Þjóðviljinn - 27.04.1973, Page 4
4 SÍDA — ÞJÓÐVILJINN! Föstudagur 27. apríl 1973.
Leiðsögumaðurinn er
bezti ferðafélaginn
öll leiðsaga ferðamanna á
islandi skal vera í höndum
þjálfaðra leiðsögumanna,
er hafa öðlazt réttindi og
viðurkenningu til slikra
starfa.
— Þetta er m eginsjónarm ið
Félags leiösögumanna i sam-
bandi viö þaö nýja frumvarp um
skipulag feröamála sem nú liggur
fyrir alþingi. Telur fclagiö að
hlutvcrk leiösögumannsins hafi
ekki hlutiö næga athygli þeirra, cr
frumvarpiö sömdu, ug þurfi því
aö gcra þar á bragarhnt.
Félag leiösögumanna telur aö
island geri meiri kröfur til leið-
sögumanna en flest önnur lönd,
en einnig þurfi aö taka þaö til
greina, aö flestir leiösöguinenn
sinna þvi starfi aðeins takmark-
aöan tima á hverju ári. Þess
vegna þurfi aö festa i lög um
fcrðamál ákvæöi um fræöslu ng
þjálfun leiðsngumanna ng búa
þannig um hnútana aö sem hæf-
astir menn veljist til leiðsögu-
starfa.
Félag leiösögumanna sendir
þvi alþingismönnum i vetur eftir-
farandi uinsögn uin ferðainála-
frumvarpiö — nbeðið:
„Þegar frumvarp til laga um
skipulag ferðamála á Islandi kom
fram, tók stjórn Félags leiösögu-
manna þaö til athugunar og hefur
siðan rætt þaö itarlega á nokkrum
fundum. t þessum umræöum voru
allir sammála um, aö i frumvarp-
ið vanti öll ákvæöi um leiðsögu
störf. Þó mun þaö hafið yfir allan
vafa, að þau eru afar mikilvægur
þáttur ferðamála á Islandi, raun-
ar einn sá sem aldrei má bregð-
ast, hvað sem á dynur.
Ferðamál eiga skamman þró-
unartima að baki hér á landi, en á
siðasta áratug hefur þróunin
verið mjög ör. Um leiðsögustörf
gegnir sama máli, en þó er þvi viö
aðbæta, að skipulag þeirra hefur
verið vanrækt frá byrjun og fram
á þennan dag. Þvi er hópurinn,
sem stundar þau, allsundurleitur
og misfær til starfa.
I gildandi lögum um ferðamál
er Ferðaskrifstofu rikisins l'alið
aðhalda námskeið fyrir leiðsögu-
mcnn, sem hún hefur gerl nokkur
undanfarin ár. Að þeim helur
verið mikil aðsókn, og þau hafa
gert sitt gagn, þó að gagnið hafi
A aliitcnniim fundi Vélstjóra-
félags Suöurnesja, höldnum 21.
april 1973. var samþykkt aö vara
alvarlega við aö leyfö veröi drag-
nóta- og botnvörpuveiöi i Faxa-
flóa, þar sem Faxaflóimi er méö
naumast staðið i réttu hlutfalli við
fjölda þátttakenda, ef til vill
vegna þess að þau hafa ekki
beinzt nægilega að þeim hagnýtu
viðfangsefnum, er telja verður
grundvöll góðrar leiðsögu, veittu
auk þess engan raunverulegan
rétt til starfa.
1 júni 1972 stofnuðu leiðsögu-
menn með sér hagsmunasamtök
leiðsögumanna, og munu nú vera
i þvi flestir þeir, er stundað hafa
leiðsögu á Islandi undanfarin ár,
um 140 manns. Ein erfiöasta
ákvörðunin við stofnun félagsins
var um það, hverjir ættu að telj-
ast tækir i samlökin, og olli þvi
undangengið skipulagsleysi. Sú
leið var valin að hafa inngöngu-
skilyrði frekar rúm. svo að sam-
tökin gætu náð til sem flestra, er
eitthvað hal'a stundað þessi störf,
og leggja siðan rika áherzlu á
skipulagða lræðslustarfsemi inn-
an félagsins. En i 2. grein laga fé-
lagsins segir. að félaginu beri ,,að
vinna að aukinni menntun og
starfshæfni félagsmanna”. Sú
starfsemi er þegar hafin.
þýöiiigurmestu uppeldisstöðviiin
helztu nytjafiska okkar.
Þá lýsir fimdnrinn yfir fullum
stuöiiiiigi viö útfærslu fiskveiði-
landheiginnar. Fundurinn telur
einnig eölilegt aö ekki fari fram
Sökum þess að félagiö átti þess
ekki kost að hafa áhrif á frum-
varp til laga um skipulag ferða-
mála, meðan það var i samningu,
leyfir það sér hér með aö senda
háttvirtri samgöngumálanefnd
nokkrar breytinga- og viðaukatil-
lögur við frumvarpið.
Tillaga nr. 1:2. töluliður II. lið-
ar 6. greinar um þjónustustarf-
semi hljóði svo:
..Aö sjá til þess, aö jafnan sé
nægilegt þjálfaö starfsfólk til
hvers kyns starfa aö fcröamál-
um, svo sem þjónustu, leiösögu
o.s.frv., i samvinnu við þá aðila
islenzka, sem aö þessum þáttum
vinna".
Félagið telur brýna nauðsyn, að
allir þeir, sem starfa að ferða-
málum, fái nauðsynlega þjálfun,
hvort sem um er að ræða aðal-
starf þeirra eða aukastarf. Við
teljum, að slik störf eigi ætið að
vera i höndum hæfra manna, sem
finna til ábyrgðar i starfi.
Tillaga nr. 2: Við lp. gr. bætist
ný málsgrein, svohljoðandi:
viöræöur við Breta og Vestur-
Þjóöverja nieöan þeir halda upp-
teknuin hætti innan 50 milnanna.
Þá lítur fundurinn svo á, aö ekki
eigi aö viðurkenna lögsögu
alþjóöadómstólsins i Haag i þessu
máli, og varar þvi viö munnleg-
um málfiutningi fyrir dómstóln-
um þar sem þaö mætti skoöa sem
viðurkenningu á lögsögu hans i
þessu lifshagsmunaniáli okkar.
Fundurinn litur svo á, að út-
færslan hljóti aö vera algjörlega
jnnanrikismál okkar og varar þvi
við allri undanlátssemi i þessu
máli.
„Þeim leiösögumönnum, sem
starfaö hafa með fuilum réttind-
um að leiðsögu i fimm ár eöa
lengur, er heimilt aö taka að sér
umboðsstörf fyrir viðurkenndar
erlendar feröaskrifstofur og/eöa
stofnanir, svo sem aö skipuleggja
hópferöir um island og sjá um
framkvæmd þeirra, en þótt ætiö i
fjárhagsábyrgð umbjóðenda
sinna. Skylt er þeim, sem taka aö
sér slík störf, aö tilkynna þaö
Ferðamálastofnun islands.”
Sú hefð hefur komizt á
undanfarin ár, að erlendar ferða-
skrifstofur hafa leitað til is-
lenzkra leiðsögumanna um ýmis
konar umboðsstörf og fyrir-
greiðslu til þess að notfæra sér
sérþekkingu þeirra á islenzkum
aðstæðum. Nokkrir reyndir leið-
sögumenn hafa þannig tekið að
sér að skipuleggja ferðir um
landið og sjá um framkvæmd
þeirra, og er ekki annað vitað en
sú starfsemi hafi gengið að ósk-
um og gefiö góða raun. 1 þvi sam-
bandi er sérstaklega vert að geta
þess, að slik viöskipti eru undan-
tekningarlitið rekin á
staðgreiðslugrundvelli, og þykir
greiðasölum það mun hagkvæm-
ari viðskipti en ávisanakerfi
(voucher system) ferðaskrifstof-
anna, sem þvi miður hefur stund-
um bakað þeim áföll.
Tillaga nr. 3: Inn komi nýr 5.
kafli, ein grein (21. gr.), svohljóð-
andi — og breytist þá tölusetning
siðari greina og kafla i samræmi
við bað:
,,V. kafli. Leiðsaga.
21. grein.
1) Öll leiösaga ferðamanna á
íslandi skal vera i höndum þjálf-
aöra leiösögumanna, er hafa ööl-
azt réttindi og viðurkenningu til
slikra starfa. Þeir skulu hafa við-
tæka þekkingu á landi og þjóö,
svo aö þeim sé unnt að fræöa
ferðamcnn á skipulegan og hlut-
lægan liátt.
2) Þjálfun leiösögumanna skal
vera i höndum Ferðamálastofn-
unar islands i nánu samstarfi viö
hagsmunasamtök leiösögumanna
og i samræmi viö reglugerð, er
ráðherra setur um þjálfun þeirra
og störf. Um reglugerðina og
framkvæmd hennar skal liafa
saniráö viö samtök leiðsögu-
mauna, og skulu þau vera við-
ræöu- og samningsaðili um alla
þætti leiösögu, bæöi gagnvart
liinu opinbera og einkaaðilum.”
Þessi tillaga fjallar um þá þætti
ferðamála, sem horfa við leið-
sögumálum. Félag leiðsögu-
manna hefur sett sér það mark,
að til leiðsögu á íslandi veljist
helzt aldrei aðrir en þeir, sem
fullnægja ströngustu kröfum á
Auglýsingasíminn er 17500
Þjóðviljinn
GARÐAHREPPUR
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og innheimtu á Þjóðvilj-
anum frá 1. mai.
Nánari upplýsingar á afgreiðslu blaðsins i sima 17500.
Vélstjórafélag Suðurnesja:
Enga Faxaflóaveiði
Engan mann til Haag
Vegna vanþróunar (ferðamálum og sérstöðu
landsins er hlutverk leiðsögumannsins
fjölþætt og vandasamt
alþjóðavettvangi, enda mun land
okkar gera meiri kröfur en önnur
lönd til hæfni og þekkingar leið-
sögumanna, og ber margt til.
Að sýna það ósýnilega
I fyrsta lagi má telja landið
ennþá vanþróað i ferðamálum,
enda eru þau enn á byrjunar-
skeiði. Gisti- og veitingastaðir eru
hér ennþá strjálir og á stundum
vanbúnir hlutverki sinu; einkum
er viða áberandi skortur á þjálf-
uðu starfsfólki. Einnig má benda
á, að viða er ónóg og frumstæð
hreinlætisaðstaða við alfaraleið-
ir, til dæmis engin á 180 km kafla
frá Reykjahlið við Mývatn að
Hlöðum við Lagarfljótsbrú.
í öðru lagi eru islenzkir vegir
mjög frumstæðir, og það er við-
bótarálag á leiðsögumann að
þurfa stundum dögum saman að
hossast áfram á vondum vegum,
oft án þess að sjá út úr augunum
vegna veðurs, en þurfa jafnframt
að gera ferðamönnunum ferðina
sem skemmtilegasta og bezta.
I þriðja lagi búa islenzkir leið-
sögumenn við þær sérstöku að-
stæður, að nær ekkert af þvi er
sýnilegt, sem þeir eru að segja
gestunum til fróðleiks og
skemmtunar, oft jafnvel ekki
einu sinni landslagið sjálft. A Is-
landi gnæfa ekki kastalarústir á
tindum, ekki glæsilegar hallir i
fögrum skrautgörðum né háreist-
ir turnar á kirkjum og musterum,
allt sýnileg vitni um langa og við-
burðarrika sögu. A sjálfum Þing-
völlum vitna vallgrónar búða-
tætturnar naumast um annað en
umkomuleysi liðinna tima. Leið-
sögumaðurinn verður þvi að axla
þá auknu byrði að gæða frásögn
sina sliku lifi, að hún geti kallað
fram i huga ferðamannsins þá
mynd, er hverjum stað hæfir.
Framangreind atriði ættu þvi
að nægja til að sýna fram á mikil-
vægi leiðsögustarfsins og hvilik
ábyrgð fylgir þvi að kynna land
og þjóð fyrir ferðamönnum. Þvi
finnst samtökum okkar full
ástæða til að lögfesta ákvæði um
störf og skyldur leiðsögumanna,
svo og um fræðslu þeirra og þjálf-
un.
Félag okkar vill og benda á
vaxandi óhagræði og óþægindi
ýmissa aðila af leiðsögumanns-
lausum hópferðum útlendra
manna um landið, auk þess sem
slikar ferðir stuðla litt að kynnum
af landi og þjóð. Er upphafsorð-
um 21. greinar i 3. tillögu okkar
ekki sizt beint gegn þeim ferða-
háttum.
Stjórn Félags leiðsögumanna
telur, að þau samtök séu
sjálfsagöur aðili að öllu þvi, er
varðar leiðsögustörf, hvort sem
um er að ræða kjaramál, réttindi
og skyldur eða menntun og
fræðslu. Þó að samtök okkar séu
ennþá ung, hafa þau þegar sýnt i
verki, að þeim er full alvara i þvi
að starfa einhuga og ákveðið að
hagsmuna- og framfaramálum
starfshópsins. Þvi er það eindreg-
in ósk félagsins, að framanskráð-
ar tillögur fái jákvæðar undir-
tektir hjá háttvirtri samgöngu-
málanefnd og að hún sjái ástæðu
til að fella þær inn i væntanleg
lög”.
Hin vélin
biluð
líka
B/v Bjarni Benediktsson kom
til Reykjavikur laugardaginn 21.
april s.l. Togarinn varð að hætta
veiðum vegna vélarbilunar. Aður
hafði önnur aðalvél skipsins bilað
á leið þess frá Spáni til Reykja-
vikur um miðjan janúar. Fer nú
fram rækileg athugun á aðalvél-
um skipsins til þess að finna or-
sakir bilananna og bæta úr þeim.
Óvist er, hve, viðgerðin kann að
taka langan tima.
Skipið seldi afla úr fyrstu veiði-
ferð sinni i Þýzkalandi 14. og 15
april s.l., 167,4 tonn fyrir DM
235.495,-, og hélt siðan beint á
veiðar á Selvogsbanka. Hafði
skipið verið á veiðum tæpa tvo
sólarhringa, þegar það hætti
veiðum af fyrrgreindum ástæðum
og landaði afla sinum um 50 tonn-
um i Reykjavik. (Frá BÚR.)