Þjóðviljinn - 25.05.1974, Side 23
Laugardagur 25. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 23
SJÓNVARP
KLUKKAN 16.00:
Efstu menn
listanna þjarka
Borgarmálefnin heitir
þáttur sem sýndur
verður síðdegis í dag
vegna borgarstjórnar-
kosninganna á morgun.
Eiður Guðnason mun
stjórna hringborðsumræðum,
sem efstu menn framboðslist-
anna í Reykjavik munu taka
þátt i.
Umræðurnar hefjast
klukkan 16 og munu standa i
einn og hálfan tima, að þvi er
Eiður Guðnason taldi. Þáttur-
inn var hins vegar tekinn upp i
morgun.
Af hálfu Alþýðubandalags-
ins talar Sigurjón Pétursson,
en aðrir þátttakendur eru
B.Isleifur borgarstjóri,
Kristján Benediktsson fram-
sóknarmaður, Björgvin
Guðmundsson hægrikrati og
Ingvar Asmundsson, frjáls-
lyndur.
Björgvin Guðinundsson á tali við starfsfólk Bæjarútgerðarinnar.
— Ilann er nú alþýðlegur, hann Björgvin! — Mynd úr Alþbl. 23.
mai s.L
Markús í skúffu
Markús örn er borinn og
barnfæddur Reykvikingur,
fæddur 1943,og gerist það æ
fátiðara nú á dögum, að menn
á hans aldri geti rakið ættir
sinar mann fram af manni i
Reykjavik sjálfri. En þeir
stofnar, sem standa að
Markúsi i báðar ættir, eru
reykviskir og sem dæmi má
nefna, að langafi hans var
Markús Þorsteinsson söðla-
smiður, sem fluttist ásamt
konu sinni til Reykjavikur á
siðustu öld. Byggði hann hús á
horni Laugavegar og Frakka-
stigs, sem i þá tið var á endi-
mörkum Reykjavikur. Siðar
byggði Markús Þorsteinsson
annað hús við Frakkastig
númer 9 og þar ólst móðir
Markúsar upp. Hann segist
minnastbernskuheimsóknar á
það heimili, svo og til ömmu
sinnar i föðurætt, er bjó á Sól-
vallagötunni. Þar fékk hann
gjarnan að sofa i rúmfata-
skúffu nótt og nótt og þótti
ekkert tiltökumál, þótt börn 7
og 8 ára ferðuðust borgina á
enda i strætisvagni i heimsókn
til ættingja og vina eða jafnvel
til að sækja skóla. Þótt
Markús sé i raun ekki nema
rúmlega þritugur, hefur
borgin þó á þessum árum
tekið miklum stakkaskiptum,
breytzt úr allstóru bæjarfélagi
i viðáttumikla borg og ekki er
óliklegt, að foreldrum ói nú til-
hugsunin um að börn þeirra,
jafnvel á unglingsaldri,
flækist borgarenda á milli.
I raun leið mér ekki vel sem
fréttamanni við rikisfjölmiðil
er á leið. Sjálfsagt hef ég verið
of pólitiskur i eðli minu til þess
að svo gæti orðið. Þó gætti ég
þess að sjálfsögöu, að afstaða
min kæmi hvergi fram i
störfum minum. Andstæð-
ingar minir i stjórnmálum
hafa kannski þótzt finna það.
Ég aðhyllist vitaskuld vest-
ræna lýðræðishugsjón
Moggi, 23. mais.l.
Umsjón:
GG og SJ
PENNAVINUR
Max B. Ludvigsen skrifar
okkur og biður um pennavin á
Islandi. Hann hefur áhuga á
stjórnmálum, ljósmyndum og
frimerkjum. Heimilisfangið
er:
Max B. Ludvigsen
Krogagervej 9
4180 Sorö,
Danmark.
SALON GAHLIN
— Hún hreyfir sig litið, enda
ekki nema von. Hún hefur
fengið svo oft andlitslyftingu
að hún getur varla beygt hnén.
KOsnmcA k
HÁÚÍÐ 1
- li/ton/
i lougoidnl/höllinni
'ö/lucl<i9inn 24.mcií kl. 20.30
DclC|Skr3Z A milli ávarpanna mun Ómar Ragnarsson flytja gamanmól.
Fréttamenn sjónvarpsins
sendu frá sér yfirlýsingu, þar
scm þeir segjast undantekn-
ingalaust fylgja þeirri reglu
að koma ekki fram fyrir hönd
pólitiskra samtaka, og finnist
þeim að þessi rcgla hljóti að
ná til sambærilegra starfs-
manna útvarpsins.
Þessi yfirlýsing sjónvörp-
unganna er til komin vegna
tillags Jóns Múla Arnasonar
og Kristinar ólafsdóttur til
kosningahátiðar G-listans i
Laugardalshöll á fimmtu-
dagskvöldið.
Og hér kemur yfirlýsingin:
,,Að marggefnu tilefni vilj-
um við undirritaðir frétta-
menn og fréttaþulir Rikisút-
varpsins sjónvarps taka fram
eftirfarandi:
Við viljum itreka, að frétta-
menn og fréttaþulir sjónvarps
fylgja undantekningalaust
þeirri reglu að koma ekki
fram fyrir hönd pólitiskra
samtaka, hvorki i kosninga-
baráttu né þar fyrir utan. Þá
hafa fréttamenn og fréttaþulir
sjónvarps aldrei lesið texta
með sjónvarpsauglýsingum
né komið fram i slikum aug-
lýsingum. Teljum við ofan-
greint ekki samrýmast störf-
um fréttamanna og fréttaþula
við rikisfjölmiðil, sem lögum
samkvæmt skal gæta fyllstu
óhlutdrægni gagnvart mönn-
um og málefnum, og teldum
eðlilegast að þessi regla væri
einnig i heiðri höfð hjá sam-
bærilegum starfsmönnum út-
varpsins.
Eiður Guðnason
Ólafur Ragnarsson
Svala Thorlacius
Sonja Diego
Sigurjón Fjeldsted
Ómar Þ. Ragnarsson.
Guðjón Einarsson.
Jón H. Magnússon.
Og þeir undirrita sin frægu
nöfn ábúðarmiklir i framan.
Lika ómar Þ. Ragnarsson, sá
aðili sem þjónað hefur ihald-
inu lengst og best til að draga
fólk á fundi þess i Reykjavik
og reyndar út um allt land.
Ihaldið reyndi að gamna sér
i Laugardalnum i gærkvöld.
Og Ómar Þ. Ragnarsson lagði
sitt af mörkum — enda vitað
mál að hann einn gæti bjargað
þvi sem bjargað varð hvað
fundarsókn snerti.
RÉTTIFLOKKURINN
FYRIR HANNIBAL?
Þegar skólapiltar þeir,
sem voru í byrjun í hinni
landsfrægu skólahljóm-
sveit Kópavogs, uxu úr
grasi, vildu þeir halda
áfram að spila saman
og stofnuðu Hornaflokk-
inn. Tveir Kópavogs-
búar hittust á götu fyrir
skömmu og ræddu að
sjálfsögðu pólitíkina.
Annar segir:
— Nú hefur Hannibál
framið pólitiskt sjálfs-
morð, jafnvel kratarnir
vilja hann ekki.
— Vertu ekki of viss,
ég hef heyrt að Hannibal
hafi þegar byrjað
samningaviðræður við
Hornaf lokkinn!
Ra n nsókna r kaf bá tu r
Tækið hér á myndinni er
tveggja manna kafbátur,
Tinro-2, sem er smiðaður i
Sovétrikjunum fyrir fiski-
rannsóknadeild sjávarútvegs-
ráðuneytisins, og er nú verið
að reyna kafbátinn i Svarta
hafinu.
Um borð er rými fyrir tvo
menn, skipstjóra og visinda-
mann. Báturinn getur ýmist
verið um kyrrt i sjónum eða á
hafsbotni eða siglt i lóðrétta og
lárétta stefnu. Hann getur
verið um 10 klst. á siglingu i
einu. Ef eitthvað fer úr skorð-
um fara hjálpartæki i gang,
þannig að báturinn berst hratt
upp á yfirborðið.
Sovéskir visindamenn ætla
að rannsaka sérstaklega lif-
fræði sjávarins i þessum bát,
ekki sist með fiskeldi i huga.
Visindamenn geta ljós-
myndað og kvikmyndað gegn-
um kýraugu og fylgt eftir
fiskitorfum. Þeir geta einnig
náð inn i bátinn sjósýni með
hjálp sérstakra tækja.
(APN)
23.
SÍÐAN