Þjóðviljinn - 20.07.1973, Side 3
Föstudagur 20. júli 1973. ÞJOÐVILJINN — jStl^A 3
Aukin viðskipti við Japani á mörgum sviðum:
Kaupa allt hvalkjöt
sem við framleiðum
Sú breyting hefur orð-
ið á sölu hvalkjöts á
erlendum markaði, að
i ár er búizt við að
Japanir kaupi allt
hvalkjöt, sem selt
verður á erlendum
markaði.
Þetta kom fram I spjalli við
Loft Bjarnason útgerðar-
mann, og sagíi hann að
Japanir hefðu byrjað að kaupa
hvalkjöt í smáum stil i hitteð-
fyrra, aukið kaupin i fyrra og
vildu nú fá alla framleiðsluna.
Loftur sagði, að Japanir
greiddu hærra verð en t.d.
Bretar, sem löngum keyptu
mikið af hvalkjöti sem hunda-
fæðu.
Ekki hafa verið gerðir
samningar um sölu á hval-
mjöli og hvallýsi, en söluhorf-
ur eru góðar eins og er, og
kynnu að fara batnandi.
Nú er búið að veiða um 170
hvali og er það litið minna
en á sama tima i fyrra. Lang-
mest veiðist af langreýð. sj
Borgin
kaupir
Sœnska
Óráðið með
framtið hússins
Borgin hefur fest kaup á
Sænska frystihúsinu hér í borg og
er kaupverðið 24,5 miljónir króna.
Núverandi starfsemi verður þó
haldið áfram i húsinu um
óákveðinn tima.
Að sögn Gunnlaugs Péturs-
sonar borgarritara voru gerðir
samningar árið 1928 þegar húsið
var reist milli hafnarsjóðs og
leiguhafa lóðarinnar um að
hafnarsjóði sé skylt að leysa til
sin húsið að leigutima liðnum og
greiða fyrir 2/3 matsverð þá.
Þetta var gert vegna þess að talið
var eðlilegt að borgin hefði itök i
þessu húsi sem stóð svo nálægt
hafnarsvæðinu. Fyrir nokkrum
árum yfirtók borgarsjóður svo
þessa kvöð af hafnarsjóði þar
sem skipulagið hafði tekið það út
af hafnarsvæðinu.
Leigutimi rennur ekki út fyrr
en eftir nokkur ár en Gunnlaugur
kvað borgaryfirvöld hafa séð sér
hag i þvi að kaupa húsið núna i
stað þess að biða þar til leigu-
samningurinn rennur út. Var
talið hagkvæmara að kaupa það
nú með frjálsum samningum.
Enda sagði Gunnlaugur að kaup-
verð þess nú væri langt frá þvi að
nema tveimur þriðju hlutum af
brunabótamati en liklegt að það
hefði hækkað að mun ef beðið
hefði verið.
Nú er rekin isframleiðsla fyrir
fiskiskip I húsinu og auk þess eru i
þvi geymslur. Eru á annað
hundrað geymsluhólf fyrir mat-
væli sem almenningur hefur
aðgang að. Auk þess leigir Slátur-
félag Suðurlands geymslur I þvi
og svo eru geymdar I þvi fisk-
afurðir sem fluttar voru frá Vest-
mannaeyjum eftir gosið. Eru
fjórir menn i vinnu I húsinu núna.
Gunnlaugur sagði að þessi
starfsemi yrði rekin þarna fyrst
um sinn en ekkert væri ákveðið
um framtið hússins. Samkvæmt
skipulaginu á hraðbrautin
Kalkofnsvegur-Skúlagata að taka
sneið framan af húsinu en gert er
ráð fyrir skrifstofu- eða verzlana-
byggingu á lóðinni. —ÞH
Spasski alltaf
að tefla
Spasski teflir nú á hverju mót-
inu á fætur öðru. Hann var með i
Evrópumeistaramóti i sveita-
keppni á dögunum og náði hann,
ásamt Gligoric, beztum árangri
fyrsta borðs manna, en Sovét-
rikin unnu þessa keppni með tals-
verðum yfirburðum. Nú er
Spasskí að tefla á IBM mótinu i
Hollandi og varð hann að láta sér
nægja jafntefli I fyrstu skákinni,
en keppinautur hans heitir Ribli
og er frá Hong Kong. Þarna
keppa m.a. Ulf Andersen,
Petrosjan og Szabo.
Um frið-
land á
Horn-
ströndum
Náttúruverndarráð vill, að
gefnu tilefni, taka þetta fram
vegna fyrirhugaðrar stofnunar
friðlands á Hornströndum:
Auglýsing Náttúruverndarráðs
i Lögbirtingablaði þann 30.5
siðatliöinn er aöeins einn liður i
viötækum undirbúningi þessa
máls. Hefur auglýsingin þann
tilgang, að gefa öllum eigendum
og rétthöfum lands og eigna á
svæðinu kost á að kynna sér máliö
og koma fram athugasemdum,
enda er jafnan stefnt að fullu
samþykki og samráði land-
eigenda við ákvarðanir um frið-
lýsingu.
Friðland á Hornströndum hefur
þvi ekki verið stofnað. Reglurþær
sem birtar voru i ofangreindri
auglýsingu gilda ekki enn á svæð-
inu. Réttur landeigenda og hús-
eigenda er óbreyttur frá þvi sem
verið hefur.
Eru allir viðkomandi hvattir til
að hafa samband við Náttúru-
verndarráð eða Land-
eigendafélag Sléttu- og
Grunnayikurhreppsum nánari
upplýsingar fyrir 1.10. næstkom-
andi.
JERÚSALEM 18/7 —
Sovétrikin hafa selt Israelsmönn-
um 100 þúsund lestir af sementi.
Þetta er stærsti viðskipta-
samningur sem löndin gera sin I
milli siðan Sovétrikin rufu stjórn-
málatengsl landanna eftir sex-
daga striðið árið 1967.
Að sögn israelskra yfirvalda
verða fyrstu 20 þúsund tonnin
afhent i ágúst. Israelsmenn
greiða 35 dollara fyrir tonnið.
Efling landhelgisgœzlunar:
Mikill áhugi á kanadískum
hvalveiðiskipum
Ákvörðun um smiði nýs varðskips
tekin á nœstunni
islenzka rikisstjórnin
hefur að undanfömu unnið
að því að efla landhelgis-
gæzluna og hefur m.a. í
sigti að útvega hingað
hvaIveiðiskip frá Japan
eða Kanada.
Baldur Möller i dómsmála-
ráðuneytinu sagði i gær við
fréttamann blaðsins, að athyglin.
hefði einkum beinzt að hvalbát-
um, vegna þess að þetta eru góð
skip, sem hægt er að treysta á öll-
um árstimum. Aftur á móti hefur
ekki I alvöru verið hugsað um
fallbyssubáta, þar sem þeir full-
nægja yfirleitt ekki skilyrðum um
sjóhæfni og aðbúnað sem gera
verður hér I Norður-Atlanzhafi.
Baldur Möller sagöi, að rætt
hefði verið við japanska aðila
sem reyndar eru hér til viðræðna
við Loft Bjarnason forstjóra
Hvals hf.
Þau skip, sem helzt hafa komiö
til greina, eru kanadiskir hval-
veiðibátar, en það kann að draga
samningagerð á langinn, að
kanadiska rikisstjórnin er um
þessar mundir að gera upp við sig
hvort og hvernig eigi að bæta
kanadiskum hvalveiðimönnum
innköllun hvalveiðiskipa, en
Kanadamenn hafa sett bann á
alla hvalveiði hjá sér um ein-
hvern tima.
Þá eru I athugun tilboð um
smiði varðskips frá Alaborgar-
skipasmiðastöðinni, en þar var
Ægir smiðaður árið 1968, og
vestur-þýzkri skipasmiðastöð.
Búizt er við að ákvörðun i þessu
máli verði tekin næstu daga, og
reynt verður að hraða samninga-
gerð um hvalveiðiskip eins og
hægt er. sj.
Systir okkar,
GUÐRÚN M. K. JÓNSDÓTTIR,
Lönguhlið 19, Reykjavik,
andaðist miðvikudaginn 18. júli.
Vaigerður Jónsdóttir
Magnús G. Jónsson.
Á HÆSTA
LETTI - HAALEITI
HÁALEITISBRAUT
m
0
Háaleitisútibú Samvinnubankans
er staðsett miðsvæðis í austur-
borginni. GREIÐ AFGREIÐSLA
NÆG BÍLASTÆÐI
Afgreiðslutími kl. 13 -18,30
SAMVINNUBANKINN
Háaleitisútibú-Austurveri