Þjóðviljinn - 20.07.1973, Side 1

Þjóðviljinn - 20.07.1973, Side 1
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 7, NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 4 SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3 SlMI .40102 Landsvirkjun semur við Júgóslava Virkja 150 megavött við Sigöldu Lœgsta tilboð var 2,7 miljarðar — Framkvœmdir á nœsta leyti Stjórn Landsvirkjunar ákvaö á fundi sfnum i gær að taka tilboöi júgóslavneska fyrirtækisins Energoprojekt í byggingu Sigölduvirkjunar, þ.e. gerö stiflu, vatnsvegar, stöövarhúss og frárennslisskuröar. Tilboö Júgóslavanna hljóöar upp á tæp- lega 2,7 miljaröa króna og mun hafa verið um 3-500 miljónum lægra en þaö tilboö, sem næst- lægst var. Alls bárust 5 tilboð I þessar virkjunarframkvæmdir, en ein- sýnt þótti að taka júgóslavneska tilboðinu, þar sem það var bæði mun lægra en önnur, og þarna er um að ræða traust fyrirtæki að dómi þeirra, sem kynntu sér málin af hálfu Landsvirkjunar. Júgóslavneska fyrirtækið Energoprojekt hefur annazt virkjunarframkvæmdir viða um heim, þar á meðal i Vestur- Evrópu, Afriku og i Suður- Ameriku og er vel þekkt á þessum markaði. Við Júgóslavana er aðeins samið um byggingarfram- kvæmdir en vélar, rafbúnaður og annar búnaður hefur verið boðinn út sérstaklega, en i þeim efnum hefur enn ekki verið ákveðið hvaða tilboði verður tekið. Það var á alþingi veturinn 1970- 1971, sem samþykkt var einróma heimild til rikisstjórnarinnar að ráðast i 2 virkjanir i Tungnaá, annars vegar við Sigöldu og hins vegar við Hrauneyjarfoss. Við Sigöldu er gert ráð fyrir að virkja 150 megawött, og munu framkvæmdir hefjast á næstu vikum. Til samanburðar má geta þess að Búrfellsvirkjun fram- leiðir 210 megawött. Gert er ráð fyrir að islenzkir undirverktakar muni að meira eða minna leyti annast fram- kvæmdir á vegum Júgóslavanna. MATIÐ! Þessi mynd er tekin i hinum fagra skrúögaröi Hellisgeröi i Hafnarfiröi. Krakkarnir stóöust ekki mátiö og óöu út i vatniö, cn á þcim var samt aö heyra aö slikt myndi umsjónarkonunni ekki lika væri hún viöstödd! í DAG Hverjir borga miljón í skatt? Skrá yfir þá 107 einstaklinga í Reykjavik^f® sem greiöa yfir 1 miljón I^^F skatta. Allt islenzkt hvalkjöt nú selt til Japan . © SKATTSKRAIN KOMIN Mun meiri hœkkun á einstaklinga en fyrirtœki. Meðalgjöld einstaklinga um 100 þús. krónur. Skattskrá Reykjavikur kemur út I dag og veröur til sýnis I Iönaöarmannafélagshúsinu á horni Vonarstrætis og Lækjar- götu. Allir einstaklingar eiga aö vera búnir aö fá álagningarseöil sendan heim. Vert er aö vekja at- hygli á, aö kærufrestur rennur út aö kvöidi 2. ágústs. Eins taklingar greiöa nær 100.000, — krónur i skatt aö jafnaöi. Heildarálagning Heildargjöld, sem lögð eru á tekjur einstaklinga og félög fyrir árið 1972 eru rösklega átta og hálfur miljarður króna, og greiða einstaklingar nær' helming þeirrar upphæðar. Upphæðin skiptist svo: Skattur einstakl...4.1 miljaröur. Skattur fyrirt....1.3 miljaröur. Söluskattur....3.1 miljaröur. Landsútsvar....164 miljónir. Skattur útlend...9 miljónir. Samanlögð er upphæðin nákvæmlega kr. 8.644.599. 535.00 Hækkun einstaklinga og fyrir- tækja ekkj jöfn. Hækkun á heildartekjuskatti einstaklinga frá siðasta ári er 34.72%. En hækkun á tekjuskatti félaga frá siðasta ári er ekki nema 15,5% bessi tiltölulega litla hækkun á félögum, þýðir ekki endilega, að afkoma þeirra hafi verið verri á siðasta ári en árið 1971. Heldur er hér um að ræða, að mati skattstjóra, fyrst og fremst mikla aukningu á fyrningarheimildum. A dögum viðreisnarinnar sælu voru settar nýjar reglur um fyrningar. Vinstri stjórnin gerði einhverjar breytingar þar á. Hér mun þvi á ferðinni gamalt loforð um upp- byggingu iðnaðarins. Hæstu fyrirtækin Eftirfarandi fyrirtækjum ber að greiða hæstu heildarút- gjöldin. S.t.S............ Loftleiöir....... Heklah.f......... Eimskip.......... I.B.M. Fálkinn........... Sláturf.......... Kassagerö Rvikur tstak............ Trygging h.f..... ölgeröin E. Skallagrs........ 34.6 milj. kr 24.4 milj. kr 22.7 milj. kr 19.6 milj. kr 15.6 milj. kr 14,1 milj. kr 12.3 milj. kr 12.3 milj. kr 11.6 milj. kr 10.8 milj. kr 10.3 milj. Reikningar Reykjavíkur Tekjur umfram áætlun svipaðar viðbótarálagningu útsvars Á fundi borgarstjórnar, er hófst kl. 17 I gær var tekinn til annarrar umræöu reikningur borgarinnar fyrir árið 1972. Tekjur borgar- innar voru á siöasta ári kr. 2.306.119.952,00 eöa um 93 miljón- um króna hærri en ráö haföi verið fyrir gert I fjárhagsáætlun. Gjöld borgarinnar áriö 72 voru aftur á móti 1.625.690.164,00 og er sú upphæö nær þvi sú sama og áætlað var aö eyöa. A eigna- breytingarreikning voru færöar rúmar 680 miljónir króna. Eins og menn muna var fjár- hagsáætlun Reykjavikur afgreidd óvenjulega seint I fyrra, eða ekki fyrr en i april. Var þvi borið við, að nýju tekjustofnalögin frá þvi i marz siðastliðnum yllu þeim drætti. thaldið i borgarstjórn grét miklúm harmagráti vegna þessara laga og sagði, að f járhag borgarinnarværi með þeim stefnt I hreinan voða. Samkvæmt lögun- um skyldi innheimt tekjuútsvar, er væri 10% af brúttótekjum skattgreiðenda, en heimild var gefin til að hækka hlutfallið upp I 11%. Reykjavikurborg varð einna fyrst til að sækja um heimild til aukaálagningar útsvara og tali sig þurfa að pina skattborgara til hins ýtrasta. Nú vill hins vegar svo hlálega til, að sú upphæð, sem lögð er inn á efnabreytingareikning umfram það, sem gert var ráð fyrir i f jár- hagsáætlun, um 93 miljónir króna, er ámóta há og það um- fram útsvar, sem Reykjavikingar voru látnir greiða. A fundinum i gær tók Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, fyrstur til máls. Sagði hann m.a.: ,,Um hin nýju tekjustofnalög voru höfð mörg orð og ekki öll falleg. Talað var um, að þau þrengdu mjög kosti sveitarfélaga og gæfu þeim engan veginn nægi- legtsvigrúm i tekjuöflun. Það var talað um, að meö þessum lögum væri sérstaklega gengið á hlut Reykjavikur. Það hlýtur að gleðja mjög borgarfulltrúa ihaldsins, að svartsýni þeirra og ótti var með öllu ástæðulaus. Þegar i ljós kom, að lög heimiiuðu ekki að innheimt yrði öll sú upphæð, sem ihaldiö hafði samþykkt að leggja á Reyk- vikinga var gripið til niöur- skurðar. Framlag til gatnagerðar var t.d. lækkað um 50 milj. kr. Samkv. fjárhagsáætlun átti að verja til gatnagerðar 462,6 milj. en var varið 492,6 milj. kr. þótt lækkunin hefði verið samþykkt. Þegar greidd voru atkvæði um reikningana lét minni hluti borgarstjórnar gera sameigin- lega bókun, þar sem tekið var fram, að reikningurinn gæfi villandi hugmynd um greiðslu- stöðu borgarsjóðs. Bókun minni hlutans og ræða Sigurjóns verða birtar siðar. Tillaga ISoregs og Astraliu i hafsbotnsnefndinni 200 milna fiskveiði- landhelgi Fulltrúar Noregs og Astralíu á fundi hafsbotns- nefndarinnar i Genf hafa lagt fram sameiginlega tillögu um að strandriki fái yfirráð yfir svokölluðu efnahagssvæði eða efnahagslögsögu sem nái allt að 200 sjómilum frá grunnlin- um. Samkvæmt tillögunni fá strandriki yfirráðarétt yfir hafsbotninum á þessu svæöi og geta haft fiskveiðilögsögu sina jafn stóra. Hafsbotnsnefndin starfar i þremur vinnunefndum, og var tillaga lögð fram i einni þeirra, en hlutverk hafsbotns- nefndarinnar er að undirbúa hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Fundurinn IGenf er siðasti fundur nefndarinnar fyrir sjálfa ráðstefnuna. 1 ofangrendri tillögu er lagt til að strandrikin fái rétt til að setja reglur um varðveizlu fiskistofna i 200 milna lögsög- unni, en öllum skipum skal heimiluð sigling á svæðinu. Svipaðar tillögur hafa komið fram áður á fundum hafsbotnsnefndarinnar, t.d. i fyrra frá fulltrúa Kenia, og 200 milna lögsögunni hefur stöð- ugt verið að aukast fylgi. Bahamaeyjar ganga í SÞ NEW YORK 19/7 — öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti i gær einróma tillögu um að veita Bahamaeyjum aðild að sam- tökunum. Bahamaeyjar, sem voru áður brezk nýlenda , fengu sjálfstæði fyrir skömmu og verða þær 135. aðildarriki Sameinuðu þjóðanna. Næsta allsherjarþing samtakanna hefst 17. september.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.