Þjóðviljinn - 25.05.1974, Blaðsíða 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. mai 1974.
Hvernig vill Alþýðubandalagið breyta stjórnkerfi borgarinnar
i vetur vann starfshópur
á vegum Alþýðubanda-
lagsins að því að móta
stefnuskrá Alþýðubanda-
lagsins í borgarmálum.
Einn hópurinn lagði fram
sjónarmið um stjórnkerfi
borgarinnar og hér fara á
eftir tillögur um breyting-
ar á því, þess efnis, að
bæta aðstöðu kjörinna full-
trúa fólksins, breyta emb-
ætti borgarstjóra og færa
valdið í sérmálum út til
kjörinna hverf isstjórna.
Alþýðubandalagið vill
taka upp lýðræðislegri
stjórnhætti í Reykjavík
Reykjavik hefur sérstöðu i is-
lensku þjóðfélagi bæði vegna fjöl-
mennis og vegna þess að hún er
höfuðstaður landsins. Mörg þjóð-
félagsvandamál koma skýrar
fram i Reykjavik en annarsstað-
ar á landinu vegna þeirra sér-
stöku vandamála sem fylgja
borgarsamfélagi. Stjórnendur
borgarinnar hafa einnig gert sitt
til að laga allt borgarkerfið að
sjónarmiðum einkagróðans,
þannig að verðbólgan, milliliða-
starfsemin og braskið kemur ó-
viða harðar niður á hinum al-
menna borgara en einmitt i
höfuðborginni. Þessi alvarlega
staðreynd kemur ljósast fram i
húsnæðismálum, þar sem Reyk-
vikingar eru algerlega ofurscldir
lögmálum gróðakerfisins.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem hef-
ur minnihluta borgarbúa á bak
við sig, hefur farið með meiri-
hlutavald i borginni um áratuga
skeið og stjórnað henni i þágu
þröngs hóps vildarmanna sinna.
Tök sin i borgarkerfinu hafa þeir
hert, með þvi að flétta saman
flokksvald og embættismanna-
vald þannig að ekki verður á milli
greint. Þessari þróun verður að
snúa við til þess að embættis-
menn borgarinnar geti unnið á
eðlilegan hátt að sameiginlegum
hagsmunum allra borgaranna.
Markmið Alþýðubandalagsins er
að brjóta á bak aftur einflokks-
veldið i borgarstjórn Reykjavíkur
og færa stjórn borgarinnar i si-
fellt rikara mæli til borgaranna
sjálfra og til réttkjörinna fulltrúa
allra flokka.
Þjóðin vill eiga höfuðstað, sem
stjórnað er af reisn og myndar-
skap, og frá sjónarmiði Alþýðu-
bandalagsins er það verkefni
Ef fólkið fellir
íhaldiö
r
i jK*
Uí 'jmŒu jÉrJU
njB iSP haik..
stjórnenda borgarinnar að gera
hana að borg félagshyggju, þar
sem hver einstaklingur lifir og
starfar i öryggi og við góð kjör.
Alþýðubandalagið telur að gera
verði eftirfarandi ráðstafanir til
þess að unnt sé að skapa lýð-
ræðislegri stjórnarhætti i borg-
inni sjálfri og i borgarstjórninni:
Breyta verður verks-
sviði borgarstjóra
Borgarfulltrúum verði sköpuð
starfsaðstaða á vegum borgar-
innar þar sem þeir geti unnið
bæði á venjulegum skrifstofu-
tima og utan hans og haft
frjálsan aðgang að hvers konar
nauðsynlegum skjölum um
borgarmál. Nefndir kjörinna
fulltrúa verði yfir öllum stofn-
unum borgarinnar og embætt-
ismenn eigi ekki sæti.i þeim
nema svo sé ákveðið i landslög-
um.
Aukin verði verkefni forseta
borgarstjórnar og honum falið
að koma fram fyrir hönd borg-
arinnar út á við.
Borgarstjórinn verði einn emb-
ættismanna borgarinnar, en
ekki jafnframt borgarfulltrúi.
Hann verði ásamt tveimur öðr-
um embættismönnum — yfir-
manni fjármála og yfirmanni
verklegra framkvæmda — ráð-
inn fyrir hvert kjörtimabil.
Stöður þessar verði þvi ætið
lausar að loknum borgarstjórn-
arkosningum. Aðrir embættis-
menn sem fara með yfirstjórn
málaflokka verði ráðnir til 6
ára i senn.
Færum valdið út til
kjörinna hverfastjórna
Borginni verði skipt i hverfi er
hafi sérstakar hverfastjórnir,
sem kosnar verði beinni kosn-
ingu og þeim sköpuð viðunandi
starfsaðstaða. Um þetta hefur
Alþýðubandalagið lagt fram
mjög ýtarlega tillögu i stjórn
kerfisnefnd borgarinnar.
Hverfastjórn skal gera tillögur
til borgarstjórnar um þau mál
er varða hverfið sérstaklega og
hafa frumkvæði að boðun al-
mennra hverfafunda um hags-
munamál hverfisbúa. Fulltrúi
stjórnarinnar skal sitja fundi
borgarráðs með málfrelsi og
tillögurétti, þegar málefni, er
varða hverfið, eru rædd.
Borgarstjórnin skal leita um-
sagna hverfastjórna um eftirtalin
atriði:
um breytingar á skipulagi og
meiriháttar mannvirkjagerð i
hverfinu.
um málefni er varða dagvist-
un barna, skólamál, tóm-
stundastarf unglinga, leikvelli,
iþróttaaðstöðu og opin svæði.
um heilbrigðisþjónustu, aðstoð
við aldraða, aðra félagsmála-
aðstoð og önnur atriði, er varða
hverfisbúa sérstaklega.
Að þessu vill Alþýðubandalagið
vinna á næsta kjörtimabili, ef þú
vilt stuðla að breytingu i borginni
með þvi að fella ihaldskerfið og
velja G-listann, Alþýðubandalag-
iö, eina heilsteypta vinstri flokk-
inn, sem setur i öndvegið róttæka
félagshyggju.
pi'ij 1 HJ " MJ. 1 1 '. f'l1 r"r -r" TuunrTrr i!!! •!! !í! ■ !f
ílj 1 i P *i l!i i! pilllili! iBBfiBB itftti mtre 1 S * ■ >-—> ■ •.. .»■ J
■MLlTu U1...U. m.mim u„»
áníTííI! Íni JipP!ilí|iiO »m»g'i n t < »>■ iifeSl: ; jí I
| |
^nmiM iiiiiij ^ 111 JI":V: 11 |í-
wm S]i!!l m Ínnj iíiiii IJIíii lli
> , - »*»'
k:,
\ rrj«r f I rr ■ *'*« Ur > l.vrW T«"|WT r.r | | jrr f ^,TTg,,jirrT"l""g”y»"? !**««{ * rr W|" ’pvwjrrj rvr*rr~i—t vrH i*«« i *»«•■* % «• |2