Þjóðviljinn - 22.12.1973, Side 6

Þjóðviljinn - 22.12.1973, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. desember 1973. MÚBVIUINN MALGAGN SÓSÍALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Askriftarverö kr. 360.00 á mánuði Lausasöluverð kr. 22.00 Prentun: Blaðaprent h.f. KJÖRORÐ ÍHALDSINS: FYRST FLOKKURINN—SVO BORGARBÚAR Sigurjón Pétursson, borgarráðsmaður Alþýðubandalagsins, flutti ýtarlega ræðu um fjárhagsmál Reykjavikurborgar við 2. umræðu um fjárhagsáætlun borgarinnar. 1 ræðu sinni sýndi Sigurjón fram á það með mörgum sláandi tölum og saman- burði við fyrri ár að ihaldsmeirihlutinn i borgarstjórninni notar sér aðstöðu sina i borginni til þess að tryggja hagsmuni Sjálfstæðisflokksins og undirbýr nú kosn- ingar. Geir Hallgrimsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, hélt þvi fram að vinstristjórnin gerði ,,aðför að hagsmun- um Reykvikinga”. Nýi borgarstjórinn ap- ar þessar kenningar eftir, og nú er talað um „pólitiskar ofsóknir” gegn Reykvik- ingum. En hverjir fara með pólitiskum ofsókn- um á hendur Reykvikingum? Það er borg- arstjórnarmeirihluti ihaldsins, sem hyggst nú leggja meira á borgarbúa en nokkru sinni fyrr. Við athugun fjárhags- áætlunar borgarinnar fyrir næsta ár kemur i Ijós að álögð útsvör eiga að hækka um 2000 milj. kr. frá yfirstandandi ári eða um 28,6% milli ára. Auk þessa gerir meirihlutinn ráð fyrir 50% álagi á öll fast- eignagjöldin, einnig á ibúðarhúsnæði! Þannig er fjárhagsáætlunin yfirspennt, og meirihlutinn segir samt að hann hafi ekki nægilegt svigrúm til skattaalagningar. Hvernig yrðu skattarnir ef meirihlutinn yrði ekki að sæta ákveðnum lögbundnum takmörkunum eins og önnur sveitarfé- lög?! Sigurjón Pétursson rifjaði siðan upp hvernig fjárhagsáætlanirnar voru á valdatima viðreisnarflokkanna og svo sið- ustu ár til samanburðar. 1971, siðasta viðreisnarárið, var tekju- afgangur til framkvæmda 296,9 milj. kr. eða 16,4% af tekjum borgarinnar. 1972 höfðu tekið gildi ný Iög um tekju- stofna sveitarfélaga. Þá hækkaði tekjuaf- gangur i 587,9 milj. kr. eða um 98% milli ára og þá var hægt að verja til fram- kvæmda 27,7% af tekjum borgarinnar. í áætlun ársins 1973 var gert ráð fyrir 770,7 milj. kr. tekjuafgangi til fram- kvæmda, sem var liðlega 30% af tekjum borgarinnar. í áætlun fyrir árið 1974 hækkar þessi tekjuafgangur enn i 1.087,1 milj. kr. eða um 316,4 milj. kr. milli ára og er nú áætlað að verja rúmlega 31% af tekjum borgar- innar til framkvæmda. Það er þannig ljóst að þau tekjustofna- lög, sem núverandi rikisstjórn setti, tryggja sveitarfélögunum fyllilega nægi- legt f jármagn til framkvæmda og að borg- arstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokksins notar aðstöðu sina til hins itrasta vegna þess að i hönd fer kosninga ár. En samt er „kvartað sáran undan þvi að vond rikisstjórn skuli standa i vegi fyrir frekari skattheimtu. Það er svo til að kór- óna tviskinnungsháttinn að flokksbræður borgarstjórnarmeirihlutans á alþingi leggja þar til að dregið verði stórlega úr skattheimtu og sparnaður aukinn”, sagði Sigurjón Pétursson ennfremur i ræðu sinni. Hann sýndi ennfremur fram á, að Endemisafstaða Bjarna Guðnasonar þingflokks Frjálslynda flokksins að undanförnu hlýtur að hafa vakið athygli þar sem hann hefur verið auglýstur sam- viskusamlega i öllum helstu fjölmiðlum rétt eins og mannkynslausnari væri i heiminn borinn svo sem fyrr hefur gerst i desember. Stuðningsmenn rikisstjórnar- innar og herstöðvaandstæðingar i öllum flokkum fordæma framferði Bjarna, þar sem hann stefni markmiðum stjórnar- framkvæmdir eru áætlaðar svo miklar nú vegna þess að nú — á kosninga ári — brennur á ihaldinu vanræksla liðinna ára. Auk þess ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að neyta allra bragða til þess að halda velli i Reykjavik, vitandi sem er að þar er sið- asta vigið. Falli það er hruninn hornsteinn undir völdum Sjálfstæðisflokksins. Þetta vita vinstrimenn lika og einmitt þess vegna er sérstaklega ánægjuleg samstaða vinstrimanna í borgarstjórn allt það kjör- timabil borgarstjórnar sem nú er senn á enda runnið. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar sér að kom- ast áfallalitið yfir borgarstjórnarkosning- arnar. Þess vegna hækkar hann útsvörin á Reykvikingum um nærri 40%, þess vegna á nú að reyna að bæta vanrækslusyndir liðinna ára i framkvæmdum i borginni. Flokkur sem þannig fer með fjármuni al- mennings sannar með eigin verkum, að honum er ekki trúandi til forustu i borg- inni. Eftir 40 ár i valdastólunum i Reykja- vik er spillingin orðin slik að útsvör eru hækkuð um nærri 40% til þess að bjarga andliti flokksins. Fyrst er það flokkurinn — svo borgin. Er ekki fyllilega timabært aðýta spillingaröflunum til hliðar og sam- einast um það? flokkanna i hættu með háttalagi sinu. Einkum er þetta alvarlegt að þvi er her- stöðvamálið varðar, Hins vegar kann Bjarni að verða hinn þarfasti upphlaups- maður ef hann hirðir — eins og nú bendir margt til — fylgi af Sjálfstæðisflokknum, en þessa dagana gengur varla hnifurinn á milli Bjarna Guðnasonar og Geirs Hall- grimssonar og menn spá þvi, að það verði Bjarni, fyrr en Björn, sem sameinist Gylfa. PÓLITÍSKUR TRÚÐUR Kosið í ráð og nefndir á alþingi A fundi Sameinaös alþingis i gær var kosiö i allmörg ráö og nefndir og fer hér á eftir yfirlit yfir þær kosningar. 1. Kosning framkvæmdastjóra Söfnunarsjóðs islandstil 6 ára. Kosinn var Bjarni Guð- mundsson fyrrum blaöa- fulltrúi, aðrar tillögur komu ekki fram. 2. Kosning 6 fulltrúa og jafn- margra til var i Noröurlanda- ráö. Kjörnir voru: Af A-lista Jón Skaítason, Gils Guömundsson og Hannibal Valdimarsson. Af B-lista Matthias A. Mathiesen og Jóhann Hafstein. Af C-lista Gylfi Þ. Gislason. Og varamenn: Af A-lista Asgeir Bjarnason, Svava Jakobsdóttir og Karvel Pálmason. Af B-lista Gunnar Thor- oddsen og Geir Hallgrimsson. Af C-lista Eggert G. Þorsteinsson. 3. Kosning þriggja manna i Sildarútvegsnefnd og jafn margra til vara til þriggja ára. Kjörnir voru: Af A-lista Jón Skaftason Kópavogi og Ólafur Gunnarsson Neskaupstað. Af B-lista Jón L. Þórðarson, forstjóri. A-listi fékk 31 atkvæði og B-listi 22 atkvæði, en einnig kom fram C-listi með nafni Birgis Finnssonar og fékk 6 at- kvæði en engan kjörinn. Varamenn i sildarutvegs- nefnd voru kjörnir af A-lista Kristmann Jónsson Eskifirði og Karl Sigurbergsson Kefla- vik og af B-lista Guðfinnur Einarsson útgerðarmaður. 4. Kosning þriggja manna i stjórn Landshafnar Kefla- vikurkaupstaðar og tveggja endurskoðenda reikninga hafnarinnar. Allt til fjögurra ára. Kjörnir voru i stjórn: Af A-lista Páll Jónsson og Odd- bergur Eiriksson. Af B-lista Alfreð Gislason bæjarfógeti. SINE-menn í Lundi: Hvikið ekki frá settu marki — herinn burt Islenskir námsmenn i Lundi skora á rikisstjórn Islands að hvika hvergi frá settum mark- miðum um brottför hersins fyrir lok kjörtimabilsins. Við fögnum skýlausri yfirlýsingu forsætisráð- herra, að hafi samningar ekki náðst fyrir 25. desember, verði strax að loknu jólaleyfi lögð fyrir Alþingi tillaga um heimild til uppsagnar herstöðvarsamnings- ins. I þvi sambandi hvetjum við is- lensku þjóðina að taka ekki mark á ofstækisfullum skrifum morg- unblaðsins um „fremstu viglinu rússa” og öðrum þvilikum kalda- striðsáróðri. Að baki þessum skrifum liggja aðrar hvatir en hollusta við islenskan málstað og sjálfstæði tslands. Samþ. á fundi i SlNE-deild Lundar með 70% greiddra at- kvæða). . A-listi fékk 31 atkvæði og B- listi 22 atkvæði, en einnig kom fram C-listi með nafni Ólafs Björnssonar Keflavik og fékk 6 atkvæði en náði ekki kjöri. Endurskoðendur reikninga hafnarinnar voru kjörnir Valtýr Guðjónsson og Alex- ander Magnusson, báðir i Keflavik. 5. Kosning 7 manna og jafn margra til vara i stjórn Lands- hafnar i Þorlákshöfn til fjögurra ára. Kjörnir voru: Af A-lista Benedikt Thorarensen Þorlákshöfn, Ólafur Ólafsson Hvolsvelli, Asgeir Benedikts- son Þorlákshöfn og Halldór Hafsteinsson Selfossi. Af B-lista Friðrik Friðriksson Þorlákshöfn og Gisli Bjarnason Selfossi. Af C-lista Gunnar Markússon Þorlákshöfn. Og varamenn: Af A-lista: Hjörtur Jóhannesson Hvera- gerði, Þorsteinn Sigvaldason Þorlákshöfn, Ketill Kristjánsson Þorlákshöfn og Sigurður Helgason Þorláks- höfn. Af B-lista: Gunnar Sigurðsson Seljatungu og Jón Þorgilsson Hellu. Af C-lista: Erlingur Ævar Jónsson Þorlákshöfn. 6. Kosning 5 manna i stjórn Sildarverksmiðju rikisins og jafn margra varamanna, allra til þriggja ára. Kjörnir voru: Af A-lista Jón Kjartansson forstjóri, Hannes Baldvinsson Siglufirði og Páll Árnason Raufarhöfn. Af B-lista Sveinn Bene- diktsson forstjóri og Þorsteinn Gislason skipstjóri. Framhald á 14. siðu Gátan um uppruna íslenskrar þjóðar Sögufélagið hefur gefið út bókina Frá árdögum islenskrar þjóðar eftir Arnór Sigurjónsson. Bókin fjallar um hið gamalkunna efni uppruna og rætur islenskrar þjóðar og menningar, og höfundur tekur efnið nokkuð öðrum tökum en venjulega. Arnór leggur áherslu á þá skoðun sina að hér hafi ekki i árdaga orðið neitt fornminjasafn noröurgermanskra siða og sam- félagshátta. heldur nýtt þjóðfélag sem stoð rótum i fornum minnum og menningu og nýrri reynslu. Hingað fluttist um aldamótin 900 alls konar flóttafólk vestur-norskt og irskt að ætt. stælt i harðræðum og ósigrum á umbrotamikilli byltingaöld. Úr þessu umróti óx hér á landi þjóð sérstæðra lifs- hátta. skipulags og menningar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.