Þjóðviljinn - 13.04.1973, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. apríl. 1973.
PIERPONT-úrin
handa þeim, sem
gera kröfur um
endingu, nákvæmni
og fallegt
útlit.
Kven- og
karl-
manns-
úr af
mörgum
gerðum
og verð-
um.
GUÐMUNDSSON,
úrsmiður
Laugavegi 96,
sími 22750
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi að gjalddagi söluskatts fyrir marz
mánuð er 16. april. Ber þá að skila skattin-
um til innheimtumanna rikissjóðs ásamt
söluskattsskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið 12. april 1973.
IÐNFRÆÐSLURAÐ
TANNSMÍÐI
Réttindaveitingar
Menntamálaráðherra hefur með reglu-
gerð nr. 323/72, samanber auglýsingu i 66.
tölublaði lögbirtingablaðsins 1972, gert
tannsmiði að löggiltri iðngrein.
Þeir einstaklingar, sem æskja réttinda i
tannsmiðaiðn skulu senda iðnskýrslur
ásamt tilheyrandi vottorðum til Lands-
sambands Iðnaðarmanna fyrir 1. mai n.k.
Iðnskýrslur eru afhentar hjá Lands-
sambandi Iðnaðarmanna og Iðnfræðslu-
raði.
Reykjavik 11. april 1973.
Iðnfræðsluráð
HELGI
SETJIÐ EKKl OLÍU FYRIR BORÐ
Gleymið ekki ströndum landsins
Olia drepur líka sjófugla
og sjávartíf
siglingamAlastofnun RlKISINS
Þarft
veggspjald
Hjálagt fylgir auglýsinga-
spjald, sem Siglingamálastofnun
rlkisins hefur gefiö út, meö
hvatningu til áhafna skipa um aö
setja ekki olíu fyrir borö. Er
ætlunin aö dreifa þessu spjaldi
um borö I Islenzk skip til aö minna
menn á aö öhreinka ekki strendur
landsins aö óþörfu, né valda
dauöa sjófugla og sjávarlifs.
Norrænir
leikfélags-
menn þinga
um helgina
Aðalþing Nordisk Amatörteater-
rád (NAR) fyrir árið 1973 veröur
haldið að Hótel Loftleiðum
dagana 14. — 18. þessa mánaðar.
Þingið verður sett i ráðstefnu-
sal hótelsins kl. 10,30, laugardag-
inn 14. april af formanni banda-
lagsins Helga Seljan, alþm.
Menntamálaráðherra, Magnús
Torfi Ólafsson, mun ávarpa þing-
fulltrúa, en þar næst munu þeir
Lennart Engström formaður
NAR og Peter M. Schreiber, for-
seti AITA/IATA (Alþjóðasam-
bands áhugaleikara) flytja
kveðjur sinar.
Þá verða væntanlega fluttar
stuttar skýrslur um starfsemi
áhugaleikara á Norðurlöndum á
liðnu ári.
Rit um
Persakóng
tileinkað
keisara
Rimnafélagið hefur gefiö út
ritgerðina Kyrus i islenzkum rim-
um eftir sr. Jakob Jónsson dr.
theol. Er hún aö miklu leyti sama
efnis og fyrirlestur, sem
höfundurinn flutti á fundi fræði-
manna haustiö 1971 i Shiraz i
Iran, þegar þess var minnzt að
2500 ár voru liðin frá þvi að Kyrus
lagði grundvöll að Persaveldi.
Bæklingurinn er tileinkaður
trankeisara, en hann heitir
hvorki meira né minna en
Mohammad Reza Pahlavi
Aryamehr Shahanshah i Iran —
en siöasti titillinn þýðir vist
„konungur konunganna”.
t ritgerð sinni fjallar höf. um
þrennar rimur af Kyrusi, sem til
eru i handritum frá 17. 18. og 19.
öld, kannar heimildir þeirra og
gerir grein fyrir efnismeðferð
skáldanna, jafnframt þvi sem
hann skýrir á hvern hátt þau
heimfæri atburði sögunnar til
sinnar eigin samtiðar og til
mannlifsins yfirleitt.
Ritgerðin er fjórða hefti i
ritararöðinni Aukarit Rimna-
félagsins; en auk þess er á vegum
félagsins nokkuð á veg komið
undirbúningi að útgáfu 11. og 12.
bindis af Ritum Rimnafélagsins.
Veröa þar birtar Blómsturvalla -
rimur eftir Jón Eggertsson og
Bandamannarimur eftir Þorberg
Þorsteinsson.
□□
TEIKNARI JEAN EFFEL
— Hundurinn vill fá rifjasteik