Þjóðviljinn - 25.05.1973, Side 3
Föstudagur 25. mai 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Yfir 99% landhelginnar
friðuð fyrir ágangi Breta
Herstöðva-
fundur
á Akureyri
Herstöövaandstæðingar i
Norðurlandskjördæmi
eystra efna til fundar á Ak-
ureyri n.k. sunnudag til þess
að skipuleggja starfsemi
sina i kjördæminu. Verður
fundurinn i Alþýðuhúsinu og
hefst kl. 4 siðdegis.
Framsögumenn á fundinum
verða KRISTJAN SKALD
FRA DJtPALÆK og
NJÖRDUR P. NJARÐVÍK
LEKTOR. Fundarstjóri verð-
ur HJÖRTUR E. ÞÓRARINS-
SON, bóndi á Tjörn.
A fundinum verður kosin
kjördæmisnefnd samtakanna i
Norðurlandskjördæmi eystra.
ölium herstöðvaandstæð-
ingum cr heimil þátttaka i
fundinum. Fréttatiikynning.
Yerkfall
í Aburðar-
verksmiðj-
unni á
mánudag?
Eins og skýrt hefur verið frá
áður i Þjóðviljanum eiga þrjú
verkalýðsfélög i Reykjavik nú i
kjarasamningum við Áburðar-
verksmiðjuna fyrir þá félaga
sina, sem vinna i nýrri hluta
verksmiðjunnar.
Þegar við spurðum i gær
Guðjón Jónsson, formann Félags
járniðnaðarmanna, frétta af
deilunni, sagði hann, að málinu
hefði verið visað til sáttasemjara
siðast liðinn þriðjudag, og átti að
halda samningafund með sátta-
semjara siðdegis i gær. Verkfall
hefst á mánudag, hafi samningar
ekki tekizt.
Brezku togaraskip-
stjórarnir höfðu ekki i
gærdag gert upp hug
sinn um það hvort þeir
færu á annað veiðisvæði
en nú er allt upp urið á
svæðinu austur af Hval-
bak þar sem veiði-
þjófarnir hafa haldið sig
undir vernd herskipa og
sk. „hjálparskipa”.
Talið er að svæðið sem
Bretarnir halda sig á sé i almesta
lagi um 200 ferkilómetrar en það
svarar til þess að 99,85% land-
helginnar séu friðuð fyrir ágangi
Bretanna. Verður ekki annað sagt
en afskipti herskipánna hafi
komið íslendingum að gagni.
i fyrrinótt sigldi Ægir i gegnum
Breta-þvönguna og Óðinn litlu
siðar. Kom þetta Bretanum á
óvart og sendu þeir herskipin fast
á eftir varðskipunum — en okkar
menn höfðu betur.
Sjö rithöf.
skipta 700
þús. krónum
A laugardag var úthlutað úr
Rithöfundasjóði islands, en
þangaö rcnnur sérstök greiðsia
fyrir afnot af bókum á al-
menningsbókasöfnum. Fengu sjö
rithöfundar 100 þúsund krónur
hver og hafa aldrei fleiri hlotið fé
úr sjóðnum.
Sjömenningarnir eru þeir
Agnar Þórðarson, Gunnar M.
Magnúss, Ingólfur Kristjánsson,
Matthias Johannessen, Snorri
Hjartarson, Stefán Hörður
Grimsson og þá fulltrúi yngstu
skálda, Þuriður Guðmundsdóttir.
Alls hafa 32 rithöfundar fengið
úthlutun úr sjóðnum siðan hann
var stofnaður. Formaður sjóðs-
stjórnar, Einar Bragi, gerði grein
fyrir störfum hennar og reiddi féð
af hendi. Hann og Guðmundur
Hagalin eru fulltrúar rithöfunda-
félaganna i sjóðstjórn.
Ráðstefna AB um launajöfnuð-jafnrétti
Hefst í kvöld
í kvöld klukkan 8.15 hefst ráðstefna Alþýðu-
bandalagsins um launajöfnuð — jafnrétti i Þinghól í
Kópavogi.
í kvöld verður fjallað um tekjujöfnun fyrir áhrif
trygginga og skatta. Hafa þau Adda Bára Sig-
fúsdóttir aðstoðarmaður ráðherra og Ólafur
Jónsson framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins
framsögu um þau mál. Guðjón Jónsson formaður
Félags járniðnaðarmanna hefur framsögu um
efnið: öryggi og aðbúnaður á vinnustöðum.
Ráðstefnan heldur áfram á morgun klukkan hálf
tvö. Sjá nánar á bls. 7 i blaðinu.
ALÞÝÐUBANDALAGtÐ
Framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins skorar á styrktarmenn
flokksins, sem enn hafa ekki greitt framlag sitt fyrir árið 1973, að gera
skil hið fyrsta.
GlRO-seðill var sendur öllum flokksmönnum með siðasta fréttabréfi.
Vesturlandskjördæmi
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins i Vesturlandskjör-
dæmi verður haldinn i Borgarnesi laugardaginn 26. mai 1973 og hefst
kl. 14.
Formaður Alþýðubandalagsins, Ragnar Arnalds, og Ólafur Jónsson
framkvæmdastjóri flokksins verða á fundinum.
Þessi mynd af Islendingnum Mikael G. Mikaelssyni við að selja merki og dreifa flugritum birtist á for-
siðu dagblaðsins Bergens Tidende um siðustu helgi, en Mikael var einn þeirra námsmanna sem tóku
þátt I áróðursherferðinni i Bergen á laugardaginn var.
Landhelgisbarátta
námsmanna í Bergen
tsienzkir námsmenn I Bergen I
Noregi hafa ekki látið sitt cftir
liggja i þvi að kynna málstað ls-
lendinga i landhelgismálinu, en
öllum er kunnugt hvað tslending-
ar erlendis, ekki sizt á Norður-
löndum, hafa verið athafnasamir
i þeim efnum.
A laugardaginn efndu
Bergen-stúdentar til varðstöðu á
fjölförnum stað i borginni og
dreifðu þá um 2 þúsund flugritum
þar sem skorar er á Norðmenn að
styðja Islendinga i landhelgis-
málinu. Þetta gerðist 6 klukku-
stundum áður en fréttirnar um
innrás Breta i landhelgina barst
út til Noregs.
Nú um helgina höfðu tslend-
ingar vestanfjalls I Noregi alls
dreift um 10 þúsund eintökum af
flugritum og selt um 2 þúsund
landhelgismerki. Iðulega prenta
blöðin sitthvað úr þessum flutrit-
um, og er ekki að efa að aðgerðir
þessar hafa áhrif.
Islendingur við nám i Bergen
skrifar okkur og segir hann að
mikillar gremju verði vart hjá
Norðmönnum vegn framferðis
Breta hér á miðunum. Einkum
séu margir stuðningsmenn
norsku samsteypustjórnarinnar
sárir út i hana vegna hálfvelgju
hennar i málinu.
1 flugritinu sem dreift var i
Bergen á laugardaginn var minnt
á það að Norðmenn fylgdu i kjöl-
far Islendinga með útfærslu i 12
milur á sinum tima, en hafa
aldrei þakkað Islendingum fyrir
það að hafa brotið ísinn. Þegar nú
Islendingar færa út i 50 milur,
harmar norska stjórnin þessar
einhliða ráðstafanir. En ekkert er
liklegra en Norðmenn eigi eftir að
græða á framgöngu Islendinga
þvi ekki aðeins við Island, heldur
einnig við Noreg eru fiskimið i
hættu fyrir ofveiði.
Lúðrasveit Reykjavikur:
Heldur tónleika um helgina
Lúðrasveit Reykjavikur heidur
tónleika i Háskólabiói á morgun,
laugardag, kl. 3 e.h. undir stjórn
Páls Pampichlers Pálssonar. A
efnisskránni verður fjölbreytt val
tónverka af ýmsu tagi, sem unn-
endur lúðrasveitartónlistar
kunna cflaust vel að meta. Meðal
annars Konsertpolki fyrir tvö
klarinett og lúðrasveit eftir Mar-
sal. Einleikarar veröa Gunnar
Egilson og Vilhjáimur Guðjóns-
son.
Eins og komið hefur fram áður
átti Lúðrasveit Reykjavikur 50
ára afmæli á siðasta ári og
minntist þeirra timamóta meö
vel heppnaðri tónleikaför til
Vesturheims s.l. sumar.
A þeim 50 árum.sem lúðrasveit-
in hefur starfað ,hefur tónlistar-
iðkun á Islandi tekið stórt skref
fram á við, og að sama skapi auk-
izt að fjölbreytni. En þrátt fyrir
það að heita má að unnendur tón-
listar fái i dag notið allra greina
hennar, á lúðrasveitin sér enn
stóran hóp áheyrenda, sem aldrei
lætur sig vanta, þegar um vand-
aða tónleika af þessu tagi er að
ræða. Vænta lúðrasveitarmenn
þess, að svo verði einnig að þessu
sinni.