Þjóðviljinn - 21.07.1974, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. júll 1974.
*
lögmál
ferða-
mannsins
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
Þetta er boðskapur náttúruverndariaganna um um-
gengni. En við vitum öll, að þetta er nauðsynlegt að
hafa hugfast, ef við viljum eiga áfram hreint land oq
fagurt.
Náttúruverndarráð
Göngum jafn vel frá áningarstað og við komum
að honum.
hiendum ekki rusli á víðavangi.
Spillum ekki vatni.
Sköðum ekki gróður.
Skemmum ekki sérstæðar jarðmyndanir.
Förum varlega með eld.
Ökum með gætni utan vega.
Fylgjum merktum göngustígum, þar sem þess er
óskað.
Notum ekki bilgluggann sem sorpílát.
Hirðum vel eignir okkar og umhverfi, svo ánægja
og sómi sé að.
Sá tryggir
sinn hag,
sem kaupir
SKODA
í dag! )
/ —1
Eftir síðustu hækkun
bensíndropans er SKODA
meðal eftirsóttustu
bifreiða ó markaðinum.
SKODA EYÐIR MINNA
' Ánœfföursi,
ekur á Skoda
Nokkrir bílar fyrirliggjandi 6 „Fyrir olfukreppuverti"
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBODIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
AUSBREXKU «4-8 Silll 42600 KÖTAVOGI
Skrifstofustúlka
Opinber stofnun óskar að ráða stúlku til að
annast simavörslu, vélritun og önnur
venjuleg skrifstofustörf.
Upplýsingar er greini menntun, aidur og
fyrri störf sendist afgreiðslu blaðsins fyrir
1. ágúst n.k. merkt: „Skrifstofustarf
1974”.
Mismunandi
skattgreiðslur
í tímaritinu Asgarði,
sem Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja gefur
út, er í síðasta hefti/ sem út
kom í þessum mánuði, sagt
frá skattaráðstefnu BSRB
i Munaðarnesi í marsmán-
uði s.l.
A ráðstefnunni flutti Ólafur
Nilsson, skattrannsóknarstjóri
erindi, og ræddi sérstaklega um
ástæður þess, að fjölskyldur, sem
eru jafnstórar og hafa jafnmiklar
brúttótekjur greiða ærið mismun-
andi upphæðir I útsvar og tekju-
skatt.
f timaritinu Asgarði eru birt 4
dæmi frá skattrannsóknarstjóra
um þetta, og leyfum við okkur að
taka þau upp til birtingar hér I
Þjóðviljanum.
Dæmin lita svona út:
1. fjölskylda.
Tekjur eiginmanns nettó án
vaxta kr. 1.500.000.
Vaxtafrádráttur þar frá 50 þús.
Útsvar 141.000
Tekjuskattur 342.900
Samtals 489.900
2. fjölskylda.
Tekjur eiginmanns 750.000
Tekjur eiginkonu 750.000
1.500.000
Skuldabréf
Lesandi hringdi og
spurðist fyrir um hvers
vegna ÁTVR annars vegar
og Reykjavíkurborg hins
vegar keyptu skuldabrét;
Vaxtafrádráttur þar frá Útsvar Tekjuskattur 50 þús. 141.000 192.900
Samtals 333.900
3. fjölskylda. Tekjur eiginmanns Tekjur eiginkonu 600,000 900.000
1.500.000
Fjárfesting Skuldir Vextir 3.000.000 2.500.000 250.000
Útsvar Tekjuskattur 141.000 82.900
Samtals 223.900
4. fjölskylda Tekjur eiginmanns Skattfrjálsar vaxtat. 750.000 750.000
1.500.000
Útsvar Tekjuskattur 66.000 42.900
Samtals 108.900
Af þessu má ráða að gifurleg
mismunun er á skattlagningu hjá
þessum hjónum, en hjónin, sem
fyrst eru nefnd, greiða næstum
fimmfaldan skatt þeirra hjóna,
sem siðast eru nefnd.
þeas. undir hvaða kring-
umstæðum það væri gert.
Fyrir svörum hjá Reykjavikur-
borg varð Hjörtur Hjartarson, og
sagði hann að ekki væri mikið um
að borgin keypti slik bréf, en þó
kæmi það fyrir, og væri þá helst
um að ræða þegar efnalitið fólk
festi kaup á ibúðum, sem borgin
hefði átt. 1 slikum tilvikum væri
oft um að ræða, að borgin lánaði
hluta kaupverðsins gegn skulda-
bréfi, og eins væri hitt, að sumt af
þessu fólki ætti ef til vill skulda-
bréf, handhafabréf, sem borgin
tæki sem greiðslu fyrir hluta
kaupverðsins.
Björn Vikingurvarð fyrir svör-
um hjá Afengis og tóbaksverslun
rikisins og sagði að ATVR keypti
ekki skuldabréf, heldur væri hér
um að ræða handveð til trygging-
ar á vöruúttektum fyrirtækjanna.
—úþ
Benedikt Gislason frá Hofteigi:
Rétt lögberg
Svohljóðandi grein stendur i
Grágás, elstu lögbók íslendinga, i
28. kapitula i þingfararbálki um
dómsútfærslu á Alþingi:
„Dómar skulu fara út þann
dag er menn kveða á og eigi siðar
en sól kemur á gjábakka hinn
hærri frá lögsögumannsrúmi að
sjá”.
Hér er staðurinn ákvarðaður.
Lögsögumannsrúm er það sama
og lögberg. Þetta lögsögumanns-
rúm er á völlunum undir land-
svæði þvi er hefur að geyma Al-
mannagjá og þar á völlunum sem
glögglega sést að vestri Al-
mannagjárbarmur er hærri en
hinn eystri. Það er á litlu svæði
undir Almannagjársvæðinu sem
gefur að sjá (orðalagið kemur
(kömr) segir það) að þá er sól enn
ekki gegnt Lögbergi er hún kem-
ur á gjárbakkann, til að hverfa
sjónum manna I lögsögumanns-
rúmi. Væri þingið fyrir vestan
þann stað er sól kemur á gjár-
bakka hinn hærri, væri orðalagið:
er sól fer undir gjárbakka hinn
hærri. En slíkur staður gefst
trauðlega á völlunum,hvorki fyrir
neðan eða ofan öxará.
Ég vildi kanna hvert sannleiks-
gildi þessi lagagrein gæti haft, þvi
sýnast má þaö aö um mánaða-
mótin júni og júli gangi sól seint
úr sjónmáli á viðum völlum,þótt
þeir takmarkist af nokkurri hæð
að norðanverðu. Laugardaginn
29. júni s.l. fór ég á Þingvelli til að
athuga þetta ásamt fleiri mönn-
um, og var Arni sonur minn i för
inni, sá er kannaði mest fyrir mig
hugsanlega staði fyrir Lögberg
undir norðurhliðinni og fyrstur
gekk á þann hól er við ákváðum
að hlyti að vera Lögberg, lög-
sögumannsrúm i Grágás. Við
hugðum að vart mundi þetta
verða að sól kæmi á gjábakka
hinn hærri fyrr en klukkan niu á
nútimaklukku og hófum för i
samræmi við það. Við komum að
áður ákvörðuðu Lögbergi kl. 8.50,
og hafði sól þá komið á gjábakka
hinn hærri fyrir nokkurri stund
svo að skuggi stóð yfir 1/4 vallar
að norðan. Hádegi þennan dag
var klukkan 13.30, og þar sem sól
var sest og þetta fáum dögum
fyrr en Alþingi var sett að fornu
lagi, þá er sól komin á gjábakka
hinn hærri um og fyrir klukkan
sjö á réttum sólargang um það
leyti er Alþingi var sett til forna.
Verður nú engu hrundið um
ákvörðunarstaö fyrir þinghelgi
íslendinga þegar Lögberg var
þess æðsti staður, og i fullu sögu-
legu ljósi má þetta allt skoðast
ósnotriö enn i dag að mestu.
REYKJAVÍK
ÞJÓÐHÁTÍÐ
1974
I tilefni
1100 ára
byggðarí
Reykjavík
hefur Þjóðhátíðar-
nefnd Reykjavíkur
1974 látið gera
þessa minjagripi:
Minnispening um landném
Ingólfs Arnarsonar. 70 mm
í þvermál. Afhentur í
gjafaöskju.
Upplag:
Silfur, 1000 stk. kr.
lO.OOO./pr. stk.
Bronz, 4000 stk. kr.
3.000./pr. stk.
Teiknaöur af Halldóri
Péturssyni.
Framleiðandi: Is-Spor h.f.
Útsölustaöir:
Skrifstofa Þjóðhátiðarnefndar
Reykjavikur, Hafnarbúðum.
Landsbanki fslands.
Frímerkjamiðstöðin,
Skólavörðustlg.
Veggskjöld úr postulíni
framl. hjá Bing og Grön-
dahl í Kaupmannahöfn í
aðeins 4000 eintökum.
Teiknaður af Halldóri
Péturssyni.
útsölustaðir:
Thorvaldsenbazar, Austurstræti.
Rammagerðin, Hafnarstræti
Raflux, Austurstræti
Isl. heimilisiönaður, Hafnarstr.
Frimerkjamiðstööin, Skóla-
vöröustig.
Æskan, Laugavegi.
Domus, Laugavegi
Geir Zoega, Vesturgötu
Rammageröin, Austurstræti
Bristol, Bankastræti
isl. heimilisiön. Laufásvegi
Mál & menning, Laugavegi
Liverpool, Laugavegi
S.I.S. Austurstræti.
Rósin, Glæsibæ
Gjafabúðin, Vesturveri