Þjóðviljinn - 21.07.1974, Blaðsíða 6
6 SÍÐA —JÓOVILJINN Sunnudagur 21. júU 1*74.
DIOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALYÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson (áb)
Fr^ttastióri: Eysteinn Þorvaldsson
Ritstjórn, afgrelösla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur)
iPrentun: Blaöaprent h.f.
BEINU SKATTARNIR LÆKKA
Skattskráin i Reykjavik kom út nú fyrir
helgina, og um þessar mundir er fólk um
land allt að fá i hendur skattseðla sina.
Þetta er fyrsta skattálagningin eftir þær
breytingar, sem gerðar voru á skattalög-
um i vetur i samræmi við samkomulag
rikisstjórnarinnar og verkalýðshreyfing-
arinnar. Með þeim lögum voru tekjur rik-
isins af tekjuskatti lækkaðar um milli 40
og 50%, sem þýðir hátt i þrjá miljarða
króna.
Beinir skattar eru þvi i ár mun lægri hjá
öllum almenningi, en verið hefði sam-
kvæmt þeim skattalögum, sem i gildi voru
á siðasta ári, og gerðu þau þó ráð fyrir
vægari skattheimtu á almenningi heldur
en skattalögin,sem viðreisnarstjórnin
setti i lok ferils sins, en aldrei komu til
framkvæmda, vegna valdatöku vinstri
stjórnarinnar.
Persónufrádráttur er nú kr. 238.000,-
fyrir einstakling, kr. 355.000,- fyrir hjón og
kr. 50.000,- fyrir hvert barn á framfæri.
Á skattgjaldstekjur frá 0-100.000.00
krónur leggst nú 20%, á skattgjaldstekur
milli 100.000,-og 200.000.-kr. koma 30% á
skattgjaldstekjur yfir 200.000,- 40%.
Til að létta skattbyrði á láglaunafólki
var siðan sett i lögin i vetur sérstakt
ákvæði um almennan skattafslátt, sem
allir fá samkvæmt sömu krónutölu, hvort
sem tekjur eru miklar eða litlar. Þessi af-
sláttur nemur hjá einstaklingi kr. 11.000,-,
hjá hjónum kr. 18.500,- og siðan kr. 3.300,-
fyrir hvert barn á framfæri.
Þá er einnig i lögunum fra þvi i vetur
sérstakt ákvæð um greiðslu til þeirra
aðila, sem hafa svo lágar tekjur, að þeir
hefðu samkvæmt eldri skattalögum átt að
greiða annað hvort engan tekjuskatt eða
lægri tek juskatt en nemur hinum almenna
tekjuafslætti.
Éinstaklingur, sem engan tekjuskatt
hefði samkvæmt eldri lögum, fær þá
beinlinis greiddar hjá rikinu kr. 11.000,- og
hjón kr. 18.500,-, þ.e. þá upphæð sem nem-
ur hinum almenna skattaafslætti. Væri
tekjuskatturinn hins vegar einhver
samkvæmt eldri lögum, en hinsvegar t.d.
innan við kr. 11.0000,- samt hjá einstakl-
ingi, þá fá menn greiddan mismuninn, og
borga engan tekjuskatt.
í Reykjavik einni eru það nær 20 þús .
manns, sem njóta slikrar greiðslu frá rik-
inu.
Þarna ber sem sagt nýrra við, þegar
rikið fer að borga mönnum út öfugan
skatt, i stað þess, að menn borgi rikinu, og
heitir slikt trúlega á máli Morgunblaðsins
að efnt sé til veisluhalda fyrir óverðuga,
eins og sama blað kenndi, þegar núver-
andi rikisstjórn lét það verða eitt sitt
fyrsta verk að stórhækka tryggingabætur
gamals fólks og öryrkja.
Rétt er að rif ja hér upp nokkur dæmi um
það, hvað tekjuskattur manna lækkar,
vegna lagasetningarinnar i vetur og er þá
i öllum dæmunum gert ráð fyrir, að frá-
dráttur annar en persónufrádráttur nemi
kr. 100.000,-.
1. Hjón með þrjú börn og 800 þús. kr. i
brúttótekjur á fyrra ári lækka um kr.
60.200,-
2. Hjón með tvö börn og 700 þús. kr. i
brúttótekjur á fyrra ári lækka um kr.
47.800,-.
3. Hjón með fjögur börn og eina miljón i
brúttótekjur á siðasta ári lækka um kr.
71.200,-.
4. Barnlaus hjón með kr. 900 þús. i
brúttótekjur á fyrra ári lækka um kr.
55.400,-.
Þannig mætti halda áfram, að rekja, en
slikt er óþarft, þvi að skattseðlarnir s jálfir
tala sinu máli.
Hver veit nema það verði þvi ýmsir,
sem taka undir með bilstjóranum, sem
sagði þegar hann fékk upp skattinn sinn
niðri i Hafnarbúðum á föstudaginn:
,,Ef ég hefði vitað þetta, hefði ég sko
aldeilis ekki kosið Sjálfstæðisflokkinn.”
VIÐ HYLLUM ÁHÖFNINA Á VARÐSKIPINU ÞÓR
1 gær gerðist sá ánægjulegi atburður i
fyrsta sinn siðan landhelgin var stækkuð i
50 milur fyrir tæpum tveimur árum, að is-
lenskt varðskip færði breskan landhelgis-
brjót til hafnar.
Breski togarinn Forester undir skip-
stjórn manns, sem margdæmdur er fyrir
landhelgisbrot hér á íslandi, var staðinn
að ólöglegum veiðum, og það meira að
segja innan gömlu 12 milna markanna, út
af Hvalbak.
Það var varðskipið Þór, sem eftir lang-
varandi eltingarleik stöðvaði togarann
með föstu skoti i vélarrúmið, setti menn
um borð og færði hann til Seyðisfjarðar.
Skipherra á Þór er Höskuldur Skarp-
héðinsson.
Með töku þessa togara hefur verið sann-
að, að varðskipsmenn okkar geta haft i
fullu tré við hina erlendu ránsmenn á ís-
landsmiðum, en um það voru ýmsir farnir
að efast, þar sem svo langt er um liðið sið-
an erlendur togari hefur verið tekinn.
Þetta er sérstakt fagnaðarefni fyrir alla
þá, sem jafnan hafa kvatt til þess, að er-
lendum veiðiþjófum væri engin linkind
sýnd.
Þjóðhátið fer i hönd. Til hennar ganga
menn glaðari og uppréttari eftir þetta af-
rek Höskuldar skipherra og manna hans.
Þjóðviljinn hyllir áhöfnina á Þór og
þakkar drýgða dáð. Þjóðin öll fagnar sigri
varðskipsmanna. Þeirra sigur er okkar
sigur.
OG SKÚRIR
SKIN
Nú eru Reykvikingar búnir að
fá tilkynningar frá Gjaldheimt-
unni um það hversu háan skatt
þeim beri að greiða I ár, og
reyndar hafa fleiri landsmenn
einnig fengið að vita hið sama. Að
likindum verður öllum skatt-
greiöendum orðiö þetta ljost
sfðast i næstu viku.
Ef til vill er það einkenni á við-
brögðum manna við skattseðlin-
um þetta árið, að menn gjóa ekki
illyrmislegum augum á hann
heldur brosa við honum. Þetta á
mannfólkið þvi að þakka, að slíku
moldviðri hefur verið þyrlað upp
undangengin misseri yfir skatt-
píningu, skattaáþján og óáran
alls konar af þessum sökum, að
búist var við einhverju ægilegu.
Hins vegar spjaraði rikisstjórnin
sig einkar vel i skattamálum og
gerði tam. breytingu á skattalög-
gjöfinni eftir áramótin siöustu,
sem meöal annars valda þvi, að
skattar á lágtekjufólki og mið-
lungstekjufólki eru nú lægri en
þeir hafa lengst af verið.
Helstu breytingarnar, sem
rikisstjórnin lét gera á skattalög-
unum voru þær, að bilin milli
skattaþrepanna voru lengd, og
fyrsta þrep hækkað. Þá var
álagningarprósentan lækkuð.
Nú greiðast til dæmis 20% i
tekjuskatt af allt að 100 þúsund
krónum, en var 25% af fyrstu 64
þúsundunum. Nú greiðast 30% af
100-200 þúsund krónum, skatt-
skyldum tekjum, en var við
siöustu álagningu 35%, af tekjum
frá 64 þús. að 96 þús. 44% skyldi
samkvæmt lögunum greiðast af
skattskyldum tekjum yfir 96
þúsundum, en nú á aö greiða 40%
af skattskyldum tekjum yfir 200
þúsund. Þetta er samkvæmt yfir-
lýsingu rikisstjórnarinnar um
skattamál.
Þá var persónufrádráttur
hækkaður verulega: fyrir ein-
staklinga úr 185.600 I 238 þúsund,
fyrir hjón úr 281.600 I 338 þúsund
og fyrir hvert barn undir 16 ára
aldri á framfæri framteljanda
hækkaði frádrátturinn úr 38.400 I
46.200 krónur.
Endurgreiðsluskattur!
Ein meginbreyting, sem gerð
var á skattalögunum er enn óupp-
talin. Hún er sú, að vegna
hækkunar söluskatts, skal dregið
frá skatti hvers einstaklings 11
þúsund krónur: frá skatti hjóna
18.500 krónur, og 3.300 krónur fyr-
ir hvert barn undir 16 ára aldri á
framfæri skattgreiðenda.
Og til þess að reka endahnút
hér á, var það einnig sett i lög, að
heföi fólk ekki fengið þann tekju-
skatt samkvæmt lögunum, sem
giltu þar til breytingarnar tóku
gildi, sem frádráttarupphæðinni
nam, greiðir rfkisssjóöur fram-
teljandanum fé , I stað þess
að framteljandi greiði fé I rikis-
sjóð.
Ef tekiö er eitt dæmi, litur það
þannig út.
Hjón með þrjú börn, sem ekki
hefðu greitt neinn tekjuskatt fyrir
árið i ár, samkvæmt eldri skatta
lögum, skulu fá greitt úr rikis-
sjóði krónur 18.500 að viðbættum
3.300 krónum þrisvar sinnum, eða
samtals 28.400 krónur. Þannig
greiðir rikissjóður 19.256 fram-
teljendum i Rvik nú um 193 milj.
kr. af þessum sökum.
tJr skattskránni
Skattaskráin er að mörgu leyti
forvitileg bók. Þar má meðal
annars lesa það, að Reykviking-
arjeinstakl., greiða rétt tæpar 35
miljónir i kirkjugarðsgjöld, en
rúmar 47 miljónir I kirkjugjöld.
Fleiri einstaklingar i Rvik greiða
kirkjugjöld en nokkurn annan
skatt, eða 36.173 einstaklingar.
Ef viö þær tölur, sem hér voru
nefndar um greiðslur til
kirkjugarða, er bætt þeim upp-
hæðum, sem félög og fyrirtæki
greiða, hækka tekjur kirkjugarð-
anna um tæpar 11 miljónir, en
fyrirtæki og félög virðast ekki
greiða nein kirkjugjöld.
Þá er þaö og athyglisvert, að
eignaskattur einstaklinga i Rvik
er aöeins um 4 miljónum króna
lægri en eignaskattur fyrirtækja,
en samtals greiða einstaklingar
og fyrirtæki i Rvik rúmlega 223
miljónir I eignaskatt.
Heildarskattlagning á út-
lendinga, sem tekjur höfðu i Rvik
áriö 1973, var tæplega 42 miljónir
króna, en Islenskir einstaklingar
og fyrirtæki á sama stað greiða
rúmlega 12,2 miljarða.þegar allir
skattar eru taldir og saman-
lagðir.
Láglaunamaðurinn
Sá maður, sem blað alþýðunnar
i landinu, Alþýðublaðið, útnefnir
sem skattakóng er Pálmi Jósson I
Hagkaupum. Hann greiðir i
samanlögð gjöld 5 miljónir 478
þúsund krónur.
En þar með er ekki öll sagan
sögö.
Pálmi þessi hefur sultarlaun, er
reyndar láglaunamaður eða þvi
sem næst. Otsvarið hans er nefni-
lega ekki nema 76 þúsund, sem
bendir til þess, að hann hafi undir
800 þúsund krónur i árslaun. Það
hlýtur að vera bölvað að greiða
tæplega fimm og hálfa miljón i
skatt af 800 þúsundum.
Hins vegar hefur kollegi
Pálma, kaupmaðurinn Rolf
Johansen, um eitthundrað og
áttatiu þúsund krónum lægra i
heildargjöld, en hins vegar um tiu
sinnum hærri laun, ef marka má
útsvarsgreiðslu hans, en hann
greiðir I útsvar 749 þúsund krón-
ur, sem þýðir að hann hafi 7 og
hálfa miljón krónur i árslaun eða
625 þúsund á mánuði. Þannig
hefur Rolf á einum mánuði næst-
um eins mikil laun og Pálmi á ári.
Frádráttur i lagi
Bjarni er maður nefndur. Hefur
hann i skattskrá aukastafinn I, og
er Agústsson og býr að Kvisthaga
25. Sá greiðir 1 miljón 846 þúsund
krónur i heildargjöld, og er talinn
vera 38. i röð hæstu skattgreið-
enda i borginni.
En sá hefur frádráttinn i lagi.
Þvi þrátt fyrir upphæð gjald-
anna greiöir hann ekki eina
einustu krónu i tekjuskatt. Þvi
miður er ekki ljóst hvort hann fær
endurgreitt úr rikissjóði nokkur
þúsund krónur eins og áður er
sagt frá að gert er við þá,sem
lægstar hafa tekjurnar,en sann-
arlega er'astæða til að miskunna
sig yfir slikan mann.
Birtir til hjá
Þorbirni i Borg
Þvi miður er ekki hægt að ti-
unda allar fréttirnar úr þeirri
ágætu bók, skattskránni, hér og
nú. Vonándi gefst timi og rúm til
frekara yfirlits siðar.
En af gleðitiðindum þaðan
Framhald á 17. siðu.
Úr skattskránni