Þjóðviljinn - 27.04.1973, Page 13
Föstudagur 27. aprfl 1973.Í ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Þann 3/2 voru gefin saman i
hjónaband i Bústaöakirkju af
séra Garöari Svavarssyni ungfrú
Hafdis Edda Eggertsdóttir og
Sigurberg Ólafsson.
Heimili þeirra er á Húsavik.
STUDIO GUÐMUNDAR, Garða-
stræti 2, simi 20900.
Brúðkaup
Þann 10/2 voru gefin saman i
hjónaband i Dómkirkjunni af séra
Ólafi Skúlasyni, ungfrú Berglind
Berndsen og Hörður Héöinsson.
STUDIO GUÐMUNDAR, Garða-
stræti 2, simi 20900.
— Mamma, helduröu að þér
liði ekki betur i ibúðinni þinni i
borginni? Hér er allt á öðrum
endanum....
— Kemur ekki til mála, elsku
bezta. Ég er staðráðin i að standa
við hlið þér i þessu andstreymi.
Það er það minnsta sem ég get
gert. Hún sneri sér aftur að
Zitlau. — Jæja, lögregluþjónn,
þér voruð að segja...?
Það vottaði fyrir kimni i svip
Zitlaus. — Ég var að segja, að
rannsóknum okkar miðar eðli-
lega áfram miðað við aðstæður.
Ég er hræddur um að ég geti ekki
farið út i smáatriði.
Ivora hvæsti. — Þetta er
þokuhjúpurinn sem þið bregðið
yfir ykkur, þegar ekkert gengur
hjá ykkur.
— Mamma þó!
— Er þetta ekki satt? Þeir eru
ekki búnir að finna Andrew litla
og það er staðreynd. Ég hefði átt
að koma fyrr. Og ég hefði lika
gert það ef þetta bannsett
flugfélag... Ivora hristi höfuðið i
ákafa. — En nú er ég komin, og þá
kemur skriður á hlutina.
— Við þökkum alla þá aðstoð
sem þér getið veitt, sagði Zitlau
kurteislega.
— Af hverju hefur ekki verið
kallaö á FBt? Ég lit svo á, að það
allra fyrsta sem gera þarf...
— Herra Staplinger og herra
Yard, sagði Zitlau og benti á
mennina tvo, — eru fulltrúar FBt
i þessu máli.
Flestir hefðu þagnað við þessar
upplýsingar, en Ivora brá ekki
einu sinni svip. — Agætt, mér hef-
ur dottið ýmislegt i hug. Það er
leikkona — hún heitir Tamara
Vale, þú manst eftir henni, Lissa
— og hún vildi endilega fá hlut-
verkið i Tilkomi þitt riki sem þú
fékkst — og hún sór að hefna
sin....
— Mamma, það eru tiu ár sið-
an, andmælti Lissa. — Henni var
alls ekki alvara — hún er áreiðan-
lega búin að gleyma þvi.
— Ég er ekki búin að gleyma
þvi, sagði Ivora. — Þá var ég viss
um að stúlkan væri geðbiluð. Ég
get vel imyndað mér að hún hafi
lúrt á þessu árum saman þangað
til hentugt tækifæri gafst. Hún
smellti saman fingrum til
áherzlu.
Zitlau bar höndina upp að
munninum og FBÍ mennirnir áttu
erfitt með að leyna brosum sin-
um. — Af hverju ferðu ekki upp og
hvilir þig, Ivora, sagði Andy. —
Þú hlýtur að vera þreytt.
— Alls ekki. Ég svaf i flugvél-
inni.
— Jæja, en við erum þreytt, og
okkur langar til að Ijúka þessu af.
— Haldið þið áfram. Ég læt
mér nægja að hlusta.
Andy vissi hve fjarstæðukennt
það var. — Ég var að reyna að
koma þér i skilning um, að þetta
kemur þér ekki við. Ég er að
reyna að fá þig til að fara út.
— Ungi maður! Ég er móðir
Lissu. Ég hef vissan rétt i þessu
máli.
— Þú stendur i borðstofunni
minni. Og ég hef rétt til að reka
þig út úr henni.
Ivora krosslagði handleggina
og setti sig i stellingar sem um-
boðsmenn, framleiðendur og
leikstj. könnuðust mætavel við.—
Við erum tvö um að ákveða það,
sagði hún kuldalega.
Andy setti frá sér tóma glasið.
— Jæja, við sjáum nú til, sagði
hann.
Lissa gekk i milli. Hún lagði
arminn kumpánlega um mitti
móðurinnar. — Mamma,þú veizt
að mér væri ánægja að hafa þig
hjá okkur, en eins og á stendur
væri áreiðanlega betra að... og þú
getur satt að segja gert dálitið
fyrir mig núna.
— Hvað er það? spurði Ivora
án þess að slaka ögn á varnar-
stöðu sinni.
— Það er hópur blaðamanna i
bókstofunni. Þeir vilja fá viðal við
mig en ég hef ekki mátt vera að
þvi. Ef þú vildir tala við þá fyrir
mig — þú kannt lagið á þeim, þú
er svo þjálfuð i þvi...
— Jæja, Ivora hætti barátt-
unni með tregðu og lét leiða sig
út úr borðsofunni. — Ég geri ráð
fyrir að það sé mikilvægara...
— Ég er feginn að ég skuli ekki
vera sá eini sem á i erfiðleikum
með tengdamóður sina, tautaði
Staplinger.
Lissa kom ein til baka. —
Þakka þér fyrir hjálpina, sagði
Andy.
Hún leit á hann með fyrirlitn-
ingu. — Ég þurfti að minnsta
kosti ekki að fá mér drykk fyrst.
Það þarf að sýna mömmu ein-
beitni, ekki ruddaskap.
Zitlau ræskti sig. — Ég held við
séum búin i bili. Af svip ykkar að
dæma, var ykkur ekki ljóst
hvernig ástatt var fyrir frú
Ruick.
— Ef ég hefði vitað það, hefði
hún ekki verið i vinnu hjá mér,
sagði Lissa hörkulega.
— Ég held að Bake hafi ekki
vitað það heldur, sagði Andy. —
Þér vitið ekki, hvort hann var
faðirinn.
— Við vitum að einhver karl-
maður hefur átt þar hlut að máli.
Það liggur i augum uppi. Og þið
hafið skýrt okkur frá þvi, að Bake
og frú Ruick hafi verið hálftrúlof-
uð. Hann var eini karlmaðurinn
sem hún umgekkst. Það hefur allt
sina þýðingu.
— Þetta er dálitið laust i reip-
unum, fulltrúi. Jafnvel þótt Bake
hafi gert hana ófriska — sem er
ósannað mál— þá er ekki þar með
sagt aö hann hafi drepið hana.
— Nei, að visu ekki. Og ekki
heldur sú staðreynd, að hann
hefði hæglega getað laumazt út af
gistihúsinu i fyrrinótt og afhent
skeytið hjá Western Union. Vitið
þér að hann er mjög skuldugur?
— Bake hefur alltaf verið
skuldugur. Þegar hann var strák-
polli fékk hann lánaða peninga
hjá krökkunum i götunni. Hann
gerir sjálfur grin að þvi við hvert
tækifæri! Ef þér spyrjið hann
hvaðhann myndi gera við milljón
Föstudagur 27. apríl
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.45. Morgunleikfimi kl.
7.50. Morgunstund barn-
annakl. 8.45: Guðriður Guð-
björnsdóttir les miðhluta
sögunnar ,,A grasafjalli”
eftir Hannes J. Magnússon.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög á milli liða. Morgunpopp
kl. 10.25: Hljómsveitin
Southern Comfort, Steve
Wonder og Foghat syngja
og leika. Fréttir kl. 11.00.
Tónlistarsaga: Endurt.
þáttur A.H.S. kl. 11.35: Mar-
cel Gazelle og Borgarhljóm-
sveitin i Liége leika
Pianókonsert eftir van
Toussaint de Sutter.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.30 Með sinu lagi. Svavar
Gests kynnir lög af hljóm-
plötum.
14.30 Siðdegissagan: „Lifsorr-
ustan” eftir óskar Aðal-
stein.Gunnar Stefánsson les
(18).
15.00 Miðdcgistónleikar:
Irmgard Seefried syngur
lög eftir Brahms. Kodály-
kórinn i Debrecen syngur
lög eftir Kodály.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
16.15 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
16.25 Popphornið.
17.10 Þjóðlög frá ýmsum lönd-
um.
18.00 Eyjapistill. Bænarorö.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill
19.35 Þingsjá. Ingólfur
Kristjánsson sér um þátt-
inn.
20.00 Tónleikar Sinfóniuhljóm-
sveitar islands i Háskóla-
biói kvöldið áður. Illjóm-
sveitarstjóri: Uri Segal frá
israel. Einleikari á pianó:
André Tsjaikovský frá
Bretlandi. a. ,,Ruy Blas”,
forleikur eftir Felix
Mendelssohn-Bartholdy. b.
Pianókonsert nr. 21 i C-dúr
(K467) eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. c. Symphonie
fantastique eftir Hector
Berlioz.
21.40 Fjallræðan. Dr. Jakob
Jónsson flytur fyrra erindi
sitt.
22.00 Fréttir.
22.15. Veðurfregnir.
Otvarpssagan: „Ofvitinn”
cftir Þórberg Þórðarson.
Þorsteinn Hannesson les
(32).
22.45 Létt músík á siðkvöldi.a.
Evert Taube syngur eigin
lög. b. Filharmóniusveitin i
London leikur „Þrjá dansa
frá Bæheimi" eftir Elgar,
Sir Adrian Boult stj. c. Joan
Baez og The Greenbriar
Boys syngja og leika.
23.45 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
jO.
O
Föstudagur 27. april
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Karlar i krapinu. Hnefa-
fylli af demöntum. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
21.25 Sjónaukinn. Umræðu- og
fréttaskýringaþáttur um
innlencl og erlend málefni.
22.10 Rolf Ericsons kvintett.
Sænsk jazzhljómsveit leikur
nokkur lög. (Nordivision —
Sænska sjónvarpið)
22.40 Ilagskrárlok
FÉLAG mim HLJÉLISTARMii
ifijjk útvegar yður hljóðfæraleikara
og hljómsveitir við hverskonar tækifæri
Vinsamlegast hringið í Z0Z5S milli kl. 14-17
AiflíMfnflKifflBðn
í<£.sw\z> ht
TNJnVRHSK IINIfRAVRRðl.n
INDVEKSK UNDRAVERÖLD
Nýjar vörur komnar, m.a. ilskór,
útskorin borö, vegghillur, vegg-
stjakar, könnur, vasar, borðbjöllur,
öskubakkar, skálar og mangt fleira.
Einnig reykelsi og reykelsiskerin I
miklu úrvali.
Gjöfina sem veitir varanlega ánægju
fáiö þér í
JASMIN
Laugavegi 133 (viö Hlemmtorg)