Þjóðviljinn - 14.03.1973, Blaðsíða 13
Miövikudagur 14. marz 1973 ÞJÓDVILJINN — StÐA 13
HRAFNINN
SAKAMÁLASAGA EFTIR STEN WILDING
Þorsteiun frá llamri tekur saman þátt og flytur ásamt Guörúnu
Svövu á kvöldvökunni i kvöld. Þátturinn lieitir aö þessu sinni
..Báröur minn á Jökli".
fara og treysti mér ekki til að
hugsa það niður I kjölinn. Kaldur
andblær barst yfir vatnsflötinn og
það fór um mig hrollur
— Hvað segið þér til að mynda
um sambandið milli Astu Thorén
og dóttur hennar? sagði Koch.
— Jú... frú Thorén virðist að
visu ekkert hrifin af ástamálum
Súsönnu. Hún virðist lita á dótt-
urina sem persónulega eign og
vildi helzt móta lif hennar að
eigin geðþótta. Og það er i sjálfu
sér ekkert óvenjulegt.
Koch kinkaði kolli.
— Ég hef áður rekizt á svipuð
tilfinningatengsl milli foreldra og
barna, sem haft hafa örlagarikar
afleiðingar, sagði hann. — Asta
Thorén er mjög einmana kona,
hún á engan að nema dótturina og
vill tengja hana við sig eins sterk-
um böndum og unnt er. En Sus-
anna skeytir ekki um hana, ögrar
henni beinlinis, og hleypur bók-
staflega frá einum karlmanni til
annars. bér getið reitt yður á að
frú Thorén hefur legið andvaka
marga nóttina og alið með sér
hatur á þessum karlmönnum.
— Meira að segja á Andersi,
sem leyfði henni að búa hér á
bænum?
Lausn á siðustu
krossgátu
I = L, 2 = A, 3 = N, 4 = G, 5 = R,
6 = Æ, 7 = K, 8 = 1, 9 = þ, 10 = F,
II = B, 12 = Y, 13 = 0, 14 = Ó, 15 = Ð,
16 = E , 17 = D, 18 = M , 19 = T,
20 = U, 21 = S, 22 = H, 23 = V, 24 = 0,
25 = É, 26 = 0, 27 = J, 28= A, 29 = Ý
— Hvers konar sálfræðingur
eruð þér, Linder? Fyrir bragðið
stóð hún i þakkarskuld við hann
og það getur leyst margt illt úr
læðingi. Trúlega hefur hann
staðið efstur á listanum — hann
var meira að segja kvæntur
dótturinni, vei, vei! Fyrst og
fremst var það hann sem tekið
haföi Súsönnu frá móður hennar.
— Jæja, segjum þá að frú
Thoren sé hugsanlegur mögu-
leiki, sagöi ég.
Koch sló úr pipunni.
35
— Við skulum ganga á röðina.
Og þá er komið að ungfrú Casp-
arsson.
— Ingelu? sagði ég agndofa.
Koch virtist dálitið vandræða-
legur og hann horfði út yfir
dökkan vatnsflötinn. Það þaut
lágt I skóginum yfir höfðum
okkar.
— Súsanna Uvmark og Ingela
Casparsson eru bernskuvinkonur,
sagði hann með hægð. bótt leiðir
þeirra skildust og þær hafi fjar-
lægzt hvor aðra á ytra borðinu,
hafa þær alltaf haldið sambandi
sin i milli. bað er mjög óvana-
legt...
Hann virtist vera að leita að
orðum og forðaðist að lita i augu
mér.
— Nú? sagði ég. — Hvaða
ástæðu ætti hún að hafa?
Hann hikaði.
— Hið sama og Ingvar Vern-
berg.
— bér haldið þá ... eruð þér að
gefa i skyn ... nei, fjandinn fjarri
mér!
Ég barði lófanum á stein-
helluna og leitaði að fáeinum vel
völdum orðum að lesa yfir
Pontusi Koch lögreglufulltrúa.
Hann gretti sig.
— bér getið reitt yður á að mér
þykir ekkert gaman að tala um
þetta við yður, en hér er um
morðrannsókn að ræða, sagði
hann. — bér þekkið ungfrú
Carparsson betur en ég ... eruð
þér sannfærður um að hún og Sús-
anna séu ... bara góðar vinkonur.
Ég svaraði ekki spurningunni
og ég vonaði að þögn min segði
meira en nokkur orð. Koch tók
upp steinvölu og fleygði henni
langt út á vatnið.
— Jæja, gleymið þessu, tautaði
hann.
— Við höfum ekkert upp úr
þessu, sagði ég bitur i bragði. —
Og ef við erum búnir að ræða nóg
um hugsanlega morðingja, þá
ættum við kannski að halda heim-
leiðis, hann virðist ætla að fara að
rigna.
Skýin höfðu dökknað enn og
þyturinn i skóginum fór vaxandi.
Við eigum eina manneskju
eftir, sagði Koch stiliilega.
— Hverja?
— Súsönnu sjálfa.
Ég varð öldungis dolfallinn.
— Eigið þér við. . . að hún. . .
— Kona sem myrðir eiskhuga
sina jafnóðum og hún þreytist á
þeim. . . tautaði hann. — bað hef-
ur gerzt fyrr i veraldarsögunni.
Og það gefur einnig skýringu á
þvi hvers vegna Ingvar Vernberg
er enn á lifi.
— En hvers vegna i ósköpun-
um. . .
— Konur geta hatað elskhuga
sina innst inni, það er ekki óvana-
legt. Og ef konan er auk þess
sjúklega eigingjörn og hrædd við
að hleypa neinum of nærri sér,
geta viðbrögðin orðið ofsafengin
þegar hún gerir það.
Ég þorði ekki að gera neinar at-
hugasemdir við þetta. Ég vissi
bersýnilega ósköp litið um konur.
— Ætti Súsanna þá að vera af
þeirri manngerð? sagði ég i stað-
inn.
— bað væri ekki fráleitt með
þvi uppeldi sem hún hlýtur að
hafa fengið hjá móður sinni.
Hvert er yðar eigin álit?
Ég velti þessu fyrir mér.
— Já, þér hafið ef til vill rétt
fyrir yður. — Eigingjörn — það er
hún sennilega. . . móðursýkis-
hneigð hefur hún trúlega lika, hún
vill vera miðdepill og það sem allt
snýst um og gerir allt til þess að
svo sé. En svona fólk stendur
sjaldan i nánum tilfinninga-
tengslum við aðra, og komist ein-
hver inn fyrir skelina getur auð-
vitað ýmislegt gerzt —
Koch kinkaði kolli og fór á ný að
troða i litlu, gulu pipuna sina og á
meðan tóku fyrstu regndroparnir
að falla. Ég hlustaði á hvísl þeirra
i greinunum fyrir ofan okkur og
horfði á hringina sem dreifðust
um dökkan vatnsflötin.
— Já, þarna lá lik Bolins, sagði
Koch óvænt og upp úr þurru. —
Hverskyldi hafa sökkt þvi þar. . .
— Já, það er nú verkurinn,
umlaði ég.
Hann virtist ekki heyra hvað ég
sagði.
— Og ég er að velta fyrir mér,
hvort ég geti ekki bráðum leyft
mér að koma með ágizkun. . . hélt
hann áfram.
— bér eigið þá við. . . að yður
gruni hver morðinginn er?
Ilann benti inn með ströndinni.
— Nælonlinan sem við fundum
þarna. . . ég held að hún sé lausn-
in á gátunni. . .
1 næstu andrá reis hann snöggt
á fætur.
— Nei, ég held við verðum að
fara heim, sagði hann með allt
öðrum raddhreim, rétt eins og
aldrei hefði verið tii nein morð-
gáta. Regnið fer vist vaxandi.
Við lögðum af stað gegnum
fjandsamlegan skóginn, sem
veitti okkur þó nokkurt skjól fyrir
regninu sem jókst óðum aö styrk.
begar við komum upp að braut-
arteinunum vorum við þó orðnir
holdvotir, ég bretti upp jakka-
kragann og við hertum gönguna.
— Við verðum eins og hundar
af sundi dregnir þegar við kom-
um heim, sagði ég og gaut augun-
um á vel pressuð jakkaföt Kochs;
sjálfur virtist hann engar áhyggj-
ur hafa af þeim.
Við hlupum næstum við fót þeg-
ar við vorum komnir inn i gilið
milli hamraveggjanna. Svo
Miðvikudagur
7.00. Morgunútvarp.
Veöurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.) 9.00
og 10.00 Morgunbænkl. 7.45.
M orgunleikf imi kl.7.50.
Morgunstund barnanna
8.45. Geir Christensen endar
lestur sögunnar
„Bergnuminn I Risahelli”
eftir Björn Rogen I þýð.
Isaks Jónssonar (10).
Tilkynningar kl. 9,30. bing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög á
milli liða. Ritningarlestur
kl. 10.25. Séra Kristján
Róbertsson les úr bréfum
Páls postula (21) Sálmalög
kl. 10.40. Fréttir kl. 11.00.
Tónleikar. Jean-Pierre
Rampal og Antiqua Musica
hljómsveit leika flautukon-
serta eftir Johann Joachim
Quantz og Johann Adolf
Hesse. / Rita Streich og
drengjakórinn I Regensburg
syngja þjóðlög. / Mozart-
hljómsveitin I Vin leikur
þýzka dansa eftir Mozart.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar
14.15 Ljáðu mér eyra. Séra
Lárus Halldórsson svarar
spurningum hlustenda.
14.30 Slödegissagan: „Jón
Gerreksson” eftir Jón
Björnsson. Sigríöur Schiöth
les (31).
15.00 Miðdegistónleikar: ls-
lenzk tónlist. a.
„Svartfugl,” tilbrigöi fyrir
orgel eftir Leif bórarinsson.
Haukur Guölaugsson leikur.
b. Lög eftir Skúla Halldórs-
son. Hanna Bjarnadóttir
syngur. Höfundurinn leikur
undir. c. Barokk-svlta fyrir
pianó eftir Gunnar Reyni
Sveinsson. Ölafur Vignir
Albertsson leikur. d. Lög
eftir Jórunni Viðar.
Guömunda Ellasdóttir
syngur. Höfundur leikur á
planó. e. „Skúlaskeiö”, tón-
verk fyrir einsöng og hljóm-
sveit eftir bórhall Arnason.
Guðmundur Jónsson og Sin-
fóniuhljómsveit Islands
flytja, Páll P. Pálsson
stjórnar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veöurfegnir.
18.00 Jakuxinn. Myndasaga
fyrir börn. býðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
bulur Andrés Indriðason.
18.10 Maggi nærsýni Teikni-
myndir. býðandi Garöar
Cortes.
18.25 Einu sinni var... Gömul
og fræg ævintýri færð I leik-
búning. Brúðkaup flug-
unnar. Bátasmiðurinn. Gröf
rika mannsins. bulur
Borgar Garöarsson.
18.45 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 botufólk. Bandarlskur
gamanmyndaflokkur.
býðandi Jón Thor Haralds-
son.
Tflkynningar.
16.25 Popphornið.
17.10 Tónlista rsa g a . Atli
Heimir Sveinsson sér um
þáttinn.
17.40 Litli barnatiminn. Gróa
Jónsdóttir og bórdis As-
geirsdóttir sjá um timann.
18.00 EyjapistiII. Bænarorð.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 A döfinni. Viðræðuþáttur
I umsjá Magnúsar Finns-
sonar blaöamanns.
20.00 Kvöldvaka. a.
Einsöngur. Eiöur Á. Gunnars-
son syngur lög eftir ýmsa
höfunda. Guörún Kristins-
dóttir leikur undir á planó.
b. Feigur Fallandason.-'
Sverri* Kristjánsson sag.
fræðingur flytur lokakafla
frásögu sinnar af Bólu-
Hjálmari c. Visnamál.
Adolf J. E. Petersen fer meö
stökur eftir marga höfunda.
d. Ur heimi dýranna.
Guömundur borsteinsson
frá Lundi flytur tvo stutta
frásöguþætti: „Hvað mæBk
Óöinn I eyra Baldri?” og
Alykta álftirnar? e.
„Bárður minn á Jökli.” bor-
steinn frá Hamri tekur
saman þátt og flytur ásamt
Guðrúnu Svövu Svavars-
dóttur. f. Um islenzka
þjððhætti. Arni Björnsson
cand. mag. flytur. g.
Samsöngur. Söng » flokkur
undir stjórn Jóns Asgeirs-
sonar syngur. Félagar úr
Sinfóniuhljómsveit Islands.
21.30 Að tafli. Ingvar
Asmundsson flytur skák-
þátt.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (20).
22.25 (Jtvarpssagan:
„Ofvitinn” eftir Þórberg
Þórðarson. borsteinn
Hannesson les (16).
22.55 Nútlmatóniist. Halldór
Haraldsson gerir grein fyrir
þvl hvernig á að hlusta á nú-
timatónlist, og kynnir
verkin „Amonshére”,
„Lontanó”, „Continuum”,
og „Aventures” eftir Ligeti.
23.40 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
20.55 Nefertiti, Stutt, egypzk
kvikmynd um drottninguna
Nefertiti, sem uppi var fyrir
um það bil 3300 árum.
býöandi Gisli Sigurkarls-
son.
21.05 Jasssöngvarinn, Banda-
rísk biómynd frá árinu 1927
Myndin fjallar um ævi
söngvarans A1 Jolsons, og
fer hann sjálfur meö aðal-
hlutverkiö. Leikstjóri Alan
Crosland. bessi mynd er ein
fyrsta „tónmyndin” sem
gerð var I heiminum, en I
henni eru einnig prentaðir
textar, sem skýra sögu-
þráöinn. býðandi er Björn
Matthiasson, en formálsorð
flytur Erlendur Sveinsson.
22.35 Dagskrárlok.
Brúðkaup
Sunnudaginn 28. jan. voru gefin saman I Neskirkju af séra Birni Jóns-
syni, ungfrú Kristjana Benediktsdóttir og Niels A Lund, og ungfrú
Guðný Kristin Guttormsdóttir og Kristinn Lund.
(Ljósmyndastofa Þóris.)