Þjóðviljinn - 03.10.1973, Síða 6

Þjóðviljinn - 03.10.1973, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 3. október 1973 uoimuinn MALGAGN SÓStALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR ÓG ÞJÓÐFRELSIS. Ótgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Óiafsson Svavar Gestsson (áb) Augiýsingastjóri: Guörún Steingrfmsdóttir. Kréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Kitstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Askriftarverð kr. 360.00 á mánuöi Lausasöiuverö kr. 22.00 Prentun: Biaöaprent h.f. HERSKIPIN ÚT í DAG Breska rikisstjórnin hefur nú tilkynnt að hún muni kalla herskip sin og dráttarbáta úr islenskri landhelgi, fyrir klukkan 3 i dag. Þetta er mikill áfangasigur fyrir íslend- inga, en Bretar hafa haft skömmina eina af tilraun sinni til að kúga okkur með her- skipavaldi til uppgjafar i landhelgismál- inu, þar sem lifshagsmunir islensku þjóð- arinnar eru i veði. Nú eru það Bretar sem eru komnir á undanhald, og hver er ástæðan? Engum getur lengur blandast hugur um, að það er aðeins fyrir óhvikula ein- beitni islensku rikisstjórnarinnar og þá afdráttarlausu hótun að slita stjórnmála- samskiptum landanna nú, færu herskipin ekki á brott, — að breska rikisstjórnin hefur séð þann kost vænstan að hopa úr ó- færunni. En hér er vert að undirstrika alveg sér- staklega, að það sem nú hefur komið i ljós er, að það er aðeins fyllsta harka af okkar hálfu, sem breska ihaldsstjórnin tekur mark á. Lengi vel var af tslands hálfu reynt að ná friðsamlegu samkomulagi við Breta um bráðabirgðalausn, og voru Bretum boðnar undanþágur til veiða i islenskri landhelgi um stuttan tima meðan togara- menn þeirra væru að laga sig að nýjum aðstæðum. Slikum boðum af okkar hálfu svaraði Bretastjórn með herskipainnrás og hefur siðan haldið uppi sifelldum til- raunum til að gera varðskip okkar óvirk með itrekuðum grófustu ásiglingum. öll hófsamleg tilmæli sem margoft hafa verið sett fram um að kalla herskipin út úr landhelginni hafa þeir i London látið sem vind um eyrun þjóta, en svarað hortug- heitum einum. Nú fyrst þegar settir hafa verið fram af íslands hálfu úrslitakostir um stjórnmála- slit, aðgerð sem fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins i utanrikismálanefnd létu bóka að jafngilti „striðsyfirlýsingu” af okkar hálfu, — þá fyrst telur breska ljónið sig til- knúið að draga inn vigtennurnar. Þetta er ákaflega lærdómsrik niðurstaða, ekki sist fyrir þann örfámenna hóp hér innanlands, sem dregið hefur i efa réttmæti ákvörðun- ar islensku rkisstjórnarinnar um boðun stjórnmálaslita, en um þá ákvörðun, sem tekin var þann 11. september s.l. létu Geir Hallgrimsson og aðrir fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins i utanrikismálanefnd al- þingis bóka, að hún væri ,,ekki eingöngu yfirborðsleg heldur og skaðleg”. Sú „skaðsemi” liggur nú fyrir, vilji menn nota orðalag Geirs Hallgrimssonar og félaga hans. Almennt munu íslendingar hins vegar um það sammála, að sjaldan hafi islensk rikisstjórn tekið réttari og sjálfsagðari ákvörðun en einmitt þá, sem nú hefur knú- ið breska ofbeldið á undanhald. Þess vegna fagna íslendingar sigri i dag og vita hvernig hann hefur unnist. En nú er næsta lota framundan. Bretar hóta að senda herskipin inn á ný, ef löggæslu verði haldið uppi i islenskri fiskveiðilandhelgi. Það ætti herra Heath, forsætisráðherra Breta, þó að vera farinn að vita, að þeim málum munum við fylgja fram að islenskum lögum og rétti, en ekki eftir tilskipunum frá London eða öðrum miðstöðvum „vopnabræðranna” i NATO. Timi smánarsamninganna frá 1961 er lið- inn á íslandi. Það er hins vegar mál bresku rikis- stjórnarinnar, hvort hún stendur við hótun sina um að senda herskipin hingað á ný til ofbeldisverka. En komi til þess ættu Bret- ar að minnsta kosti nú að vita, að þar með væru þeir að framkalla slit á stjórnmála- samskiptum landanna. Hótanir Breta um nýja flotainnrás eru vissulega ekki til þess fallnar að greiða fyrir neins konar bráðabirgðasamkomulagi. Timinn vinnur með okkur íslendingum. öll alþjóðleg þró- un er okkur hagstæð. Þess vegna höfum við enga ástæðu til að rasa að samningum við Breta, — en heyra munum við hvað, þeir hafa frekara fram að færa, ef eitt- hvað er. Ný námsbraut við HI Hjúkrunarfræði A þessu hausti tekur til starfa viö Háskóla lslands ný náms- braut i hjúkrunarfræöum. Blaöiö haföi þvl tal af Ingi- björgu H. Magnúsdóttur þar sem hún svalaöi forvitni tilvon- andi nemenda i þessari nýju kennslugrein á mánudaginn. Jóhann Axelsson prófessor sem einnig sat fyrir svörum átti ann- rikt, svo Ingibjörg varö fyrir baröinu á blaöamanni. Fulltrúar WHO með í ráðum Hún tjáöi okkur aö unnið hefði veriðað stofnun þessarar náms- brautar i nokkur ár og hafa ma. komiö þrivegis hingað til lands fulltrúar Alþjóða heilbrigðis- stofnunarinnar, WHO, til að leggja á ráðin. I sumar skipaði menntamála- ráðherra 7 manna nefnd til að semja drög að reglugerð um nám I hjúkrunarfræðum innan vébanda Hl. Einnig var nefnd- inni faliö aö athuga á hvaöa hátt væri unnt að meta nám hjúkr- unarkvenna með stúdentspróf til eininga innan nýju náms- brautarinnar og leysa vanda hjúkrunarkvenna sem ekki hafa stútentspróf. Ingibjörg átti sæti i þessari nefnd og sagöi hún að mikið hefði veriö unnið á vegum hennar i sumar i samráði við fulltrúa WHO. Geröi hún drög að fjögurra ára námsskrá fyrir námsbrautina. Að þvi námi loknu útskrifast nemendur með bachelorsgráðu. Veröur námið alls 120 einingar og gert ráð fyrir aö nemendur ljúki 30 ein- ingum á ári. Námsárinu verður skipt i tvær annir. Helstu fög sem kennd veröa viö hina nýju námsbraut eru hjúkrunarfræði, liffæra- og lifeðlisfræði, örverufræði, félags- og sálarfræði, heimspeki og lyfjafræði. Þau fög sem þyngst vega verða hjúkrunar- fræöi og heilbrigðisfræði. A siö- asta námsári veröur kennd kennslufræöi og stjórnunarfræði og mikil áhersla lögð á heilsu- vernd. Nemendum veröur gert að . skyldu að starfa einn mánuð á ári hverju við sjúkrahús eða aörar heilvrigðisstofnanir. Hægt að verða doktor i USA Ingibjörg kvað þessa náms- braut vera erfiða eins og aörar d.eildir innan H1 . Námsbrautin er sem stendur innan vébanda læknadeildar, en ætlunin er aö meö timanum verði hún sjálf- stæö námsbraut. Hvað varðar framhaldsnám er ekki um slikt að ræða hér á landi.Erlendis og þó einkum i Bandarikjunum er hins vega-r hægt aö stunda framhaldsnám sem lýkur með masters- eða doktorsgráðu. Nemendur sem ljúka námi úr námsbrautinni geta starfað að almennri hjúkrun.en einnig eiga þeir að vera færir um að taka að sér stjórnun á heilbrigðistofn- unum og hjúkrunarkennslu. . Aðspurð sagði Ingibjörg að þessi nýja námsbraut dragi á engan hátt frá Hjúkrunarskóla Islands og væri það stefna stjórnvalda að efla hann.Þetta nýja nám er annars eðlis að vissu leyti, meira bóknám auk þess sem áður hefur verið sagt um stjórnun og kennslu. Brýnt aö leysa vanda hjúkrunarkvenna Hvaö varöar þau verkefni nefndarinnar sem, lúta að þvi að leysa vanda þeirra hjúkrunarkvenna sem lokiö hafa hjúkrunarnámi sagði Ingibjörg að tengslanefnd sem starfar á vegum háskólans myndi meta nám hjúkrunar- kvenna með stúdentspróf til ein- inga innan hinnar nýju náms- brautar. En ekki hefur enn verið fundin endanleg lausn á þvi hvernig hjúkrunarkonur sem stúdentspróf hafa geta ekki gengið inn i þetta nám. Þetta sagöi Ingibjörg að væri mjög brýnt að leysa. Ingibj. sagð; að hér væri um merkan áfanga að ræða og að með honum væri hægt að bjóða upp á betri þjónustu á þessu sviði. Hún gerði mikið úr hlut menntamálaráðherra i þvi að námsbrautin væri nú orðin að veruleika og kvað hann hafa sýnt málinu mikinn áhuga. ^r»kduin IíiimIm) ^ fe BIJNAÐARBANKI ÍSLANDS Þá vildi hún koma þvi á fram- færi að þegar undirbúnings- starfið var á lokastigi hafi komið i ljós fjárhagsörðugleikar þar sem svo seint er liðið á fjár- hagsárið og ekki gert ráö fyrir þessu á fjárlögum. Þá var það að Rauði kross tslands hljóp undir bagga og veitti 1.5 miljónir til námsbrautarinnar og gerði það gæfumuninn um það að hefja kennslu i haust. nemendur. —ÞH DAUÐINN ER EKKI ÞAÐ VERSTA NEYSLA ÁFENGIS GETUR EYÐI U\GT LIF ÞITT OG ANNARRA

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.