Þjóðviljinn - 25.05.1974, Blaðsíða 1
UÚÐVIUINN
Laugardagur 25. mai 1974 — 39. árg. — £CTtbl.
Stœrsti fundur stjórnmálaflokks, sem haldinn hefur verið
NÆR 6000 MANNS í
HÖLLINNI
Mannfjöldinn sannaði að kröftugasta stjórn-
málaafl vinstri manna er Alþýðubandalagið
Að kvöldi uppstigningardags gerðist
sá sögulegi atburður i Reykjavik, að
haldinn var stærsti kosningafundur
stjórnmálaflokks sem haldinn hefur
verið i höfuðstað landsins. Stærsta
samkomuhús borgarinnar var troð-
fullt, hvert sæti skipað og staðið í
göngum og meðfram sætaröðum.
Talið er að hátt á sjötta þúsund manns
hafi sótt fundinn.
Fundurinn i Laugardalshöllinni var
glæsilegur vitnisburður um þann
sóknarhug sem nú einkennir allt starf
Alþýðubandalagsmanna. Stuðnings-
menn G-listans eru staðráðnir i að
nota hverja klukkustund uns kjör-
stöðum verður lokað annað kvöld til
þess að vinna að sigri.
Jón Múli Árnason var kynnir á fundinum og hann
sagðist verða að fyrirgefa ihaldinu húsnæðisskort-
inn: það væri ekki nema von að borgarstjórnarmeiri-
hlutinn miðaði húsplássið við eigin þarfir!
A fundinum voru flutt margskonar pólitisk
skemmtiatriði og ræður sem sagt er frá i máli
ogmyndum á 14. og 15. siðu blaðsins i dag, en i opn-
unni er birt mynd af hinum stórglæsilega fundi
G-listans.
Þessum frábæra kosningafundi G-listans verður
ekki lýst betur en I myndum og þær er að finna inni i
blaðinu, auk þeirra mynda sem hér birtast á siðunni.
Kosningaveðrið:
Sólskin syðra
Ský j að nyrðra
Frekar má búast við þvi að veðurguðirnir hafi
velþóknun á þeim bæjar og sveitarstjórnar-
kosningum sem fram fara á morgun.
Að þvi er Páll Bergþórsson
veðurfræðingur sagði i gær má
fastlega gera ráð fyrir norðlægri
átt i landinu, sem þýðir sólskin
sunnan fjalla og fyrir austan en
þungbúið loft fyrir norðan. Páll
sagði að hvergi á landinu væri
búist við slæmu veðri. —S.dór
Sjá myndir
frá fundinum
á síðum
12, 13, 14 og 15
ívið færra
hjá íhaldi
Sjálfstæðisflokkurinn efndi til
fundar i Laugardalshöllinni i
gærkvöldi. Stundarfjórðungi eftir
að fundur átti að hefjast, vantaði
mjög á að fullskipað væri i sæti.
Töldu kunnugir, að á fundinum
hefðu verið um tveim þúsundum
færra en á fundi G-listans i
fyrrakvöld.
Sjálfstæðismenn óðu um bæinn
i gær meðgjallarhornog fóru m.a.
inn á vinnustaði til að smala fólki,
en fengu dræmar undirtektir, eins
og fundarsóknin bendir einnig til.
Orðrómur um fjármálamisferli
hjá borginni — Sjá baksíðu
Framsókn offrar Tómasi
Úr herbúðum Fram-
sóknarf lokksins berast
þær fréttir að kaveðið hafi
verið, að Tómas Karlsson,
ritstjóri Tímans, verði ekki
á framboðslista flokksins
fyrir Reykjavík í þing-
kosningunum i vor, en í
síðustu kosningum var
Tómas i þriðja sæti á list-
anum og náði því eftir
hörkukeppni í prófkjöri við
Baldur Öskarsson einn af
framámönnum Möðruvell-
inga, og Kristján Thorla-
cius, sem er einn forustu-
manna vinstri armsins,
sem nýskeð lét tii skarar
skríða og klauf sig frá
f lokknum.
dþ.
G-listinn:
SJÁLBOÐALIÐAR
G-listann i Reykjavik vantar sjálfboðaliða til starfa i dag og á morgun,
kjördag. Skráning sjálfboðaliða er að Grettisgötu 3 i sima 28655.
Þessi mynd gefur nokkra hugmynd um þann geysilega mannfjöida,
sem sótti kosningafund G-listans i Laugardalshöllinni i fyrradag.
Þessa mynd tók AK, hann tók einnig stóru myndina i opnunni sem sýnir
yfir mannfjöldann og á 14. og 15siðu eru fleiri myndir frá fundinum.