Þjóðviljinn - 25.05.1974, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 25.05.1974, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN Laugardagur 25. mai 1974. CAI Pl Rl Cl H IOS KENJAR Mynd: Francisco Goya y Lucientes Mál: Guðbergur Bergsson 49. Skottur „Prestarnir og munkarnir eru einu sönnu púkar þessa heims. Kirkjan, með sina löngu hönd og vigtönn, bitur i allt, sem hún kemst yfir”, stendur i A- handritinu. Afskræmin eru stödd i boghvelfingu kjallara einhvers klausturs, og er eitt þeirra að slafra i sig úr krukku. Fingralangur púki stendur á miðri mynd, syngjandi sæll og glaður með glas i hendi. Þriðja afskræmið spennir greipar og dregur að sér vinandann gegnum nefið. Það er liklega ekki eins syndsamlegt og að drekka með munn- inum. „Kirkjan, eða prestastéttin, hefur nagdýrstennur, og hægri hönd hennar er risastór og fingralöng, þannig að hún geti hremmt allt til sin,” stendur | meöal annars i A-handritinu. Ofar allri ádeilu, sem felst i mynd- inni, og táknrænni merkingu hennar, aö skotturnar búi i djúpi kirkjunnar, eða i kjöllurum klaustranna, rikir skop og kæti skripanna: matargræðgin, ungfrúarlegi hettumunkurinn, sem bregður fram fæti, eins og hann ætli að stiga dans, og dvergvaxna og drukkna ófreskjan á miðri myndinni. Verurnar koma okkur einkar kunn- uglega fyrir sjónir, likt og þær séu per- sónur i velþekktu ævintýri, eða þjóð- sögu. Svartnættið vikur fyrir spaugi Goya. Myrkravöldin missa máttinn, ógnin hverfur af þeim. Þau verða mennsk: svöng, dansglöð og drukkin. Mannlegu eiginleikarnir verða þess valdandi, að áhorfandinn finnur eitt- hvað sameiginlegt með þeim og sjálf- um sér: púkann, sem býr i öllum mönnum. Kjósið snemma G-listinn hvetur kjósendur til þess að kjósa snemma dags. Þeir sem fara úr bænum i dag eru vin- samlegast beðnir um að hafa það sérstaklega i huga, — og minna kunningjana á. Kjósið snemma, kjósið G- listann. Sendi- herra í Mexíkó Hinn 20. mai s.l. afhenti Har- aldur Kröyer, sendiherra, Licen- ciado Luis Echeverria Alvarez, forseta Mexikó, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra tslands i Mexlkó með aðsetri i Washington. Það er vor aldarinnar á Héraði „Þetta er vor aldarinnar”, sagði Sigurður Blöndal skógar- vörður á Hallormsstað, er við ræddum við hann i gær. Menn muna ekki aðra eins vorbliðu þar eystra, og á Héraði hefur veðrið verið enn betra en suðvestan- lands. Sigurður sagði, að gróður allur væri kominn mánuði lengra en i venjulegu ári. Stöðug hlýindi hefðu verið i allt vor, gróðrar- skúrir og sólskin skiptust á. Skóg- ræktin sjálf nyti þó veður- bliðunnar ekki sem skyldi vegna þess að plöntunin er meira bundin almanakinu en veðrinu. Breytt námstilhögun í Stýrimannaskóhmum Stýrimannaskólanum i Reykja- vik var sagt upp hinn 18. mai I 83. sinn. Viðstaddir skólauppsögn voru margir af eldri nemendum skólans. t upphafi ræddi skólastjóri um breytingar á námstilhögun við skólann. Til inngöngu i 1. bekk er nú krafist gagnfræðaprófs eða hliðstæðs prófs. Starfrækt er sérstök undirbúningsdeild fyrir þá sem ekki hafa tilskilinn undir- búning. I þeirri deild eru aðeins kenndar 5 námsgreinar: stærð- fræði, eðlisfræði, islenska, danska og enska. Próf úr 1. bekk veitir skipstjórnarréttindi á fiski- skipum allt að 120 tonnum. Náms- efni 2. bekkjar hefur nú verið’ samræmt fyrir farmenn og fiski- menn þannig að nú fá allir sömu réttindi að loknu prófi 2. stigs, þ.e. full skipstjórnarréttindi á fiskiskipum af hvaða stærð sem er og kaupskipum allt að 400 tonnum, ennfremur undir- stýrimannsréttindi á kaupskipum af hvaða stærð sem er. Sk'i’p- stjórnarréttindi á fiskiskipum eru þó háð þvi, að menn hafi tilskilinn siglingatima á fiskiskipum. Skip- stjórnar- og undirstýrimanns- réttindi á kaupskipum eru og háð ákvæðum um siglingatima á slikum skipum. Með þessari F ramboðslisti breytingu á að verða auðveldara fyrir alla að ljúka prófi 3. stigs, sem veitir full skipstjórnar- réttindi. Þá gat skólastjóri þess að aðstaða til fækjakennslu hefði batnað verulega, eftir að skólinn fékk tækjasal i nýbyggingunni fyrir austan skólann. 1 vetur var haldin deild fyrir skipstjóraefni á varðskipum rikisins, eða 4.stigs deild. Sóttu hana 10 menn og luku þeir prófi i janúarlok. Hæstu einkunn hlaut Einar Róbert Arnason, 7,26 sem er ágætiseinkunn. Að loknu prófi færðu þeir skólanum að gjöf fagra myndastyttu. Hefur henni verið komið fyrir á hentugum stað i kennarastofu. Að þessu sinni luku 23 far- mannaprófi 3. stigs og 46 annars st.'prófi. Efstur við 3. stigs prófið var Uagþór Sigmar Haraldsson, 7,70, og hlaut hann verðlauna- bikar Eimskipafélags Islands, farmannabikarinn. Efstur við annars stigs prófið var Þórarinn Ölafsson, 7,84, og hlaut hann verðlaunabikar öldunnar, öldu- bikarinn. Hámarkseinkunn er 8. Bókaverðlaun úr verðlauna- og styrktarsjóði Páls Halldórssonar, fyrrverandi skólastjóra, hlutu eftirtaldir nemendur, sem allir löiöu hldtið ágætiseinkunn: Dagþór Haraldsson, Jens G. Jensson, Jóhann Kiesel, Jón Börkur Ákason, Lúðvik Einarsson og Sigurður Berg- sveinsson úr 3. stigi, en Arni Sigmundsson, Guðmundur Kristjánsson, Guðni Einarsson, Helgi Arason, Hreggviður Hregg- viðsson, Jóhannes Sigurðsson, Jón Steingrimsson, Sigurður Jónsson, Þórarinn Ólafsson og Þorsteinn Baldvinsson úr 2. stigi. Skipstjórafélag Islands veitti Lúðvik Einarssyni bókarverðlaun fyrir hámarkseinkunn i siglinga- reglum. Skólastjóri ávarpaði siðan nemendur og óskaði þeim til hamingju með prófið. Benti hann þeim á ábyrgð og skyldur yfir- manna á skipum. Taldi hann góðar horfur á þvi, að þeir gætu fljótlega notfært sér þau réttindi, sem þeir hefðu aflað sér með skólaverunni, skipa- stóilinn væri i örum vexti og skortur væri á yfirmönnum á skipum. Hann brýndi fyrir þeim að virða rétt annarra á hafinu og varaði við þeim afleiðingum, sem hlotist gætu af þvi, ef settar reglur væru ekki i heiðri hafðar. Þá þakkaði hann nemendum samveruna og óskaði þeim far- sældar i framtiðinni. Að lokinni ræðu skólastjóra tóku þessir til máls: Jóhann Eiriksson fyrir sextiu ára prófsveina. Gaf hann ásamt Jóni Högnasyni og Valdi- mar Guðmundssyni skólanum ljósrit af handriti af siglinga- Framhald á 21. siðu. Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi Kjördæmisráð Alþýðubanda- lagsins I Reykjaneskjördæmi kom saman til fundar fimmtu- daginn 23. mai I Hlégarði Mos- fellssveit. Þar var einróma samþykktur framboðslisti flokksins vegna alþingis- kosninganna 30. júni. Listinn er þannig skipaður: 1. Gils Guðmundsson alþm. Rvk. 2. Geir Gunnarsson alþm. Hf. 3. Karl G. Sigurbergss. skipstj. Keflav. | 4. Ólafur R. Einarsson, menntask.kenn. Kóp. 5. Erna Guðmundsd. húsm. Hf. 6. Hallgrimur Sæmundss. kenn. Gh. 7. Helgi ólafsson, skipstjóri Grindavik. 8. Svandis Skúlad. fóstra Kóp. 9. Hafsteinn Einarsson, kompásasm. Seltj. 10. Magnús Láruss. húsg.sm. Mosf. Kjördæmisráðsfundurinn var fjölsóttur og mikill baráttuhugur i Alþýðubandalagsmönnum á Reykjanesi. Nánar verður sagt frá fundinum eftir helgi. Fimm efstu menn á G-lista i Reykjaneskjördæmi. Taliö frá vinstri: Karl G. Sigurbergsson (3), Ólafur R. Einarsson (4), Erna Guömundsdóttir 5, Gils Guömundsson (1) og Geir Gunnarsson (2).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.