Þjóðviljinn - 25.05.1974, Page 14
14 SÍÐA — Þ.IÓÐVII..IINN Laugardagur 25. mai 1974.
Sigurjón Pétursson, efsti maður
G-Iistans i Reykjavík, flutti fyrstu
ræðuna, öfluga hvatningarræðu
þar sem hann lagöi áherslu á að
kosið væri um málefnin fyrst og
fremst. Framan á sviðinu er hluti
kjörorðsins: Til vinstri i vor —
alla leið!
Ljósmyndir:
Sigurjón
Jóhannsson
G-LISTA
HÁTÍÐIN
Jón Múli var ky nnirinn. Kynningar hans einar sér eru kapituli út af fyr-
ir sig: af þeim vildi enginn missa. Við birtum hér mynd af kynninum
okkar, er hann setti samkomuna og sagði: „Svo bjóðum við okkur öll
velkomin i Laugardalshöllina á þessu fagra uppstigningardagskvöldi
— en hér erum við komin til að staðfesta enn betur ákvörðun okkar um
niðurstigningu borgarstjórnarihaldsins á sunnudaginn kemur. Góðir
félagar! Við skulum reyna að forðast troðning I lengstu lög. Við verðum
að fyrirgefa Ihaldinu húsnæðisskortinn I kvöld — það er ekki nema
mannlegt að þeir miðuöu húspláss við eigin fundarsókn og ætluðu sér
nægilegt olnbogarými hér j — þeir eru vanastir þvi heima hjá sér, sem
og annars staðar i borginni sem þeir hafa eignaö sér — en verður nú um
helgina okkar.”
Á hátiðinni var frumflutt nýtt kosningaverk, „Klofnings- og sameiningarfúgan” eftir Sigurö Rúnar
Jónsson við hátiðaljóö eftir Böðvar Guðmundsson. „Kristin ólafsdóttir frambjóöandi ætlar enn að bæta
gráu ofan á svart og syngja þetta allt”. Á myndinni eru þau Kristin og Sigurður Rúnar.
Asamt Sigurði Rúnari lék poppflokkur hans, þeir Asgeir óskarsson, trommuleikari, Sigurður Árna-
son, bassi, og Björgvin Gislason, gitarleikari. Fyrst léku þeir tyrkneskan dans eftir Mozart af mikilli
snilld og við frábærar undirtektir áhcyrenda.
Samherji okkar frá ttaliu, sagði kynnirinn, og inn gekk Salvatore di
Gesualdo, Itaiski harmonikusnillingurinn, og hann fór á kostum.