Þjóðviljinn - 13.04.1973, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 13.04.1973, Blaðsíða 15
Föstudagur 13. apríl. 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Sendandi Brotizt inn hjá KB í Borgamesi Ef grannt Framhald af bls. 11. menningur iökaöi skiöa- iþróttina. En meö tilkomu Blá- fjallasvæöisins breyttist þetta. En það var ekki fyrir tilverknaö „Trimm-herferöar”. Dæmi 4: Hin mikla þátttaka i víöavangshlaupum: Forsetinn viðurkenndi aöspuröur aö nær eingöngu börn og unglingar tækju þátt i vföavangshlaupun- um en aö fullorönir þátt- takendur væru hrein undan- tekning. Hvaö stendur þá eftir? Var þaö ekki markmið „Trimm- herferðarinnar” aö fá fulloröiö fólk til aö hreyfa sig? Þaö hefur aldrei þurft aö fá börnin til þess: náttúran sér fyrir þvi aö börnin kalla sjálf á hina nauð- synlegu hreyfingu. Og þaö er ekki „Trimm-herferöinni” aö þakka. aö aukin þátttaka barna og unglinga hefur orðið I viöa- vangshlaupum, heldur einum manni sem alveg hefur staöið utan viö hana, Guömundi Þórarinssyni, hinum ötula þjálfara ÍR. Hann einn á heiöurinn af aukinni þátttöku i víöavangshlaupum. Hann hefur veriö um hverja helgi yfir veturinn i mörg undanfarin ár annaö hvort uppi i Breiðholti eöa niöri i Hljóm- skálagaröi stjórnandi viöa- vangshlaupum. Og öll önnur félög sem fariö hafa út I þetta i hinum ýmsu hverfum borgarinnar og næsta nágrenni hennar hafa fetaö i fótspor Guðmundar. Og manni finnst þaö heldur litilmannlegt af for- ráöamönnum tSt og „Trimm- herferðar” aö slá sig til riddara á kostnað Guömundar Þórarinssonar. Þannig stendur ekkert eftir af skrumi forráðam anna ÍSt varöandi „Trimm-herferðina”, sem i sannleika sagt hefur aldrei nein veriö, utan einn eöa tveir mánuöir i byrjun. Hún hefur algerlega mistekizt, enda ekki til hennar stofnaö af áhuga, heldur vegna sýndarmennsku. —S.dór. Ahugaleysi Framhald af bls. 11. allt búið hjá 1R i sókninni. Maður hefur séð það áður að ÍR-liðið þolir ekki að leikin sé 4-2 vörn gegn þvi, en með þvi móti er keyrsla stórskyttanna hjá 1R stöðvuð og breytir liðið þá ekki um og notar linusendingar: þetta má teljast furðulegt. Að þessu sinni var það Agúst Svavarsson, Gunnlaugur og Brynjólfur sem mest bar á. Einnig átti ólafur Tómasson ágætan leik, einkum i vörninni. Mörk Fram: Axel 6 (2 viti) Ingólfur 5, Þorvaldur 3, Arni 2, Pétur og Andres 1 mark hvor. Mörk ÍR: Agúst 8, Vilhjálmur 3 (3 viti) Brynjólfur 3, Jóhannes 1 og Gunnlaugur 1. Leikinn dæmdu Björn Kristjánsson og Einar Hjartarson. — S.dór. Pósturinn Framhald af bls. 2. skiptir mig ekki máli hver er höfundur margnefndrar visu að öðru leyti en þvi, að eg vil hafa það sam sannara reynist, og þess vegna sendi ég mina „leiðréttingu” að ég hélt að aðrir vildu það einnig-eða hvað? Hér set ég punkt, þvi málið er útrætt af minni hálfu. Skrifað i Reykjavik 30. marz 1973. Ragnar örn. Húsnæðismál Framhald af bls. 6. næðismálastjórnar i þessar fram- kvæmdir. Stefán sagðist treysta núver- andi rikisstjórn til að afla þess fjármagns, sem frumvarpið gerði ráð fyrir. Hann minnti á að 1970 hafi viðreisnarstjórnin i rauninni lækkað lánin til ibúðabygginga, þvi að samkvæmt reglugerð frá 1964 ættu þau nú að vera kr. 925.000,-, en samkvæmt reglu- gerðinni sem Emil Jónsson setti 1970 eigi lánin að vera innan við 800.000,-kr. nú. — Stuðningsmenn viðreisnarstjórnarinnar eiga þvi bara að ásaka sjálfa sig, telji þeir lánin ekki nógu há. Karvel Pálmason sagði að mörg hundruð miljóna króna hafi vantað i húsnæðislánakerfið, þeg- ar Gylfi lét af ráðherraembætti, og sæmdi honum þvi illa að vera með úrtölur nú, þegar gera ætti stórátak i húsnæðismálum lands- byggðarinnar, þó að ekki lægi allt fyrir um fjáröflun. Gylfi Þ. Gislasonsagði, að lánsfé til ibúðabygginga hafi aldrei ver- ið meira né vaxið meira en á ára- tugnum 1960-1970. Hannibal Valdimarsson, fé- lagsmálaráðherra, sagöist ekki vera svo ýkja svartsýnn varðandi fjármögnun þessara framkv.. Um svipað leyti árs i fyrra hafi lika verið mikið talað um, að 500 miljónir vantaði til að fullnægja lánsumsóknum. Þetta hafi þó allt bjargazt með litilsháttar aðstoð Seðlabankans yfir áramótin, — og öllum umsóknum var fullnægt, en Seðlabankinn teldi það ár koma út með 38 miljónir i afgang. Hannibal minnti á, að á árinu 1974 væri áætlað að ljúka Breið- holtsframkvæmdunum, en að þeim loknum hefði Húsnæðis- málastofnun rikisins mun meira fé til ráðstöfunar i aðrar fram- kvæmdir. Lántökur Framhald af bls. 6. þúsundum bandariskra dala. Rikissjóði er heimilaö að taka 150 miljóna króna innlent eða erlent lán til að kosta framkvæmdir Rafmagnsveitna rikisins og skulu 50 miljónir af þessari fjárhæð nýttar til rann- sókna og efniskaupa vegna væntanlegrar samtengingar raf- orku milli Norður- og Suðurlands. Þá er rikisstjórninni heimilt að ábyrgjast innlend eða erlend lán að jafnvirði allt að 172 miljóna króna til framkvæmda rikisins i vega- og raforkumálum. Loks er rikisstjórninni veitt leyfi til að taka allt að'150 miljóna krón lán innanlands eða utan, ef ákveðið verður að hefja byggingu nýrrar hafnar á Suðurlandi vegna eldgossins i Vestmannaeyjum. t lögunum er þess getið, hvernig eyða skuli fé þvi, sem fæst með sölu rikisskuldabréfa og happdrættisskuldabréfa og með töku P.L. lánsins, og skal hér að lokum getið fjögurra stærstu póstanna I þeirri upptalningu. Rafmagnsveitur rikisins, fram- kvæmdir (240 milj.), sveitaraf- væðing (110 milj.), Skeiðarár- sandsvegur (230 milj.) og fram- lag til Framkvæmdasjóðs tslands (150 milj.) 3 tillögur Framhald af bls. 7. in gera tillögur um bætt skipulag vöruflutninga á sjó og landi og i lofti. islenzkar skipasmíðar t þessari ályktun sinni felur Al- þingi rikisstjórninni að láta gera könnun á samkeppnisaðstöðu is- lenzks skipasmíðaiðnaðar við er- lendan. Niðurstaða könnunarinn- ar skal vera til leiðbeiningar stefnu Alþingis og stjórnvalda um nauðsynlega fyrirgreiðslu við is- lenzkan skipasmiðaiðnað. Samstarf að fiskveiðum og sölu Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að beita sér fyrir viðræðum milli tslendinga, Fær- eyinga og Norðmanna um sam- starf þessara þjóða að skynsam- legri hagnýtingu fiskimiðanna á Norð-Austur-Atlanzhafi, verndun fiskistofna og að fisksölumálum. Jafnframt verði athugað, með hvaða hætti Grænlendingar geti orðið aðilar að slíku samstarfi. Einn og einn Framhald af bls. 16. Aflabrögð Sandgerðisbáta eru svipuð og þeirra keflvisku. Þorlákshöfn — Þetta er óttalega tregt hér, einn og einn bátur að fá neista, en hinir með óttalegan ræfil, sagði vigtarmaðurinn i Þorlákshöfn. Þar landa nú að jafnaði 40-50 bátar, og er þaö helmingi fleiri bátar en i fyrra og munar þar mestu um Vestmannaeyingana. Um siðustu mánaðamót var búið að vigta meira i Þorlákshöfn af fiski en allt árið i fyrra, en i þeirri oft lönduðu i Keflavik og Sangerði, á vertiðinni i fyrra. vigtun er að sjálfsögu loðnan og að henni frádreginni er heildar- bolfiskaflinn heldur minni en var á sama tima i fyrra. Flestir bátanna sem leggja upp i Þorlákshöfn eru úti tvo til þrjá sólarhringa, draga tvær til þrjár lagnir af netunum og isa i sig. Snæfellsnes Frekar tregt er hjá Ólafsvikur- bátum og búið að vera um nokk- urn tima, þó hafa komið stuttir kaflar sem veiðin hefur verið eitthvað skárri. Sömu sögu er að segja frá Hellissandi og fá bátar þaðan 4-16 tonn i róðri. 25 bátar eru þaðan á netum og eru þeir ivið fæeiri en i fyrra. Og svo er það blessuð loðnan Klukkan hálf sex i gær höfðu 6 skip tilkynnt um 1100 tonna loðnu- afla, sem fékkst á Breiðafirði. Reykjaborg fékk 320 tonn og fór með aflann til Bolungarvikur, Þórður Jónasson 270 tonn sem hann fór með til Þorlákshafnar, en þangað ætluðu einnig Eld- borgin með 250 tonn, Rauðsey með 100 tonn og Heimir með 80 tonn. Helga II fékk 110 tonn og ætlaði til Reykjavikur með rifna nót. I fyrradag fengu 5 bátar 1100 tonn, Börkur 300, Gisli Árni 280 tonn sem hann fór með til Sand- gerðis, en þangað fór einnig Vonin með 120 tonn. Til Þorláks- hafnar fóru Isleifur með 230 tonn og Skirnir , 240 tonn. Nokkrir bátar eru enn á Breiða- firði, en reiknað var með að flestir bátanna héldu austur á bóeinn, en Börkur fékk eóða loðnu úti af Skaftárósi á miðviku- daginn. Nokkuð erfitt hefur verið að eiga við loðnuna úti af Snæ- fellsnesi, en hún hefur verið mjög grunnt úti af Rifi, og hættir þvi bátunum við að rifa nætur sinar. Nokkuð hefur orðið vart loðnu norðar á Breiðafirðinum og dýpra. -úþ. Samanburður Framhald af bls. 1. Við vekjum sérstaklega athygli á þvi, hvaða sveifla kom i verð- lagsmálin hér innanlands eftir kosningaverðstöðvunina 1967, þrátt fyrir lækkun á erlenda verð- inu. Þær sögur segja býsna mikið um hvers þjóðin hefði mátt vænta að óbreyttu stjórnarfari aö lok- inni siðari kosningaverðstöðvun viðreisnarinnar á árinu 1971. Hvað skyldu Morgunblaðið og Alþýðublaðið segja, ef núverandi rikisstjórn leiddi yfir þjóðina á einu ári hækkun framfærslu- kostnaðar um 21,7% meðan erlent verðlag færi lækkandi? Þetta tókst viðreisnarstjórninni að gera eins og tölurnar sýna. Fjölda hand- tökur- TEL AVOV 12/4. — Fjöldi Araba hefur verið handtekinn i israel og á hernumdu svæðunum af isra- elsku leynilögreglunni. Handtök- ur þessar fara fram eftir að ísra- elsmenn komust yfir skrár i fórum skæruliðasamtaka, er þeir gerðu innrásina i Beirut á þriðju- daginn. Talsmaður israelska hersins sagði, að hér væri um að ræða Araba i Nasaret, Galileu og á vesturbakka Jórdanárinnar. Segjast Israelsmenn þar með hafa komið i veg fyrir hryðju- verk, sem skæruliðar hafi ætlað að vinna i tilefni 25 ára afmælis Israelsrikis I maimánuði. Blaðið MaAriv i Tel Aviv skrifar að nöfn hinna handteknu hafi verið á lista sem fundizt hafi á heimili skæruliðaforingjans Kamal Adwan i Beirut. Hann hafi stjórnað skemmdarverkastarf- semi á yfirráðasvæði Israels. Arabisk skæruliðasamtök hafa sent út viðvörun til sinna manna og sagt þeim að vera varir um sig. Frá fréttaritara Þjóðviljans i Borgarnesi Jenna R. ólafssyni. I fyrrinótt var bortizt inn i Kaupfélag Borgfirðinga i Borgar- nesi og stolið þaðan um 10 þús. kr. i peningum, en skemmdir sem þjófarnir ollu eru metnar á um 100 þúsund kr. Þjófarnir fóru inn i bifreiðastöð KB og þaðan um þrennar dyr inn i sölubúðirnar. Þar leituðu þeir að lausafé i kössunum og fundu þá fyrr nefnda upphæð. Þeim yfir- sást peningakassi sem i var all mikið fé. Einn af peningakössum verzlunarinnar var læstur en raf- magnslaus og brutu þeir hann og eyðilögðu algerlega. Þá létu þeir greipar sópa um útvarpstæki, myndavélar o.fl., en einhver styggð hefur komizt að þeim er þeir voru á leiö með þetta út, þvi að þeir skildu varninginn eftir i stigum. Og ekki nóg með það, heldur skildu þeir eftir sig öll innbrotstólin sln. Grunur beindist fljótlega að mönnum sem voru i bifreið með R númeri en vart haföi verið við hana fyrir utan KB um kl. 5 um nóttina. Lögreglunni i Reykjavík var gert viðvart og mennirnir Bókhlaða kynnir rithöfunda Eftir að Bæjar- og héraðsbóka- safnið flutti i nýtt húsnæði á siðastliðnu ári, var tekín upp sú nýbreytni aö efna til kynningar á ýmsum þáttum, sem tengdir eru safninu. Hófst þessi starfsemi á s.l. hausti með sýningu á prentverki i Borgarfirði, en á þeirri sýningu var sögð og sýnd prentsaga i Borgarfirði frá upphafi. Siðan var i byrjun desember efnt til sýningar á málverkum eftirýmsa landsþekkta listamenn og stóð hún i hálfan mánuð. Báðar þessar sýningar hafa verið vel sóttar og starfsemi þessi hlotið góðar undirtektir. 1 framhaldi af þessari starf- semi hefur stjórn safnsins ákveð- ið að efna til höfundakynningar i Bókhlöðunni við Heiðarbraut sunnudaginn 15. april n.k. kl. 16.30. Eftirtaldir höfundar flytja þætti úr ritverkum sinum: Björn Blöndal, Guðmundur Böðvars- son, Jón Helgason, Jón óskar og Þórleifur Bjarnason. A sama tima verður opnuð sýn- ing á bókum og sýnishornum af handritum ofantalinna rithöf- unda. Sú sýning verður opin á safntima til 18. april n.k. Full ástæða er að hvetja fólk til að notfæra sér þetta tækifæri og kynnast borgfirzkum rithöfund- um. teknir þegar þeir komu til Reykjavlkur og sitja þeir nú i varðhaldi hjá lögreglunni i Reykjavík. Afhenti skilríkin Haraldur Kröyer afhenti hinn 10. april s.l. landstjóra Kanada trúnaðarbréf sitt sem sendiherra tslands i Kanada. Reykjavik, 12. april 1973. Ambassador til Hanoi Paris 12/4. — Stjórnir Frakklands og Norður-Vietnam hafa komið sér saman um að skiptast á am- bassadorum, segir i tilkynningu frá franska utanrikisráðuneytinu. Langt er siðan Frakkar og Norður-Vietnamar tóku upp stjórnmálasamband en til þessa hafa aðeins starfaö aðalræðis- mannsskrifstofur i höfuðborgum rikjanna. Ambassadoraskiptin eru þáttur i þeirri viðleitni að bæta vinsam- leg samskipti rikjanna, segir I til- kynningunni. Frakkar hafa ekki haft s t jó r nm á la s a m b a nd við Suður-Vietnam siðan 1966, er de Gaulle sleit sambandinu og krafðist þess að Bandarikjamenn drægju herafla sinn til baka frá Indókina. Búizt er við að Frakkar kunni að taka upp stjórnmála- samband við Suður-Vietnam þar sem bandariski herinn er farinn þaðan. Fyrsti tog- arafiskur- inn eftir verkfall Togararnir eru nú sem óðast að hafa sig af miðunum til lands hér heima eða erlendis með fyrstu farmana eftir verkfall. Kaldbakur landaði i fyrradag 138,7 tonnum hér heima og Narfi 153,5 t. 1 gær var verið að landa úr Vikingi, Mai og Ogra. Sigurður seldi I V-Þýzkalandi 137,2 tonn fyrir 201 þúsund og 100 mörk-Röðull var með 96 tonn 340 kiló, — 2 tonn 360 kiló ónýt og óseld, en fyrir það sem selt var fékk hann 138,178 mörk. Þormóður goði, Bjarni Bene- diktsson, Hallveig Fróðadóttir, Þorkell Mrfni og Karlsefni eru allir á leið til útlandsins að selja afla. -úþ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.