttindalausa láglaunamenn,
atvinnuleysi miljóna og fasiskar
lögreglusveitir hreykja auðmenn
Evrópu sér, en Morgunblaöiö og
þingmenn islenzkrar borgara-
stéttar meö heildsalann Geir
Hallgrimsson I broddi fylkingar
lofa vestræna samvinnu. Smá-
fyrirtæki hverfa, sveitir eru
rúnar bændum, atvinnuleysi
eykst, fátækrahverfin stækka og
nattúran eyöilögö og islenzk
borgarastétt hjalar: „Tengjumst
lýöræöisþjóðum Evrópu I nafni
einstaklingsfrelsisins”. Þeir lofa
frelsiö, sem hafa þaö til aö lifa af
annarra vinnu. Svo er „heims-
kommúnismanum” kennt um
fátæktina i rikustu löndum heims
og atvinnuleysiö.
Ariö 1961 ætlaöi islenzk
borgarastétt með Sjálfstæöis-
flokkinn aö bakhjarli, rikisvaldiö
og krata aö ganga IEBE. Eftir
athugun þótti islenzkur iönaöur
ekki nógu samkeppnisfær i risa-
bandalaginu og hætta á aö út-
geröarauövaldiö tapaöi á inn-
göngunni. Þess vegna var máliö
saltaö og rætt um tollabandalag.
Þá baröist Sóslalistaflokkurinn
og kosningabandalagiö Alþýðu-
bandalagiö gegn EBE af þó
nokkru afli.
Ariö 1972, f tiö rikisstjórnar,
sem Alþýöubandalagiö er aöili
aö, er alltieinu geröur samningur
viö EBE — fyrir „þjóöarhag” og
til aö efla isl. útflutningsverzlun.
tslenzk alþýöa vissi ekkert nema
þaö sem barst I stuttum fréttatil-
kynningum rikisstjórnarinnar,
engar opinberar umræður voru,
engir fundir stjórnarflokkanna,
engar skýrandi greinar I
stjórnarblööunum, ekkert. Svo
þegar andstæöur útgeröarauö-
valds og verzlunarauövalds fóru
aö hafa veruleg áhrif á gang land-
helgismálsins og samningar viö
Breta og V-Þjóöverja lágu i
loftinu kom i ljós aö skilyröi
fylgdi EBE-samningunum. Þaö
þurfti „viöunandi” lausn á land-
helgismálinu svo tollafriöindi fyr-
ir sjávarútvegsafurðir islenzks
auövalds gengju i gildi.
Þrátt fyrir aö rikisstjórn
Islands viti fullvel aö aöaland-
stæöingar hennar i landhelgis-
málinu, brezkt og v-þýzkt ein-
Okurnarauövald, er meö þrótt-
mestu öflunum aö baki EBE,
gerir hún samning — einnig i
nafni Islenzkrar alþýöu — viö
EBE og undirritar hann. Og svo
segir Þórarinn Þórarinsson, full-
trúi SlS-auövaldsins á þingi og
formaöur utanrikisnefndar
Alþingis, aö rikisstjórnin treysti
forráöamönnum EBE til þess aö
nota ekki skilyrðin til þving-
unar!!!
Er von til þess aö menn treysti
EBE til góöverka ef þeir lita á V-
Evrópu eöa hatramma baráttu
norksrar alþýðu gegn EBE?
Hvernig erþaö: Treystir Alþýöu-
bandalagiö, sem stjórnaraöili, og
Þjóöviljinn, sem málgagn þess, á
velvilja forráöamanna stærsta
auöhringabandalags heims?
Einu sinni var efling stéttarvit-
undar verkalýös og þróttmikil
þátttaka I stéttabaráttunni talin
varöa leiö til sósíalisma — og svo
er viöa enn.
Þjóöviljinn ber markoröin:
Málgagn sósíalisma, verkalýös-
hreyfingar og þjóðfrelsis.
„Hverju treystir hann?”, spyr
Alþýöubandalagsfólk.
Ari Trausti
Verzlunar- og iðn-
aðarlóðum úthlutað
A fundi borgarráðs sl. föstudag
voru samþykktar eftirfarandi til-
lögur lóöanefndar um úthlutun á
verzlunar- og iönaöarlóöum:
Sigtún 1: Bilaleigan Vegaleiöir,
Hverfisg. 103.
Hyrjarhöföi2: Armann Guöna-
son, Hrisateigi 18
Tangarhöföi 8, 10, og 12: Arni
Gislason, Dugguvogi 23.
Vagnhöföi 1-3: Vélsmiðjan
Normi, Súðarvogi 26.
Bildshöföi 20: Þórisós s.f., Siöu-
múla 21.
Bíldshöföi 16: Gamla Kompaniiö,
Sföumúla 33.
Funahöföi 1: Sveinn Jónsson,
Breiöageröi 37.
Hamarshöföi 6: Skúti h.f.,
Grundarlandi 24.
Tangarhöföi 5: Steinprýöi h.f.,
Norðurbrún 28.
Tangarhöföi 7: Birgir Sigurösson
og Haukur Ingibergsson,
Asvallagötu 33.
Tangarhöfði 9: Siguröur og
Gunnar Jenssynir, Hraunbæ 183.
Tangarhöföi 11: Blikksmiöja
Gylfa, Ingólfsstræti 21 B.
Tangarhöföi 13: Guömundur
Höskuldsson, Heiöarbæ 2.
Vagnhöföi 20 og Tangarhöfði 15:
Sjóvá h.f., Ingólfsstræti 5
Vagnhöföi 5: Völur h.f., Siöumúla
21.
Vagnhöföi 14: Bjarni Gunnars-
son, Ármúla 34.
Vagnhöföi 16: Daviö og Eggert
Óskarssynir, Bakkagerði 7.
Vagnhöfði 18: Björn og Ragnar,
Slðumúla 18.
v/Bæjarháls: Vifilfell h.f.,
v/Hofsvallagötu.
v/Tunguháls: Plastprent h.f.,
Grensásvegi 7
v/Tunguháls: Islenzk-Ameriska
verzlunarfélagið h.f., Suður-
landsbraut 10.
Ennfremur var samþykkt aö
gefa fyrirheit um úthlutun eftir-
greindra lóöa fyrir verzlanir og
iönaö:
Armúli 15: Blossi s.f., Skipholti
35.
Ármúli 17: Isól, Skipholti 17, og
Július Sveinbjörnsson, Veltu-
sundi 1
Armúli 20: Viriöjan h.f., Miðtúni
13
Armúli 25: Póstur og simi,
v/Austurvöll.
Siöumúli 7: Bilanaust, Bolholti 4.
Suöurlandsbraut 22: Ljós og Orka
s.f., Suöurlandsbraut 12 og
Toyota-umboðiö, Höföatúni 2.
Suöurlandsbraut 24: Hafrafell
h.f., Grettisgötu 21, og Bilahlutir,
Suðurlandsbraut 60.
v/Borgartún — vesturhluta:
Austurbakki h.f., Stigahliö 45-47,
og Pfaff, Skólavöröustig 1 A.
v/Borgartún — austurhluta: Set-
berg, Freyjugötu 14, og Egill
Guttormsson, heildverzlun,
Grófinni 1.
Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut-
hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta með
svartri rönd.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F.
Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 30688